Helgarpósturinn - 04.09.1986, Qupperneq 34
HELGARDAGSKRÁVEIFAN
Föstudagur
5. september
19.15 Á döfinni.
19.25 Litlu Prúðuleikararnir.
20.00 Fréttir.
20.40 Unglingarnir í frumskóginum.
21.10 Kastljós.
21.40 Bergerac.
22.30 Seinni fróttir.
22.35 Móðurást. (Promise at Dawn).
Bandarísk-frönsk bíómynd frá 1970.
Leikstjóri Jules Dassin. Aðalhlutverk:
Melina Mercouri og Assé Dayan.
00.25 Dagskrárlok.
Laugardagur
6. september
17.30 íþróttir.
19.20 Ævintýri frá ýmsum löndum.
20.00 Fréttir. 7
20.35 Fyrirmyndarfaðir.
21.00 Simon og Garfunkel. Bandarískur
sjónvarpsþáttur frá hljómleikum sem
þeir Paul Simon og Art Garfunkel
héldu undir berum himni í New York
árið 1982. Um 400.000 áheyrendur
hlýddu á þá félaga flytja ein tuttugu
lög sem þeir höfðu ekki sungið saman
í ellefu ár.
22.30 Maður, kona og banki. (A Man a
Woman and a Bank). Kanadísk bíó-
mynd frá 1979. Leikstjóri Noel Black.
Aðalhlutverk: Donald Sutherland,
Brooke Adams og Paul Mazursky.
00.15 Dagskrárlok.
Sunnudagur
7. september
18.00 Sunnudagshugvekja.
18.10 Andrés, Mikki og fólagar.
18.35 Barnahátíð í Reykjavík. Svipmynd-
ir frá barnadagskrá á afmælishátíð
Reykjavíkurborgar 18. ágúst síðastlið-
inn.
20.00 Fróttir.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.45 Kvöldstund með listamanni.
Bjartmar Guðlaugsson. Ólafur
Hauksson ræöir við Bjartmar Guð-
laugsson hljómlistarmann og flutt eru
nokkur lög eftir hann.
21.25 Masada.
22.20 Þess bera menn sár. . . (Der burde
ha' været roser). Heimildarmynd um
danska skáldið J.P. Jacobsen
(1847 — 85) og verk hans.
23.10 Dagskrárlok.
©
Fimmtudagur
4. september
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið. Umsjón: Kristín
Helgadóttir og Sigurlaug M. Jónas-
dóttir.
17.45 Torgið — Tómstundaiðja. Umsjón:
Óðinn Jónsson. Tilkynningar.
19.00 Fréttir.
19.50 Daglegt mál.
20.00 Ég man.
20.50 Gestur í útvarpssal.
21.20 Reykjavík í augum skálda.
22.00 Fréttir.
22.20 Fimmtudagsumræðan — Sam-
skipti íslands og Bandaríkjanna.
23.20 Frá tónlistarhátíðinni í Ludwigs-
burg 1985.
24.00 Frettir. Dagskrárlok.
Föstudagur
5. september
7.00 Fréttir.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fréttir.
8.00 Fréttir.
8.30 Fróttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: ,,Hús 60
feðra" eftir Meindert Dejong.
9.45 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál.
10.30 Sögusteinn.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
12.20 Fréttir.
14.00 Miðdegissagan: ,,Mahatma
Gandhi og lærisveinar hans" eftir
Ved Mehta.
14.30 Nýtt undir nálinni.
15.00 Fréttir.
15.20 Landpósturinn.
16.00 Fréttir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið.
17.45 Torgiö — Skólabörnin og umferð-
in.
19.00 Fróttir.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Sumarvaka.
21.30 Frá tónskáldum.
22.00 Fréttir.
22.20 Vísnakvöld.
23.00 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Lágnætti.
01.00 Dagskrárlok.
Laugardagur
6. september
7.00 Fróttir.
7.30 Morgunglettur.
8.00 Fréttir.
8.30 Fróttir á ensku.
8.35 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
8.45 Nú er sumar.
9.00 Fréttir.
9.20 Óskalög sjúklinga.
10.00 Fréttir.
10.25 Morguntónleikar.
11.00 Frá útlöndum. Þáttur um erlend mál-
efni í umsjá Páls Heiðars Jónssonar.
