Helgarpósturinn - 05.02.1987, Side 27

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Side 27
Pjódleikhúsid frumsýnir barna- leikrilið Rympa á ruslahaug eftir Herdísi Egilsdóttur á Stóra sviðinu á laugardag. Þegar blaðamaður HP leit þar inn í lok janúar voru œfingar langt komnar og verið var að stilla saman strengi leikaranna og hljóm- sveitar sem fer með veigamikið hlut- verk í leikritinu. í verkinu segir frá kjarnakerling- unni Rympu sem býr á ruslahaug og virðist vera einsog útúr ævintýri. Hún gengur einnig undir nafninu Næturdrottningin meðal ruslsins á haugunum því það öðlast líf á næt- urnar þegar Rympa vakir. Um leið breytist staðurinn í ævintýraveröld með dansi og söng. Eiginmaður Rympu er tuskukallinn „Sex Volta" en þrátt fyrir tilvist hans er Rympa fremur einmana og tekur því tveim- ur börnum sem á hauginn koma opnum örmum og vill ólm, þegar hún fréttir að þau hafa hlaupist að heiman, gera þau að sínum. En þessu eru ekki allir sammála og sumir reyndar algerlega mótfallnir og af þeim sökum koma upp ýmis vandamál sem ekki verða frekar rakin hér. Óhætt er þó að segja að ýmsum nútíma vandamálum sé velt upp í verkinu og þau þá frekar en ekki séð með augum barnanna. Leikstjóri verksins er Kristbjörg Kjeld en þetta er í fyrsta sinn sem hún leikstýrir á Stóra sviði Þjóðleik- hússins, en hún hefur áður leikstýrt á Litla sviðinu. Aðspurð sagði Krist- björg að sér þætti verkið bæði skemmtilegt og fjörugt og það væri að hennar mati frumskilyrði þess að vel gæti heppnast þegar um sýn- ingu fyrir börn er að ræða. Skemmtigildið yrði að sitja í fyrir- rúmi en hneigð verksins að vera Rympa, Sigrlður Þorvaldsdóttir, kjassar eiginmann sinn, tuskukallinn „Sex Volta". Smartmynd. fremur á lágu nótunum. Að öðru leyti væri það í engu frábrugðið ann- arri leikstjórn að setja upp fyrir börn og það gerði sömu kröfur til allra og þegar verið væri að vinna fyrir aðra aldurshópa. Um aðalper- sónuna, Rympu, sagði Kristbjörg að hún væri í upphafi alls ekki heppi- legur félagsskapur fyrir börn og að aðstæður hennar hefðu gert hana harða og grimma en í seinni hluta verksins kæmi í ljós að á henni væri Höfundurinn Herdís Egilsdóttir: „Ævintýri eru hluti af lífinu Höfundur Rympu á ruslahaug er Herdís EgUsdóttir. Að eigin sögn skrifaði hún verkið útí loftið fyrir fjórum árum með miklu minna rými í huga heldur en er á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Haugurinn, þar sem verkið gerist, hefði t.d. ekki komið til fyrr en farið var að vinna verkið í leikhúsinu. Hún sagði að sér litist vel á sýn- inguna og samstarfið við leikhús- fólkið hefði verið Ijúft og afar skemmtilegt. Aðspurð sagði hún að Rympa væri einskonar samnefnari fyrir þann háskalega félagsskap sem biði þess fólks sem hrektist frá heimilum sínum. Rympa fær í verk- inu hlutverk þess ókunna og Herdís sagði að það sem ræki fólk áfram væri óskhyggjan um að hið ókunna væri á einhvern hátt betra en það sem þekkt væri fyrir. Rympa er eins- konar freistari sem baðar sig í ævin- týraljóma. Hún er í augum barn- anna spennandi því hún hefur nóg- an tíma og er þeim félagsskapur. En undir niðri er hún háskaleg og þungamiðja verksins er í raun af- hverju óæskilegur félagsskapur verður óæskilegur. Hvað hefur t.d. gert Rympu að því sem hún er og Herdís taldi gæta vaxandi tilhneigingar í samfélaginu að skella bara skuldinni á einhverjar ótilgreindar aðstæður, aðstæðurnar væru að drepa alit og alla en enginn