Helgarpósturinn - 05.02.1987, Page 16

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Page 16
eftir Kristján Kristjánsson mynd Jim Smart íranskur flótfa- maður, sem nýlega varð íslenskur ríkis- borgari, segir HP frá endurkomu Khomeinis til írans og þeirri vargöld sem ríkti næst á eftir í landinu. FÓLK KÝS FREKAR AÐ ÞEGJA EN DEYJA 16 HELGARPÓSTURINN Knútur Pálmason er fœddur í Teheran árið 1960 og flúði land sitt 1979 aðeins 19 ára gamali. Hann hefur aldrei snúið aftur og býst ekki við að gera það. Hann hefur fengið íslenskan ríkisborgararétt, íslenskt nafn og á íslenska konu. Hann seg- ist vera íslendingur og hafa sterkari taugar til íslands heldur en til írans, þrátt fyrir að fjölskylda hans dveljist þarenn. Hann er sonur fyrrum hátt- setts foringja í her keisarans og til- heyrði því hinni menntuðu yfirstétt í landinu. HP hitti Knút að máli og bað hann að skýra frá þeim um- brotatímum sem ríktu í heimalandi hans á árunum fyrir 1980. Fyrsta spurningin sem lögð var fyrir hann var afhverju hann hefði valið þann kost að flýja frá íran. „Ég átti um tvennt að velja, að fara í herinn eða flýja. Ég flúði. Að vísu má líka segja að ég hafi flúið vegna þess að menntunarmöguleik- ar mínir í íran voru svo takmarkaðir. Það var blanda af þessum tveimur ástæðum." — Varð mikil breyting í landinu þegar Khomeini tók viö? „Þetta varð allt annað land, það var ekki hægt að þekkja það aftur. Reyndar hafði keisarinn verið að missa tökin síðasta eitt og hálfa árið sem hann ríkti. Leyniþjónustan var allstaðar með nefið og herinn og lögreglan þar sem hún var ekki. Þegar hernum var att gegn eigin fólki missti hann máttinn, agaleysi og taugaóstyrkur réði ríkjum og þegar Khomeini kom var hann eig- inlega búinn að vera.“ 30 ÞÚSUND MANNS í FANGELSI — Nú er sagt að keisarinn hafi verið all hrottalegur í garð andstœð- inga sinna. „Já, ég lenti aldrei í neinu, kannski vegna þess að pabbi var háttsettur í hernum en vissulega heyrði maður sögur af pyntingum og fleiru, t.d. að um 30 þúsund manns hafi verið í fangelsi útaf and- stöðu sinni við hann.“ — Hvernigstóð á því að keisarinn missti tökin á stjórn landsins? „Það kemur auðvitað margt til en ég held að það hafi kannski verið fyrst og fremst tveir atburðir innan- lands. Stærstu mistökin voru þegar Knútur: „... verðir byltingar- innar gengu inn af götunni, fengu byssu og skutu svo á allt sem hreyfðist..." hann, eða einhver af herforingjum hans, sigaði hernum á mótmæla- fund í Teheran og yfir 700 manns féllu. Hitt atvikið var þegar kvikn- aði í kvikmyndahúsi og hundruð manna brunnu inni. Sá orðrómur komst á kreik að leyniþjónustan hefði verið þar að verki. Eftir það beindi fólk óánægju sinni beint að keisaranum. Áður hafði hann aldrei verið gagnrýndur beint, heldur alltaf einhver af undir- mönnum hans, enda var hann nán- ast í guðatölu eins og aðrir þjóð- höfðingjar í gegnum aldirnar. En þarna kom semsagt fyrst fram kraf- an um dauða yfir keisaranum. Sag- an segir að Khomeini og hans menn hafi komið orðrómnum af stað til að grafa undan keisaranum. Eftir það kom herinn til skjalanna og átti að halda fólkinu í skefjum en það gekk ekki. Að auki má líka nefna róginn um fjölskyldu keisarans. Systir hans t.d. var talin vera frumkvöðull heró- íninnflutnings í landið. Hún var víst allstaðar með puttana í öllu og hafði sterk sambönd í undirheimum sem voru þó engir undirheimar í venju- legum skilningi því keisarafjölskyíd- an réði öllu, líka þeim. Kannski var hún valdameiri en hann sjálfur, eng- inn veit.“ DRAUGUR AFTAN ÚR FORNÖLD — Afhverju kom Khomeini þá til skjalanna? „Ja, skýringin er líklegast sú að 75—80% írana eru algerlega ómenntaðir. Þeir lifa aðeins til að deyja svo þeir megi öðlast sælli vist í öðrum heimi. Þetta fólk trúir á Khomeini. Þegar hann kom inní landið gekk það til liðs við hann. Hann ætlaði ekki að stjórna landinu að eigin sögn, en það hefur síðan breyst og nú ríkir hann eins og guð almáttugur." — En hver er þessi maður, hver er bakgrunnur hans? „Hann er Ayatollah sem merkir nánast það að hann er guð. Hann er æðsti maður trúarhreyfingarinnar og þessir Ayatollahar hafa lengi ver- ið mjög valdamiklir. Trúarhreyfing- in hefur alltaf verið óhemju sterk og fyrr á öldum ríktu kóngar í íran en aldrei nema með samþykki Aya- tollahanna. Sagan segir að eftir bylt- inguna þegar keisarafjölskyldan náði völdum hafi átt að taka hann af lífi. Æðstu trúarleiðtogarnir mót- mæltu á þeim forsendum að hann væri Ayatollah, helgur maður, og þess vegna mætti ekki skerða hár á höfði hans. Hann var sendur í út- legð. Áður hafði hann búið einangr- aður í klaustri ásamt fjölskyldu sinni og trúarbræðrum í 40 ár. Hann vissi ekkert um samtímann, var úr tengslum við allan veruleika, hann er nánast jafn gamall trúnni, ca. 1350 ára og hefur ekkert breyst all- an þann tíma. Hann er að reyna að færa guðsríki niður á jörðina og vera guð sjálfur." — Hvernig var ástandið fyrst eftir að hann kom?

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.