Helgarpósturinn - 22.08.1985, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 22.08.1985, Blaðsíða 24
ráði síðasta föstudag vakti mikla at- hygli. Framsóknarmaðurinn í ráð- inu stóð ekki með bræðrum sínum úr stjórnarsamstarfi flokkanna og því fór sem fór. En það var líka óþekkt í liði sjálfstæðismanna. Sem kunnugt er fékk Hrafn Gunnlaugs- son þrjú atkvæði sjálfstæðismanna og Tage Ammendrup fjögur at- kvæði allra hinna. Allt eins og til var ætlast. En aftur á móti vildi svo til að Magnús Erlendsson, sjálfstæðis- maður var ekki mættur og sat því Haraldur Blöndal fundinn sem varamaður. Þegar svo atkvæði voru talin hafði Ingvl Hrafn Jónsson aðeins fengið tvö atkvæði en þriðja atkvæði sjálfstæðismanna féll á Ólaf Sigurðsson fréttamann. Hinir studdu svo Helga E. Helgason þannig að hann fékk fjögur at- kvæði. Kunnugir telja það ekkert vafamál hver sé óþekki íhaldsstrák- urinn í þessum hópi. Það er annars ekki þar fyrir að sá hafi brugðið mikið út af línunni því nefndur Olaf- ur er sagður hægri maður. Um ákvörðunartöku Markúsar Arnar Antonssonar útvarpsstjóra segja svo ýmsir að þó vissulega sé gagnrýnisvert að ganga á þennan hátt framhjá vilja útvarpsráðs, þá hefði verið vafasamt fyrir stofnun- ina að fara eftir vilja útvarpsráðs í þetta sinn. . . Vv ið höfum oftsinnis sagt frá því á síðum HP að eftirmaður Sigurjóns Sigurðssonar lögreglu- stjóra í Reykjavík yrði framsóknar- maðurinn Bödvar Bragason sýslu- maður í Rangárvallasýslu. Nú mun vera búið að ganga frá ráðningunni á skrifstofu Jóns Helgasonar dómsmálaráðherra, sveitunga og flokksbróður Böðvars og fréttatil- kynningarinnar að vænta á næstu dögum. Hvað sögðum við... L ^■esendur Alþýðublaðsins ráku upp stór augu í gær, miðvikudag er þeir lásu ritstjórnargreinina úndir fyrirsögninni „Eigi skal víkja“. Greinin sem var löng og þakti hálfa síðu af dýrmætu dálkaplássi blaðs- ins, fjallaði nær óslitið um Þjóðvilj- ann og var því blaði hampað.'sem einu stjórnarandstöðunni í landinu. Sérstaklega var lof borið á þremenn- ingana Arna Bergmann, Óskar Guðmundsson og Össur Skarp- héðinsson og þeir sagðir berjast gegn flokksklíku og valdaforystu Al- þýðubandalagsins. Þessir menn létu ekki ritskoða sig og Þjóðviljinn væri að verða eitt trúverðugasta bfað á íslandi. Þetta þótti krötum og öðr- um lesendum blaðsins einkennileg lexía á síðum Alþýðublaðsins og ekki varð dæmið einfaldara þar sem leiðarinn var algjörlega ómerktur. Af lengd, orðgnótt og vestfirskum tilvísunum þóttust þó menn sjá að höfundurinn væri enginn annar en elskaður leiðtogi Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson. En HP getur upplýst að svo er ekki. Rit- stjórnargreinin er skrifuð af Helga Má Artúrssyni, verðandi ritstjóra Alþýðublaðsins (ef það lifir af). Er Ijóst að þarna er Helgi Már að benda forystu Alþýðuflokksins á þær óskir sem hann leggur tii grundvallar ef hann sest í ritstjórnarstól. • Það sem mest fór þó fyrir brjóstið á kratafor- ystunni að leiðaralesningunni lok- inni, var að Helgi Már ræðst harka- lega að Alþýðublaðinu sjálfu og seg- ir það hafa verið skyldu blaðsins m.a. að greina frá því að Hafnar- fjarðarkratarnir eða stuðnings- menn Sighvatar Björgvinssonar eins og leiðarahöfundúr örðar það, efndu til skipulegs samblásturs gegn formanni flokksins. Þessi frómu nið- urlagsorð Helga Más munu eiga eft- ir að kosta hann ritstjórastöðuna til- vonandi að því er HP heyrir. Ljóst er að forysta flokksins mun ekki geta kyngt því að hafa jafn orðfráan rit- stjóra við skipstjórnarvöl krata- málgagnsins. Það síðasta sem við heyrðum var að Jón Baldvin hyggist auglýsa ritstjórastöðuna lausa til umsóknar... llEiinn vinsælasti þáttur rásar 2 í sumar hefur verið „Hringborðið" sem fyrrverandi ritstjóri Helgar- póstsins, Árni Þórarinsson hefur séð um frá miðjum júní til júiíloka. Arni fór þá utan í sumarfrí og var ekkert umsamið milli hans og rásar- innar að halda þáttunum áfram. Þegar Árni kom aftur heim frá út- löndum fyrir nokkru, brá honum nokkuð í brún sem öðrum lands- mönnum því þátturinn Hringborðið var aftur kominn á dagskrá með nýj- um umsjónarmönnum, þeim Sig- uröi Einarssyni og Magnúsi Ein- arssyni, sem munu vera starfs- menn á tónlistardeild hljóðvarps. Þessi ráðstöfun rásar 2 hefur vakið furðu margra og mun nú alls óvíst um áframhaldandi samstarf Árna við rásina í framtíðinni. . . s Vrá þekkti flugvélahöndlari Birkir Baldvinsson í Lúxemburg lét þau ummæli eftir sér höfð í Morgunblaðinu nýlega, eftir að ljóst var að hlutabréf ríkissjóðs í Flugleið- um voru horfin í Flugleiðamenn, að það gerði ekki mikið til. Nú væri hann að athuga önnur góð og gild íslensk fyrirtæki og litist einna best á Hagkaup. Forráðamenn Hag- kaupa hafa gripið þessi ummæli á lofti og setið sveittir við simann síð- ustu daga og reynt að hafa upp á Birki til að bjóða honum hlutabréf í stórversluninni. í gær, miðvikudag, voru þeir enn ekki búnir að ná sam- bandi enda Birkir heimshornaflakk- ari ef viðskipti eru annars vegar. : . m o MYKJA NÝR LcJTJFFENGTJR KOSTUB í ÍSLENSKU OSTAVALI wnouA er sérlega mjúk\ir og bragðgóður smurostur, sem nýtur sín einkar vel... ...með öllu ósætu kexi og "brauðL ...sem innlegg í heitar samlokur ...sem bragðauki í heitar súpur og sósur ...sem bragðgjafi í ídýfur. mrmA, er í nýjum hentugum umóúðum og fæst í tveim bragðtegundum. SKŒCU- MYRJA Smurostur með skinkubitum Smurostur með pizzukryddi ■ ’> ^ 'i illjS p mmm SMUROSTUR mhð PIZZUKRYDDÍ ^agargjfál { I00 g et. prótíjf '18 g. kolvetnl 1 g. itcinefn! *I'5 's.siujTs 500 mg, orka 230 kr-’ ‘•■níílðándl: Osta- og smjörtf1* Bitruhálsí 2. ■ . r.'.'íx-.a... J -k.: ,t >» • / 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.