væri ábyrgur. Rympa er þannig dæmi um hvernig börnin gætu þró- ast. Rympa er klofinn persónuleiki, hún er einsog freistingarnar, hún hefur mörg andlit og margskonar viðmót. Hún gleypir börnin með töfraveröld sinni og framkomu og Herdís benti á að þeim sem væru öryggislausir væri mun meiri hætta búin. Um tengsl við ævintýrin og gildi skemmtunarinnar fyrir börn sagðist Herdís líta svo á að hluti af lífinu væri ævintýri sem gæfi tilverunni lit. Hún taldi að það væri líkt með skóla og leikhúsi að börnin tækju betur við efninu þegar blandað væri saman gamni og alvöru, því það væri nauðsynlegt að öll umræðu- og umhugsunarefni sem framreidd væru fyrir börn innihéldu hvoru- Herdís: Gildi skáldskaparins við uppeldi barna er óvéfengjanlegt. tveggja. Gildi skáldskaparins við uppeldi barna væri óvéfengjanlegt og fyrir tilstilli hans og tónlistarinn- ar væri hægt að setja upp veröld sem ætti greiða leið að hjarta hvers barns. Um ömmuna í leikritinu sem einnig þiggur félagsskap Rympu, sagði Herdís að sér fyndust börn og gamalmenni um margt eiga við sama vanda að etja, þ.e. þann að veröldin snúist hraðar en þau geta með góðu móti lifað við. Amman er einmapa og finnur sárt til þess að hennar er hvergi þörf en á haugun- um breytist það. Þar blasa við henni ótæmandi verkefni svo hún verður ung á ný. Sagðist Herdís þá auðvitað ekki leysa vanda barna né aldraðra, aðeins vilja vekja til umhugsunar. Að lokum sagðist höfundurinn vilja að það kæmi fram að þetta tækifæri sem hún hefði fengið væri stórkostlegt. Það væri ómetanlegt þegar svona væri hlúð að hugar- fóstri manns. önnur hlið, hún ætti líka til djúpar tilfinningar og hlýjar sem hún hefði aldrei átt kost á að sýna fyrr en þarna er komið sögu í hennar lífi. Sigríður Þorvaldsdóttir fer með hlutverk Rympu og sagði hún að sér fyndist mjög ánægjulegt að leika fyrir börn, þau væru ekki síður krít- ískír áhorfendur en fullorðnir en hinsvegar þyrfti að gæta varúðar í túlkun þar sem börn væru auðtrúa. Þau þurfa að fá bæði meðaumkun með aðalpersónunni, því annars verður hún leiðinleg, og um leið verða þau að skilja að hún er ekki æskileg til eftirbreytni. Þetta er erf- itt vegna þess að Rympa er öðruvísi en fólk er flest og vegna þess hve verkið allt er sérkennilegt sagði Sig- ríður að lokum. Aðrir leikendur eru þau Sigrún Edda Björnsdóttir og Gunnar Rafn Guömundsson sem leika börnin, Viðar Eggertsson leikur kerfiskall og Margrét Guðmundsdóttir leikur ömmuna í verkinu. Það eru síðan krakkar úr ballettskóla Þjóðleik- hússins sem fara með hlutverk rusls- ins á haugunum. Eins og fyrr var getið er tónlistin veigamikill þáttur í sýningunni og það er engin önnur en Herdís sjálf sem samið hefur ellefu lög fyrir leik- ritið en Jóhann G. Jóhannsson út- setur og stjórnar hljómsveitinni. Leikmynd og búninga gerir Messí- ana Tómasdóttir og um lýsingu sér Björn Guðmundsson. -KK. LISTAPQ&TURINN Dansandi og syngjandi rusl — í nýju barnaleikriti Þjóðleikhússins JAZZ Blástu aftur Dexter DEXTER GORDON: The Other Side ofRound Midnight (Blue Note/Skífan) Eftir fáu bíða íslenskir djass- geggjarar, kvikmyndaunnendur og lífsnautnamenn, einsog að fá að berja augum og eyrum snilldar- verkið Round Midnight þarsem kvikmyndalistin og djassinn fall- ast í heitari faðma en dæmi eru til um áður. Tavernier er einn fremst- ur franskra kvikmyndara og til marks um mikið innsæi að fá gamla brýnið Dexter Gordon til að leika aðalhlutverkið jafnt á saxa- fón