Helgarpósturinn - 05.02.1987, Page 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjóri:
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúar:
Helgi Már Arthursson
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Blaöamenn:
Friðrik Þór Guðmundsson,
Gunnar Smári Egilsson,
Guðlaugur Bergmundsson,
Jónlna Leósdóttir og
Óskar Guðmundsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson.
Auglýsingar:
Sigurður Baldursson,
Sveinbjörn Kristjánsson.
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471)
Guðrún Geirsdóttir.
Afgreiðsla:
Bryndís Hilmarsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar
eru að Ármúla 36, Reykjavík sími
681511. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36, sími 681511.
Útgefandi: Goðgá h/f
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Prentun: Blaðaprent h/f.
nöturleg sjónarmið
LEIÐARI
Fordómar og
Á íslandi þekkja menn svokallað flótta-
mannavandamál í Vestur-Evrópu af afspurn.
Við heyrum um þessi mál í fréttum og þannig
koma þau okkur við. Sem fréttir. Hér er þessi
vandi ekki til staðar. Hingað leita yfirleitt ekki
flóttamenn. Sá fjöldi manna, einstaklinga og
fjölskyldna, sem flúið hefur heimkynni sín og
leitað hefur skjóls í Vestur-Evrópu hefur farið
vaxandi á undanförnum árum. Og menn
sækja til þessa heimshluta, m.a. vegna þess,
að þar er mönnum yfirleitt ekki varpað í dýfl-
issu, eða þeir skotnir fyrir þaer sakir að hafa
skoðun.
I Helgarpóstinum í dag er viðtal við íslensk-
an ríkisborgara, sem flúði hingað undan ógn-
arstjórn Ayatollah Khomeini. Hann greinir frá
síðustu árum Iranskeisara og umskiptunum,
sem urðu þegar klerkastjórnin tók völdin í
landinu. Skýring þessa manns á völdum Kho-
meinis og þeirri ógnarstjórn sem ríkir í land-
inu er sú, að stærstur hluti landsmanna lifi í
mikilli fátækt. Stærstur hluti þjóðarinnar sé
ómenntaður og láti stjórnast af trúarlegum
kennisetningum, sem útilokað er fyrir okkur
að setja okkur inn í. I viðtalinu kemur fram sú
skoðun þessa landflótta manns, sem sest
hefur að á (slandi, að Khomeini hafi búið ein-
angraður Í40 ár ásamt fjölskyldu sinni og trú-
bræðrum. „Hann vissi ekkert um samtímann,
var úr tengslum við allan veruleika, hann er
nánast jafn gamall trúnni, ca. 1350 ára og hef-
ur ekkert breyst allan þann tíma. Hann er að
reyna að færa guðsríki niður á jörðina og vera
guð sjálfur," segir þessi viðmælandi HP.
Guðsríkið, sem boðað hefur verið austur í
íran, er ógnarstjórn. Tugir þúsunda manna
hafa verið líflátnir. í stríði því sem háð er á
landamærum írans og írak er smábörnum
teflt fram á vígvöllinn í nafni æðri máttar-
valda.
Þessa ógnarstjórn, þennan raunveruleika
eru margir að flýja.
írana hefur verið haldið í fangelsi í Reykja-
vík í nokkra daga. Til stóð að vísa manninum
úr landi til þess lands, sem hann kom frá,
Tyrklandi, en þar situr herforingjastjórn við
völd. Mál íranans er í biðstöðu. Hann hefur
sótt um hæli hérlendis sem pólitískur flótta-
maður og yfirvöld hafa ekki afgreitt mái hans,
enda óvarlegt að taka skyndiákvarðanir í mál-
um sem þessum.
Þjóðin hefur verið spurð um afstöðu sína í
máli þessa manns, sem hingað er kominn á
flótta undan ógnarstjórn Khomeinis. Og ekki
stóð á svörunum. Sá takmarkaði hluti þjóðar-
innar sem lét álit sitt í Ijós í útvarpinu í gær-
morgun sá öll tormerki á því, að manninum
yrði veitt hæli í landinu og bar fyrir sig margs
konar röksemdir.
Röksemdir þessa takmarkaða hluta þjóðar-
innar báru það yfirleitt með sér að menn
höfðu lítinn skilning á vandræðunum, sem
landflótta menn lenda í, þegar þeir flýja
heimaland sitt. Og báru menn fyrir sig m.a.
hættuna af eyðni, svo eitthvað sé nefnt!
