Helgarpósturinn - 01.12.1983, Blaðsíða 27
s
^^^tyrjöld virðist 1 uppsiglingu
vegna dóms Hæstaréttar í máli því
sem LIFE höfðaði á hendur Frjáls
framtaks vegna nafnsins LÍF á einu
tímariti fyrirtækisins. Sem kunnugt
er bannaði Hæstiréttur Frjálsu
framtaki að nota nafnið LIF á þeirri
forsendu að hætta væri á því að fólk
ruglaðist á nöfnunum en LIFE hafði
nafn sitt sem skráð vörumerki á Is-
landi. íslenskufræðingum finnst
dómur Hæstaréttar í meira lagi
hæpinn og hefur hópur þeirra unn-
ið að því að undanförnu að skrifa á-
litsgerð um málið sem síðan mun
ætlunin að leggja fyrir mennta-
málaráðherra og alþingismenn í því
skini að knýja fram breytingar á
lögum sem útiloki að erlent tungu-
mál sé metið rétthærra íslensku á ís-
landi...
D
regið 1 happdrætti SAA eft-
ir helgina og berast nú tillögur um
heiti á nýju sjúkrastöðina í bunkum
inn á skrifstofu samtakanna. HP
hefur hlerað nokkrar tillögur:
Góðrarvonarhöfði, Staupasteinn,
Mjaðarendi, Svampasel, Vonar-
landi, Hilmarsholt, Binnaból,
Björgólfsbæli. Heitið Betlehem hef-
ur orðið mjög vinsælt eftir að það
birtist í blöðunum. Hins vegar botna
starfsmenn skrifstofunnar ekkert í
heiti sem datt inn um daginn:
Nasaret. Nema að kó íainistum fari
fjölgandi...
Íægasta popphljómsveit íslend-
inga erlendis, Mezzoforte, mun
fyrirsjánlega starfa þar áfram allt
næsta ár. Þegar er nánast búið að
ganga frá dagskrá fyrir hljómsveit-
ina fyrri hluta ársins, en plata sú
sem hér kemur út fyrir jólin kemur
út ytra fyrri hluta janúar. Síðan taka
við hljómleikaferðir um Bretland,
Japan og meginland Evrópu, og
jafnvel líka Suður-Afríku, en þess
má geta að Mezzoforte hefur gert
það að skilyrði að í þessu landi að-
skilnaðarstefnu muni hún leika fyrir
blakka jafnt sem hvíta...
ifæí
_lnegasta popphljómsveit fslend-
inga innanlands, Stuðmenn, stend-
ur einnig í stórræðum svo sem ráða
má m.a. af bókinni Draumur okkar
beggja sem kynnt er á bls. 13 í HP
í dag. Þar fyrir utan eru Stuðmenn
nú með í bígerð nýja bíómynd til að
fylgja eftir ,,söxesnum“ Með allt á
LAUSN Á
SKÁKÞRAUT
23. Úr tefldu tafli
1. DhG-Hg8
2. Hd8! og vinnur.
24. Letzen
1. Hc4! er eini leikurinn sem
leiðir til máts í næsta leik,
hvernig sem svartur fer að.
Við öllum öðrum (líklegum)
hróksleikjum á svartur vörn
sem dregur mátið um einn leik
að minnsta kosti.
Athugaðu það!
hreinu, og söngleik til flutnings á
leiksviði..
R
wMF okaútgefendur munu hafa
verið mjög kvíðandi því að bóksala
myndi dragast verulega saman í ár
vegna kreppunnar og peninga-
leysis. Svo kann þó að fara að bókin
haldivelli í samkeppni við annað á
jólagjafamarkaðinum og mun hún
hafa farið mjög sæmilega af stað.
Það mun hins vegar staðreyrid að
bækur eru nú „undirverðlagðar"
eins og bókaútgefendur kalla það
og þurfa þeir því að selja fleiri ein-
tök af hverri bók en áður til þess að
komast á núllið...
s
igurður Sigurðarson sem
gefið hefur út tímaritið Afanga und
anfarin ár, en það fjallar um ferðir
og ferðalög innanlands, er nú sagð-
ur hafa í hyggju að færa út kviarnar,
þ.e. taka einnig til ferðalaga erlend-
is, annað hvort með sérstöku tíma-
riti eða með því að breikka grund-
völl Áfanga...
|k|
H ú mun afráðið að fyrir-
tækið Nýtt líf sf., sem þeir standa að
Þráinn Bertelsson og Jón Her-
mannsson, taki hvorki meira né
minna en tvær kvikmyndir á næsta
ári, enda gengur samnefnd bíó-
mynd vel í landann. Fyrst verður
ráðist í gerð myndar sem heitir
Skammdegi og verður hún tekin í
Arnarfirði í febrúar, og svo hefjast
tökur við „Nýtt líf II" á Snæfellsnesi
í maí ef allt gengur að óskum...
H
■ ■ agsmunasamtök versl-
unarmanna virðast ekki styðja við
bak einstakra verslunargreina. Alla
vega var haldinn fundur á Hotel
Esju sl. mánudagskvöld og voru þar
saman komnir eigendur sportvöru-
verslana og innflytjendur íþrótta-
vara í því skyni að stofna sérsam-
tök. Kom fram á fundinum gremja í
garð Verslunarráðs, Félags ís-
lenskra stórkaupmanna og Kaup-
mannasamtakanna sem gættu ekki
hagsmuna sportvöruverslunar-
manna. Undirbúningsnefnd var
kosin á fundinum sem vinna mun
að stofnun samtakanna. Það vakti
mikla athygli manna að aðilum frá
Björgvin Schram h/f var ekki
boðið á fundinn en heildverslunin
flytur inn Adidas-vörur og þykir
standa sterkar á markaðnum en
góðu hófi gegnir...
Arf. 30313
Art 30800
AUt á toppinn
Bílavörubúðin
FJÖDRIM
Skeifan 2 sími 82944
Í;f 1
HELGARPÖSTURINN 27