sem í magnaðri persónusköp- un hins ameríska djassleikara í París: Lester Young og Bud Powell voru fyrirmyndirnar. Fyrir jól mátti fá hér skífu úr myndinni: Round Midnight (CBS/Steinar) — sú seldist upp samstundis og mun vonandi koma aftur. Nú er önnur skífa úr myndinni komin til landsins: The Other Side of Round Midnight (Blue Note/Skífan) og ef eitthvað er þá stendur sú þeirri fyrri framar. Upphafsópusinn er Round Midnight þarsem Dexter blæs af reisn í tenórinn. Wayne Shorter i sópran og Palle Mikkelborg í trompet. Billy Higgins slær trommur en þungamiðjan er bassadúó Ron Carters og hins danska Mads Vindings. Sannkallaður leikur að stráum. Þá fylgja verk þarsem Freddie Hubb- ard, Wayne Shorter og Bobby McFerrin eru í aðalhlutverkum. Sérílagi er saxafónleikur Shorters í Caie Street Blues magnaður — og ólíkur öllu því sem sá maður hefur hljóðritað fráþví Weather Report var hleypt af stokkunum — það gleymir enginn hinum einfalda bláa tóni sem hann hefur eitt sinn numið. Herbie Hancock endar skífuna á Round Midnight einn einsog hann væri á Broadway sællar minning- ar. En kannski er sálin hvergi eins nakin og í blæstri Dexters í As Times Go By. Það þarf enga auka- tóna tilað lýsa veröld sem var. Sál- in er ein í nekt sinni. Sá sem ann djasstónlist mun drekka þessa tón- list í sig ótæpilega. PLAYIT AGAIN DEXTER Stanley Jordan: Standards volume I (Blue Note/Skífan) Þá er önnur Blue Note skífa gít- arsnillingsins Stanley Jordans komin út. Að vísu átti hann tvo ópusa á One night with Blue Note, tónleikaskífum frá 1985. Þeir voru litlausir einsog fyrsta skífa hans. En hversvegna þessi mikla athygli? Stanley Jordan er virtúós — dreng- urinn gerir það ómögulega á gítar. Það sem vantar er að tónhugsunin jafnist á við tæknibrögðin. Fyrsta skífa hans Magic touch fékk slíkar viðtökur að eindæmum sætti í djassheiminum — enda ein sölu- hæsta breiðskífa djasssögunnar. Gítarfríkin eru dugleg að kaupa skífur og þau eru mörg! Nú sendir Jordan frá sér einleiksskífu og er eftir Vernharð Linnet hún að mörgu leyti mun betri en sú hin fyrsta. Sérílagi er Jordan góður þegar hann er í hraðari kantinum og á kraftmikla kafla í The Sound of Silence eftir Paul Simon og My Favorite Things eftir Richard Rodgers. Það lag er að vísu eins ólíklegur djassstandard og hugsast getur en eftir að Col- trane fann djasslausn þess liggur það opið fyrir. Jordan fer líka á kostum þegar hann blúsar Geor- gia on My Mind og Heims um ból en í flestum hinna sex ópusa er ekki hafa verið taldir er lítið að gerast. Ljóðið leikur ekki við drengnum og inngangsstefjun hans er litilsigld. Jordan hefur ekki sveiflu né innsæi Joe Pass en kann betur á kraftskipti tónlistar. Fátt er jafn erfitt og að leika góð- an djass einn — meira að segja þó hljómahljóðfæri séu notuð. Hinn guðdómlegi Art Tatum verður löngum sá tindur er allir þrá en enginn klífur. NESTORINN á abstraktsýning- unni á Kjarvalsstöðum er Finnur Jónsson listmálari, en hann er nú 97 ára gamall. Finnur var meðal boðs- gesta á þessari vel heppnuðu yfir- litssýningu og heyrum við þá sögu að þegar hann gekk í hús hafi hann strax spurt: „Nú, hvar eru mín verk?" Honum var þá bent á fyrstu verkin sem menn sjá þegar þeir koma inn á sýninguna, semsé í and- dyri Kjarvalsstaða. Og heyrðist þá í karli: „Jæja, loksins búið að leið- rétta listasöguna. Ég er orðinn fyrstur eins og vera ber...“ HELGARPÓSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.