Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 11.07.1985, Qupperneq 5

Helgarpósturinn - 11.07.1985, Qupperneq 5
u I H in mikla útihátíð sem hald- in verður um helgina á Laugarvatni skartar meðal annars af víkingum frá Norðurlöndunum sem Jón Páll lyftingakappi mun taka á móti síð- degis í dag. En áður en Jón Páll og fararlið heldur austur, munu þeir aka rakleiðis af flugvellinum sem leið liggur til Bessastaða þar sem forseti íslands, Vigdís Finboga- dóttir, mun veita víkingunum mót- töku. Það er ekki amaleg byrjun á ferð víkinganna. . . llEkki er ráð nema í tíma sé tek- ið. Næsta vor fara fram borgarstjórn- arkosningar hér í Reykjavík og telja menn almennt, að Davíö Oddsson hafi sópað fylgi til íhaldsins á möl- inni, þótt flokkurinn muni eiga erf- iðari tíma framundan á landsvísu. Hins vegar er bent á, að borgarfull- trúahópur sjálfstæðismanna sé ekki sérlega öflug grúppa og búast megi við því, að 3—4 núverandi borgar- fulltrúar í þeim hópi detti út í próf- kjöri. Helst er talað um að Hulda Valtýsdóttir, Jóna Gróa Sigurð- ardóttir og Hilmar Guðlaugsson séu tæp, auk þess sem Páll Gísla- son læknir muni að líkindum hætta af sjálfsdáðum. Eftir að Markús Örn Antonsson hvarf af vettvangi stjórnmálanna og Albert Guð- mundsson gerðist þykjustuborgar- fulltrúi, er talið að þau Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Katrín Fjeld- sted hafi styrkt stöðu sína. Að öðru leyti sé fátt um fína drætti, og raunar er hópurinn að baki Davíð talinn furðuslappur og litlaus. Því er það, að sjálfstæðismenn eru strax farnir að huga að einhverjum frambæri- legum mönnum og konum og hefur t.d. nafn Kolbeins Pálssonar, for- manns Æskulýðsráðs, stundum ver- ið nefnt. Hann mun ekki skorta áhugann. Af öðrum flokkum er það að segja, að Frammarar eru taldir vera í hálfgerðum vandræðum, vegna þess að nú mun Kristján Bene- diktsson ætla að láta verða af því að hætta í borgarstjórninni. Hann hefur áður lýst þessu yfir, en nú verður honum ekki haggað. í öðru sæti var Gerður Steinþórsdóttir, sem hefur sagt opinberlega, að henni þyki vinstri minnihlutinn leið- inlegur, og líst mönnum ekkert sér- lega vel á að hún leiði Framsókn í borgarstjórnarkosningum. Hinn kosturinn, sem hefur verið nefndur, er sá að Alfreð Þorsteinsson hjá Sölunefnd varnarliðseigna fari í fyrsta sætið, og þykir sá kostur jafn- vel enn verri. Því er leitað að nýrri manneskju. Hjá Allaböllum er staðan sú, að Adda Bára Sigfúsdóttir hefur lýst því, að hún ætli ekki fram næst. í Al- þýðubandalaginu er fyrir talsverð óánægja með Sigurjón Pétursson, sem þykir hallur undir borgarstjór- ann sjálfan. Þar má því vænta breyt- inga. Um Kvennaframboðið er ekki margt að segja, því haft hefur verið eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, að ekki sé búið að ákveða framboð. Og þá eru það kratarnir. Talið er víst, að Sigurður E. Guðmunds- son muni leiða flokkinn í kosning- unum. Hins vegar þykir Sjöfn Sig- urbjörnsdóttir hafa verið heldur athafnalítil og lítt áberandi að und- anförnu. Nafn Bjarna P. Magnús- sonar hefur stundum verið nefnt, en á móti kemur, að hann mun víst ekki eiga upp á pallborðið hjá Jóni Baldvin, auk þess sem hann daðr- aði við Bandalag jafnaðarmanna á landsfundi flokksins í vetur. Þá höf- um við heyrt nafn Helga Skúla Kjartanssonar sagnfræðings og HP-skríbents nefnt. Að síðustu er svo rétt að geta þess möguleika, sem miðju- og vinstri flokkarnir óttast talsvert, og hann er sá, að Bandalagið bjóði fram í Reykjavík. Um það er ekki vitað á þessari stundu. .. RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND MÁLNING- MÁLNINGARVÖRUR Áður en þú byrjar að mála er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir hvar best er að kaupa efni til verksins. 2 JL-Byggingavörur hafa mikið úrval af málningarvörum og ráðleggingar starfsmanna okkar eru fyrsta skrefið í vali á besta og hagstæðasta efninu. Afsláttarkjörin okkar á málningu er hagstæðasta verðið í dag. 5% afsláttur af kaupum yfír kr. 2500,- 10% afsláttur af kaupum yfir kr. 3200,- 15% afsláttur af kaupum yfir kr. 4600,- 20% afsláttur af heimkeyrðum heilum tunnum. MÁLNINGARVÖRUDEILD, HRINGBRAUT 120. I L LANDSVIRKJUN 20ÁRA ÖLLUM LANDSMÖNNUM BOÐIÐ í ORKUVERIN í tilefni 20 ára afmælis Landsvirkjunar er öllum landsmönnum boðiðað skoða orkuver fyrirtækisins alla daga frá kl. 13 til 19, til 13. ágúst og taka leiðsögumenn þar á máti gestum. Ljósafossstöð, 15 MW, hóf framleiðslu 1937, 75 km frá Reykjavik. írafossstöð, 48 MW, hóf framleiðslu 1953, 74 km frá Reykjavik. Steingrimsstöð, 26 MW, hóf framleiðslu 1960, 79 km frá Reykjavik. Búrfellsstöð, 210 MW, hóf framleiðslu 1969, 122 km frá Reykjavik. Sigöldustöð, 150 MW, hóf framleiðslu 1977, 161 km frá Reykjavík. Hrauneyjafossstöð, 210 MW, hóf framleiðslu 1981, 156 km frá Reykjavik. Laxárvirkjun, 23 MW, hóf framieiðslu 1939, 76 km frá Akureyri. í þessum orkuverum landsmanna eru framleidd um 90% af heildarraforku íslendinga. STARFSMENN LANDSVIRKJUNAR VONAST TIL AÐ FÁ SEM FLESTA í HEIMSÓKN ÞESSAR SEX SUMARVIKUR. HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.