Helgarpósturinn - 13.08.1982, Síða 25
urinn
Heimsstyrjöldinni þriöju er lokiö.
og allt i ólestri. Svo til allt bensin
búið. Allir berjast því um
eldsneyti á vélfáka sina.
Spennumynd og spennan i há-
marki.
C io óo<^
★ ★ ★
Siðsumar, — sjá umsögn i Lista
pósti.
Flóttinn til Aþenu (Escape to
Athenes). Bresk kvikmynd.
Leikendur: Roger Moore, Telly
Savalas, Elliot Gould, Claudia
Cardinale. Leikstjóri: George
Pan Cosmatos.
More leikur þýskan fangabúöa-
stjóra, sem sér aö hans menn eru
að tapa stríöinu. Hann ákveöur
þvi aö flýja með föngum sinum,
enskyldi þaðtakast?
Hefnd sjóræningjans (The Black
Pirate). Bandarisk kvikmynd.
Leikendur: Mel Ferrer og sveröiö
hans. Leikstjóri: Sergio Sollina.
Hörkuspennandi sjóræn-
ingjamynd, eins og þær gerast
bestar upp á gamla mátann.
Maöurinn með járngrímuna (The
Man in the iron Mask). Bresk
kvikmynd. Leikendur: Richard
Chamberlain, Louise Jordan,
Jennie Agutter, Patrick
McGoohan, Ralph Richardson.
Leikstjóri: Mike Newell.
Mynd þessi er gerö eftir sögu
Alexanders Dumas og segir frá
þvi er einn Loövikurinn skiptir
um hlutverk við bróöur sinn.
Sverö mitt og skjöldur, sómi
Frakklands.
★ ★ ★
Sólin ein var vitni (Evil under the
Sun). Ensk. Argerð 1981. Leik-
stjóri: Guy Hamilton. Handrit:
Anthony Shaffer. Aðalleikari:
Peter Ustinov.
I
■
« Sími 3207S
Flóttinn til sigurs (Escape to Vic-
tory). Bandrisk kvikmynd. Leik-
endur: Michaei Caine, Sylvester
Stallone, Max von Sydow og
knattspyrnuhetjur gamlar og
nýjar. Leikstjóri: John Huston.
Fangar nasista keppa viö herra-
þjóðina i knattspyrnu og ætla aö
nota tækifæriö og flýja.
bokkalega skemmtileg mynd, þó
svo að fótboltinn sé kannski ekki
sá albesti.
A laugardag frumsýning:
Okkar á milli — i hita og þunga
dagsins. Nýjasta mynd Hrafns
Gunnlaugssonar, myndin sem
beðið er eftir
laugaf
A-salur
Bara við, væna min (Just You
and Me, Kid). Bandarisk kvik-
mynd, árgerð 1980. Leikendur:
Brooke Shields, George Burns,
Burl Ives. Leikstjóri: Leonard
Sterm.
Bráðfjörug og skemmtileg
gamanmynd um samskipti
gamlas manns og ungrar stúlku,
sem hann finnur i öskutunnunni
hjá sér. Þó nokkuð um hlátur i
salnum. Kl. 5,7 og 9.
Miðnæturhraðlestin (Midnight
Express). Bandarisk kvikmynd.
Leikendur: Brad Davis o.fl.
Leikstjóri: Alan Parker. Hörku-
spennandi og skemmtileg kvik-
mynd um ævintýralegan flótta
ungs Amerikumanns úr tyrk-
nesku fangelsi. Sérlega skemmti-
!eg og vel gerö mynd. Sýnd kl. 7.
B-salur: ★ ★
Cat Ballou. Bandrisk kvikmynd,
árgerð 1965. Leikendur: Lee Mar-
vin, Jane Fonda, Nat King Cole.
Leikstjóri: Elliot Silverstein.
Stórkostlega skemmtileg og fynd-
in kúrekamynd. Tekiö er til þess
hve vel Marvin stendur sig, enda
fékk hann óskarinn fyrir
frammistööuna. Mynd, sem kem-
ur öllum i gott skap.
Sýndkl 9og 11.
B-salur: *
Þá veröur einhver lauflétt mynd
sýnd meö.
Bíóbær:
Ógnvaldurinn (The Parasite).
