Helgarpósturinn - 09.01.1986, Síða 11
sér hvort ferjan muni ekki láta á sjá
eftir að hafa leikið hlutverk flótta-
mannabúða í marga mánuði. . .“
Pirringur húmanistans í Kaup-
mannahöfn er tvíþættur. Ef við byrj-
um á flóttamannabúðunum, þá er
fyrst að spyrja: Hvað gerir að verk-
um að skip er illa leikið eftir hlut-
verk sitt sem flóttamannabúðir? Er
búist við að skipið breytist í nokkurs
konar flóttamannabúðir eins og við
sjáum stundum í sjónvarpi, þar sem
mannlífið er í brúnum litum og
vatnið sótt í fötu, gruggugt og fullt af
veirum? Eða getur það verið að
dökkhært fólk sem orðið hefur fyrir
þeirri ógæfu að fæðast langt í burtu
frá íslandi hafi aldrei lært mikilvægi
hreinlætis? Eða það sé svo fáfrótt að
það álíti gat á gólfi vera klósett og
þvoi sér síðan um hendur í því sem
við vitum að er klósett? Kveiki bál í
brú skipsins og malli þar undarlega
lyktandi pottrétti sem venjulegir Is-
lendingar fá magakveisu af? Já.
Ahyggjur landans eru margar.
Nú, hinn hluti pirringsins er hinn
sígildi bjálki í eigin auga. Reynsla
mín af þjóð minni er nefnilega sú að
hún álíti útlöndin flóttamannabúðir
(í íslenskum skilningi þess orðs).
Ofáar dyr eru lokaðar íslendingum
eftir að þeir hafa haldið fagnaði á er-
lendri grund. Hvort sem þeir hafa
átt sér stað í norrænu skammdegi
eða í suðrænni sól. Útlönd eru
greinilega álitin leiksvið sem hverfa
þegar þau eru yfirgefin. í einskærri
kátínu og gleði eru vaskar rifnir upp
með rótum, rúður brotnar og hvað
er æla á milli vina? Nei. Ef talið á að
snúast um hreinlæti held ég að Is-
lendingar, það er að segja þeir
mörgu sem áhyggjur hafa af ferj-
unni Norrænu, ættu frekar að fara
víðreist um eyjuna fögru og kenna
bræðrum sínum, systrum og sjálfum
sér hvernig þokkaleg umgengni
göfgar sálina og eykur hróður þjóð-
ar okkar meðal annarra þjóða. Og
sjá, slóðir íslendinga verða spegil-
gljáandi! Ágætis tækifæri til að
kynnast hreinlætisástandi fólks á
flótta væri að opna land okkar fyrir
því. Á móti gæti það lært hvernig
vera má hamingjusamasta þjóð í
heimi.
PS. Á þessum tímum mengunar,
þar sem höfin breytast í geislavirka
drullupolla, langar mig til að vita
hvernig blaðamaður Helgarpóstsins
skýrir trú sína á að þriggja mánaða
sigling Norrænu um Ermarsund á
vegum þýsks skipafélags geri skipið
spegilgljáandi?
Erla Sigurdardótlir blaðamadur
Kaupmannahöfn
BILALEIGA
REYKJAVIK:
AKURHYRI:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUÐÁRKRÓKUR:
SIGLUF-JÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTADIR:
VOPNAI JÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRDUR:
FÁSKRÚDSFJÖRDUR:
HÖFN HORNAFIRÐI:
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
HITACHI
IÐNTÖLVUR
PCJ-16 frá Hitachi er byggö upp af
einingum, 128 inn-/útgangar hámark,
tímaliöar, teljarar, prentara-/tölvutengi,
hœgt aö forrita meö PC-tölvu.
Allt aö 16 iöntölvur geta unniö saman
viö samtengingu um Ijósleiöara.
Aöstoöum viö kerfis- og hönnunarvinnu ef
óskaö er.
' TÆKNI :VAL
Grensásvegi 7, 108 Reykjavík,
Box 8294, S: 81665, 686064
Hættu að pæla
og gerðu eitthvað!
Before Afiet
. BUSIUNt ■
í L UPP AfiM
i R IJPP ARM
. Mlf) Sf CTION
s WAISI
.ABDOMfN
, HIPS
. L UPP THIOH
9 R UPP THIGH
.o l MID THIGH
R MID THIGH
Lt I T KNEF
.) RIGHr KNt F.
.. LEPT CALF
.. RIGHT CALf
.6 LFPT ANKLE
., RIGHr ANKl [
Ný leið
til megrunar
3 vikna kúr
3 tímar Clarins
megrunarnudd
3 tímar Kwik Slim
Fótaaðgerða- og snyrtistofan
Viktoría
Eddufelli 2-Sími 79525
HELGARPOSTURINN 11