Helgarpósturinn - 22.08.1985, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 22.08.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTAPÓSTUR I Kjötinnflutningur hersins verður kærður. Einskonar niðurstaða náðist i rimmu utanrikis- og fjár- málaráðherra í vikunni um fyrirkomulag á innflutningi varnarliðsins á fersku kjöti. Deilan hefur snúist um lög- mæti innflutningsins, en hann hefur hingað til verið ótoll- skoðaður. Nú hefur stjórnin ákveðið að láta dómstólana skera úr í þessu efni og er húist við þvi að leitað verði til bændasamtakanna sem stefnanda í málinu, en þau hafa lengi barist fyrir breyttu ástandi í þessu máli. Bannað að selja bjórlíki frá og með hausti. Jón Helgason, dómsmálaráðherra hefur gefið út reglu- gerð sem bannar vínveitingahúsum að framreiða öl sem áð- ur hefur verið blandað áfengi en hér mun vera átt við hið svokallaða bjórlíki. Ákvörðun sína byggir ráðherrann að mestu á auknum ölvunarakstri og ólátum framan við þá staði sem einkanlega hafa höndlað með þennan mjöð. Þó mun ljóst vera að hægt verði að fá sér bjórlíki áfram, en þá blandað á staðnum. Annars hefur neysla landans á bjórlíki dregist gríðarlega saman á síðustu mánuðum, en aðeins einn af hverjum tíu gestum kránna biður orðið um drykk- inn atarna. Ingvi Hrafn og Hrafn Gunnlaugs til sjónvarpsins. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri gekk þvert á um- sögn útvarpsráðs þegar hann réð í störf fréttastjóra sjón- varps og deildarstjóra innlendrar dagskrárgerðar hjá stofn- uninni í vikunni. Ráðið hafði mælt að meirihluta með Helga E. Helgasyni fréttamanni í starf fréttastjóra og Tage Ammendrup sem deildarstjóra. Markús fékk Ingva Hrafni Jónssyni hinsvegar stöðu fréttastjóra og Hrafni Gunnlaugs- syni stöðu deildarstjóra, en þeir höfðu báðir fengið færri at- kvæði en Helgi og Tage í umsögn útvarpsráðs. Mikil gagn- rýni hefur komið fram á þessar stöðuveitingar útvarps- stjóra, þó svo fordæmi sé fyrir þvi að hann hafi gengið þvert á vilja ráðsins í fyrri stöðuveitingum. Fáir vilja fóstra, kenna og læra hvorttveggja. Ljóst er að menntaðar fóstrur fást ekki í allar þær lausu stöður sem nú eru á dagvistarheimilum um land allt og þá einkanlega í Reykjavík. Borgarstjóri segir þetta vera smá- mál og vill leysa það með því að ráða ófaglært fólk í það sem á vantar, en starfandi fóstrur og foreldrafélag líta þá hug- mynd óhýru auga. Þá vantar urmul menntaðra kennara til starfa á hausti komanda. Þessi skortur á faglærðu fólki í stöðurnar stafar einkum af lágum launum þessara stétta, og er það nú einnig farið að koma fram í takmörkuðum um- sóknum kennara- og fóstrunema í skóla þessara starfs- greina. Hvalverndun eða hvalfriðun. Hvalveiðar voru mjög i deiglunni í síðustu viku, en þá komu hingað til lands tvö skip aðskildra samtaka sem berj- ast gegn hvalveiðum. Hér var annarsvegar á ferðinni skip „Greenpeace'-samtakanna, Sirius, og hinsvegar skip rót- tækari samtaka, Sea Shepherd, en þau hafa það á stefnuskrá sinni að sökkva öllum veiðandi hvalbátum sem þau komast í tæri við. Til engra aðgerða kom þó af hálfu þessara samtaka á íslandi í vikunni, enda liggja hvalveiðar niðri að sinni. Hugmynd íslendinga um hvalveiðar i vísindaskyni á næsta ári er mjög til umræðu þessa dagana. Fréttapunktar: • Heilsugæslulæknar hafa samþykkt samkomulag um laun sem þeir gerðu við fjármálaráðherra og hætta því ekki störfum, einsog útlit var fyrir. • Veitt hefur verið leyfi til tuttugu og eins nýs loðdýrabús og jafnframt vilyrði fyrir stækkun tiu eldri búa á landinu, en þessi atvinnugrein er nú i mikilli sókn. • Nýr sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, Nicholas Ruwe er tekinn til starfa. Þess má geta að hér fer mikill laxveiði- maður og jafnframt félagsmaður samtaka vestra um ótak- markað andadráp! • Það bar til tíðinda á Melrakkasléttu í síðustu viku að út- skorinn Afríkunegri fannst rekinn þar á land. Menn hafa enga skýringu á þessu, sem er í sjálfu sér allt í lagi. • Við sundlaugina i Laugardal er verið að útbúa ellefu metra langan nuddlæk, sem svipar til læksins í Nauthóls- vik. Hér mun þó ekki vera neinn vísir að nektarnýlendu á íslandi... • Bandarísk kona synti yfir Mývatn um helgina að gamni sínu. •Ævisaga Kjarvals kemur út í haust á aldarafmæli meistar- ans, en höfundur verksins er Indriði G. Þorsteinsson rit- höfundur. • Grunnvatnsstaða er mjög lág sunnan- og vestanlands um þessar mundir, en það stafar af óvenjulega góðu árferði í þessum landshluta í sumar. • Skákkapparnir Jón L. Árnason og Jóhann Hjartarson ásamt Ásgeiri bróður Jóns, sem er líka liðtækur teflari, voru hætt komnir er bill þeirra hentist út af vegi í Dölum um helg- ina. Þeir hlutu sem betur fer bara skrámur. • Undirbúningur fjárlaga fyrir 1985 er hafinn og er útlit fyrir halla þeirra upp á allt að tvo og hálfan milljarð. • Innan Bandalags jafnaðarmanna hefur verið stofnað Fé- lag jafnaðarmanna, þar sem saman eru þeir sem óánægðir hafa verið með hægri blæ bandalagsins í ýmsum málum til þessa. • Þá er þess að geta að rannsóknir á ónæmistæringu (AIDS) fara að öllum líkindum fram á rannsóknarstofu Háskólans, að sögn heilbrigðisráðherra. Sigurður Pétursson, fslandsmeistari I golfi: „Einbeiti mér að hverju höggi77 texti Sigríður Gunnarsdóttir mynd Jim Smart 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.