Bandarisk kvikmynd. Handrit:
Allan Adler. Leikendur: Robert
Glaudini, Demi Moore. Leik-
stjóri: Charles Band.
Framtiöin. Visindamaöur fær þaö
verkefni aö framleiöa sýkla til
notkunar i hernaöi, en auðvitaö
verður framvindan önnur en til
stóö. Þrividdarbrellur og passiö
ykkur á tveim fremstu bekkj-
unum. Þar er hættulegt aö sitja.
1-15-44 ★★
Kagemusha. Japönsk kvikmynd,
árgerð 1980. Leikendur: Tatsuya
Nakadai, Tsutomu Yamazaki,
Kenichi Hagiwara. Handrit og
leikstjórn: Akira Kurosawa.
Þrátt fyrir þaö, aö sjónrænt sé
Kagemusha einatt magnaður
gerningur, myndataka og litaspil
i búningum og leikmynd áhrifa-
mikiö, einstakar sviössetningar,
einkum bardagaatriði, meö hand-
bragði meirarans, þá er eins og
hinn mannlegi þáttur, persónurn-
ar, sem við fylgjumst meö, öölist
aldrei neina dýpt. Inniatriöin,
hvort heldur sem þögn rikir eöa
samtöl, eru — meö undantekning-
um — fjarlæg, langdregin og
dramatisktslöpp— leyfist mér að
segja leiðinleg? Þaö er engu aö
siður áhugaveröara aö horfa á
Kagemusha en obbann af þvi dóti
sem uppá er boöiö i bióunum
núna. —ÁÞ
Sjá dagblöðin um sýningar með
Kagemusha.
Tjarnrbíó:
Amerisk kvikmyndahátiö hefst
um helgina, á laugardag, nánar
tiltekiö. Sjá nánar um þaö á for-
siöu LV. Sýningar helgarinnar
verða sem hér segir:
Laugardagur:
Kl. 3. Hjartaland. Landnám vest-
ursins séö frá sjónarhóli konunn-
ar. Frábærlega vel gerö kvik-
mynd.
Kl. 5 Kaffistofa kjarnorkunnar.
Heimildakvikmynd unnin úr
gömlum áróöurskvikmyndum
B a n da r ik j a s t j ór n a r um
kjarnorkusprengingar og áhrif
þeirra.
Kl. 9 Kaffistofa kjarnorkunnar.
Kl. 11 Neöanjarðarknaparnir,
Einhver bésta mynd amerisku
nýbylgjunnar. Segir frá lifi fólks,
sem býr i útjaöri þjóðfélagsins.
Sunnudagur:
Kl. 3 Kaffistofa kjarnorkunnar.
Kl. 5 Hjartaland-
Kl.9 Kaffistofa kjarnorkunnar.
Kl. 11 Varanlegt friLjóöræn kvik-
mynd, sem endurspeglar vel ör-
væntingu ameriskrar pönkæsku.
Flugmaðurinn — sjá umsögn i
Listapósti.
★ ★
Hvellurinn (BIow Out). Banda-
risk kvikmynd, árgerð 1981. Leik-
endur: John Travolta, Nancy All-'
en. Handrit og leikstjórn: Brian
DePalma.
John Travolta leikur hljóðupp-
tökumann við gerð þriðja flokks
kvikmynda og er reyndar þriöja
flokks hljóöupptökumaöur eftir
þvi hvernig hann handleikur
hljóðnemann og hvernig hann
vinnur við klippiborðið.
★ ★ ★
Ameriskur varúlfur i London (An
American Warcwolf in London)
Bandarisk kvikmynd, árgerð
1981. Leikendur: David Naugton,
Jenny Agutter, Griffin Dunne!
Handritog leikstjórn: John Land-
is.
Pfkuskrækir (Pussy Talk). Djörf
kvikmynd. Leikendur: Penelope
Lamour, Nils Hortzs. Leikstjóri:
Frederic Lansac.
Breaker, Breaker. Bandarisk
kvikmynd. Leikendur: Chuck
Norris, Terry O’Connor.
Trukkarnir á fullu og samkeppnin
lika. Aö sjálfsögöu fylgja slags-
málin meö.
