Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 20
eftir Friðrik Þór Guðmundsson myndir Jim Smart HP gáir til veðurs með þeim sem hafa atvinnu af því... Það vantar ekki fjölþreytileikann í veðurfar- inu hérá klakanum. íveðurfregnum ríkissjón- varpsins virkar söguþráðurinn að vísu nokkuð einhæfur; skipulagðar raðir af misdjúpum lœgðum og breytilegri vindátt eftir því hvar skilin liggja. Hœðir inn á milli. En alltaf allra veöra von. Helst að vonast sé eftir úrkomuleysi 17. júní og hvítum jólum. Gott ef menn sleppa við kulda og hellidembu um hvítasunnuhelgi og verslunarmannahelgi. Ekki skiptir það höfuð máli hvar maður er staddur á landinu. Spurningin er ekki um eðl- ismun heldur stigsmun. Finnst þér gaman að roki? Þá skaltu endilega setjast að í Vest- mannaeyjum. Ef þú vilt logn er Kirkjubæjar- klaustur og nágrenni lokkandi. Ef þú vilt hafa hitann sem mestan koma báðir þessir staðir til greina, en alls ekki Norðurlandið, t.d. Raufar- höfn. Þessir staðir eru hins vegar ágætir ef þú vilt úrkomuleysi, en þá skaltu halda þig frá Kirkjubæjarklaustri og Vestmannaeyjum. Ef þú vilt allt í bland, hita, úrkomuleysi og logn, þá kemur þú að kofanum tómum. I Vest- mannaeyjum er nánast aldrei logn, í meðallagi þetta 3—4 daga á ári. Á suð-austurhorninu get- ur þú hins vegar búist við logni í um 70 daga á ári að meðaltali. Vilja ekki flestir hafa sól og blíðu? Sennilega. En hvað segir það fólk sem hefur atvinnu sína af því að stunda þá þjóðaríþrótt að gá til veð- urs? Hægt er að telja veðurfræðinga hér á landi á fingrum og tám beggja handa og fóta (þeir eru sem sagt um tveir tugir). Helgarpóst- urinn hafði samband við meirihíuta þeirra og spurði um uppáhaldsveðrið. ADDA BÁRA SIGFÚSDÓTTIR MEÐ ÚRKOMU Mér finnst þetta framúrskarandi fáránlega spurt, því það er svo misjafnt hvað manni finnst vera gott veður! En, jæja, á sumrin vil ég hafa sólskin og hæfiiega hlýtt — ekki yfir 20 stig. Á veturna finnst mér best þegar kyrrt er, það má vera vel kalt fyrir mér. Mér er helst illa við hvassviðri, en hef ekkert á móti úrkomu. BRAGIJÓNSSON ÍLJAGANG MEÐ BJÖRTU Ég er Norðlendingur og ég vil hafa ekta norðlenskt vetrarveður, éljagang með björtu inn á milli, þegar snjór er á jörð og ekki spillir fyrir að hafa skafrenning með og einnig má skíðaveður gjarnan fylgja. Annars hef ég gam- an af öllu veðri, einna helst að sunnan sjö með rigningu sé leiðinlegt veður, en batnar strax ef vindurinn er meiri. Og þar hefur þú það. BORGÞÓR JÓNSSON ÉG HATA SNJÓ Mér Iíður best í 17 stiga hita og sólskini. Ég vil hafa hitann á bilinu 15—20 stig, ef heitara er en það fer maður að svitna og ef kaldara þá er ekki gott að vera léttklæddur. Ég er úr Vest- mannaeyjum og þar af leiðandi vil ég hæg- viðri og svo hata ég snjó. Vestmannaeyjar eru eins konar Texas, pkkar syðsti punktur, hin eiginiegu suðurríki íslands. Þar er að meðaltali hlýjast, en vissulega nokkurt rok og því vil ég hafa hægviðri. Þar er líka talsverð úrkoma, en mér er ekki illa við hana, svo fremi sem hún er blaut, það er að segja ekki snjór. EIRÍKUR SIGURÐSSON KRAPPAR LÆGÐIR Þetta kemur flatt upp á mig — ég hef lítið hugsað um veður á þennan hátt. Ja, mér líkar einna best við stillta og heiðskíra hásumar- daga í hlýindum. Það er margt veður áhuga- vert, án þess að það sé í uppáhaldi hjá mér, ég nefni t.d. krappar og djúpar lægðir með til- heyrandi óveðrum, en það er kannski dauða- synd að vera að nefna slíkt í þessari andrá. En lítt er ég hrifinn af slyddu og bleytuhríð. GUNNAR HVANNDAL HRYLLIR VIÐ SVITA Ætli mér hafi ekki bara liðið best í móður- kviði — í 36—37 stiga hita? Nei, annars hef ég búið nokkur ár í hitabeltisloftslagi og mig hryllir við að vera sveittur frá morgni til kvölds. Þetta var í Los Angeles og þegar mað- ur var að draga upp kort þá blotnuðu þau gjarnan og festust við hönd. Mér finnst 14—15 stig vera þægilegur hiti. Úrkoma hefur engin áhrif á mig, en yfirleitt er mjög hressandi úti eftir mikinn skúr, sérlega fyrir vestan, því þá hreinsaðist mistrið og rykið skolaðist burt. Þá