Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 05.02.1987, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Qupperneq 14
eftir Jónínu Leósdóttur mynd Jim Smart Geir Hallgrímsson Seðlabankastjóri í persónulegu Helgarpóstsviðtali SNEMMA SKOTINN í ERNU Það er alltaf svolítið erfitt að fá stjórnmálamenn og háttsetta embœttis- menn til þess að uera opinskáa og persónulega í blaðaviðtölum. Reynslan hefur kennt þeim að vera á varðbergi, tala ekki af sér og gefa ekki á sér neinn höggstað. Þegar lagt var afstað til fundar við Geir Hallgrímsson, fyrrum ráðherra og formann Sjálfstœðisflokksins en núverandi Seðlabankastjóra, bjóst blaðamaður HPþvíekki við að auðveltyrði að ná fram „hinni hlið" þessa þjóðþekkta manns. Viðtalið var hins vegar tœpast hafið, þegar Ijóst var að hin klassíska formúla átti hreint ekki við í þetta sinn. Þarna var nefnilega kominn nýr, kíminn og ótrúlega opinskár Geir Hallgrímsson. Seðlabankastjórinn tók á móti blaðamanni og ljósmyndara Helgarpóstsins í setustofu í bank- anum, þar sem málverk eftir frægustu lista- menn þjóðarinnar skreyttu veggi. Alfræðiorða- bækur og önnur uppflettirit voru þarna í bóka- hillum, en það var síður en svo sérstakur mun- aðarblær yfir húsgögnunum, sem voru af tekk- kynslóðinni frægu. Þarna inni var þægileg birta frá litlum glugga, sem snýr út í port á milli Aust- urstrætis og Hafnarstrætis, þó Jim ljósmyndari hristi strax höfuðið af vandlætingu yfir því sem hann taldi algjört ljósieysi til myndatöku. Þegar þrjár eða fjórar filmur höfðu runnið gegnum ljósmyndavélina og Geir hafði lýst yfir áhyggjum sínum af fjárhagsstöðu Helgarpósts- ins vegna þessarar eyðslusemi, settumst við í græna hægindastóla og hófum spjallið. Ég spurði Geir Hallgrímsson fyrst að því, hvort eft- irfarandi klausa lýsti stöðu hans í dag. Hún var höfð eftir honum í HP árið 1981: „Ég vildi helst ljúka starfsferli mínum þannig, að ég hafi góða samvisku . . . Ég vil eiga nokkur góð ár eftir meðan ég hef það starfsþrek og þá heilsu, sem ég nýt nú, og geta um frjálst höfuð strokið í starfi, sem ég er ekki eins bundinn af og í þessu.“ — Er starf Seölabankastjóra ekki of bindandi til þess aö uppfylla þessar hugmyndir þínar um ,-,draumastarfiö“? „Það má segja að þetta sé starf, sem ég hef þá vel getað hugsað mér. Þó svo því fylgi vissulega mikil ábyrgð, þá er það engan veginn jafnbind- andi og staða formanns stærsta stjórnmála- flokks þjóðarinnar. En auðvitað hleypur maður ekkert frá slíku starfi. Það er einungis annars eðlis en það sem ég fékkst áður við.“ KANNSKI ÆTTI MAÐUR AÐ MUNA MEIRA — ístarfi stjórnmálamannsins hefur þú oröiö fyrir töluveröu aökasti í gegnum tíöina, en þeir sem til þekkja segjast ekki veröa varir viö mikla beiskju hjá þér af þessum sökum. Er þaö rétt? „Ef til vill er ég ekki dómbær um það, en ég dvel ekki við árásir eða gagnrýni, sem ég hef orðið fyrir í tengslum við þau störf sem ég hef gegnt. Ég þykist vera fljótur að gleyma. Kannski ætti maður að muna meira . ..