12.20 Fréttir.
13.50 Sinna.
15.00 Miödegistónleikar.
16.00 Fréttir.
MEDMÆLI
Sjónvarp:
Á laugardagskvöld kl. 21
verður sýnt frá tónleikum
þeim sem þeir Paul Simon og
Art Garfunkel héldu í Central
Park skemmtigarðinum í New
York og drógu að 400.000
manns, hvorki meira né
minna. Þeir flytja án efa öll
gömlu, góðu lögin ásamt fá-
einum nýjum.
Rós 1:
Fimmtudagsumræðan er
þáttur sem er verður fullrar
athygli og að þessu sinni
verður rætt um samskipti
íslendinga og Bandaríkjanna
í ljósi hvalveiðideilnanna
undanfarið.
Rós 2:
Kl. 23 á föstudagskvöldið
hefst næturvaktin undir
stjórn þeirra Þorgeirs rásar-
stjóra og Vignis Sveinssonar.
Hátíð hjá næturhröfnum.
Bylgjan:
Þáttur Hallgríms Thorsteins-
sonar, Reykjavík síðdegis, er í
gangi á daginn milli kl. 17 og
19 og er það mjög svo
áhugaverður þáttur með tón-
listar- og fréttakokteil —
ágætlega blönduðum.
16.20 Á hringveginum.
17.00 Barnaútvarpið.
17.40 Einleikur í útvarpssal.
19.00 Fréttir.
19.35 Hljóð úr horni.
20.00 Sagan: ,,Sonur elds og ísa" eftir
Joharlnes Heggland.
20.30 Harmoníkuþáttur.
21.00 Frá íslandsferð John Coles 1881.
21.40 íslensk einsöngslög.
22.00 Fréttir.
22.20 Laugardagsvaka.
23.30 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar.
01.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
7. september
8.00 Morgunandakt.
8.10 Fréttir.
8.15 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna. Dagskrá.
8.30 Fréttir á ensku.
8.35 Lótt morgunlög.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir.
10.25 Út og suður.
11.00 Messa í Hvammskirkju í Dölum.
Hádegistónleikar.
12.20 Fréttir.
13.30 Aþeningurinn Evrípídes. Fyrri hluti
dagskrár um forngríska leikritaskáldiö
Evrípídes. Kristján Árnason flytur
erindi og kynnir atriði úr leikritunum
Alkestis og Medeu í þýðingu Helga
Hálfdanarsonar.
14.30 Sumartónar.
15.10 Alltaf á sunnudögum.
16.00 Fróttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Framhaldsleikrit: ,.Eyja í hafinu"
eftir Jóhannes Helga.
17.15 Síðdegistónleikar.
18.00 Síðslægjur. Jón örn Marinósson
spjallar við hlustendur.
19.00 Fréttir.
19.35 Frá tónleikum lúörasveitarinnar
Svans í fyrravor.
20.00 Ekkert mál.
21.00 Nemendur Franz Liszts túlka verk
hans.
21.30 Útvarpssagan: ,,Sögur úr þorpinu
yndislega" eftir Sigfried Lenz.
22.00 Fréttir.
22.20 Strengleikar.
23.10 Frá Ðerlínarútvarpinu.
24.00 Fréttir.
00.05 Milli svefns og vöku.
00.55 Dagskrárlok.
tlr?
Fimmtudagur
4. september
9.00 Morgunþáttur.
14.00 Andrá.
15.00 Djass og blús.
16.00 Hitt og þetta.
17.00 Einu sinni áður var.
20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö.
21.00 Um náttmál.
22.00 Rökkurtónar.
23.00 Heitar krásir úr köldu stríði.
24.00 Dagskrárlok.
Föstudagur
5. september
9.00 Morgunþáttur.
14.00 Bót í máli.
16.00 Frítíminn.
17.00 Endasprettur.
20.00 Þræðir.
21.00 Rokkrásin.
22.00 Kvöldsýn.
23.00 Á næturvakt.
03.00 Dagskrárlok.
Laugardagur
6. september
10.00 Morgunþáttur.
14.00 Við rásmarkið.
16.00 Listapopp.
17.00 Iþróttafróttir.
17.03 Nýræktin.
20.00 F.M..
21.00 Milli stríða.
22.00 Framhaldsleikrit: ,,Eyja í hafinu"
eftir Jóhannes Helga.
22.40 Svifflugur.
24.00 Á næturvakt.
03.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur
7. september
13.30 Krydd í tilveruna.
15.00 Tónlistarkrossgátan.
16.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö.
18.00 Dagskrárlok.
BYLGJAN
06.00 Tónlist í morgunsárið.
07.00 Á fætur með Sigurði G. Tómas-
syni.
