Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 4

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 4
Fólk, sem starfaöi fyrir Arnarflug í Saudi-Arabíu áriö 1985, hefur átt í miklum erfiö- leikum meö aö fá launin sín greidd. Sumir þurftu aö bíöa á annaö ár eftir peningunum og í borgardómi fékkst nýveriö sá árskuröur aö félagiö skuldaöi verkefnisstjóranum háa fjárupphœö, sem þó er langt í aö hann fái í hendur. L VIINNA MlNNA UM LAUN Eins og kunnugt er, hefur Arnar- flug átt í fjárhagserfiöleikum að undanförnu og í kvöld, fimmtudag- inn 5. febráar, hefur verið boðað til hluthafafundar í félaginu. Á dag- skrá er tillaga stjórnar um hœkkun hlutafjár um allt að 130 milljónir. Það eru hins vegar fleiri en eigendur flugfélagsins, sem eiga í erfiðleikum þessa dagana. Fyrir skemmstu féll nefnilega dómur í máli fyrrverandi starfsmanns Arnarflugs, þar sem félagið var dœmt til þess að greiða honum verulega fjárhœð sökum vangoldinna launa og orlofs. Þrátt fyrir dóminn, hefur maðurinn ekki fengið neina úrlausn og skuldir hans halda áfram að hrannast upp, því félagið áfrýjaði úrskurðinum til Hœstaréttar. Þessi íslendingur var einn af mörgum starfsmönnum Arnarflugs í Saudi-Arabíu á árunum 1985 og '86, en fjöldi útlendinga hefur einnig þurft að hafa töluvert fyrir því að fá umsamin laun stn frá þessu tímabili greidd. VERKEFNISSTJÓRINN VANN MÁLIÐ FYRIR DÓMI Maður sá, sem fyrir liðlega tveim- ur mánuðum fékk þann úrskurð í borgardómi að Arnarflug ætti að greiða honum verulega fjárupphæð vegna vangoldinna launa og orlofs, heitir Gísli Maack. Hann var verk- efnisstjóri félagsins í Saudi-Arabíu frá aprílmánuði 1985, en þar hafði Arnarflug þá gert leiguflugssamn- ing. Samkvæmt upplýsingum í dóm- skjali, segist Gísli hafa fengið laun sín greidd seint og illa allan starfs- tímann og hafi hann af þessum sök- um þurft að bera umtalsverðan kostnað og óþægindi. í dómskjali kemur einnig fram að Gísli Maack reyndi ítrekað að inn- heimta skuldina, en að vegna slæmrar fjárhagsstöðu Arnarflugs hafi hann verið knúinn til að leita löghalds til tryggingar kröfunum. Löghaldið var lagt á flugvélina TF- VLU í október 1986. Haft var samband við Gísla Maack, en hann kvaðst ekki kjósa að tjá sig um þetta mál opinberlega að sinni. Staðfesti hann þó við blaðamann HP, að Arnarflug hefði áfrýjað dómi undirréttar og að fyrir lægi að málið færi fyrir Hæstarétt. Engar sættir. hafa sem sagt átt sér stað og ekki munu sáttatilraunir né viðræður af neinu tagi vera í gangi á milli málsaðila. LAUN GREIDD MEÐ GÚMMÍTÉKKA Töluverður fjöldi erlendra ríkis- borgara vann á sínum tíma við um- rætt leiguflugsverkefni Arnarflugs í Saudi-Arabíu, alls 200—300 manns, og samkvæmt upplýsingum HP gekk starfsfólkinu oft æði illa að fá laun sín greidd á réttum tíma. Einn þessara manna var Lucien Schaus, sem nú starfar sem flugmaður hjá Cargolux í Lúxembúrg. Þegar haft var samband við Lucien í byrjun vikunnar, hafði hann eftirfarandi að segja um viðskipti sín við Arnarflug: „Það kom varla fyrir að starfsfólk- ið fengi launin sín á réttum tíma í Jeddah. Ég fékk fyrst útborgað, þeg- ar ég hafði unnið þarna í þrjá mán- uði. Oftast fengum við bara greiðsl- ur upp í laun — svona vasapeninga til þess að eiga fyrir hamborgurum eða einhverju slíku. Upphæðin, sem ég fékk að lokn- um þremur mánuðum, var ekki há, en ég átti síðan að fá eitthvað að ráði í september ’85. Þá var mér hins vegar tjáð, að þeir ættu í fjár- hagserfiðleikum, en loks fékk ég þó ávísun frá félaginu. Dollarinn hafði á þessum tíma hríðfallið í verði og því ákvað ég að skipta ávísuninni Lúxembúrg en ekki í Jeddah, vegna þess að gengið var hagstæðara heima. í septemberlok fór ég með ávísun- ina í bankann minn og þar sem þeir þekktu mig þarna, fékk ég pening- ana strax greidda. Fjórtán dögum síðar hafði bankinn hins vegar sam- band við mig og tjáði mér að ávísun- in hefði reynst innstæðulaus og ég yrði að endurgreiða þeim upphæð- ina. Það var hægara sagt en gert, þar sem ég var búinn að nota féð. Forráðamenn bankans urðu auð- vitað ekkert ánægðir með þetta og hótuðu að draga mig fyrir dómstóla. Ég hafði samband við Arnarflug og þar var mér sagt að senda þeim ávísunina til baka, en ég fengi greiðslu um hæl. Peningarnir komu ... en ekki fyrr en um jóla- ieytið árið 1986, eftir að gott fólk hafði komið mér til aðstoðar við að þrýsta á félagið. Á meðan á biðinni stóð, hafði dollarinn enn fallið í verði og þar að auki þurfti ég að borga vexti í Lúxembúrg, vegna klúðurs- ins með innstæðulausu ávísunina.” LÖGFRÆÐINGNUM EKKISVARAÐ „Það voru bornar á borð fyrir mig lygar, aftur og aftur, af hálfu ákveð- ins starfsmanns fjárreiðudeildar Arnarflugs. Hann margtjáði mér á þessu tímabili að peningarnir hefðu verið sendir, en ég þurfti sífellt að vera að hringja í hann aftur og til- kynna honum, að ekkert fé hefði enn borist. Þegar þetta hafði gengið svona í u.