Helgarpósturinn - 04.09.1986, Page 25
HHins og HP hefur skýrt frá er
gefið út rit á Akureyri, sem heitir
Akureyrartíðindi. Ritstjóri blaðsins
er Tómas Gunnarsson, sem var í 5.
sæti sjálfstæðismanna á Akureyri í
bæjarstjórnarkosningunum í vor og
blaðamaðurinn er Bjarni Árna-
son, sauðtryggur sjálfstæðismaður.
Báðir eru virkir í flokksstarfinu. í
nefndu blaði voru á dögunum
vangaveltur um þingmannsefni í
næstu kosningum, og þar sagði, að
„heyrst hefði“, að Stefán Sig-
tryggsson ætlaði fram í 3. sæti í
prófkjöri. Þetta var hárrétt. Hins
vegar vill svo skemmtilega til, að
þessir ungu, frjálsu og óháðu blaða-
menn Akureyrartíðinda sátu lokað-
an fund ungra sjálfstæðismanna,
þar sem Stefán tilkynnti fyrirætlan
sína. í blaðinu hét það, að „heyrst
hefði“...!
o
^^■g fyrst við erum farnir að
minnast á Ákureyrartíðindi, sem
er fjórblöðungur á stærð við A4, þá
getum við ekki annað en brosað yfir
umkvörtun blaðsins yfir því, að í
þarsíðasta HP var sagt frá dulnefnis-
grein um slappleika og ósjálfstæði
bankastjóra á Ákureyri, sem þurfti á
„grænu ljósi" að halda að sunnan til
þess að mega lána 200 þúsund krón-
ur vegna bílakaupa. Við staðhæfð-
um, að „Einar“, sem er dulnefnið á
þeim félögum Tómasi og Bjarna,
hefði átt við bankastjóra Lands-
bankans á Akureyri vegna þess að
með greininni birtist mynd af útibúi
Landsbankans á Akureyri. Þetta var
sagt rangt í næsta tölublaði AT og
því fórum við að hringja norður og
kanna hvers vegna piltarnir væru
að pukra með það við hvaða banka
þeir ættu. í ljós kom, að þeir áttu við
Iðnaðarbankann á Akureyri, en þar
situr við stjórnvölinn dyggur sjálf-
stæðismaður en styggur, og það
hafa „þeir“ Einar vitað og misvísað
með mynd af saklausum Lands-
bankanum. Ekki vitum við hvort AT
skipta við Iðnaðarbankann. ..
u
ndanfarið hefur sú saga
gengið um bæinn, að Benedikt
Davíðsson formaður bankaráðs Al-
þýðubankans og verkalýðsforkólfur
hafi lagt hart á Stefán Gunnarsson
bankastjóra Aiþýðubankans til þess
að knýja fram bankalán handa Guð-
mundi J. Guðmundssyni, sem
Guðmundur ætlaði að nota til þess
að greiða „bjarnargreiða" Alberts
Guðmundssonar tilbaka. Sam-
kvæmt heimildum HP mun þetta
ekki vera rétt. Sannleikurinn mun
víst vera sá að efnt var til nýrra sam-
skota handa Guðmundi og í þetta
sinn voru það flokksbræður hans
öflugir í Alþýðubandalaginu, sem
reiddu fram seðlabúntin í Alþýðu-
bankanum, sem síðan útbjó tékka
handa skiptaráðanda, á endan-
um. . .
D
■^^addir eru nú uppi um að það
sé ekki seinna vænna fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að kalla sterkasta og
vinsælasta leiðtoga sinn til starfa á
landsvísu -— náttúrlega Davíð
Oddsson borgarstjóra, sem þykir
að öllu leyti vænlegri formaður en
Þorsteinn Pálsson. Líklegt verður
þó að teljast að Davíð sitji út kjör-
tímabil sitt sem borgarstjóri. Að því
loknu — eða máski fyrr — losnar
auðvitað borgarstjórastaðan í
Reykjavík. Það er sagt að Magnús
L. Sveinsson, forseti borgarstjórn-
ar og formaður Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur, hugsi sér gott til
glóðarinnar. Raunar er sagt að störf-
in í Verslunarmannafélaginu hafi
heldur setið á hakanum hjá Magnúsi
uppá síðkastið, enda borgarstjórnar-
vafstrið tímafrekt. Talsverðrar
óánægju kvað gæta með Magnús
innan félagsins og er talið nær
öruggt að mótframboð komi gegn
honum þegar næst verður kosið í
stjórn. Annars mun Magnús L.
