Helgarpósturinn - 05.02.1987, Page 28

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Page 28
MYNDUST Stórmerk sýning á veggjum Kjarvalsstaða og stórmerkar tuggur listfrœðinga í sýningarskrá eftír Guðberg Bergsson Á undanförnum árum hefur far- ið um heiminn, síðast í Madrid á árinu sem leið, bandarísk einslags fræðslusýning um upphaf abstrakt listar, og henni fylgdi vegleg og fræðandi sýningarskrá. Þetta hef- ur víst rekið Kjarvalsstaði til þess framtaks að halda svipaða sýn- ingu hér, en á íslenskri list, mönn- um til upprifjunar og glöggvunar. Hún er óneitanlega þarft framtak en heldur hvimleitt að allt sem við gerum er einslags ómur frá því sem hefur þegar verið gert erlend- is — en bara miklu betur þar. Halda mætti að listfræðingarnir sem skrifa um sýninguna hafi með henni fengið gott tækifæri til að velta fyrir sér hvers vegna hér á landi reyndi að tylla niður tánum, án þess þó að skjóta verulegum ís- lenskum rótum, fyrirbrigði sem hin óhlutbundna list er hjá þjóð sem hefur tæpast stundað neina óhlutbundna hugsun og er afskap- lega hlutbundin, þótt hlutir hér hafi jafnan verið fáir, en menn hafa ríghaldið sér í þá þeim mun betur. Hin óhlutbundna list eða ab- straktlistin var eitthvað sem menn þoldu á tímum þegar þjóðin varð að þola svo margt sem var henni gersamlega framandi, eins og bandarískur her, hermenn út um allt og fullt af vélum og gervismið- um, bændum sem höfðu aðeins umgengist torf en gengu nú til smíða með gljáfægða sög og voru orðnir ,,smiðir“ á einni nóttu, þökk sé hókuspókus-komu bret- ans og kanans. Að vísu voru menn eitthvað að fetta fingur út í þessa nýju list, en allt slíkt var bara ósköp venjulegt íslenskt röfl og ekki skóbótar virði á hina illa skóuðu andlegu fætur þjóðarinnar. En það er enn verið að rifja upp röflið i Jónasi frá Hriflu og litið á hans þrautleiðin- lega hjal sem „andúð" og það jafn- vel tengt málaralistinni einvörð- ungu, þó á tímum Jónasar röfluðu menn um allt í sama dúr, sama hvort það var um lýs á sauðfé, hvort sólin hafi numið staðar í rúma viku yfir Jeríkó fyrir daga Krists, hvort menn væru komnir af öpum af því guð er asni eða hvort niðri í jörðinni sé jarðarfita sem grasið nærist á, vegna þess að guð lagði fitulag allt í kringum jörðina, eins og allar mæður eru feitar alltí kringum skrokkinn og það er talað um móður jörð. Á þá ekki að vera sama spik á henni og margra barna móður? Samkvæmt þeirri fagurfræði var feit jörð fal- leg -— hraunið ljótt. Svona voru abstraktumræðurnar hjá almenn- ingi meðan abstraktlistin í Reykja- vík tröllreið torfhausnum á Jónasi og öðrum ámóta. Nú eru fræðingarnir komnir í staðinn, með svo mikið fræðinga- raus að maður gæti haldið að þeir líti á almenning sem eitthvað sem er alltaf í tossabekk og um að gera að beita íslenska staglinu á toss- ana. En menn eru misjafnlega fær- ir í því að stagla. Sumir eru hreinir snillingar í því. Og hér kemur ein sígild staglsetning eftir Ólaf Kvar- an: Súrrealisminn kynnti lista- mönnum einnig list frumstæðra þjóða — aðdáun á þeirri list birtist raunar einnig í kúbismanum og þýska expressjónismanum — sem var í hugum þeirra