Helgarpósturinn - 04.09.1986, Blaðsíða 35
FRÉTTAPÓSTUR
Fjölmiðlafólkið sýknað
Ármann Kristinsson sakadómari hjá Sakadómi Reykja-
víkur hefur kveðið upp sýknuúrskurð yfir þeim 10 starfs-
mönnum Rikisútvarpsins sem ákærðir höfðu verið fyrir að
stöðva með meintum ólögmætum hætti útsendingar hljóð-
varps 1. októher 1984 og hef ja ekki útsendingar sjónvarps-
ins það kvöld. Það voru aðstandendur , ,Fréttaútvarpsins“
og Félags frjálshyggjumanna sem upphaflega kærðu meint
hrot tíumenninganna og gaf ríkissaksóknaraemhættið síð-
an út ákæru. Ármann taldi að tíumenningarnir hefðu ekki
brotið lög með því að sitja heima í mótmælaskyni við að hafa
ekki fengið laun greidd og hefðu ekki reynt að koma í veg
fyrir að aðrir starfræktu útvarpið. Málinu er þó ekki lokið,
því nú íhugar rikissaksóknaraembættið þann möguleika að
áfrýja dómnum til Hæstaréttar.
Neysla hvalkjöts þrefaldast
Reiði landsmanna í garð Bandarikjanna vegna afskipta
stórveldisins af hvalveiðimálum okkar hefur birst með ýms-
um hætti. Sem kunnugt er var okkur þröngvað til að sam-
þykkja að meirihluta hvalafurðanna af veiðunum i visinda-
skyni yrði neytt innanlands og hafa ýmsiraf þessum orsök-
um krafistendurskoðunar á samskiptum íslands og Banda-
ríkjanna. Áþreifanlegasta afleiðing samkomulagsins er þó
hvalkjötsæðið sem hefur gripið um sig: Neysla hvalkjöts
hefur þrefaldast á fáeinum vikum. í ágúst hesthúsuðum við
33 tonn af hvalkjöti á móti aðeins 10 i sama mánuði i fyrra.
Á hinn bóginn liggja fyrir hvalkjötsbirgðir upp á 1500 tonn
og allsendis óvíst með sölu til Japans.
Bylgjan af stað
Ný útvarpsstöð hefur hafið starfsemi sína, rás er nefnist
Bylgjan. Sent er út á FM 98,9. Útvarpsstjóri þessarar fyrstu
,,frjálsu“ útvarpsstöðvar er Einar Sigurðsson, fyrrverandi
fréttamaður sjónvarpsins. Útvarpað verður flesta daga frá
sjö að morgni til miðnættis, en lengur á helgum. Fyrsti gest-
ur Bylgjunnar var enginn annar en Davíð Oddsson borgar-
stjóri.
Vitlaus kvikmynd sýnd?
Minnihlutaflokkarnir í borgarstjórn báru upp þá fyrir-
spurn í borgarstjórn, hvort mögulegt væri að af einhverjum
orsökum hefði vitlaus mynd verið sýnd í tilefni 200 ára af-
mælis Reykjavíkurborgar. Telja minnihlutamenn að mynd
Hrafns Gunnlaugssonar, „Reykjavík, Reykjavík“ sé miklu
frekar áróðursmynd um Davíð Oddsson og Sjálfstæðisflokk-
inn en mynd um Reykjavik. Davið hefur svarað fyrirspurn-
inni á þann hátt að benda fyrirspyrjendum á að lita í eigin
barm, því þeir hefðu sjálfir samþykkt fyrirkomulagið og
höfundinn á sínum tíma.
Fréttapunktar
• Sjálfstæðisflokkurinn á Vestfjörðum ætlar að halda próf-
kjör 11.—12. október vegna komandi alþingiskosninga.
• Tryggingamiðstöðin hf. hefur yfirtekið rekstur Reyk-
vískrar endurtryggingar, með því að afla sér 51% hlutafjár
RE.
• Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur hefur farið framá
rannsókn á hæfni Boga Nilssonar, nýskipaðs rannsóknar-
lögreglustjóra. Jón Helgason dómsmálaráðherra segir Boga
fyllilega hæfan.
• Heimilissýningin ’86 var opnuð sl. fimmtudag og stendur
yfir í alls 10 daga. Um helgina lauk hins vegar tæknisýningu
Reykjavíkurborgar í nýja Borgarleikhúsinu.
• Mikael Karlsson hlaut flest atkvæði hjá heimspekideild
þegar greidd voru atkvæði um þrjá umsækjendur um stöðu
lektors við deildina. Mikael hlaut 27 atkvæði, Erlendur
Jónsson 9 en Hannes Hólmsteinn Gissurarson ekkert og var
Hannes jafnframt úrskurðaður óhæfur til að gegna stöð-
unni.
• Hallinn á ríkissjóði fyrri hluta þessa árs varð 2,6 milljarö-
ar króna og gera áætlanir ráð fyrir litilli lækkun hallans út
árið.
• Geir Hallgrímsson, fyrrverandi ráðherra, þingmaður og
formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur formlega tekið við
stöðu seðlabankastjóra, en hann leysir af hólmi Davíð Ólafs-
son, sem varð sjötugur fyrr á þessu ári.