Sveinsson njóta heldur takmarkaðs
stuðnings meðal ungra sjálfstæðis-
manna, sem vona að borgarstjóra-
draumar hans verði aldrei að veru-
leika. Þeir finna honum meðal ann-
ars það til foráttu að hann og félag
hans hafi staðið gegn því að verslun
og þjónusta í Reykjavík hafi getað
þróast í sambærilega frjálsræðisátt
og í nágrannabyggðarlögunum. . .
J
won Baldvin Hannibalsson
hefur að undanförnu verið á áróð-
ursferðalagi um Austfirði og er
hann yfirlýsingaglaður að vanda.
Hann mun hafa lýst því yfir á a.m.k.
tveimur fundum með „sínum
mönnum", að ef þeir komi sér ekki
saman um frambærilegan heima-
mann til framboðs í næstu alþingis-
kosningum, fari hann sjálfur í fyrsta
sæti á Austfjörðum. Alþýðuflokk-
urinn mun ekki hafa haft kjör-
dæmakjörinn þingmann þarna frá
því árið 1959 og þessu ætlar krafta-
verkakratinn nú að gera bragarbót
á í komandi kosningum. Á undan-
förnum árum hefur flokkurinn
gjarnan sent Austfirðingum menn
að sunnan, m.a. Bjarna Guðnason
og Guðmund Árna Stefánsson.
Og nú hafa heimamenn sem sagt
eins mánaðar frest til þess að finna
frambærilegan kandídat, eða fram
að flokksþinginu í októberbyrjun,
ellegar mun Jón Baldvin sjálfur gera
tilkall til sætisins. ..
KL10-16
JL Byggingavörur munu efna til víðtækrar vörukynningar á
laugardögum í vetur.
Tilgangurinn er að fræða viðskiptavini, og þá helst hinn almenna
neytanda um sem flest atriði sem lúta að húsbyggingum, viðhaldi
húseigna, verklag, aðferðirog mismunandi efni. Kynna helstu nýjungar
áhverjumtíma.
Við byrjum laugardaginn 6. september.
JL Byggingavörur, Stórhöföa.
Laugardaginn 6. septemberkl. 10-16.
Útimálning, innimálning.
Sérfræöingurfrá Málningarverksm.
Hörpu verður á staðnum.
JL Byggingavörur v/Hringbraut.
Laugardaginn 6. septemberkl. 10-16.
Fúavörn, fúavarnarefni.
Sérfræöingur frá Pinotex - Sadolin
verður á staðnum.
Komið, skoðið, fræðist
2 góðar byggingavöruverslanir
austast og vestast í borginni
BYGGINGAVÖRUR
Stórhöföa, sími 671100 • Hringbraut 120, sími 28600
.... —
'mmmurn
MAZDA 323 4 dyra Sedan 1.3 árgerð
1987 kostar nú aðeins 384 þúsund
krónur. Þú gerir vart betri bílakaup!
Aðrar gerðir af MAZDA 323 kosta frá
348 þúsund krónum.
Nokkrir bílar til afgreiðslu úr viðbótar-
sendingu, sem er væntanleg eftir
rúman mánuð. Tryggið ykkur því bíl
strax.
Opið laugardaga frá 1 - 5
wazoB
BÍLABORG HF.
SMIÐSHÖFÐA 23, SÍMI 63-12-99
(gengísskr 28.8.86)
HELGARPÓSTURINN 25