Helgarpósturinn - 22.08.1985, Síða 10
HP
HELGARPÖSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Utlit: Elín Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
FramkvæmdaStjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Jakob Þór Haraldsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiösla: Guðrún Hasler
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavfk, simi
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Ómóðins að vera ,
Islendingur
Frjálshyggjan er dálítið móð-
ins þessa dagana. Hún lýsir sér
einkum í flótta ríkisins undan
ábyrgð sinni við þegnana og
vaxandi einkarekstri á öllum
sviðum. Fjármálaráðuneytinu
hefur verið stjórnað eins og
heildsölu í tíð Alberts Guð-
mundssonar, þar sem hlutabréf
ríkissjóðs hafa verið seld beint
af lager. Önnur ráðuneyti gefa
Albert lítið eftir; mennta- og
heilbrigðismál hafa verið boðin
út og búin í stakk einkageirans.
Kjarastefna ríkisstjórnarinnar
hefur einnig verið í þessa veru;
með því að halda launum opin-
berra starfsmanna niðri hefur
t.d. kennurum, listamönnum
og tæknimönnum verið ýtt í tví-
sýnan einkarekstur. Með þessu
hefur núverandi valdhöfum tek-
ist tvennt: Annars vegar að
deila pólitískri samstöðu launa-
fólks og hins vegar að skapa
nýjan hugsunarhátt sem krist-
allast í því að allt það sem ekki
launar sig, sé alfarið vont.
Þegar ríkið hættir að veita
þegnum sínum aðhald, skap-
ast óróleiki og óvissa sem eng-
inn einkageiri fær unnið á.
Samsemd þjóðar byggist á
sameiginlegri velferð og um-
hyggju borgaranna fyrir hverj-
um öðrum. Þegar mannlega
þættinum sleppir tekur villi-
mennskan ein við. Þess vegna
getur óheft frjálshyggja aldrei
borið uppi menningarsamfé-
lag.
í sjálfu sér er það sárgrætileg
þversögn að halda uppi frjáls-
hyggju í 240 þúsund manna
fjölskyldu. En þessa skoðun
hafa ráðandi stjórnmálaöfl
engu að síður. Þegar við bætist
þverrandi sjálfstraust einstakl-
inganna og látlaus, þungur nið-
ur erlendra áhrifa gegnum
verslun, fjölmiðla og listir, blasir
alvaran við. Sjálfstæði hverrar
þjóðar byggist á efnahag,
menningararfi, séreinkennum
og þori að viðurkenna sjálfa
sig. Kunningjasamfélagið og
pólitísk samtrygging eru á
góðri leið að leggja efnahaginn
í rúst, erlend síbylja í útvarpi,
sjónvarpi, kvikmyndahúsum
og blöðum samfara skeytingar-
leysi um sögu okkar og menn-
ingu er senn að jarða menn-
ingararf okkar, eltingarleikurinn
við erlendar fyrirmyndir í tísku
og hugsunarhætti að gereyða
séreinkennum okkar og þjóðar-
stolti. Við erum einfaldlega að
verða hrædd við að vera islend-
ingar. Það er ekki lengur móð-
ins. En það er hins vegar frjáls-
hyggjan á líðandi stundu og
hún dafnar einmitt best í skræl-
ingjaþjóðfélaginu. Þess vegna
má kannski taka undir þau
fleygu orð að engin þjóð eigi
betra skilið en þá valdhafa sem
hún kýs yfir sig.
10 he'lgarpóstu'rinn
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
Athugasemd
Friðþór Eydal blaðafulltrúi varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli hefur
óskað eftir leiðréttingu vegna um-
mæla sem eftir honum voru höfð í
síðasta tbl. Helgarpóstsins, varð-
andi uppsögn skrifstofustjóra á
Keflavíkurflugvelli. í athugasemd
Friðþórs segir: „í þessu máli sagði
ég aðeins:
Jónasi Guðmundssyni var sagt
upp störfum með löglegum , og
samningsbundnum þriggja mánaða
fyrirvara sem krefst ekki sérstakrar
ágúst, er birt sú tilgáta blaðsins, að
fjármálaráðherra „hafi óvart tjáð
Leifi Magnússyni framkvæmda-
stjóra stjórnunarsviðs Flugleiða
innihald tilboðs Birkis".
Þessi tilgáta blaðsins er með öllu
tilhæfulaus. Fjármálaráðherra hef-
ur hvorki tjáð mér nein atriði tilboðs
Birkis Baldvinssonar, né heldur hef
ég leitað eftir slíkum upplýsingum
frá honum eða öðrum þeim, er ann-
ast hafa sölu umræddra hlutabréfa.
Leifur Magnússon,
Framkvœmdastj. stjórnunarsviðs
Flugleiða.