Gegnumgangandi voru þetta fátæklegar rök-
semdir.
Það er ekkert einfalt mál að fást við flótta-
mannavandamál. Það vitum við af reynslu ná-
grannaþjóðanna. Til átaka hefur komið á milli
flóttamanna og íbúa viðkomandi landa — og
þeir í mörgum tilvikum bornir fráleitum sök-
um. En þrátt fyrir andstöðu og einhverja óvild
í garð flóttamanna meðal hópa, sem hafa lag
á að láta frá sér heyra, þá hafa yfirvöld í við-
komandi ríkjum talið sér skylt að axla hluta af
vandræðum flóttamanna með því að veita
þeim hæli í löndunum í kringum okkur.
Burtséð frá máli Iranans, sem nú bíður
ákvörðunar um framtíð sína, þá verður erfitt
að skilja þær raddir hlustenda í útvarpi sem
heyrðust í gærmorgun öðru vísi en að þeir
væru haldnir kynþáttafordómum. Skoðanir
þessa fólks benda til þess að mannúðarsam-
tökum, kirkju og fjölmiðlum hafi mistekist að
koma til skila nokkrum grundvallaratriðum í
mannlegum samskiptum; m.a. að skapa
skilning og útbreiða þá þekkingu sem er for-
senda bróðurkærleika.
Skoðanir þessar eru ekki nýjar og hafa ver-
ið settar fram áður. En þær eru alltaf jafn nöt-
urlegar.
I
Eyðnifaraldurinn hefur beint augum manna að
aðferðum hollenskra yfirvalda við
meðhöndlun eiturlyfjavandans
Dópstrætó með
nýjum nálum
,,Ég vona ad þú skrifir ekki bara
um eiturlyfjavandamáliö," sagði
vingjarnlegur HoUendingur viö
blaðamann HP, þegar sá síðar-
nefndi átti leid um Amsterdam á
dögunum. Hollendingurinn bœtti
því við, aö stór hluti fólksins sem
eigraði um skuggalegan hluta mið-
borgarinnar og bar öll merki eitur-
lyfjaneyslu, vœri átlendingar. Hann
kvað Pjóðverja koma til Amsterdam
ístórhópum til að stunda sitt eiturát
í friði.
Frjálslyndi Hollendinga í þessum
efnum hefur vakið mikla athygli
víða um heim að undanförnu, bæði
vegna vaxandi neyslu á eiturlyfjum
í flestum löndum og vegna út-
breiðslu eyðni meðal þeirra, sem
sprauta eitrinu í æð. Þegar blaða-
maður var þarna á ferð, var stadur
í Amsterdam heilbrigðisráðherra
Bretlands í þeim erindum að kynna
sér afstöðu Hollendinga til eitur-
lyfjaneytenda og eyðnismitunar
með sprautum þeirra. Eitt af því sem
ráðherranum var sýnt í þeirri ferð,
voru sérstakir strætisvagnar, sem
aka á milli nokkurra áfangastaða í
borginni með birgðir af hreinum
nálum fyrir eiturlyfjaneytendur.
Strætisvagnarnir, sem eru með
skyggðar rúður en líta að öðru leyti
út eins og aðrir strætóar í borginni,
stoppa á ákveðnum tímum á nokkr-
um stöðum í miðborginni. Þangað
koma þeir sem eru háðir lyfjum og
sprauta þeim í sig. Fólk getur fengið
nálar með sér heim og fær hver jafn-
margar nýjar nálar og þær gömlu
sem hann skilar. Þeir, sem skráðir
eru sem eiturlyfjasjúklingar, geta
líka fengið lyf til að sprauta sig með
frá hinu opinbera.
Þetta merkilega frjálslyndi, sem
einnig má sjá á líflegri og að því er
virðist algjörlega opinni verslun
með hass á kaffihúsum í miðborg-
inni, hefur litað ímynd Amsterdam í
margra augum. Það mun líka svo, að
þeir sem gæta þess að eitri sé ekki
smyglað hingað til lands, hafa sér-
staklega vakandi auga með fólks- og
vöruflutningum milli Amsterdam
og Islands.