★ ★ ★
• Fram I sviðsljósið (Being There)
Bandarisk, árgerð 1981. Handrit
, Jerzy Kosinski, eftir eigin skáld-
sögu. Leikendur: Peter Sellers,
Melvyn Douglas, Shirley
MacLaine. Leikstjóri: Hal Ashby.
i
' S
Úr matarmyndastúdíói
Eg endaði vist siöasta pistil á aö segja sem svo
aö ljóðagerð og matargerö væru fyrsta flokks
streitumeöul. En allt getur snúist upp i and-
hverfu sina, það sannreyndi ég i vikunni sem leið
mér til sárrar hrellingar á sál og likama. Um
þessar mundir er ég að skrifa matreiöslubók og
þegar ég-gekkst inn á þaö, hugsaði ég með mér
að ég þyrfti „bara” að skrifa textann. Þá óraöi
mig ekki fyrir þvi stússi sem fælist i aö ákveða
brot og útlit bókarinnar, uppsetningu, li tur
o.þ.u.l., sem eru þó aðeins barnavipur miðaö viö
aö taka ljósmyndir af hinum ýmsu réttum bók- /
arinnar eins og siðar kom á daginn.
Reyndar tekur vinkona min myndirnar, en ég
elda alla réttina og hjálpa til við að stilla upp.
Viö hélduní aö hagkvæmast væri aö mynda
svona tiu rétti á dag, en það þýddi aö ég var eld-
andi meira og minna sleitulaust I 16 tima. A
fjórða rétti var mér oröið bumbult, þvi viö stöll-,
ur höföum reynt aö torga réttunum jafnóöum og
gripum við þvi til þess ráðs aö safna saman
svöngum vinum til að hesthúsa þá sex rétti sem
eftir voru. Mig sárverkjaði og i bakið, þvi til-
raunaeldhúsið mitt er undir súö og vinnuboröiö
alltof lágt íyrir himnalengju eins og mig.
En sárgrætilegast a.f öllu var þó að ýmsir ljúf-
fengir réttir og hráefni reyndust alls ekki nógu
myndræn (fótógenisk), vildu ekki festast á filmu
með þeim hætti sem til stóð. Brauð verða t.d.
alveg ótrúlega grámygluleg á mynd, skást eru
þau pensiuð með eggjahvitu. Soðnir eöa steiktir
laukhringir vilja fremur likjast ormum en
krydduðu lostæti, sem bráönar á tungunni, en ég
þvertók samt fyrir aö hressa upp á útlit þeirra
með gulum matarlit.
Eins kom ekki til nokkurra mála aö nota tré-
spiritus i staö koniaks við bananablossann, þó
glaðar logi með því móti. Lái mér hver sem
vill. Hins vegar féllst ég á aö pússa alla á_yexti og
grænmeti meö mataroliu og stökkva svo á þau
vatni. Fleiri myndrænar málamiðlanir koma
ekki til greina. En af fyrstu þremur filmunum
lærðist alltént, að réttavalið þarf aö gaumgæfa
vandlega. Appelsinusósur myndast t.d. sérlega
vel, bæöi meö lúöu og lifur, svo og ostasósur með
dökku kjöti.
Að þessari reynslu fenginni mun ég aðeins
mynda tvo rétti i einu, annars endar þetta með
þvi að matseld fer aö vekja hjá mér heidur
hvimleiðar kenndir og tvisýnt verður hvort mér
tekst aö ljúka bókinni. Ég veit aö slik endalok
myndu baka mörgum sorg, og enn öörum vand-
ræöi...
Éger reyndar búin að jafna mig á sálinni eftir
fyrstu þrjá myndatökudagana, og matarlystin
komin i lag. En likaminn ber enn sin verksum-
merki: 25 marbletti, svööusárá hægri augabrún
og hálfgildings glóöarauga (eöa græna kinn öllu
heldur), þvi ýmist rak ég mig á skáphurðir, tól
hangandi undir súðinni eða húsgögn þar sem ég
skreið um stofugólfiö til að tengja lampa eða
reyna að fá laukhringina til að dansa slöngudans
upp úr súpuskálinni.