09.00 Páll Þorsteinsson á léttum nót-
um.
12.00 Hádegisfróttir.
12.10 Á markaði með Sigrúnu Þorvarðar-
dóttur. Upplýsingum miðlað til neyt-
enda, verðkannanir, vörukynningar,
tónlist, flóamarkaður, hlustendaþjón-
usta.
14.00 Pótur Steinn Guðmundsson. Tón-
list í þrjár klukkustundir.
17.00 Hallgrímur Thorsteinsson —
Reykjavík síödegis.
Um helgar eru ýmsir dagskrárliöir í gangi,
til að mynda Vinsældalisti Bylgjunnar, grín-
þáttur með Eddu Björgvinsdóttur, spurn-
ingakeppni í umsjá Þorgríms Þráinssonar
svo eitthvað sé nefnt.
Bylgjan sendir út á FM 98,9.
Svæðisútvarp virka daga frá
mánudegi til föstudags
17.03—18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykja-
vik og nágrenni — FM 90,1 MHz.
17.03—18.30 Svæðisútvarp fyrir Akur-
eyri og nágrenni — FM 96,5 MHz.
ÚTVARP
Að halda flugi
Þá hafa verið ritaðar enn nokkrar iínur
til viðbótar í sögu fjölmiðlunar á fslandi. Ný
útvarpsstöð hefur tekið til starfa í samræmi
við ný lög, sem heimila rekstur einka-
stöðva. Nýja stöðin fór í loftið í liðinni viku
með tilheyrandi virðuleik ávarpa og ræs-
ingu stjórnmálamanns, í þessu tilviki
Davíðs Oddssonar borgarstjóra. Raunar
bendir það strax til þess, að stöðin verði
fyrst og fremst Reykjavíkurstöð, sem nær
til stærsta markaðssvæðisins á landinu,
suðvesturhornsins.
Byigjan iofar góðu þrátt fyrir tæknilegt
hikst fyrstu dagana. Nýja stöðin er fyrst og
fremst poppútvarp eins og Rás 2. í tónlist-
arvali kemst varla hnífurinn á miili enda
þótt það hafi komið fram eftir spurningu
Thors Vilhjálmssonar rithöfundar, að
Mozart væri ekki bannaður á Bylgjunni!
Enn er Bylgjan svolítið óslípuð. Taisvert
ber á tæknilegum hnökrum og sumir dag-
skrármenn og fréttamenn eru stirðir. Rós-
irnar í hnappagati Bylgjunnar eru maga-
sinþættir Hallgríms Thorsteinssonar í eftir-
miðdaginn, þar sem hann leikur tónlist og
rabbar við fólk í fréttunum með nýjum
silkimjúkum stíl, morgunþættir Sigurðar G.
Tómassonar (sem enn virðast þó á mótun-
arskeiði), örugg dagskrárgerð Páls Þor-
steinssonar, eins og hans var von og vísa og
Halldór Halldórsson I ll
svo nýmæli Bylgjunnar, sem eru frétta-
þættir á milli 11 og 12 á kvöldin.
Þessir þættir eru raunar hið merka ný-
mæli á dagskrá Byigjunnar, sem gaman
verður að fylgjast með hvernig muni
ganga. Fram til þessa hafa verið tekin fyrir
fréttaefni og rætt við fólk um málin, leitað
skoðana og álits. Þessir þættir eru í ætt við
bandaríska sjónvarpsþætti, „Nightline"
t.d., sem varð til í framhaldi af sérstökum
þáttum, sem ABC sjónvarpsstöðin hélt úti
á hverju kvöldi, allan þann tíma sem
bandarísku gíslarnir voru í haldi í íran eftir
fall Resa Pahlevis keisara. Þessir þættir
mæltust svo vel fyrir, að ákveðið var að
halda áfram með fréttaþætti á þessum tíma
á hverju kvöldi. Hugmyndin er góð og von-
andi að framkvæmdin hjá Bylgjunni verði
jafngóð. Annars vantar nafn á þáttinn.
Hvernig væri að kalla hann t.d. „Hent á
lofti"? (Er það ekki alveg á mörkunum að
fá mann í þáttinn vegna þess að hann fékk
tækifæri til að auglýsa nærbuxur í
Ameriku?!)