Venjulegum Hollendingum er
ekkert sérstaklega gefið um þetta
orð sem fer af borginni og það er
enda rétt, sem sagt var við blaða-
mann í Amsterdam: Borgin er meira
en lítið forvitnileg fyrir margt ann-
að.
Skuldlausir vanskila
menn í Lögbirtingi
Leidrétt ljód
Afar meinleg mistök urðu
varðandi viðtal við Kjartan Árnason
í síðasta tbl. HP. í ljós kom að aðeins
helmingur Ijóðsins Síðasta
kaffipásan fylgdi viðtalinu. Um leið
og HP biður Kjartan afsökunar
biður það aðra lesendur
velvirðingar. Hér birtist ljóðið síðan
í heild.
Síðasta kaffipásan.
Klukkan var 9:30 að morgni
þegar hann lagöi frá sér
liamarinn stód upp og sagði:
Eg er uegurinn sannleikurinn og lífið.
■ Nú œtla ég að skreppa útí bakarí
og þegar ég kem aftur
förum við í kaffi.
Hann kom aftur
braut brauðið skenkti kaffið og sagði:
Sannlega segi ég yöur
þetta verður síðasta kaffipásan mín
í þessu starfi
ég œtla að snúa mér að öðru
og aðeins einusinni héðanífrá
mun ég komast í snertingu við
Hamar og Nagla
Viö þá snertingu fullkomnast
þrenningin
Viröing Sœmd & Lotning
og ást og hatur renna saman
og ekkert skiptir lengur máli.
Bara lífiö.
Enn stóð hann upp leit yfir
félagana sagði:
Jæja ég bið ykkur vel
aö lifa.
Gekk svo útí heitan morguninn
og hvarf í molluna.
Miklum sögum fer af flóði nauð-
ungaruppboðsauglýsinga í Lögbirt-
ingablaðinu, þar sem tíundaðar eru
stórar og smáar skuldir við skatt-
yfirvöld, banka, tryggingafélög,
sjóði og aðra aðila. Nýlega sögðum
við frá skuldum nokkurra fyrir-
tœkja við Gjaldheimtuna í Reykja-
vík — samkvœmt auglýsingum í
Lögbirtingablaðinu. Nú hefur
brugðið svo við að talsmenn tveggja
þessara fyrirtœkja hafa haft sam-
band við HP og sagst hafa borgað
viðkomandi skuldir og því hafi aug-
lýsingarnar aldrei átt að birtast.
Þessi tvö fyrirtœki eru Ofnasmiðjan
og Bílanaust.
Þessir aðilar héldu því fram að
birtingin væri vegna handvammar
hjá Gjaldheimtunni. Þegar HP kann-
aði þetta nánar kom í ljós að þegar
svona nokkuð gerist er sökin í bland
fyrirtækjanna (eða einstaklinganna)
og svo spila inn í tækniörðugleikar.
Þegar fyrirtæki eða einstaklingur
lendir í vanskilum, t.d. við Gjald-
heimtuna, sendir sú stofnun kröfu
eða beiðni til borgarfógetaembætt-
isins (eða samsvarandi embætta á
landsbyggðinni). Fógetaembættið
sendir þá tilkynningu til viðkom-
andi skuldara um að ákveðin eign
verði auglýst til uppboðs ef skuldin
verður ekki greidd. í bréfinu er til-
tekinn frestur, yfirleitt nálægt 3 vik-
um. Að þeim fresti liðnum er farið yf-
ir hvaða skuldir hafa verið greiddar
og það leiðrétt, en auglýsingar síð-
an sendar Lögbirtingablaðinu —
sem þarf að fá handrit sín með um
tveggja vikna fyrirvara.
Skuldararnir hafa þá haft 3 vikur
til að greiða upp skuldina eða gera
aðrar fullnægjandi ráðstafanir til að
hindra birtingu á nauðungarupp-
boðsauglýsingu. Á þessu tímabili
liggur sökin því alfarið hjá skuldur-
unum, ef borgað er seinna er borg-,
að of seint.