Slæ ég nú botninn i þessa harmsögu reynslunni
rikari, tek gleði mina á ný og set saman hátið-
legan matseöil meö þremur réttum sem mynd-
uðust afar vel, og smökkuðust þeim mun betur,
aö sögn þeirra sem átu...
Brauð með rækjum og kavíar
Þetta er fagur forréttur, léttur i maga og fljót-
legur i tilbúningi. Uppskriftin miöast við fjórar
brauösneiðar og fer það eftir magamáli hvort
þiö reiknið meö einni eða tveimur brauðsneiðum
ámann.
300 g rækjur
U.þ.b.4 msk svört grásleppuhrogn (isl.kaviar)
1 msk saxaður laukur
u.þ.b. 1 dl sýrður rjómi
4 brauðsneiöar
nokkur salatblöð
1 sitróna
smjör
1. Skerið skorpuna utan af brauösneiöunum,
smyrjið þær og leggið eitt litiö salatblað á
hverja sneið.
2. Saxiö iaukinn afar smátt, hræriö honum sam-
an viö rækjurnar og sýröa rjómann og deilið"
þessu niður á brauösneiðarnar.
3. Setjið u.þ.b. eina matskeið af kaviar ofan á
hverja brauðsneið, eins varlega og þið getið,
þvi blessuö hrognin eru dálitjö völt.
4. Berið fram meö salatbíöðum og sitrónubát-
um.
' /
Nautabuff meö ostasósu
Einfaldur.myndrænn hátiöaréttur (nautakjöt
eróguðlega dýrt hérlendis! ).Uppskriftin er fyrir
fjóra.
4 stór nautabufl
smjör til steikingar
kryddsalt, jurlasait eða venjulegt salt
nýmalaður pipar
Fyllingogsósa: >
2dósir kryddostur (200 g)
I rauð paprika
1 græn paprika
u.þ.b. 1 dl af þurru hvítvini
1 dl rjómi
1. Takið kryddostinn út úr isskápnum meö góö-
um fyrirvara, þvi best er aö hann 'sé sem
mýkstur. Fjarlægiö kjarnana innan úr paprik-
unum og skerið þær i þgnnar sneiðar og siöan i
litlabita. |
2. Berjið buffin kröftuglega (islensk buff eru i
þykkasta lagi) meö kjöthamri eða t.d. tómri
flösku, snöggsteikið þau i smjöri og kryddið
með salti og nýmöluöum pipar. — 1 þessu tll-
viki mæli ég eindregiö meö jurtasalti. — Setjiö
buffin á diska (helst heita), smyrjiö öörtjm
kryddostinum (100 g) yfir helming hverrar
sneiöar, brjótiö þær saman og stingiö inni
vblganofn.
3. Þá er það sósan. Helliö nokkrum matskeiðum
af vatni saman viö kjötkraftinn á pönnunni og
látið suðuna koma upp. Bræðið seinni krydd-
ostinn saman við, hræriö þvi næsFútvi ^ósuna
rjóma, hvitvini og paprikubitum. Kryddiö
frekar meö pipar og jurtasalti, ef ykkur finnát
ástæöa til. Takið fram kjötdiskana og hellið
sósunniyfirbuffin.
Soðnar kartöflur og snittubrauð er fyrirtaks
meðlæti með þessum rétti, en einnig einfalt hrá-
salat.
Fersktávaxtasalat
Þegar menn eru orðnir mettir afjiautakjöti er
fátt eins friskandi fyrir bragðlaukana og hvetj-
andi fyrir blóðrásina og ferskt ávaxtasalat, t.d.
á borð við það sem hér fer á eftir. Uppskriftin er
fyrir fjóra, undirbúningstimi er u.þ.b. 15 min.
Gætið þess aðeins aöhráefniö sé vel kælt áður en
þiðhefjisthanda.
4bananar
2 appelsinur
3 msk romm (má sleppa)
3 dósir af hreinni jógúrt
u.þ.b. 6 msk strásykur
1. Afhýðiö ávextina, sneiðið niður bananana og
skerið appelsinurnar i litla bita. Hellið romm-
lögginni yfir.
2. Setjið jógúrtinaog sykurinn isalatskál, gjarn-
an glerskál, og hfæriö hressilega i. Setjið
ávaxtabitana saman viðog berið fram.
Verði ykkur aö góðu.
i I