LAUSN Á KROSSGÁTU
S ■ 'O • fí • G S • B •
S L Æ í> / H G R £ / S N / N
B B - fí l< fí R N • S £ 1 L Æ L fí
H) B R K 1 L £ <S / R • fí R / U G L FE Ð U R
fí F fí R l< o S T fí F S £ 6 J fí - r fí N T
fí 2> n L - fí 5 K fí K 'fí T F L fí S K fí / /
X U R L fí ■ 5 / 'fí T T £- fí T 'o /Y> fí N
R fí f L fí • 5 K R Æ K / u H • L £ N ■ R
fo ■ T fí /n '0 fí X U R. • 'fí lr F T 1 N fí
H 'fí L f fí K F fí L L S • 5 I U K fí U T T <3
G o A/ D 'o L ■ 'fí S T u • 8 O G R fí ■ 'fí N
• f fí R • fí L L fí J fí f N fí • N / • R Ö L fí
B fí /V K fí £ K fí R L • T fí b /n 1 N N F fí R.
ástæðu. Um var að ræða uppsögn
en ekki brottrekstur. Hins vegar var
nærveru hans ekki óskað á upp-
sagnartímabilinu, sem hann hefur
fengið greidd laun fyrir. Hjá varnar-
liðinu starfa yfir 1000 fastir starfs-
menn og eru uppsagnir af þess
hálfu mjög fátíðar. Sérstakar reglur
gilda þar um í fullu samræmi við ís-
lensk lög og venjur."
Lögfrædingar
Helgarpósturinn hefur fjallað um
innheimtustörf lögmanna í tveimur
tölublöðum, þ. 18. júlí og 8. ágúst.
Ýmis nöfn lögfræðinga komu þar
við sögu. Af gefnu tilefni vill blaðið
taka það fram að ónafngreindir
samstarfsaðilar og lögmenn um-
ræddra lögfræðinga blandast ekki
þessari umfjöllun að neinu leyti.
Ritstj.
Leifur, Birkir
og hlutabréfin
Ágætu ritstjórar,
Vinsamlegast birtið eftirfarandi
athugasemd mína í næsta blaði
Helgarpóstsins:
í Helgarpóstinum, sem út kom 15.
VEÐRIÐ
Norðaustanátt. Rigning um
norðan-, vestan- og austanvert
landið. Þurrt en skýjað hér suð-
vestanlands.
REYKJAVÍK: 91-31815/686915
AKUREYRI: 96-21715/23515
BORCiARNF.S: 93-7618
VÍÐIGERÐI V-HÚN.: 95-1591
BLÖNDUÓS: 95-4350/4568
SAUDÁRKRÓKUR: 95-5884/5969
SIGLUFJÖRÐUR: 96-71498
HÚSAVÍK: 96-41940/41594
EGILSTADIR: 97-1550
VOPNAFJÖRDUR: 97-3145/3121
SEYÐISFJÖRDUR: 97-2312/2204
FÁSKRÚÐSFJÖRDUR: 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRDI: 97-8303
interRent
Rannsóknaráð ríkisins
auglýsir styrki til rannsókna
og tilrauna árið 1985
Umsóknarfrestur er til 1. sept. nk. Umsóknareyöublöö fást á skrifstofu ráösins, Lauga-
vegi 13, sími 21320.
Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur:
• Um styrk geta sótt einstaklingar, stofnanir eöa fyrirtæki.
• Styrkfé á árinu 1985 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum tæknisviö-
um. Sérstök áhersla skal lögö á:
- fiskeldi,
- upplýsinga- og tölvutækni,
- líf- og lífefnatækni,
- nýtingu orku til nýrrar eöa bættrar framleiðslu,
- undirstööugreinar matvælatækni,
- framleiðni- og gæöaaukandi tækni.
• Mat á verkefnum sem sótt er um styrk til skal byggt á
- líklegri gagnsemi verkefnis,
- gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eöa þróun atvinnugreina,
- möguleikum á hagnýtingu á niöurstööum hér á landi,
- hæfni rannsóknamanna/umsækjenda,
- líkindum á árangri.
• Forgangs skulu aö ööru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um aö
- samvinna stofnana eöa fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur í framkvæmd
verkefnisins,
- fyrirtæki leggja umtalsveröa fjármuni af mörkum,
- líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar í atvinnulífi. Þó er
einnig heimilt aö styrkja verkefni sem miöa aö langframa uppbyggingu á færni á
tilteknum sviöum.
FÖSTUDAGSKVÖLD
í Jl! HÚSINUI í Jl! HÚSINU
OPK> í ÖLLUM DEILDUM T1L KL. 21 i KVÖLD
IMýkomin unglinga- húsgögh í húsgagnadeild Raftækjadeiid 2. hæð Rafmagrstæki alls konar, sjónvörp, videotæki, ferðaútvarpstæki, reiðhjól.
JL-hornið í JL-portinu Grill— grillkol — uppkveikjulögur — spritttöflur — grilltangir L og teinar — kælitöskur — hitabrúsar. i
Verslið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin best.
E
Jón Loftsson hf.
A A A A A A
□ lCCJ OlJ^
CiCZC
... cjLiijgg, -
Hringbraut 121 Sími 10600