“ — Of sáttfús, kannski? „Nei, ég held nú að menn séu aldrei of sáttfús- ir. Sáttfýsin er af hinu góða, en hún má hins veg- ar ekki vera á kostnað sannfæringar." í Nœrmynd HP fyrir nokkrum árum sagði ónefndur maður, að Geir væri ef til vill ofvand- virkur og nákvæmur og átti þar við stjórnmála- manninn Geir Hallgrímsson. Þegar ég bar þessi ummæli undir viðmælanda minn, Seðlabanka- stjórann, fór hann að hlæja. „Þú mátt ómögulega ætlast til þess að ég af- neiti því, sem vel er um mig sagtl" í þessari sömu umfjöllun, er einnig sagt um Geir, að hann hafi aldrei orðið stór upp á sig, þrátt fyrir hinar fjölmörgu vegtyllur sem honum hafa hlotnast um ævina. Hvað finnst honum um þessa staðhæfingu? „Ég held nú að því meiri reynslu sem maður fær, því betur geri maður sér grein fyrir því, að það er engin ástæða til þess fyrir einn eða neinn að setja sig ofar öðrum." — Geir, nú veit hvert mannsbarn á íslandi hverþú ert ogþú getur hvergi komiö, án þess aö allir nœrstaddir viti hver þar er á ferö. Hefur þig aldrei langaö til aö vera gjörsamlega óþekktur." „Nei, ég held ég hafi aldrei fundið neitt nei- kvætt við það að vera þekktur; ég hef ánægju af fóiki. Ég neita því þó ekki, að einn þáttur í ánægjunni við að ferðast erlendis er að ganga óþekktur um götur stórborga eða fáfarnari staða. Það veitir ákveðna hvíld. Einhvern tímann Iét ég þó hafa það eftir mér, að fátt væri ánægjulegra en að koma heim og ganga eftir Austurstræti og vita af því að maður á heima hér í þessari borg og þessu landi. Mér hefur aldrei þótt það miður að vera meðal fólks, sem þekkir mig, þó það geti verið hvíld í því um skamman tíma að vera þar sem enginn þekkir mann.“ Það var greinilegt á yfirbragði viðmælandans, að þetta með að vera þekktur eða óþekktur hafði ekki valdið honum miklum áhyggjum eða heilabrotum í lífinu. SKEMMTILEG FJÖLBREYTNI í MANNLÍFINU Við snerum næst tali okkar að vináttunni og ég bað Geir um að skýra það fyrir mér, hver munurinn væri á svonefndri „pólitískri" vináttu og öðrum vináttuböndum. „Ég hef nú lagt þá merkingu í orðalagið „póli- tískir vinir" að þeir menn væru vinir af því að svipaðar stjórnmálaskoðanir mynduðu vinátt- una. Jafnvel í svolítið neikvæðri merkingu — að þeir væru jafnvel ekki vinir, nema vegna þess að pólitískir hagsmunir færu saman, a.m.k. um tima. Ég held að það geti út af fyrir sig verið rétt að menn tengist pólitískum vináttuböndum um skeið, en slík vinátta ristir þá ekki djúpt, ef þetta leiðir ekki til vináttu eins og við skiljum það orð. Persónulega hef ég aldrei bundið vináttu við slljóinnmál, í þeim skilningi að ég geti ekki alveg eiBs stofnað til vináttu við andstæðing minn í sljjóinnmálum, eins og við samherja. Hins vegar B®*’ur það í augum uppi, að menn umgangast meirasamherja en andstæðinga í pólitík og við umgengni og kynni stofnast vináttan. Af því leiðir, að þetta fer oft á tíðum saman, vinátta og pólitísk skoðun. En ég skil þetta orðalag, pólitísk vinátta, þannig að slíka vini tengi oft ekkert nema stjórnmálin." — Umgengst þú fólk úr öllum flokkum, eöa finnst þér þægilegra aö hafa sjálfstœöisfólk í kringum þig? Nú þagði Geir lengi, en sagði svo, íhugull á svip: „Ég held að menn stofni ekki til vináttu af ásettu ráði, heldur vex hún af kynnum og sam- skiptum. Þegar maður gerir sér grein fyrir þvi að um vináttu er að ræða, þá er ég ekkert að