upprunaleg og sjálfsprottin tjáning, andstæð þeirri vitsmunalegu hefð sem ein- kenndi list samtímans. Ætli hin sjálfsprottna tjáning hafi sprottið úr „listafitunni'? Listafitan ku víst vaxa allt í kring- um hið „skapandi ímyndunarafl". Og þessi listafita hefur verið mikil á Septemberhópnum frá 1947. Til að sanna það að listfræðing- arnir séu lærðir í listum og heljar- miklir fræðingar birta þeir í lok greinarkorna sinna langan lista af „fræðiritum" sem þeir hafa sótt viskuna í. Þetta er beinlínis kauða- legt, svipað því og þegar ófínt fólk þykist vera fínt og hengir utan á sig „dýra hluti“. í tilviki fræðing- anna eru fínu mennirnir og sýn- ingarskrárnar sem vitnað er í „hinir dýru hlutir". Eins og þegar Gunnar B. Kvaran vitnar í Margit Rowel og skrá hennar sem fylgdi heldur óuppbyggilegri sýningu og þræltuggðri í Pompidousafninu á síðasta ári. List sprettur ekki upp úr fræði- greinum, uppruni hennar er allt annar og einfaldari en leyndari. íslensk abstraktlist átti ekki rætur að rekja til íslenskrar menningar- hefðar eða hugsanagangs heldur til ákveðinna þjóðfélagslegra að- stæðna. Hún er þess vegna fremur litrík, flúrkennd og grunnhyggin, en ekki kuldalega íslensk og sauð- þrá. Ýmsum var því létt að hverfa frá henni, einkum geometríunni, því hreinan geometrískan málara áttum við aðeins einn: Eyborgu Guðmundsdóttur. Sýningin á Kjarvalsstöðum er vegleg sýning. En það hefði verið nóg að hafa færri myndir eftir suma málara. Flestar myndirnar eftir Kjarval eru bara flúr. í stað þeirra hefðu mátt koma fleiri myndir í sýningarhalann eftir yngri málarana og myndhöggvar- ana. Menn eiga ekki að vera leng- ur að rogast mikið með Kjarval og koma honum að þar sem hann á varla heima. Annað er dónaskap- ur við minningu hans og engin „listfræði" í þeirri ítroðslu — held- ur bara stagl. Kjarval á ekki alltaf heima á Kjarvalsstöðum. BRYNJA Benediktsdóttir hefur skrifað leikrit sem Leikfélag Flat- eyrar frumsýnir fjórða mars. Það heitir Orðabelgurirm — saga af Þor- steini karlssyni. Atli Heimir Sveins- son semur tónverk við leikritið, sem nemendur í Tónskóla Flateyrar flytja, en þeir setja mikinn svip á uppfærsluna ásamt áhugaleikurum staðarins. Það eru og lög eftir Megas sem prýða sýninguna, sem er stjórnað af Oktavíu Stefánsdóttur. Hún er lærður leikari úr Danaveldi þar sem hún hefur lengi dvalist —• og meðal annars sungið djass. JÖTUNN hét Þrymur, bjó í Út- garöi, og vann það sér til frægðar að stela Þórshamrinum Mjölni. Þryms- kviða heitir nýlegt leikrit Njarðar P. Njarðvík, unnið upp úr samnefndri goðsögu úr Snorra-Eddu, en það hefur legið um tíma inni í Þjóðleik- húsi og beðið uppfærslu. Hennar er nú að vænta með vorinu — og þar kemur Brynja Benediktsdóttir aftur við sögu sem leikstjóri. „Þetta verð- ur töskuleikhús," segir Brynja og út- skýrir: „hvorki sett upp á Stóra svið- inu né því Litla, heldur farið með það um land og bæ.