Helgarpósturinn - 04.09.1986, Qupperneq 3
FYRST OG FREMST
KOSTNAÐARsamar langferðir
með sveitabörn í skóla komust á
dagskrá í hinni vikunni þegar
Sverrir Hermannsson fékk þá hug-
mynd að láta sveitarfélögin borga
þennan póst sjálf, — enda væri
þessi akstur fádæma kostnaðar-
samur og laus við alla hagræð-
ingu. Fyrir norðan, austan og
vestan stóðu oddvitar á öndinni af
undrun og mundu ekki betur en
þeir hefðu undanfarið þurft að
borga hluta í akstri sem ríkið
hefur skipulagt, víða með versta
hugsanlegu móti. Þannig eru fá-
einir Húnvetningar af yngri kyn-
slóðinni keyrðir utan frá Skaga,
framhjá skólanum á Skagaströnd, í
gegnum Blönduós þar sem líka er
ágætur skóli og ekki hleypt út fyrr
en í Torfalækjarhreppi að Húna-
völlum, oft margra tíma barningur
í ófærð og kulda. Sömu oddvita
rámar væntanlega í að ríkið lét
líka byggja heimavistarskóla að
Húnavöllum, eftir þess tíma for-
skrift en breytti stefnunni í skóla-
málum þegar húsið var rúmlega
fokhelt og hefur síðan skipað
heimavistunum að vera tómar.
Sömu sögu hafa menn ofan af
Skaga að segja, — börnin keyrð í
gegnum alla skólana á Akranesi, í
kringum Akrafjall og upp að Leir-
árskóla. I gervöllum Þingeyjar-
sýslum, á Suðurlandi, í Eyjafirði,
við Djúp og miklu víðar hafa svo
fullkomnir heimavistarskólar
staðið auðir vegna keyrslugleði
skólamanna fyrir sunnan — sem
móta skólastefnu í umboði ríkisins.
Þetta sama ríki tilkynnir sveita-
varginum nú að hann geti bara átt
sig með þennan lögskipaða skóla-
akstur ...
Á HVERFISGÖTUNNI hefur
lögreglan haft augu og nef opið
fyrir eitruðum landa að undan-
förnu eftir að þrír af fastagestum
og góðkunningjum stofnunarinnar
fengu í magann, allir í senn, og
einn það hastarlega að vera
færður í sjúkrarúm. Kveisa þessi
kom upp fyrir rúmri viku og þá
strax beindust augu lögreglu að
ákveðnu landadreifikerfi í borg-
inni, — en talið er að á hverjum
tíma starfi nokkrar landastöðvar,
misstórar og bruggandi misgóðan
drykk. Það er svo sjaldnar að
tekst að stöðva þessa starfsemi
eða hafa upp á bruggunarstöðum.
Sá landi sem nú lá undir grun er
talinn eiga uppruna sinn í mjög
stórri og viðamikilli bruggstöð og
því var búist við að
kveisumönnum myndi fjölga
mikið. Þegar það kemur svo upp
á, að engir fleiri hafa kvartað við
lögreglu eða aðra yfir göróttum
undirheimadrykk, þykir allt benda
til þess að félagarnir þrír hafi
blandað ólyfjan í glösin sín sjálfir,
étið einhvern óþverra í meðlæti
eða framið á annan hátt
annarlega neyslu ávanalyfja. Það
bendir því allt til þess að landinn í
borginni sé bara í góðu lagi. ..
ÞAÐ ER FLESTUM huiin
ráðgáta hvað veitingamenn leggja
mikið kapp á að fá Orator, félag
laganema, til þess að sjá um miða-
söluna hjá sér. Félagið rak danssali
Hótel Borgar um 16 mánaða tíma-
bil þegar Sigurður Kárason, sem
frægur er af því hversu seigur
hann varð í að skulda Hermanni
Björgvinssyni ávísanir, rak staðinn.
Þá sáu laganemar um miðasölu,
fatahengi, diskótekið og dyraverð-
ina og fórst það svo vel úr hendi
að fyrir ágóðann af samningnum
við Sigurð gátu þeir boðið til sín
laganemum úr fjarlægum deildum
jarðar til kvöldverðarboðs á Borg-
inni. Þegar svo Ólafur Laufdal tók
við Borginni vildi hann ekkert
með laganemana gera og sá sjálf-
ur um sitt fatahengi og diskótek.
Þó svo Laufdal hafi ekki séð sér
neinn hag í laganemunum virðast
nágrannar hans í Kreml gera það.
Þeir hafa gert samskonar samning
við Orator og Sigurður Kárason
gerði á sínum tíma. Fyrir sín við-
vik fá laganemarnir umtalsverða
prósentu af miðaverði og því geta
laganemar heimsins byrjað að
hlakka til Gala-dinners í Kreml,
Islandi.
