Helgarpósturinn - 11.07.1985, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 11.07.1985, Blaðsíða 14
FREE STYLE FORMSKi M L'OREAL Já — nýja lagningarskúmið frá L'ORÉAL! og hárgreiðslan verður leikur einn. SOKKAR, a alla Tibor eru franskir sokkar úr 90% bómull. Besta náttúrulega efni í föt sem liggja næst líkamanum. — Þú svitnar minna. Tibor þola suðuþvott. Þú getur óhikað sett þá í suðu með hvítum þvotti, því Tibor hlaupa ekki. Tibor eru íöllum stærðum frá 15/16 til 45/46. Allir í fjölskyldunni geta gengið í Tibor — líka þeir sem ekki enn kunna að ganga. Tibor eru til í ótal litum og gerðum háir eða lágir. Alveg eins og þú vilt hafa þá. Hönnunin á Tibor eru alveg sérstök. í botn- inn, á hælnum og fremst á tánni þar sem mest mæðir á er vefnaðurinn tvöfaldur til að tryggja sem besta endingu. Allt snið á Tibor beinist að því að sokkarnir fari sem best á fæti. Á ristinni er vefnaðurinn þynnri, fellur þétt að fætinum og krumpast því ekki þó skórnir séu þröngir. í stroffinu er góð teygja. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að Tibor leki niður á hælana. Tibor eru ívönduðum pakkningum. Þeir eru þessir með bláa merkinu. — og Tibor eru á góðu verði. Það ættu allir að geta verið í góðum sokkum. Kaupmönnum útvegum við sérstaka standa fyrir Tibor. Það gerir þér líka auðveldara að velja Tibor sokkana í verslunum. HEILDSALA: SPORTVÖRUÞJÓIMUSTAIM EIKJUVOGI 29 S. 687084 p n & SÝNINGAR Árbæjarsafn Sumarsýningin er farandsýning frá þjóð- minjasafni Grænlendinga og lýsir græn- lensku bátunum „qajaq" og „umíaq". Hún er hingað komin á vegum Útnorðursafnsins, en svo nefnist samstarf nokkurra menning- arsögulegra safna í fereyjum, á Grænlandi og á Islandi. Sýningin er opin á opnunartíma safnsins frá kl. 13.30 til 18 alla daga nema mánudaga. Gallerí Borg Pósthússtræti 9 Á sumarsýningu gallerísins gefur að líta um 100 myndverk, aðallega grafík, pastelmynd- ir, vatnslitamyndir og teikningar eftir alla helstu listamenn þjóðarinnar, einnig list- muni úr keramiki og gleri. Þessi fjölbreytta sýning verður opin í júlí og ágúst virka daga frá kl. 12 til 18, og mun taka einhverjum breytingum frá degi til dags. Gallerí Borg verður lokiö um helgar í júlí og ágúst, nema með sérstöku samkomulagi viö einstaklinga eða hópa. Gallerí Langbrók Amtmannsstíg 1 Sumarsýning fram í miðjan ágúst. Þetta er sölusýning og á henni eru grafíkmyndir, keramík, glermyndir, vatnslitamyndir, textfl o.fl. . . Opið kl. 12—18 virka daga og 14—18 um helgar. Islenskur húsbúnaður Langholtsvegi 111 Sýning á verkum nemenda viö textfldeild Myndlista og handíðaskóla íslands. Á sýn- ingunni eru tauþrykkslengjur, veggmyndir, púðar og mjúkir skúlptúrar. Þær sem sýna eru Björk Magnúsdóttir, Fjóla Arnadóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Kristrún Ág- ústsdóttir. Sýningin stendur til 12. júlí 1985. Kjarvalsstaðir við Miklatún I Kjarvalssal er sýning á verkum meistarans sjálfs, Jóhannesar S. Kjarvals, 30 málverk og teikningar í eigu safnsins. Þar á meðal eru verk sem ekki hafa sést opinberlega fyrr. Kjarvalssýningin er opin daglega frá kl. 14—22 fram til júlíloka. Listmunahúsið Lækjargötu 2 Lokað til 17. ágúst. Listasafn Einars Jónssonar Hnitbjörgum við Njarðargötu Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30—16. Höggmyndagarður safnsins