Á hinn bóginn þarf Lögbirtinga-
blaðið langan frest vegna vinnslu
blaðsins, enda mikil útgáfa á þeim
bæ og auglýsingar svo tugum þús-
unda skiptir á ári hverju. Þegar
þriggja vikna fresturinn er liðinn
taka við tvær vikur hjá blaðinu og
prentsmiðjunni og þá er nánast von-
laust að breyta þó borgað sé. Og það
sem meira er, vegna þessara tækni-
erfiðleika birtist auglýsingin ekki
bara einu sinni (hvort sem þá er loks
búið að greiða skuldina eða ekki)
heldur þrisvar (A, B, C). Hjá borgar-
fógetaembættinu fengust þær upp-
lýsingar að það ætti alls ekki að geta
gerst hvað Gjaldheimtuna varðar,
að nauðungaruppboðsauglýsing
birtist ef skuldari hefur gert upp inn-
an umrædds frests frá embættisins
hálfu.
Niðurstaðan er því að ef menn
borga ekki tímanlega þá geta þeir
sjálfum sér um kennt ef auglýsing
birtist í Lögbirtingablaðinu. Ef greitt
er á næstu tveimur vikum eftir frest-
inn er of seint að koma í veg fyrir
birtingu uppboðsauglýsingar og þá
vegna tækninnar (skorts á henni).
Þess vegna gerist það endrum og
eins að í Lögbirtingi sjást nöfn
skuldlausra vanskilamanna.
FÞG
SKAK-
LAUSN
BÍLALEIGA
Útibú f kringum landið
REYKJAVÍK:......91-31815/686915
AKUREYRI:........96-21715/23515
BORGARNES:..............93-7618
BLÖNDUÓS:......... 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: .... 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:..........96-71489
HÚSAVÍK:.........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: ...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: .....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ...... 97-8303
10 HELGARPÓSTURINN
39 Winter-Wood
Svartur á aðeins einn leik sem
kemur í veg fyrir mát í næsta leik,
hvítur hindrar hann.
1 Hb3! (biðleikur)
1 Ke6 2 Dxe4
1 Kf4 2 Dg3
1 f4 2 Dal
1 e3 2 Dxe3
1 Kd4 2 Dc3 (eða
40 Abbott
1 Bel! rýmir fyrir kónginum og
leiðir hann fram til laglegra máta.
1 - Kd4 2 Df5 Ke3
3 De5
kórrétt mát!) Kc4 3 Dd3
1 - Kf4 2 Bg3+ Ke3
3 Dd3
1 -d4 2 Bg3+ Kd5
3 Dc6
reiddist Guðmundur G. Þórarins-
son verkfræðingur Þjóðviljanum
mjög vegna fréttar um skattalaga-
brot Þýsk-íslenska, þar sem hálf-
bróðir Guðmundar situr við stýrið.
Kærði Guðmundur málið til siða-
nefndar Blaðamannafélags ís-
lands. En hann lét ekki þar við sitja
heldur höfðaði hann mál á hendur
Þjóðviljanum fyrir borgardómi.
Giarðar Gíslason borgardómari
hefur málið með höndum og mun
hann hafa reynt að ná fram sáttum
á milli aðila, en það ekki tekist.
Fljótlega má gera ráð fyrir dómsnið-
urstöðu. . .
||
■ in síðari ár hafa japanskar
bifreiðir verið í stöðugri sókn hér á
landi meðan ýmsar áður „hefð-
bundnar" tegundir eru varla fluttar
inn lengur. Þannig má nefna til
dæmis gamla jálkinn Land Rover,
en undanfarin ár hafa verið fluttir
inn örfáir slíkir bílar. En nú er þetta
að breytast. Ætlar Höldur hf. á Ak-
ureyri að fara að selja þessa jeppa
hér á landi á ný. Veldi eigenda Höld-
urs, svokallaðra „Kennedy-
bræðra" heldur áfram að aukast og
er orðið að stórveldi á 10 árum ...
að ætti ekki að skorta gisti- •
rými á Sauðárkróki næsta sumar.
Nokkrir heimamenn munu nefni-
lega sækjast eftir að fá heimavist
Fjölbrautaskólans undir hótelrekst-
ur, en undanfarin sumur hefur Guð-
mundur Tómasson, hjá Hótel
Mælifelli, rekið þarna nokkurs
konar útibú. Telja Sauðkrækingarn-
ir ósannað að Guðmundur hafa í
höndunum gildan leigusamning.
Hótel Mælifell var annars nýverið í
fréttum fyrir þær sakir að það fékk
um áramót • þriggja mánaða
greiðslustöðvun vegna fjárhagserf-
iðleika...