Helgarpósturinn - 08.01.1987, Side 6
Opnun sérstaklega fyrir
leikhúsgesti kl. 18.00.
Boröpantanir í síma 11340.
Mildur hárlitur
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóönum á árinu
1987.
Samkvœmt skipulagsskrá sjódsins nr. 361 30. september
1977 er tilgangur sjódsins ,,að veita styrki til stofnana
og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að
varðveislu og vernd þeirra verðmœta lands og menn-
ingar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal
renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum
Náttúruverndarráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal
renna til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og
annarra menningarverðmœta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé
hverju sinni í samrœmi við megintilgang hans, og komi
þar einnig til álita viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er
í liðum a) og b).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði við-
bótarframlag til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en
verði ekki til þess að lœkka önnur opinber framlög til
þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.“
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs.
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 1987. Eldri
umsóknir ber aö endurnýja. Umsóknareyðublöð liggja
frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstrœti 10,
Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðsstjórnar,
Sveinbjörn Hafliðason, í síma (91) 20500.
Reykjavík, 29. desember 1986
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR.
að átta sig á því, að það er í harðri
samkeppni. í kjölfar skipulagsbreyt-
inga hefur nú verið auglýst ný staða,
innanhúss. Er um að ræða einhvers
konar fulltrúa Markúsar Arnar
Antonssonar og Elfu Bjarkar
Gunnarsdóttur, framkvæmda-
stjóra RUV, en starfssviðið mun ekki
fullmótað. Fréttaritari Ríkisútvarps-
ins í Bandaríkjunum, Stefán Jón
Hafstein, mun hafa sótt um þessa
stöðu og er mikill áhugi innan stofn-
unar að fá hann til starfa. Forráða-
menn RUV hafa hins vegar verið að
ieita eftir manni í stöðu þessa og
hefur í því sambandi heyrst nafn
Boga Ágústssonar, fréttamanns á
sjónvarpinu. Talið er að ráðningin
muni þvælast eitthvað fyrir Markúsi
Erni og Elfu Björk. f harðnandi sam-
keppni er vafasamt að hafna færum
mönnum og má gamla gufan varla
við því nú. . .
||
r heimi krata heyrum við,
að fyrsta siettan á vinskap Jónanna
tveggja hafi komið upp fyrir nokkru
vegna hugmynda Jóns Baldvins
um framtíð Þjóðhagsstofnunar, sem
hann mun helst vilja setja undir
Hagstofuna. Þetta mun haía farið
illa í Jón þjóðhaga Sigurðsson sem
skiljanlegt er. . .
| undirbúningi er núna spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna í út-
varpi og sjónvarpi, en þessir þættir
voru meðal vinsælasta dagskrárefn-
is gömlu gufunnar í fyrra. Umsjón-
armaður undankeppninnar, sem
fram fer í útvarpssal verður Vern-
harður Linnet, djassgeggjari og
HP-skríbent, en umsjón með úrslit-
unum í sjónvarpi mun Hermann
Gunnarsson hinn góðkunni
hafa. . .
HANDBOK
SVÆÐISSTJORNAR
MÁLEFNA fatlaðra
I REYKJAVIK
Er komiö inn á flest heimili Reykvíkinga.
Flettiö blaöinu og geymiö þaö þar til þaö
nœ'sta kemur út.
6 HELGARPÓSTURINN