velta því fyrir mér hvaða stjórnmálaskoðanir viðkomandi hefur. En, eins og ég gaf skýringu á áðan, kemur það ósjálfrátt að maður á fleiri vini sem eru sömu stjórnmálaskoðana og maður sjálfur." — Hvernig fólk finnst þér gott aö hafa nálœgt þér? „Nú hef ég aldrei gert mér neina sérstaka grein fyrir því. .. Mér finnst bara mjög ánægju- legt að umgangast fólk — mismunandi fólk — og hef gaman af því í sjálfu sér. Ég get ekki lýst neinni sérstakri manngerð, skapgerð eða fram- komu, sem mér fellur sérlega vel. Mér finnst fjöl- breytnin einmitt eitt af því sem er skemmtilegt í mannlífinu og mér getur fundist fólk skemmti- legt og gaman að umgangast það, þó ég vildi sjálfur ekki vera eins og það, eða að mínir nán- ustu væru eins og það." — Hvaö meö konur... Hvernig finnst þér aö hafa þœr nálœgt þér? „Sérstaklega ánægjulegt. Ég er líka góðu van- ur í þeim efnum!“ ÉG ER B-MAÐUR — Geir, þaö er altalaö aö hjónaband þitt sé einstaklega gott. Hverju þakkaröu þaö? Svarið var stutt og laggott, og því fylgdi prakk- aralegt bros. „Konunni minni!" — Hvernig kynntust þiö Erna? „Við kynntumst í fyrsta bekk í menntaskóla; vorum bekkjarsystkin í þrjú ár í gagnfræðadeild og sama árgangi í önnur þrjú ár í lærdómsdeild, eins og þetta hét þá í Menntaskólanum í Reykja- vík. Við fylgdumst þannig að í sex ár í skóla. Ég varð snemma dálítið skotinn í henni, en það var því miður ekki endurgoldið strax. Við fórum ekki að draga okkur saman fyrr en að loknu stúdentsprófi — á háskólaárunum." — Þaö er sagt aö þú hafir mikiö vinnuúthald, en segist sjálfur vera latur aö eölisfari... „Ja, ég er B-maður. Ég er mun hressari á kvöldin en morgnana. Hins vegar hef ég oftast þurft að taka daginn snemma, atvinnu minnar vegna, og þannig hefur teygst töluvert úr vinnu- deginum." — Stundaröu einhverja líkamsrœkt, sund og gönguferöir, eöa eitthvaö slíkt? „Mikið skelfing vildi ég geta svarað þér ját- andi, en því miður þá geri ég ekkert slíkt — fer kannski einstaka sinnum út að ganga þegar veð- ur er gott.“ — Hefuröu gaman af Ijóöum, Geir? „Ég hef gaman af því, þegar ég les þau, en geri alltof lítið af því.“ — Ertu rómantískur? „Ég held nú ekki — ekki mjög.“ — Þú fœrir eiginkonunni sem sagt ekki oft blómvendi af engu tilefni, eöa slíkt? Það var greinilegt að honum þótti mjög leitt að þurfa að svara þessum spurningum neitandi. „Þvi miður get ég ekki státað af því.“ — Svo ég haldi nú áfram aöþjarma aö þér, þá langar mig til þess aö vita hvort þú átt ekki þínar Ijóðrœnu stundir, Geir, og hvernig þœr eru. Geir tók spurningunni alls ekki illa og ég sá ekki betur en honum væri svolítið dillað við þetta. Og svarið fékk ég. „Ég á mínar svokölluðu ljóðrænu stundir, ef ég horfi á fallegt málverk eða fallegt landslag. Líka þegar ég hlusta á tónlist, sem snertir mig.“ INNRÆTT AÐ PENINGAR VÆRU EKKI MARKMIÐ I SJÁLFU SÉR — Eigum viö aö tala um peninga? „Það er allt í lagi að tala um peninga — svona af minni hálfu.