“ Hún segir leikritið höfða til ungra og gamalla og leikendurna skiptast í tvö gengi sem skiptist á um hlutverkin. Örn Árnason/Pálmi Gestsson leika Þór, Ragnheiður Steinþórsdóttir/Lilja Þórisdóttir leika Freyju (hverja Þór bað að giftast Þrymi, svo hann end- urheimti hamarinn, en hún neitaði harðlega, svo Þór fór sjálfur), Sig- urður Sigurjónsson/Randver Þor- láksson leika Loka og Þrym leika Erlingur Gíslason og Rúrik Haralds- son til skiptis. Auk ieikendanna taka fimm til sex hljóðfæraleikarar þátt í sýningunni, en tónlistin er samin af Hjálmari H. Ragnarssyni. GALLERÍIÐ Svart á hvítu held- ur ótrautt áfram í kynningu sinni á spennandi myndlistarmönnum. Fjórði kúnstnerinn sem kemur til með að sýna í vinkilsalnum við Óð- instorg er Kristinn Harðarson myndlistarmaður sem síðast sýndi í Nýlistasafninu, hreint afbragðs verk. Það er ekki síður spennandi listamaður sem fylgir á eftir, því næstur á eftir Kristni kemur enginn annar en Sigurður Guðmundsson frá Amsterdam og sýnir grafík. Ef HP man rétt hefur Sigurður ekki verið með einkasýningu á íslandi í hartnær tíu ár, utan nettrar sýning- ar vestur í Slunkaríki við Skutuls- fjörð. Þá var hann einn úr hópi ís- lenskra listamanna búsettra erlend- is, sem sýndu nýlega saman á Kjarvalsstöðum. SKATTAumræðan er mikil þessa febrúardaga eins og gjarnan um þetta leyti árs. Kannski rétt að minna menn á það hér í þessum menningardálkum að hverskonar myndlistarverk má afskrifa af hálfu fyrirtækja og stofnana. Listin a tarna er semsé jafn skattlaus og hlutabréf en ólíkt meira fyrir augað að jafnaði. LEIKLIST eftir Gunnlaug Ástgeirsson Djöflaeyjan í skemmunni Leikfélag Reykjavíkur í Leikskemmunni við Meistara- velli: Þar sem Djöflaeyjan rís. Leikgerð Kjartans Ragnarssonar á sögum Einars Kárasonar Þar sem Djöflaeyjan rís og Gulleyjan. Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson. Leikmynd, búningar og Ijós: Grétar Reynisson. Leikendur: Margrét Ólafsdóttir, Guðmundur Pálsson, Edda Heiðrún Backman, Kristján Franklín Magnús, Helgi Björns- son, Guðmundur Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir, Þór H. Tuliníus, Margrét Akadóttir, Harald G. Haralds. Sýningartími: Tœplega þrjár og hálf klst. Leikfélagið hefur nú fengið til afnota gamla Bæjarútgerðar- skemmu vestur við Meistaravelli og hugsa forsvarsmenn þess sér að þar verði einskonar æfingabúðir fyrir leikfélagsfólk áður en það flytur í hið nýja Borgarleikhús sem áætlað er að taka í notkun innan fárra ára. Skemman sú arna er ekki sú versta sem hægt er að hugsa sér undir leikhússtarfsemi, hátt er til lofts og vítt til veggja og býður svæðið uppá að því er virð- ist ótæmandi möguleika. Er því ekki að furða að þeir leikfélags- menn fái hálfgert víðáttubrjálæði við að hafa svona stórt leikrými til umráða. Ég held að það séu nánast ásköpuð örlög að maður verður ævinlega fyrir einhverskonar von- brigðum með Ieikgerð eða kvik- mynd eftir sögu sem manni þykir einhvers virði. Það þarf ekki endi- lega að vera vegna þess að leik- gerðin eða kvikmyndin sé svo slæm, heldur er mergurinn máls- ins sá að ímyndunaraflið sem virkjast við lestur skáldsögu er miklu fullkomnara og fjölþættara tæki til þess að sjá fyrir sér sögu og lifa sig inn í hana heldur en kvik- mynd og leikrit. Hvortveggja verður aldrei annað en sýnilegt yfirborð sem skilur svo ótalmargt útundan sem