Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 7

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 7
VARNARSAMNINGURINN 1951 - VIÐRÆÐURNAR Á BAK VIÐ TJÖLDIN FYRRI GREIN HP birtir bandarísk LEYNISKJÖL um samningaviðræður sendiherra Bandaríkj- anna og Bjarna Benediktssonar þáv. utanríkisráðherra um hersetu Bandaríkja- manna á Islandi — Nýtt Ijós á söguna Eisenhower og Bjarni við komu yfirhershöfðingjans 25. janúar 1951 é Keflavíkurflugvelli. Heimsóknin átti að kynda upp fyrir varnarsamninginn sem siðan var gerður. (R Thomsen — Ljósmyndasafnið) BANDARÍKJAMENN GERÐU RÁÐ FYRIR ALLT AÐ 7800 MANNA HERLIÐI STJÓRN- STÖÐINNI ÆTLAÐUR STAÐUR VIÐ REYKJAVÍK RÆTT UM HERÞJÁLFUN ÍSLENSKRA MANNA VEGNA VARNA LANDSINS THIS WILL BE MOST DIFFICULT VORU VIÐBRÖGÐ BJARNA VIÐ SAMNINGSUPPKASTINU FRÁ WASHINGTON HEIMSÓKN EISENHOWERS LIÐUR í ÁRÓÐRI BANDARÍKJAMANNA HART DEILT UM GILDISTÍMA SAMNINGSINS BJARNI BENEDIKTSSON: VIL FREKAR VARNARLAUSA EYJU EN SAMÞYKKJA HER Á ÍSLANDI Á FRIÐARTÍMUM Samkvœmt lögum um upplýs- ingafrelsi í Bandaríkjunum hefur35 ára leynd verid aflétt af flestum skýrslum, bréfum og skeytum, sem merkt voru trúnadarmál snemma árs 1951 og varda samningavidrœd- ur Bjarna Benediktssonar þáv. ut- anríkisráðherra við Bandaríkja- menn um varnarsamning þjóð- anna, sem tók gildi í maí sama ár. Ýmislegt nýtt kemur fram í skýrsl- um bandaríska utanríkisráðuneytis- ins um Island frá 1951 jafnframt því, sem þœr varpa skýrara Ijósi á ann- að, sem vitað var áður. Þau skjöl, sem HP hefur undir höndum fjalla fyrst og fremst um tilkomu varnar- samningsins og komu bandaríska hersins. Viðræður ríkisstjórnar Islands og fulltrúa Bandaríkjastjórnar hófust í janúar 1951 og þeim lauk með und- irritun samningsins 5. maí sama ár. Skýrslurnar sem hér um rœðir eru „Utanríkistengsl Bandaríkjanna 1951. 4. bindi. Evrópa: Pólitísk og efnahagsleg þróun". Heimilt er að birta leyniskýrslur afþessu tagi eftir 35 ár, en utanríkisráðuneytið hefur ekki haft undan að birta slík leyni- skjöl, þannig að birtingin er nokkr- um árum á eftir. í marsmánuði sl. reyndi fulltrúi HP í Bandaríkjunum að komast í þessa útgáfu í „Library of Congress" t Washington D.C. en þá voru þessar skýrslur ekki komn- ar til almenningsnota. Fyrir nokkr- um vikum kom svo loks að því. Þetta voru skýrslur sem varða ákvarðanatöku Bandaríkjastjórnar í utanríkismálum en enn eru sum atriði óbirt og er birting þeirra þá talin geta ógnað öryggishagsmun- um Bandartkjanna enn í dag eða komið vinveittum ríkisstjórnum illa. Hér á eftir fara endursagnir og þýð- ingar á skeytum og fundargerðum sem Bandaríkjamenn hafa nú heim- ilað birtingu á. KOMMAR MUNU SNÚAST Fyrsta bréfið sem hér er vitnað til er frá Lawson sendiherra Bandaríkj- anna á íslandi 17. janúar 1951. Þar segir m.a. að staða íslands innan Atlantshafsbandalagsríkjanna sé að mörgu leyti sérstæð, þar sem enginn her sé í landinu. Sagt er frá því að ríkisstjórnin íslenska haldi áformum um komu hersins leyndum fyrir fjöl- miðlum, beðið sé eftir því að málið verði skýrara og að Eisenhower hershöfðingi komi til landsins. Talið var að það myndi hafa áróðursgildi og breyta stemmningunni hugsan- legri hersetu í vil. Lawson telur að andstaða við her- setu sé megn meðal þjóðarinnar, en ríkisstjórnin sé hliðholl og muni á réttu augnabliki leggja mikið kapp á, að sannfæra Islendinga um nauð- syn hersetunnar. Þrátt fyrir þessar áhyggjur af andstöðu íslendinga þykir Lawson afstaða þeirra þó vera jákvæðari gagnvart Natóher en nokkru sinni áður. Andstaða muni aðallega verða sterk frá Kommún- istaflokknum og meðal ákafra þjóð- ernissinna. Lawson telur að margir þjóðernis- sinnanna og nokkrir úr Kommún- istaflokknum muni snúast á sveif með hersetunni verði hægt að benda þeim á skýlausa nauðsyn hennar. Greinilegt er að mörgum þykja Bandaríkjamenn magna um of stríðsgrýluna, en Kóreustyrjöldin og varnarstarf annarra Natóríkja ásamt væntanlegum áróðri í fjöl- miðlunum og áróðri í tengslum við heimsókn Eisenhowers til íslands ættu að vekja landann til vitundar um varnarþörfina og vekja sérstaka athygli á varnarleysi landsins. FÁ EITTHVAÐ FYRIR PENINGANA Næsta skýrsla merkt „top secret" eru minnispunktar frá fundi í Washington, þar sem saman eru komnir fulltrúar frá sjóher, lofther og landgönguliði Bandaríkjahers, varnarmálaráðuneytinu og utan- ríkisráðuneytinu bandaríska. Þar er einnig mættur Lawson sendiherra Bandaríkjanna á íslandi. Á fund- inum, sem haldinn er 20. janúar 1951, var fjallað um svar íslands við bón Bandaríkjanna um setulið á ís- landi. Þetta svar íslands er ekki birt í leyniskýrslunum, en á fundi þann 19. janúar hafði Lawson sendiherra eftir Óskar Guðmundsson myndir Ljósmyndasafnið

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.