• Erlendur Einarsson hefir látið af störfum sem forstjóri
Sambands íslenskra samvinnufélaga. Erlendur afhenti í
vikunni lyklana að stærsta fyrirtæki landsins til Guðjóns B.
Ólafssonar, sem á sínum tima varð ofan á í baráttu um stöð-
una, þar sem helsti keppinauturinn var Valur Arnþórsson,
stjórnarformaður SÍS og forstjóri KEA.
• Akranes varð bikarmeistari íslands i knattspyrnu karla
1986 með því að sigra Fram í úrslitaleik um helgina 2:1 og
var það Pétur Pétursson sem skoraði bæði mörk Skaga-
manna. í úrslitabikarleik kvennaknattspyrnunnar var það
hins vegar Valur sem vann, sigraði Breiðablik 2:0.
• Laun í landinu hækkuðu almennt um 3,9% um mánaða-
mótin, i samræmi við ákvæði febrúarsamninganna. 0,39%
’hækkunin stafaði þó af því að verðbólgan fór yfir „rauða
strikið“ svokallaða. Um leið hafa búvörur nú hækkað um
2,9—3,2%.
• Rannsókn Hafskipsmálsins er hafin á ný eftir sumarleyfi
og er stefnt að því að ljúka henni í þessum mánuði og senda
rikissaksóknaraembættinu. Fyrsta dómnum í okurmálinu
svokallaða, dómi Sakadóms Reykjavikur yfir Birni Páls-
syni, hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar og bíða þá aðrar
ákærur í málinu úrskurðar Hæstaréttar.
Andlát
Látinn er Björn Ólafsson, byggingameistari í Hafnarfirði,
61 árs að aldri.
Látinn er Sveinn Guðmundsson, garðyrkjubóndi að
Reykjum í Mosfellssveit, 62ja ára að aldri.
Látinn er Páll Ágústsson, skólameistari Grunnskólans á
Fáskrúðsfirði, 63ja ára að aldri.
FRAMLEIDDIR FYRIR NORÐAIM
Loka
O.N.A. ofn, rennslismynd
J
O
OFNASMIÐJA
NORÐURLANDS
FROSTAGÖTU 3c
SÍMI (96) 21860 AKUREYRI
V: veitirvlinn
O ATV/TDAlVrn TCT C\n?TTAPPPT AP A
O/jLíV!■"iuÍ juLmjL/ xOJLi. O V JCUXæ,£*S\jC •*»1 ■iaWJI’a jl
XIII. LANDSÞING 10.-12. SEPTEMBER1986
HÓTEL SÖGU, REYKJAVÍK
DAGSKRÁ:
MIÐVIKUDAGUR10. SEPTEMBER:
Kl. 09.00: Skráning fulltrúa. Afhending gagna.
Kl. 10.00: Þingsetning: BjörnFriðfinnsson, form. sambandsins. Kosning forseta og ritara þingsins. Kosning kjörbréfanefndar. Ávarpfélagsmálaráðherra, Alexanders Stefánssonar. Ávarp forsetaborgarstjórnar, Magnúsar L. Sveinssonar. Ávarp af hálfu erlendra gesta. Kosning þingnefnda. Skýrsla um starfsemi sambandsins. Tillögur stjórnar og fulltrúa lagðar fram.
Kl. 13.30: Kjörbréfanefnd skilar áliti.
Kl. 13.40: Sveitarfélögin árið 2000: Frsm.: Magnús Ólafsson, hagfræðingur.
Kl. 14.15: Staðbundinsjónvarpskerfi: Frsm.: Ólafur Tómasson, póst- og símamálastjóri
Kl. 15.30: Nýju sveitarstjórnarlögin og tillögur um breytingar á tekjustofnalðgum: Frsm.: Magnús E. Guðjónsson, framkvæmdastjóri.
Kl. 17.30: Starfsemi Sambands ísl. sveitarfélaga 1986-1990: Frsm.: Sigurgeir Sigurðsson, varaform. sambandsins.
CTMA/rTTTn A r^TTD 11 OrOTT'R/rDPD • FÍJVLÍVLXUJL/**xjrUJc\ ili mCiJt JL■
Kl. 09.00: Sveitarfélögin og gróðurvernd: Frsm. IngviÞorsteinsson, magister og Sigurður Blöndal, skógræktarstjóri.
Kl. 10.15: Vistlegri vetrarbyggðir: Þorvaldur S. Þorvaldsson, forstöðumaður Borgarskipulags Reykjavikur.
Kl. 11.00: Stjórnsýslaríkisins í héraði: Steingrímur Gautur Kristjánsson, borgardómari.
Kl. 13.00: Nefndir starfa.
TFÖOTmrTn a r*TYD 1 o cpDTOi/rDPDi r Ub i UUAvjtUK Léím oxliir JL liiiVir5riK■
Kl. 10.00: Nefndarálit lögð fram, rædd og afgreidd.
Kl. 13.30: Kosning stjórnarformanns og annarra stjórnarmanna. Kosning í fulltrúaráð sambandsins. Kosning endurskoðenda.
Kl. 15.00: Þingslit.