Helgarpósturinn - 05.02.1987, Qupperneq 19
HÓTEL HOLT
„VINSÆLÁ
BRÚÐKAUPSNÓTTINA"
Útlendingar hafa alltaf verid í
meirihluta medal gestanna á her-
bergi 413 á Hótel Holti, kaupsýslu-
menn, sendiherrar og listamenn, og
efnaðir Bandarikjamenn á sumrin.
Enda er herbergi 413 svítan. Einn og
einn Islendingur gistir þar þó líka.
„Það hefur alltaf verið mjög vin-
sælt að eyða brúðkaupsnóttinni á
svítunni, og á það við um fólk bæði
úr bænum og utan af landi," segir
Sveinjón Ragnarsson aðstoðarhótel-
stjóri,
Hann segir, að þónokkuð sé um
að sama fólkið gisti oftar en einu
sinni og oftar en tvisvar í svítunni,
og nefnir sem dæmi frægan skurð-
lækni frá Bretlandi, sem kemur
hingað til iaxveiða á hverju ári.
„Hann gistir alltaf hjá okkur og hef-
ur gert það í fjölda ára. Hér er góður
andi og honum líkar það vel,“ segir
Sveinjón.
Ýmsir frægir menn og konur hafa
dvalið í svítunni á meðan þeir hafa
verið á islandi, og má þar nefna
George Schultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem hafði hana til
umráða á leiðtogafundinum síðast-
liðið haust. Þar hafa einnig verið
ítalski tískukóngurinn Gianni
Versace, breski leikarinn Alec
Guinness og þau skötuhjúin Ringo
Starr og Barbara Bach.
Svítan er vel búin húsgögnum,
m.a. er þar leðursófasett, og uppi á
veggjum hanga málverk eftir menn
eins og Kristján Davíðsson og Gunn-
laug Blöndal. Og það kostar tæpar 7
þúsund krónur að fá að halla þar
höfði. Hið eina sem svítugestir fá
aukreitis, fyrir utan öll þægindin, er
gos í ísskápnum. Svítan hefur alltaf
verið í svipuðum dúr frá því að hót-
elið opnaði árið 1965, en fyrir um
tíu árum eða svo, var hún flutt úr
einum enda hússins í annan, þegar
hótelið var stækkað.
En myndi Sveinjón geta hugsað
sér að gista þar?
„Já. Mér finnst hún mjög smekk-
leg og ég get hiklaust mælt með
henni við aðra,“ segir Sveinjón
Ragnarsson aðstoðarhótelstjóri á
Holtinu.
j;J Hg 'I ^
I
i j.
1' 1
m i • j
;S
HÓTEL KEA
Sófasett í háum gæðaflokki
SÓFASETT
í miklu úrvali.
Opið kl. 10-19
ALLA DAGA
„PENINGANNA
VIRÐI"
Svefnsófasett
lendingar og útlendingar sem gista
í svítunni. Af Evrópumönnunum sé
mikið um kaupsýslumenn, sem
koma reglulega til íslands. Enda
hótelið vel staðsett og í námunda
við allan þann aragrúa fyrirtækja,
sem hafa aðsetur í Múlahverfinu.
Ameríkanarnir eru aftur á móti
frekar venjulegir ferðamenn. „Þeim
finnst hún afar ódýr og hugsa sig
aldrei tvisvar um,“ segir Hans.
íslensku gestirnir eru gjarnan
menn, sem koma að staðaldri til
Reykjavíkur, eins og kaupfélags-
stjórar og útgerðarmenn. Og svítan
fylgir með, ef brúðhjónin halda
veisluna í húsakynnum hótelsins.
„íslendingarnir eru hér yfirleitt af
einhverju tilefni," segir Hans
Indriðason hótelstjóri á Esju.
Ekki einasta geta gestir svítunnar
á Hótel KEA á Akureyriglatt hjartað
við að horfa útyfir Pollinn og Vaðla-
heiðina úr gluggunum á fimmtu
hœð nýbyggingarinnar, heldur geta
þeir einnig tyllt sér niður I leðursófa-
settið í stofunni og virt fyrir sér stórt
málverk eftir Baltasar, sem þar
hangir á vegg. Eða þá sest við skrif-
borðið og skrifað bréf heim.
KEA-svítan er eins og iítil tveggja
herbergja íbúð, nema hvað eldhúsið
vantar, og að sögn Gunnars Karls-
sonar hótelstjóra er íburðurinn þar
öllu meiri en í öðrum vistarverum
hússins. Enda kostar gistingin ná-
lega helmingi meira, 4600 kr. í vetur
á móti 2670 kr. fyrir venjulegt
tveggja manna herbergi.
Gunnar segir, að það sé alls konar
fólk sem kjósi svítuna fram yfir
venjuleg herbergi. „I fyrsta lagi er
það fólk, sem vill láta fara vel um sig
og er tilbúið að borga fyrir það,“
segir hann. Þá kjósa hana menn
sem koma norður í viðskiptaerind-
um og þurfa að hafa aðstöðu til að
taka á móti fólki, að ógleymdum
brúðhjónum og öðru fólki á tíma-
mótum.
Aðeins rúmt ár er liðið frá því að
svítan var tekin í notkun, og því
ekki komin mikil reynsla á rekstur
hennar. En skyldi vera eitthvað um
að sama fólkið gisti í henni trekk í
trekk?
„Já, vissulega, og það á sérstak-
lega við um menn sem koma hingað
í viðskipta- eða embættiserindum,"
segir Gunnar.
Þótt svítugestir hafi kannski al-
mennt meiri fjárráð en gengur og
gerist, segist Gunnar ekki verða var
við meiri mannalæti í þeim en öðr-
um gestum. „En það kemur alltaf
fyrir, hvort sem er á hóteli eða veit-
ingastað, að þangað komi einhver,
sem hefur þörf fyrir að slá um sig,“
segir hann.
— Að lokum Gunnar, myndirðu
sjálfur gista í svítunni ef þú kæmir
sem gestur á Hótel KEA?
„Það færi eftir því í hvaða erinda-
gjörðum ég væri. En ég get alveg
mælt með henni fyrir þá sem vilja
hafa það huggulegt, eða þurfa á
þessari aðstöðu að halda. Hún er
þess virði,“ segir Gunnar Karlsson
hótelstjóri á KEA.
Rókókósófasett
Hvíldarstólar
SNýja
{Bólsturgorðir.
Garðshorni - Foss>'ogi - Simi 16541.
HELGARPÓSTURINN 19