Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 26

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 26
) Sjálfstæðis- fíokkurinn nær árangri Leiftursókn gegn verðbólgu Meginstefna Sjálfstæðisflokksins var að ráða niðurlögum verðbólgunnar. f>að tókst. Verðbólgan hefur Iækkað úr 130% í um 10%. Ríkisstjómin hefur skapað sáttargjörð á vinnumarkaðnum. Aðilar vinnumarkaðarins semja sjálfir um kaup og kjör. Kaupmáttur heimilanna hefur aldrei verið meiri en nú. Endurreisn í anda frjálshyggju Vextir hafa verið gefnir frjálsir. Þaö leiðir til samkeppni bankanna um sparifé landsmanna og fyrirtækin búa nú við eðlileg lánsskilyrði en ekki niðurgreidd lán eins og áður tíðkaðist. Verðlagshöft hafa verið afnumin á vörum og þjónustu þar sem samkeppni er næg; Árangur þessarar stefnu hefur þegar skilað sér í harðri samkeppni og lækkandi vöruverði fyrir neytendur. Almenningi hefur verið heimiluð notkun greiðslukorta. Reglur um eignayfirfærslur hafa verið rýmkaðar fyrir þá sem flytja alfarið til útlanda. Öllum bönkum og sparisjóðum hefur verið heimilað að taka upp gjaldeyrisviðskipti. Fjárfestingar einstaklinga í atvinnurekstri hafa að ákveðnu marki verið gerðar frádráttarbærar frá skatti. Séreignarréttur á ábúðarhúsnæði Sjálfstæðisflokkurinn hefur alla tíð viljað standa vörð um það að menn ættu sitt eigið húsnæði. Á þessu kjörtímabili hefur tekist að tryggja húsnæðiskerfinu fjármagn með samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðina. Lán til þeirra sem eru að byggja í fyrsta sinn geta nú numið rúmlega 2,4 millj. kr. og fyrir þá sem eru að kaupa íbúð í fyrsta sinn rúmlega 1,7 millj. kr. Skattalækkanir Nettóskattalækkanir á kjörtímabilinu eru nálægt því að vera 2700 millj. kr. á verðlagi í ár. í því felst m.a. að álag á ferðamannagjaldeyri hefur verið afnumið, verðjöfnunargjald á raforku fellt niður, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði og launaskattur lækkað verulega. Ennfremur hafa tollar verið lækkaðir verulega svo og tekjuskattur. Greiðendum tekjuskatts hefur fækkað frá 1983-1986 úr því að vera 53% framteljenda í 47%. í ár eru 10.500 manns tekjuskattslausir sem hefðu greitt skatt miðað við skattkerfið frá 1983. Pessi fækkun birtist í því að þeim hefur fækkað verulega sem greiða skatt í neðsta þrepi á meðan hlutfallslegur fjöldi þeirra sem lenda í öðru og þriðja þrepi er svipaður og áður var. Þetta sýnir að tekjuskattslækkunin s.I. 3 ár hefur komið fram í stórlega lækkuðum skattfrelsismörkum sem hefur leitt til þess að mun fleiri framteljendur en áður greiða engan tekjuskatt. Af 175 þús. einstaklingum sem töldu fram til skatts árið 1986 greiddu 93 þús. engan tekjuskatt. Báknið burt Á kjörtímabilinu hafa verið seld tvö ríkisfýrirtæki, þ.e. Siglósíld á Siglufirði og Landssmiðjan í Reykjavík. Ennfremur öll hlutabréf ríkisins í Iðnaðarbanka íslands hf., Flugleiðum hf. og Eintskipafélagi íslands hf. Frjálst útvarp Baráttumál sjálfstæðismanna um frjálsan útvarpsrekstur er orðið að veruleika. Tjáningarfrelsið hefúr verið tryggt. Nú geta menn sett á stofn útvarpsstöð og hafið útvarpsrekstur rétt eins og menn geta ákveðið að gefa út dagblað eða tímarit. f Festa 1 utannkis- og varnarmalum Frumkvæði lslendinga í eigin öryggismálum hefur verið aukið og mótar það nú samskipti Islendinga við Atlantshafsbandalagið og Bandaríkjamenn. Vamir landsins hafa verið treystar með ýmsu móti. Ný flugstöð verður tekin í notkun í vor. Aukin áhersla hefur verið lögð á þjónustu sendiráðanna við útflytjendur. ( Stórátak í vegagerð Á þessu kjörtímabili hefur verið gert stórátak í vegagerð, sérstaklega í lagningu bundins slitlags. Á kjörtímabilinu hafa verið lagðir 757 km af bundnu slitlagi. Pað skiptist þannig að 1983 vom lagðir 83 km, 1984 168 km, 1985 226 km og 1986 280 km. Góðar samgöngur em raunhæfasta byggðastefnan. TRYGGJUM AFRAMHALDANDIARANGUR - X-D 26 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.