finnst mér stundum gaman að ganga á móti sterkum vindi, það eykur súrefnisinntökuna. Einna verstur er skafrenningurinn í miklum vindi. MAGNÚS JÓNSSON VIL HELST HÆGAN VIND Þetta fer dálítið eftir því hvað maður er að gera, en ég vil helst alltaf hafa hægviðri. Ég stundaði mikið sjó áður fyrr og kannski þess vegna sem ég kann best við að hafa hægan vind. Hvort sólskin er undir þeim kringum- stæðum eða rigning skiptir ekki öllu máli. I vinnunni er mesta fjörið þegar sem mest er að gerast, en langvarandi staðviðri leiðigjörn. Auk vindsins fer mikill hiti ekki vel í mig, þannig líður mér alls ekki vel í sólarlöndum í 30 stiga hita og þaðan af meira. HLYNUR SIGTRYGGSSON GAMAN AÐ ÚTSYNNINGI Mér hefur alltaf þótt útsynningurinn skemmtilegur, hann er alltaf sjálfum sér líkur, að suð-vestan með skúrum eða éljum og bjart á milli. En veðrið má ekki vera of hvasst eða of kalt, að öðru leyti sætti ég mig við flest nema þá þannig byl og snjókomu að hættulegt sé eða að menn geti hreinlega ekki athafnað sig. Það er hvimleitt en þó ekki óþolandi því ég hef ekki andstyggð á neinu þegar veðrið er annars vegar. MARKÚSÁ. EINARSSON SÁTTUR VIÐ ALLTVEÐUR Ég veit varla hvað skal segja. Mér líður einna best í hægviðri á sólríkum sumardegi í Hafnar- firði þar sem ég bý, það er að segja áður en haf- golan segir tii sín seinni part dags. Ekki er til það veður sem fer í taugarnar á mér, ég get með góðri samvisku sagt að ég sé sáttur við allt veður. TRAUSTI JÓNSSON RIGNING Við getum lýst mínu uppáhaldsveðri með einu orði: Rigning. Það er besta veðrið sem við höfum á lager hérlendis. Það getur verið að til sé betra veður, en það kemur þá ekki hingað. UNNUR ÓLAFSDÓTTIR AFSTÆTT Ég hef við þessu eitt klassískt svar: Ég tel það vera vont veður þegar spáin stenst ekki, ann- ars er veðrið gott. Sem betur fer gerist það afar sjaldan að spáin stenst ekki og þess vegna er það sjaldan sem veðrið fer í taugarnar á mér. En mér finnst annars gott að hafa hlýja sunn- anvinda yfir vetrarmánuðina og eins er ágaett þegar hæg norðanátt er ríkjandi og kalt. Ég sætti mig við nánast allt nema hvassa norðan- átt, hvort sem er að sumri til eða vetri. Auðvit- að er það afstætt í hvernig veðri manni líður vel, en aðalatriðið er sem sagt að spáin stand- ist! FLOSI H. SIGURÐSSON SÖL EÐA FÁRVIÐRI Mér líður best í sól og blíðviðri, eins og sjálf- sagt flestum. En mér þykir stórviðri líka skemmtilegt og þá því meiri vindhraði því betra. Það er gaman að fylgjast með vind- mælinum í fárviðri. En sólin og blíðan eru númer eitt hjá mér bg yfirleitt fer ekkert í taug- arnar á mér. Ég reyni að taka þessu með kristi- legu hugarfari og jafnvægi. ÞÓR JAKOBSSON FROST OG HAFÍS Ég kann einna best við mig í 40 stiga frosti og logni! Það er ýmist eða hjá mér, ég vil ann- að hvort hafa mikið frost og stillu og helst vera á skipi á hafísslóðum þar sem ekki sést til lands eða þá þægilega hitabylgju, þegar maður get- ur setið úti í garði með bjórglas í hendi. Það er ekkert sérstakt veðurfar sem fer í taugarnar á mér, ég vil hafa þetta breytilegt. Annars er mjög forvitnilegt að spá í hvernig veðrið hefur áhrif á líf og heilsu manna og dýra, sem kallast lífveðurfræði og er það mikið stunduð vísinda- grein. ÞÓRANNA PÁLSDÓTTIR MILT OG SKÝJAÐ Ég vil helst hafa þetta eins og veðrið hefur verið undanfarið (spurt fyrir helgi), skýjað en frekar milt af vetri að vera. Mér finnst betra að hafa skýjað og hlýtt heldur en sól og kalt og gildir þá einu hvort vetur sé eða sumar. Úr- koma skiptir ekki öllu í mínum huga, en auð- vitað er betra að hafa þurrt sem oftast. ÞÓRIR SIGURÐSSON NOKKUR VINDSTIG Á vetri vil ég hafa veðrið eins og það er í dag (föstudag) og hefur verið að undanförnu og er- um vu5 sammála um það við Trausti þykist ég vita. Ég vil hafa sól og lítinn snjó á veturna og hitastigið má helst ekki fara niður fyrir 5 gráðu frost. Þá vil ég hafa lítinn vind, þetta 2—4 vind- stig er í góðu lagi. En almennt séð líður mér best í 20—25 stiga hita. 20 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.