Helgarpósturinn - 11.07.1985, Side 21
Halidór Laxness — „hann var að
minnsta kosti heppinn að taka eftir
þessari vörtu, þetta er eiginlega
mynd af vörtu. Ég man lítið eftir
þessum manni, ég man að hann
var hversdagsklæddur eins og Am-
eríkani."
Helgi Skúlason og Helga
Bachmann — „þetta varákaflega
hægur maður. Við urðum varla vör
við hann," sagði Helgi. „Hann
gekk um húsið, kannaði aðstæður,
athugaði birtuna — og tók ógrynni
mynda."
Þórarinn Eldjárn — „myndin er
tekin í kirkjugarðinum. Það hæfði
vel, því að ég var alinn upp við ann-
að horn þessa garðs, og bý nú við
hitt."
Björg Þorsteinsdóttir — „ég
var að sýna honum pressuborðið;
hann kíkti inn í valsana, leit á mig
og fékk hugmyndina að myndinni.
Hann var búinn að prófa allt mögu-
legt annað."
HELGARPÓSTURINN 21