þ.b. tvo mánuði, fór ég til lögfræðings hér í Lúxembúrg. Það kostaði mig offjár, en lögfræðingn- um tókst ekki að komast almenni- lega í samband við Arnarflug. Þeir svöruðu fyrsta skeytinu og sögðu að forstjóri félagsins myndi ganga i málið, en síðari skeytum og bréfum lögfræðingsins var ekki einu sinni svarað! Ég á íslenska kunningja, sem vinna hjá Cargolux, og þegar þeir fréttu hve erfiðlega mér gekk að innheimta launin, bentu þeir mér á lögfræðing á íslandi. Þetta var mesta lán, því hann kunni á þessi mál og tókst loks að útvega mér peningana. Þá var hins vegar liðið eitt og hálft ár frá því að ég hóf þess- ar aðgerðir til að ná peningunum." — Hve langt var um liðið frá því að þú hœttir að vinna fyrir Arnar- flug og þar til þú fékkst loka launa- greiðsluna? „Ég hætti störfum um 8. október 1985 og fór frá Jeddah, en þá hafði ég ekki fengið laun í nokkra mán- uði. Mig minnir að þeir hafi þá skuldað mér um 1,2 milljónir króna.” — Hvað vannstu lengi fyrir fé- lagið? „í um það bil hálft ár, frá maí til október 1985. Ég vil gjarnan láta það koma fram, að það er mikið af góðu starfs- fólki hjá Arnarflugi, þó margt af því hafi nú víst látið af störfum. Félagið er í sjálfu sér ekki slæmt, en margir af stjórnendunum eru hins vegar ilia fallnir til þeirra starfa." — Fékkstu ekki vexti af skuld- inni? „Ég fékk 14% vexti, sem ekki er sérlega mikið, þegar tillit er tekið til þess að ég tapaði nær helming af fénu vegna hruns doilarans á með- an á biðinni stóð. Gengi dollarans var um 65 Lúxembúrgarfrankar, þegar Arnarflug átti að greiða mér peningana. Nú fæ ég 37 franka fyrir dollarann, svo þú sérð að ég hef tap- að tæpum helmingi launanna vegna þessa dráttar. Þrátt fyrir þetta, óska ég félaginu raunverulega alls hins besta. Það má gjarnan koma fram. Þarna er fjöldinn allur af góðu fólki, eins og ég sagði áðan, en ég held að það sé nauðsynlegt fyrir Arnarflug að fá hæfari stjórnendur.” FÉKK LAUNIN FYRIR 10 DÖGUM Brian James, flugvélstjóri frá Kanada, vann einnig við verkefnið í Saudi-Arabíu. Hann var einn þeirra, sem áttu í erfiðleikum með að fá launin sín frá Arnarflugi, eða, eins og hann segir sjálfur frá: „Það tók mig eitt og hálft ár að fá greitt. Reyndar var ég loksins að fá greiðsluna núna fyrir tíu dögum. Loksins! Ég fékk einhverja vexti, en ég hef ekki reiknað út hve há prósenta það var. Arnarflug skuldaði mér alls um 300 þúsund krdnur (6 þúsund dollara) vegna u.þ.b. 6 vikna vinnu árið 1985 og það er ég nú búinn að fá. Heildarlaunin voru um 10 þús. dollarar, en ég var búinn að fá hluta af því. Ég reyndi að tala við lögfræðinga, en þeim tókst aldrei að gera neitt í málinu, svo ég hringdi bara stans- laust í Arnarflug til þess að þrýsta á þá. Þetta voru líklega mánaðarleg símtöl í langan tíma, en ég lét skrifa þau hjá félaginu, skal ég segja þér! Fyrstu 6—8 mánuðina lofuðu þeir sí- fellt að senda peningana alveg á næstunni, en eftir það viðurkenndu þeir, að félagið ætti í erfiðleikum og ómögulegt væri að segja til um hve- nær ég fengi féð. Mér var m.a. sagt, um jólaleytið 1985, að búið væri að póstleggja ávísunina og að ég fengi hana því undir nýárið. Það varð nú aldrei...“ Lucien Schaus og Brian James voru ekki þeir einu, sem illa gekk að fá umsamin laun greidd fyrir störf sín við leiguflugsverkefni Arnar- flugs í Saudi-Arabíu árið 1985. Fleiri voru í svipaðri aðstöðu, bæði út- lendingar og eins hinn íslenski verk- efnisstjóri, Gísli Maack. Eins og fram kemur í viðtölunum við Schaus og James, hefur félagið gert upp við þá á allra síðustu vik- um. Gísli á hins vegar ekki von á lausn sinna mála á næstunni, því, eins og fyrr segir, hefur Arnarflug áfrýjað dómi undirréttar, sem var honum í hag. eftir Jónínu Leósdóttur mynd Baldur Sveinsson 4 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.