Eftir vikudvöl í loftinu lofar Bylgjan
góðu. Að vísu vantar breidd í tónlistarvalið
og verði ekki breyting á því verður sér-
staða stöðvarinnar umfram Rás 2 eingöngu
fólgin í metnaði til þess að flytja fréttir, sem
er virðingarvert.
Bylgjan er komin á stað. Til lukku með
það og haldið flugi. í kapphlaupinu verður
það vönduð dagskrárgerð með léttu ívafi,
sem sker úr um framtíð Bylgjunnar. Og
ekki má gleyma fagmennskunni. Það er
t.d. í hæsta máta vafasamt að láta fullkom-
lega vanhæfum dægurlagakynni nokkra
klukkutíma eftir dag eftir dag. Vissulega
skapar æfingin meistarann, en æfingarnar
eiga ekki að fara fram á öldum ljósvakans.
En Bylgjan lofar góðu.
SJÓNVARP
*
Isak Singer
„Þegar gömlu kunningjarnir mínir á
kaffiteríunni við hliðina á gyðingablaðinu
Fram spyrja mig hvort ég hafi ekki áhyggj-
ur af því að jiddískan sé að verða útdauð,
svara ég því til að nú séu íbúar jarðarinnar
fjórir milljarðar — en þess verði hinsvegar
ekki Iangt að bíða að þeir verði hundrað
milljarðar. Allt þetta fólk kemur til með að
vanta efni í doktorsritgerðir.. .“
Eitthvað á þessa leið hljóðaði eitt af
snaggaralegum tilsvörum lsaks Bashevis
Singers í sjónvarpsþætti á mánudagskvöld-
ið leið — og rekur mig ekki minni til að
þessi ríkisfjölmiðill hafi um langt skeið haft
á boðstólum betri skemmtan en leikrit
byggt á einni smásögu Singers, og að því
loknu heimildarmynd um þennan mæta en
aldurhnigna rithöfund.
Nei, Singer lá öldungis ekki á liði sínu.
Honum þótti það ganga kraftaverki næst
að gyðingablaðið Fram kæmi ennþá út,
seldist — og það á jiddísku. Honum varð
ekki svarafátt í því efni, fremur en endra-
nær: „Fram hefur lifað af stórblöð einsog
Herald Tribune, The Sun og The Telegraph.
Þessi blöð fóru á hausinn vegna þess að
þau höfðu á snærum sínum unga og
sprenglærða bókara sem sáu glöggt hve-
nær í óefni var komið. Bókararnir hjá Fram
eru gamlir og hálfblindir og því lifir blaðið
enn.“ Síðan bætti Singer við á sinni an-
kannalegu ensku: „Þetta eru náttúrlega
ýkjur, en samt, — þarna leynist viss sann-
leikskjarni."
Og Singer bauð sjónvarpsfólki inní vist-
arveru í íbúð sinni þar sem allt var í megn-
ustu óreiðu, á rúi og stúi, einsog það heitir.
Á því kunni hann líka skýringu: Óreiðan,
sagði hann, er hið upprunalega ástand
hlutanna; áður en ljósið kom og sköpunin
var heimurinn tóm óreiða. Óreiðuna hér
inni fær enginn að snerta.
ísak Bashevis Singer er fyrst og fremst
maður sögunnar, þeirrar sögu sem hefur
upphaf, miðju og endi. ítarlegar sálarfars-
lýsingar eru honum lítt að skapi, sálar-
flækjur sem í löngu máli eru útmálaðar á
bók. í hans augum er rithöfundurinn held-
ur enginn pólitíkus, og þegar hann er
spurður að því hvort sögur hans geti haft
vond og spillandi áhrif, svarar hann að það
geti vel verið. Singer segir sögur, en lætur
lesandanum eftir að lesa út úr þeim aldar-
far, sálarfar og stjórnarfar.
Eitt er þó rithöfundinum lífsnauðsynlegt
— heimilisfang. Heimilisfang Singers er í
löngu horfinni götu í gamla gettóinu í Var-
sjá, sem nasistar gereyddu og enginn hefur
hirt um að endurreisa. Samt telur hann sig
heimilisfastan þar og í heimi sem hefur ver-
ið máður af yfirborði jarðar.
Því tekur Singer af þeirri yfirlætislausu
rósemd hugans, sem honum virðist eigin-
leg og svarar þegar hann er spurður að því
hvort hann sé ekki tímaskekkja: „Erum við
ekki öll tímaskekkja?"
Hafi sjónvarpið þökk fyrir að leggja
mánudagskvöldið undir ísak Singer. . .
34 HELGARPÓSTURINN