I FRJALSRI verslun, sem kom
út í gær, er viðhafnarviðtal við
samtímamanninn Svein R. Eyjólfs-
son, sem oft hefur verið kallaður
hinn íslenski „Springer". Sveinn
hefur reynt að forðast sviðsljósið
og ekki á hverjum degi sem viðtöl
birtast við þennan blaðakóng og
fyrirtækjasafnara.
í Frjálsri verslun kemur m.a.
fram að Sveinn R. hefur stofnað
og/eða setið í stjórn eftirtalinna
fyrirtækja: Ármannsfell, Andri hf.,
Reykjaprent hf., Blaðaprent, Hilmi
hf., Dagblaðið hf., Frjáls fjölmiðlun
hf., Jón Brynjólfsson hf., Isfilm hf.
og Hafskip hf.
I VIÐTALINU við Svein R. Eyj-
ólfsson segir af góðu samstarfi
svonefndrar „fjórmenningaklíku".
Auk Sveins er Hörður Einarsson í
þessari klíku. „Hinir tveir í klík-
unni eru ritstjórarnir Jónas og
Ellert," segir Sveinn R. Eyjólfsson.
Eftir sársaukafullan skilnað og full-
an fjandskap Vísisliðsins og Dag-
blaðsmanna fyrir áratug og enn
sársaukafyllri sameiningar blað-
anna í DV 1981 þykir mörgum al-
veg nóg um lofsönginn um góða
samstarfið í dag. Gárungunum
þykir einnig hálf skondin nafngift
þeirra félaga á sjálfum sér, — fjór-
menningaklíkan — í ljósi þess
hver urðu örlög þeirrar fjórmenn-
ingaklíku sem voldug var í Kína á
árum áður ...
í TENGSLUM við nýafstaðið
þing ungra framsóknarmanna létu
ófáir ljós sitt skína og almennt
var boðað úr herbúðum unglið-
anna að þingið yrði átakaþing, en
síðan hætt við öll átökin á elleftu
stundu. Helgi Pétursson fyrrver-
andi poppari og Tímaritstjóri en
nú PR-maður SIS var einn þeirra
sem komst í sviðsljósið þessa
framsóknardaga fyrir grein í þjóð-
málablaði framsóknarmanna, Sýn
og Tímanum þótti svo mikið um
að hann fékk sérstakt leyfi hjá höf-
undi til þess að birta greinina. Á
SUF-þinginu fyrir norðan reifaði
Helgi svo sömu grein í ræðum og
samtölum við flokksbræður á öll-
um aldri. Þótti mörgum nóg um
því reyndari frammarar könnuðust
við pistilinn af erindi Helga á mið-
stjórnarfundi SUF-ara á Bifröst fyr-
ir tæpu ári, næsta orðrétt sá sami
og því svoldið gamall. . .
KONA NOKKUR í höfuð-
staðnum hefur nýverið lagt fram
kæru á hendur Guðmundi Ás-
mundssyni, sem þekktur er fyrir
að versía með hjálpartæki ástar-
lífsins. Fékk konan bækling frá
fyrirtæki Guðmundar í póstkröfu,
en segist hafa haldið þetta vera
sendingu frá dóttur sinni og því
leyst það út í pósthúsinu. Þegar
hún síðan komst að því hvers
kyns var, hringdi frúin í Rann-
sóknarlögreglu ríkisins og kærði
Guðmund fyrir að „misbjóða
sómatilfinningu sinni“ eins og það
ku heita á lagamáli.. .
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
sjávarútvegsráðherra er í viðtali í
nýjasta tölublaði Heimsmyndar og
lætur þar ýmislegt fjúka sem eftil-
vill er samstarfsaðilanum í ríkis-
stjórn mátulega þóknanlegt. Til
dæmis ætlum við að sjálfstæðis-
mönnum falli ekkert sérlega vel í
geð ummæli Halldórs um að
Reaganstjórnin verði að „skilja
það að hún getur ekki vaðið yfir
hagsmuni annarra þjóða" og að
„pólitískt samband ríkjanna hefði
verið rofið“ ef komið hefði til
efnahagsþvingana Bandaríkjanna
gegn íslendingum. Halldór segir
ennfremur: „Mér finnst að Banda-
ríkjamönnum veitist margt of auð-
velt í samskiptum við okkur. Vil
ég til dæmis nefna mannvirkja-
gerð í Helguvík og ratsjárstöðv-
ar. ..
IÐULEGA eru vinningar í get-
raunum og happadráttum tilefni
fagnaðar og tilhlökkunar. Hið and-
stæða getur þó gerst, eins og
sannaðist á annars ágætri tœkni-
sýningu í nýja Borgarleikhúsinu.
Fjölskylda nokkur frá Eskifirði
hafði brugðið sér í bæinn til að
skoða sýninguna og var svo
lukkuleg að fá vinning í sérstakri
þekkingargetraun. Hið óheppilega
í dæminu er að fólkið gat ekki
tekið vinninginn heim með sér
austur á firði, því hann fólst í því
að fá frítt í sundlaugarnar í Laug-
ardal og ferðir með Strœtisvögn-
um Reykjavtkur út árið. Nokkuð
torsótt að nýta sér slíkan vinning
þegar maður er staddur í nokkur
hundruð kílómetra fjarlægð...
