Helgarpósturinn - 27.06.1985, Side 24
l þessu fjölmiðlafyrirtækjakapp-
hlaupi eru frjálshyggjumenn af ýms-
um gerðum einnig komnir á kreik.
Þannig stendur Jón Ottar Ragn-
arsson, matvælafræðingur og bjór-
unnandi, fyrir fyrirtækinu Kapal-
sjónvarp hf. - íslenska sjónvarps-
félagið. Með Jóni eru Hans Krist-
ján Árnason, Anna Pálsdóttir,
eiginkona Hans, Aldís Elfa Gísla-
dóttir (þjóðleikhússtjóra), sambýlis-
kona Jóns, auk hjónanna Unnar
Friðþjófsdóttur og Eyjólfs K. Sig-
urjónssonar endurskoðanda. . .
Þ
ingmenn jafnaðarmanna,
þeir Guðmundur Einarsson og
Stefán Benediktsson, komu inn á
Hafskipsmáiið i umræðum um
frumvarp til laga um viðskipta-
banka á síðustu dögum Alþingis.
Þar sátu aðrir fulltrúar skattborgara
steinþegjandi undir ræðum þeirra
og létu sér nægja nokkurra setninga
tijbúið svar frá Útvegsbankanum,
sem Matthías Á. Mathiesen-
bankamálaráðherra las í neðri deild
og Valdimar Indriðason formaður
bankaráðs Útvegsbankans i efri
deild. Svo mun Garðar Sigurðs-
son bankaráðsmaður eitthvað hafa
tautað. Samkvæmt upplýsingum HP
vantar Útvegsbankann veð fyrir
lánum Hafskips upp á u.þ.b. 250
milljónir króna og fari Hafskip á
hausinn verða skattgreiðendur að
borga brúsann, því ríkisbankar
„mega ekki fara á hausinn". Við eig-
um hauk í horni, skattborgarar, þar
sem blessaður þingheimur er ann-
ars vegar...
Ljóst er orðið að Magnús
Bjarnfreðsson og Indriði G. Þor-
steinsson setjast ekki í ritstjóra-
stóla NT við hlið Helga Pétursson-
ar. Ástæðan er sögð vera sú að
„ekki hafi gengið saman með þeim“.
Sannleikurinn er hins vegar sá að
þegar SÍS samþykkti á aðalfundi sín-
um fyrir skömmu, að Sambandið
hugaði að útvarps- og sjónvarpsmál-
um, umhverfðist Indriði G. Þor-
steinsson gjörsamlega. Túlkaði
hann þessa samþykkt þannig að SÍS
drægi sig út úr samstarfinu í ísfilm.
Helgi Pétursson var einnig staddur á
aðalfundinum og dró Indriði þá
ályktun að samtengja ætti fyrir-
hugaða útvarps- og sjónvarpsstöð
SÍS við NT og Helgi væri með putt-
ana í þessu samstarfi. Sannleikurinn
er hins vegar sá, að SÍS-samþykktin
er aðeins pappírsályktun og ekkert
samstarf milli NT og SÍS fyrirhugað.
En Indriði, sem mun eiga það til að
draga upp svartar myndir í höfðinu,
sá vonda SÍS-púka út um allt og
hætti við að setjast í ritstjórastólinn
hjá NT — í mótmælaskyni. Magnús
Bjarnfreðsson mun af prínsipp-
ástæðum hafa ákveðið að gera slíkt
hið sama, en mun vera tvístígandi
þessa stundina og gæti vel farið svo
að hann tyllti sér rólega niður í stól
ritstjóra NT við hlið Helga. Hins
vegar hefur stjórn Nútímans hafið
leit að meðritstjóra, og koma margir
til greina. . .
Þessir bílar eru með 13603 vélum sem eru 60 DIN
hestöfl, framhjóladrifnir, með frábæra aksturshæfni
og franska smekkvísi að utan sem innan.
Umboð á Akureyri HAFRAFELL
Víkingur s.f. o Sft % Vagnhöfða 7
Furuvöllum 11 W ríAS ($. “'a r- Reykjavík
S. 21670 símar 685211 og 685537
VERIÐ VELKOMIN
uppákomur
alla daga
Laugard. - sunnud. 12.00-23.30.
Mén. - föstud. 14.00-23.30.
24 HELGARPÓSTURINN