Helgarpósturinn - 04.09.1986, Side 31
F
I yrir fjórum vikum birtum við
texta auglýsingar, sem Markús
Örn Antonsson tók ákvörðun um
að ekki væri hæf til útsendingar á
rás 2. Um var að ræða leikna aug-
lýsingu frá Bandalagi jafnaðar-
manna, þar sem fólk var hvatt til
þess að stinga ekki höfðinu í sand-
inn heldur taka afstöðu í stjórnmál-
um. Þegar HP bar þessa sömu aug-
lýsingu undir auglýsingastjóra
Bylgjunnar, nýju útvarpsstöðvar-
innar á höfuðborgarsvæðinu, sagð-
ist hann ekki sjá neitt athugavert við
hana og að hann hefði hiklaust tek-
ið við slíkri auglýsingu. . .
||
Hörgull á kennurum er ekki
nýnæmi hér á landi og ástandið í
haust eins og í meðalhausti en samt
heldur skárra en í fyrra, sem var líka
verra en afskekktustu menn muna.
Ástæðan er fyrst og fremst sú að nú
snúa mikið til baka þeir kennarar
sem fóru í leyfi síðasta sumar til þess
að mótmæla bágum kjörum og lé-
legum kjarasamningum. A.m.k. eru
mun fleiri að koma úr leyfi í haust
heldur en var síðasta haust. Samt er
víða hallæri og virðist ekki einvörð-
ungu bundið við afskekktustu út-
kjálka eða snjóþunga firði. Bæði á
Akranesi og í Hveragerði hefur
gengið erfiðlega að fá kennara. En
ástandið er líka slæmt í Bolungar-
vík, á Hornafirði, Vopnafirði og Pat-
reksfirði. Á alla þessa staði vantar
fjóra grunnskólakennara og fjöl-
margir staðir fylgja í kjölfarið með
vöntun upp á tvo og þrjá....
I#
M^Bkennarahallærinu á haustin
fylgir sá fasti liður í menntamála-
ráðuneytinu að þar sækir um
kennslu fólk sem synjað er á hverju
ári. Samkvæmt heimildum HP er
hér á ferðinni ákveðinn hópur fólks
sem hvergi fær vinnu, getur ef til vill
hvergi unnið en á þá við þessháttar
vandamál að stríða að gera sér ekki
frein fyrir þeim annmörkum sjálft.
ráðuneytinu er talið að fólk af
þessu sauðahúsi sleppi hvergi inn,
—■ sé aldrei ráðið. Aðrir heimildar-
menn HP úr kennarastétt telja að
virðingu stéttarinnar sé svo komið
að í kennslustörf veljist því miður
oftar en ekki fólk sem ekki telst fært
í aðra vinnu, ekki veldur kennslunni
og eru tæpast þær fyrirmyndir sem
við ætlum ungviðinu. Allt á reikn-
ing lágra launa. Svo mikið er víst að
á hverjum vetri koma til kennslu ný-
liðar sem gefast upp og hverfa eftir
nokkurra vikna kennslu, skólunum
til ómældra óþæginda, og án þess
þó að skólastjórar gangi endilega
eftir þessum mönnum að halda
áfram.. .
Wr orvaldur Garðar Krist-
jánsson, forseti Sameinaðs þings,
er veisluglaður þessa dagana. Pegar
sýning á tiliögum í samkeppninni
um skrifstofuhús Alþingis var opn-
uð og verðlaun veitt, var haldin 250
manna veisla með kampavíni og
kransakökum á línuna. Nú í vikunni
var síðan mikil stórveisla á Hótel
Sögu í tilefni þess að hér var stödd
sjö manna sendinefnd frá írska þing-
inu. Og það var ekki annað að sjá en
þingforsetinn og frú skemmtu sér
vel, þar sem þau veifuðu til sjón-
varpsmanna á konunglega vísu í
fréttatímanum á dögunum. . .
|k|
H ú eru væntanlega síðustu
forvöð fyrir næturhauka að heim-
sækja klúbbinn góða við Klepps-
mýrarveg sem HP sagði fyrst frá i
tengslum við vændisrekstur Pan-
hópsins sáluga. Nú í vikunni hafa
fjölmiðlar sagt frá heimsóknum lög-
reglu í klúbb þennan en hún hefur
þó ekki treyst sér til að loka fyrir
starfsemina fyrr en fyrir liggur úr-
skurður Ríkissaksóknara. Hans er
að vænta innan skamms en þó er
talið að áður verði eigandinn kom-
inn af landi brott og komandi helgi
því sú seinasta sem opið verður.
Heimildir HP herma að aðför lög-
reglu sé þó ekki það sem Klepps-
mýrarkappinn óttast. Samhliða bar
og diskóteki hefur verið rúllettuspil
í gangi og talið að þar hafi peningar
verið settir í púkk. Slík skuldamál
verða auðveldlega að hitamálum og
á vissum augnablikum getur verið
betra fyrir suma að forða sér. . .
ar hjá stjórnendum í þjóðfélaginu á
síðari tímum. Undanfarna daga hef-
ur verið í gangi ein slík könnun á
vegum rásar 2. Hringt er í fólk og
það fyrst spurt „Hvort hlustarðu
meira á rás 1 eða rás 2?", en síðan
er það beðið um að nefna besta og
versta þáttinn á rásinni, besta dag-
skrárgerðarmanninn, og svo fram-
vegis. Einnig er kannað hvort við-
mælandi tekur reglulega þátt í vali
vinsældalistans. Það verður athygl-
isvert að sjá hvað út úr þessu kemur,
en við höfum einnig fregnað að
Bylgjan sé með skoðanakönnun í
burðarliðnum, svo ekki ætti að
skorta yfirlit yfir útvarpshlustun á
næstunni. . .
v
erkefnaskrá Leikfélags
Akureyrar er enn ekki tilbúin en
HP hefur fregnað að þar séu hafnar
æfingar á revíu sem ber nafnið Mar-
blettir og er eftir allra handa höf-
unda, bæði íslenska og erlenda.
Revían verður frumsýnd seinni
hluta októbermánaðar. En leikfélag-
ið hefur líka hafið æfingar á barna-
leikritinu Herra Hú en karlinn sá
lifir fyrir það eitt að hræða lítil börn.
Ef það marrar í stiganum eða
ófreskja liggur undir rúminu þá er
það herra Hú. Sumsé hlátur og grát-
ur hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur.
Af ráðningarmálum er það hins veg-
ar að segja að tveir nýútskrifaðir
leikarar, þau Skúli Gautason og
Inga Hildur Haraldsdóttir hafa
bæst í tölu fastráðinna leikara en
auk þess hafa þau María Árnadótt-
ir sem starfað og numið hefur við
Borgarleikhúsið í Malmö og Einar
Jón Briem verið ráðin á lausan
samning...
/1 TROVATORE
Faar symngar —
7~iim
ISLENSKA OPERAN
____iiííi
HELGARPÖSTURINN 31