“ — Ertu passasamur á fé? „Nei, ég er ekki mjög aðhaldssamur og ég segi það þó ég viti að konan mín komi til með að lesa þetta! Hins vegar er ég þess mjög meðvitandi, að fari maður með peninga almennings í opin- berri stöðu, hvort sem það er skattfé eða aðrir peningar sem manni hefur verið trúað fyrir, þá ber manni að vera aðhaldssamur og gæta þess í hvívetna að fara vel með. Þá gildir að vera mjög reglusamur í meðferð fjármuna. Ég held að það skipti ákaflega miklu máli." — Er það sem sagt ekkert hcettuleg fortíö fyrir bankastjóra aö hafa ávallt verið vel efnaöur? „Nei. . . alls ekki. Ég er nú líka alinn þannig upp. Mér hefur verið innrætt mikilvægi þess að fara vel með fjármuni og að þeir séu ekki fyrst og fremst markmið í sjálfu sér, heldur afl þeirra hluta sem gera skal. Ég held líka, að hefði þetta ekki verið mín skoðun, hefði ég ekki stundað þau störf, sem ég hef gert um ævina." — Hefur þér þótt erfitt aö horfa upp á fátœkt? „Já, vissulega. Mér er það t.d. ákaflega minn- isstætt, þegar ég átti þess kost að fara til útlanda fyrir stríð, sem ekki var nú algengt með ungl- inga í þá daga. Ég man enn hver áhrif það hafði á mig að koma í hafnarhverfi Edinborgar, þar sem fátækt fólk var að betla í hræðilegri eymd. Þetta hafði mjög mikil áhrif á mig.“ — Hefuröu fundiö fyrir biturö í þinn garð, vegna þess að þú hefur haft rúman fjárhag? „Jú, auðvitað hefur það verið þáttur í pólitísk- um áróðri gegn mér að vegna þess að maður hafði ekki beinlínis reynt það sjálfur að vera fá- tækur, þá hefði maður aldrei neinn skilning á því. Ég tel slíkan áróður hins vegar fjarri sanni og frekar til þess fallinn að tortryggja viðkom- andi en að það skipti máli, efnislega. Ég hef allt- af haft fyrirlitningu á málflutningi, sem beinist fyrst og fremst að því að gera andstæðinginn tortryggilegan og forðast að ræða efni málsins." — Hefur sú hugsun einhvern tímann hvarflaö aö þér, aö langa til þess aö vera ekki afþessari merku oett, heldur kannski óbreyttur bóndason- ur einhvers staöar uppi í sveit? „Nei, ég hef verið stoltur af foreldrum mínum. Það er nú afar skammt til fátæktar í minni ætt, eins og í velflestum fjölskyldum á íslandi. Mín kynslóð er ef til vill fyrsta kynslóðin, sem ekki hefur fundið fyrir sultarkennd. Heimili föður míns var leyst upp, vegna þess að faðir hans varð blindur. Hann vann sig síðan upp af eigin ramm- leik. Móðir mín var af heimili embættismanns í Reykjavík, þar sem ekki var mikið umfram það sem þurfti. Þetta voru góðir foreldrar og ég á góðar endurminningar frá æskudögunum. Þess vegna hef ég aldrei óskað mér neins annars hlut- skiptis." ÓÞOLINMÆÐIN ER SVO MIKIL Það er erfitt að tala við Geir Hallgrímsson, án þess að koma sífellt aftur að heimi stjórnmál- anna, enda hefur hann lifað og hrærst í honum um áratuga skeið. Mig langaði til að heyra skoð- un hans á þeirri breytingu sem orðið hefur á lífi og starfi stjórnmálamanna á síðustu áratugum, m.a. við tilkomu aukinnar tækni og breytta fjöl- miðlun. „Ég hef nú stundum leitt hugann að þessu. Nú á dögum koma menn til stjórnmálamanna og vilja samstundis fá yfirlýsingar um hvaðeina sem er að gerast, eða jafnvel það sern á eftir aö gerast. Óþolinmæðin er svo mikil og menn eru spurðir spjörunum úr — þegar á stundinni. Manni finnst, að fyrri tíðar stjórnmálamenn hafi haft langtum meiri tíma til að hugsa og yfir-

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.