Á þessari mynd úr Frjálsri verslun sést fjórmenningaklíkan á fundi — Jónas, Ellert,
Sveinn og Hörður.
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Án ráðuneytis Alþingi er einskis virði, Arnalds hefur skipt um svið. Uppreisninni á ísafirði ákvað hann að veita lið. „Verið þið sýnilegir!" - BOÐSKAPUR HELGA PÉTURSSONAR, FRAMSÓKNARMANNS OG BLAÐAFULLTRÚA SAMBANDSINS, TIL ÞINGMANNANNA FLOKKS- BRÆÐRA SINNA i TILEFNi AF ÞINGI SAMBANDS UNGRA FRAMSÖKNARMANNA.
Niðri.
Hinn 1. september síðastliðinn tók Geir Hallgrímsson við stöðu seðla-
bankastjóra af Davíð Ólafssyni, sem þá lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Eru þetta síðustu tilfæringarnar í kjölfar þess að Þorsteinn Pálsson kom
inn á rfkisstjórnarheimilið fyrir ári, en eins og kunnugt er vék Geir úr
stjórninni til þess að hleypa Þorsteini að. Við þessar hræringar lifnuðu
við umræður um að bankar og sendiráð væru notuð sem eins konar elli-
heimili fyrir útbrunna stjórnmálamenn. Nú hefur Geir hins vegar tyllt
sér f bankastjórastólinn og því slógum við á þráðinn til hans.
Hefurðu unnið í
banka áður?
Geir Hallgrímsson, seðlabankastjóri
„Nei, nei. Ég hef ekki unnið í banka fyrr."
— Heldurðu að þú komi til með að sakna stjórnmál-
anna?
„Vafalaust. Að vísu horfi ég fram á veginn á sviði míns eigin
starfs, en ekki á fyrra starfssviði."
— Hvers heldurðu að þú komir til með að sakna
mest?
„Það er erfitt að segja. Stjórnmálin eru svo fjölbreytt. Það
vegur ekki eitt þyngra öðru í þeim efnum, en sem betur fer er
mitt nýja starfssvið einnig mjög fjölbreytt. Efnahagsmálin hafa
ávallt verið eitt af mínum megin viðfangsefnum og áhugamál-
um á sviði stjórnmálanna, þannig að ég hef tök á að fylgjast
með og taka þátt í stefnumótun á því sviði."
— Ertu kannski valdameiri núna en t.d. á meðan þú
varst ráðherra?
„Það held ég að sé af og frá. Hins vegar hef ég aldrei verið
að hugsa um völd í þeim skilningi að þau út af fyrir sig hafi gefið
mér neina fullnægju, heldur hvort maður geti látið eitthvað gott
af sér leiða — 'hvar sem maður er að starfi."
— Má búast við einhverjum breytingum í kjölfar
komu þinnar í bankann?
„Ég á ekki von á því."
— Verður ekki erfitt fyrir þig að sýna hlutleysi í þessu
starfi?
„Nei. Ég hygg að það verði ekkert erfitt."
— Hafa ekki f lestir seðlabankastjórar verið hagfræð-
ingar?
„Ég held að það hafi verið misjafnt."
— Ertu ennþá stjórnarformaður í Árvakri?
„Það er ekki búið að halda framhaldsaðalfund, þannig að
það er ekki frágengið."
— Hvað þýðir það nákvæmlega?
„Það þýðir að það er ekki búið að ganga frá þeim málum enn-
þá"
— Samræmist það ekki illa þínu nýja starfi að eiga
stóran hlut í ýmsum fyrirtækjum?
„Alveg áreiðanlega ekki. Ég er ekki í stjórn þeirra og þar að
auki eru þau ekki skuldskeytt Seðlabankanum, eins og gefur
að skilja."
— Kom til greina að þú yrðir sendiherra í Washing-
ton?
„Nei. Það kom aldrei til greina."
— Þú hefur þá ekki þurft að velja á milli sendiherra-
stöðu og bankastjóraembættisins?
„Nei. Við hjónin höfum ekki áhuga á því að starfa erlendis
eða vera þar til lengri dvalar."
— Langaði þig ekkert til þess að setjast í helgan
stein?
„Nei, það er af og frá. Ég hef góða heilsu og er fullur starfs-
löngunar og hef fengið kappnóg af því að hafa ekki ákveðinn
starfa á hendi síðastliðna nokkra mánuði. Ég get því ekki hugs-
að mér að setjast í helgan stein, síður en svo."
— Svona að lokum, Geir. Verður það enginn vandi
fyrir þig að starfa með Tómasi Árnasyni sem samherja,
eftir að hafa haft hann að pólitískum andstæðingi í
fjölda ára?
„Það verður enginn vandi. Við störfum ekki á flokkspólitísk-
um grundvelli hérna í Seðlabankanum."
HELGARPÓSTURINN 3