er opinn daglega frá kl. 11—17. Listasafn Islands Við Suðurgötu í tilefni 100 ára afmælis Listasafns íslands var efnt til sýningar í safninu á verkum fjög- urra frumherja í íslenskri málaralist; þeirra Þórarins B. Þorlákssonar, Ásgríms Jónsson- ar, Jóns Stefánssonar og Jóhannesar S. Kjarvals. Sýningin er opin fyrst um sinn um helgar frá 1:30 til 22 en virka daga frá kl. 1:30 til 18 og stendur til ágústloka. Norræna húsið Sýning á grafíkmyndum Gottorms Gott- ormsgaard frá Noregi til 29. júlí í anddyrinu. Norræna húsið Sumarsýning í sýningarsal Norræna húss- ins. Sjávarmyndir eftir Gunnlaug Scheving. Sýningunni lýkur 25. júlí. Nýlistasafnið Vatnsstfg 3b Sýning hollenska listamannsins Douwes Jans Bakker til 21. júlí frá kl. 16 til 20 alla daga. Douwe Jan Bakker er vel kunnur ís- lenskum listamönnum og er nú á íslandi í 10. sinn. Verk hans eru oftast á einhvern hátt tengd tungu og merkingu, eru rannsóknir á menningu og tungumáli. Hann vinnur með ýmis efni og eru verk hans skúlptúrar, um- hverfisverk og Ijósmyndir, einnig mörg þeirra tengd arkitektúr. Sýningin í Nýlista- safninu ber heitið Notes and references, og af verkum á henni má nefna ófullgerða bók sem Douwe vann í Flatey 1978. BÍÓIN ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð ★ þolanleg O iéleg • Háskólabíó Fálkinn og Snjómaðurinn (The Falcon and the Snowman) ★★★ Handrit: Steven Zaillian eftir sögu Robert Lindsey. Tónlist: Pat Matheny/Lyle Mays. Framleiöendur: Gabriel Katzka/John Schles- inger. Leikstjórn: John Schlesinger. Aðal- hlutverk: Timothy Hutton, Sean Penn, Pat Hingle, Richard Dysart, David Suchet, Boris Leskin og fl. Fálkinn og Snjómaðurinn er bæöi spenn- andi og skemmtileg mynd, og það er ekki sfst að þakka afbragðsleik þeirra Penn og Suchet, að ógleymdu vönduðu handverki, sérstaklega klippingu. Sýnd kl. 5, 7:30 og 10. - IM- Tarzan og stórfljótið Sýnd kl. 3 um helgina. Nýjabíó Romancing the Stone (Ævintýrasteinninn) ★★★ Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 3 sunnudag. Regnboginn Korsfkubræðurnir Bráðfjörug, ný gamanmynd með hinum vinsælu Cheech og Chong sem allir þekkja Aðalhlutverk: Cheech Martin og Thomas Chong. Leikstjóri: Thomas Chong. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11:15. Bönnuð innan 16 ára. Vistaskipti Drepfyndin litmynd mið hinum vinsæla Eddie Murphy ásamt Dan Aykroyd og Dan- holm Elliott. Endursýnd kl. 3:15, 5:30, 9 og 11:15. Sverð riddarans (Sword of the Valiant) Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11:15. Tortfmandinn ★ James Cameron notar hér fáar en fjöltroön- ar leiöir í framsetningu efniviðarins, sem leiðir til vægast sagt einhæfra átaka sem aft- ur byggjast á þessu þrennu: Eltingaleik, oltn- um bflum og skothríöum. Ekki þar fyrir að Schwarzenegger fer þaö djöfullivel aö leika vélmenni. _ SER. Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05 Löggan f Beverly Hills (Beverly Hills Cop) ★★★ Bandarísk, árgerð 1984. Aðalhlutverk Eddie Murphy Þrælgóður að vanda. Leikstjóri Martin Brest. Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10. Tónabíó Sér grefur gröf (Blood simple) Amerísk sakamálamynd í litum. Myndin hef- ur hlotið frábæra dóma gagnrýnenda, sem hafa lýst henni sem einni bestu sakamála- mynd síðari tíma. Mynd f algjörum sérflokki. Aðalhlutverk: John Getz, Frances McDor- mand. Leikstjóri: Joel Goen. Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11:10. Stranglega bönnuð innan 16. ára. Bíóhöllin Salur 1 Vfg í sjónmáli A View to a Kill ★★ Leikstjórn: John Glen. Handrit: Richard Mai- baum og Michael G. Wilson. Kvikmyndun: Alan Hume. Tónlist: John Barry og Duran Duran. Aðalhlutverk: Roger Moore, Christo- pher Walken, Grace Jones, Tanya Roberts. Framleiðandi: Albert R. Broccoli og Michael G. Wilson. Sýnd kl. 5, 7.30, 10. Salur 2 Skrattinn og Max Devlin (Devil and Max Devlin) Grínmynd um náunga sem gerir samkomu- lag við skrattann. Hann ætlar sér alls ekki að standa við þann samning og þá er auðvitað skrattinn laus... Aðalhlutverk: Elliott Gold, Bill Gosby, Adam Rich og Susan Anspach. Sýnd kl. 5, 7:30 og 10. Salur 3 Svarta holan Ævintýramynd með tæknibrellum. Aðalhlutverk: Maximillian Schell, Anthony Perkins, og Ernst Borgnine. Sýnd kl. 5 og 7:30. Gulag Sýnd kl. 10. Salur 4 Hefnd Busanna (The Revenge of the Nerds) Sýnd kl. 5 og 7.30. Arnarborgin Where Eagles Dare) Aðalhlutverk: Richard Burton, Clint East- wood. Sýnd k. 7:30 og 10:20. Salur 5 Næturklúbburinn (The Cotton Club) ★★★ Leikstjóri: Francis Ford Coppola. Hrá og mögnuð, hlaðin stemmningu ekki ósvipað því sem gerist í Ameríkumyndum Sergio Leone þar sem hann fjallar um þetta sérkennilega tímaskeið í sögu Bandaríkj- anna. Og tónlistin svíkur ekki. Sýnd kl. 5, 7:30 og 10. Laugarásbíó Salur A i háalofti Ný spennandi og skemmtileg bandarísk grísk mynd um bandaríska skiptinema í Grikklandi. Ætla þeir í ferðalag um eyjarnar áður en skólinn byrjar, en lenda í njósna æv- intýri. Aðalhlutverk: Daniel Hirsch, Clayton Nor- cros, Frank Schultz. Leikstjóri: Noco Mast- orakis. Dolby stereo. Sýnd kl. 5, 7, 8 og 11. Salur B Áin (The River) ★★ Leikstjórn: Mark Rydell. Handrit: Robert Dill- on. Kvikmyndun: VilmosZsigmond. Tónlist: John Williams. Aðalleikarar: Mel Gibbson, Sissy Spacek, Scott Glenn. Sýnd kl. 5, 7:30 og 10. - SER. Salur C Uppreisnin ó Bounty ★★★ Ný amerísk mynd gerð eftir þjóðsögunni heimsfrægu. Myndin skartar úrvalsliði leik- ara þ.á.m. Anthony Hopkins, Edward Fox, Laurence Olivier og síðast en ekki allra síst Mel Gibson f hlutverki Christians, eöa eins og einhver sagði „I wouldn't kick him out of my bed"!l Besta Bounty myndin til þessa. Sýnd kl. 5, og 10. Undarleg paradfs Sýnd kl. 7:30. Austurbæjarbíó Salur 1 Raunir saklausra (Ordeal by Innocence) ★★ Handrit: Alexander Stuart eftir sögu Agöthu Christie. Tónlist: Dave Brubeck. Framleið- endur: Meneham Golan/Yoram Globus. Leikstjóri: Desmond Davis. Aðalhlutverk: Donald Sutherland, Faye Dunaway, Chris- topher Plummer, lan McShane, Sarah Miles, Diana Quick, Anette Crosbie, Michael Elpick o.fl. Ég verð að viðurkenna eitt strax: Ég hef aldrei verið yfir mig hrifinn af Agöthu Christ- ie. .. En sennilega er ég bara vondur leyni- lögreglumaður. . . Enskt og bandarískt stjörnulið prýðir hlutverkaskrána, en allt kemur fyrir ekki, þessi formúla gengur því miður ekki upp, og myndin verður bæði stemmnings- og spennulaus. En kannski mætti segja að þetta væri saklaus skemmt- un. _ |M. Bönnuð innan 12. ára. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 2 Lögregluskólinn (Police Academy) Sprenghlægileg mynd fyrir alla fjölskyld- una. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Salur 3 Týndir í orrustu (Missing in Action) Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 9 og 11. When The Raven Flies (Hrafninn flýgur) Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 7. Stjörnubíó Salur A Sfðasti drekinn (The Last Dragon) Bandarísk karatemynd með dundurmúsík. Fram koma De Barge (Rhythm of the Night), Vinity og flutt er tónlist með Stevie Wonder, Smokey Robinson, og The Temptations, Syreeth Rockwell, Charlene, Wille Hutsch og Alfie. Aðalhlutverk: Vanty og Taimak karatemeist- ari. Tónlistin úr myndinni hefur náð geysilegum vinsældum og er verið að frumsýna mynd- ina um heim allan. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Einnig kl. 3 um helgar. Salur B Flótti (Runaway) ★ Sýnd kl. 9. Bönnuð innan 16 ára. Prúðuleikararnir slá í gegn. Sýnd kl. 5 og 7. Einnig kl. 3 um helgar. Staðgengillinn (Body Double) Aldrei þessu vant klikkar Brjánn Pálma. Máttlausir kaflar of margir til þess að maður hafi fiðring af. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 11. Hafnarfjarðarbíó 16 ára (Sexteen Candles) Amerísk gamanmynd. Aðalhlutverk: Molly Ringwald og Anthony Michael Hall. Sýnd kl. 9. LEIKLIST Stúdentaleikhúsið Félagsstofnun stúdenta v/Hringbraut Sýningar á Draumleik Augusts Strindberg í þýðingu Sigurðar Grímssonar hefjast 11. júlí. Kári Halldór er leikstjóri, Árni Harðarson stjórnandi Háskólakórsins samdi tónlistina, en söngur og hljóðfærasláttur gegnir veiga- miklu hlutverki í sýningunni, Ágúst Péturs- son sér um lýsingu og alls eru leikarar 16. Leikskrá er mjög vönduö, höfundar m.a. Thor Vilhjálmsson og séra Gunnar Kristjáns- son. Draumleikur verður sýndur öll þriðju- dags-, fimmtudags- og sunnudagskvöld í júlí og hefst sýning kl. 22 öll kvöldin. TÓNLIST Tónleikahelgi í Skálholti Á morgun, laugardag, hefst önnur hátíðar- helgi Sumartónleika íSkálholtskirkju. Kl. 15 leikur Helga Ingólfsdóttir sembaltónsmíðar sem J.S. Bach gaf eiginkonu sinni, önnu Magdalenu. Hér verða fluttar þrjár „fransk- ar" svítur og tvö stutt sálmalög. Kl. 17 hljóma fleiri Bach-verk í Skálholti ásamt meö tónverkum Hándels. Camilla Söderberg leikur á altblokkflautu, Ólöf Sesselja Óskars- dóttir á viola da gamba og Helga Ingólfs- dóttir á sembal sónötur eftir Bach og Hán- del. Kl. 15 á sunnudag verður þessi sam- leikur endurtekinn. Kl. 17 er síðan messa þar sem prestur er sr. Karl Sigurbjörnsson. Áætl- unarferðir eru báða dagana frá Umferðar- miðstööinni tveim tímum fyrir tónleika. Fólki er ráðlagt að koma tímanlega — um síðustu helgi var húsfyllir í Skálholtskirkju. VIÐBURÐIR Bubbi Morthens I Sjallanum á Akureyri I kvöld (11. júll), á Húsavlk 12., Eiðum, Egilsstöðum 14., og Fjarðarborg Borgarfirði eystra þriðjudaginn 16. júll, sem verða lokatónleikar þessarar landsbyggðarreisu Bubba. Naust Islandskynning á fimmtudags-, föstudags-, sunnudags- og mánudagskvöldum fram til 18. ágúst, einkum ætluð erlendum ferða- mönnum, en að sjálfsögðu eru allir aðrir vel- komnir. Boðið verður uppá sjávarréttaborð, skyr, tlskusýningu og þjóðlög. Síðastnefnda atriðið annast þau Bergþóra Árnadóttir og Aðalsteinn Ásþerg Sigurðsson og munu flytja gömul og ný íslensk lög, lltilsháttar krydduð álfa- og draugasögum. íslands- kynning þessi er á vegum Álafoss og Nausts. 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.