áhorfandi saknar sárlega. Það gildir einu þótt viður- kennt sé að leikgerð sögu sé sjálf- stætt verk, leikhúsverk sem lýtur eigin lögmálum, sagan er fyrir hendi og hlýtur ævinlega að vera til samanburðar í huga þess sem hana hefur lesið og horfir á leik- gerð, framhjá henni verður ekkert komist. Ég skil Kjartan Ragnarsson ósköp vel að taka sér fyrir hendur að búa til leikgerð eftir sögum Einars Kárasonar, því þær eru óneitaniega með bestu sögum sem ritaðar hafa verið hér á landi á seinni árum, auk þess sem þær kortleggja á nýjan hátt tíma og mannlífssvið sem lítil skil hafa áð- ur verið gerð. Mér virðist Kjartan hafa leitast fyrst og fremst við að ná fram tímanum og andrúmsloft- inu í bókunum, en trúnaður við skáldsögurnar skipti hann fremur litlu máli. Hitt er aðalatriðið að búa til skemmtilega leiksýningu en það tekst heldur misjafnlega. Á sama hátt og möguleikarnir í skemmunni til að leika út og suður og upp um alla veggi eru nær ótæmandi, verður leikstjóri að gæta að sér að misnota ekki þessa möguleika að dreifa sýningunni svo að hún slitni, en það finnst mér gerast nokkrum sinnum í þessari sýningu. Af svipuðum ástæðum verður sýningin á köfl- um óþarflega langdregin, því söguefnið eins og það er hér lagt upp þolir síst af öjlu of hæga fram- vindu atburða. Á hinn bóginn er leikrýmið oft einnig notað mjög skemmtilega í fjörlegu samspili leikara, sviðsmyndar og ljósa. Leikararnir gera margt vel í þessari sýningu. Margrét Ólafs- dóttir leikur Línu spákonu, drottn- ingu hússins gamla, og tekst henni að gera hana töluvert magnaða í nokkrum atriðum svo maður trúir þvi næstum að hún sé göldrótt. Tomma finnst mér verra að trúa á, og veldur þar mín eigin mynd úr bókunum truflunum, þó svo að Guðmundur Pálsson skili útaf fyrir sig sínu verki ágætlega. Baddi, Danni og Dollí eru öll vel gerðar útfærslur hjá Kristjáni Franklín sem er frábær erkitöffari, Helga Björnssyni sem ég hef ekki áður séð leika betur og Eddu Backman sem sýnir mjög vel þróun Dollíar. Þór H. Tulinius á eftirminnilegan leik og persónusköpun í hlutverki Grjóna, hins fortapaða glæpons sem alltaf á athvarf í húsinu hjá Tomma og Línu. Hanna María Karlsdóttir leikur Þórgunni móður Grjóna á eftirminnilega tragískan hátt þó alltaf sé stutt í hið kómíska. Margrét Ákadóttir og Harald G. Haralds leika Fíu og Tóta, níska, hneykslunargjarna og forvitna ættingja Línu, og búa þau til óhemjulega fyndnar persónur. Guðmundur Ólafsson leikur Gretti, mann Dollíar og gerir úr honum skemmtilega persónu, sem er þó töluvert öðruvísi en ég skil sömu persónu í bókinni. Flest- ir leikarar breða sér um stund í önnur hlutvrk og eru þau yfirleitt ágætlega gerð. Skemman sjálf leikur eiginlega stærsta hlutverkið í þessari sýn- ingu, því það er ekki síst hennar vegna sem tekst að skapa ein- hvern keim af andrúmslofti þess tíma og þess umhverfis sem bæk- ur Einars greina frá. Að því leyti heppnast þessi sýning nokkuð vel. Hinsvegar eru aðrir hlutir sem ekki hefur tekist eins vel að vinna, sumt af því er spurning um tíma, eins og of hægir kaflar, en annað er spurning um leikstjórn, svo sem of mikil dreifing sýningarinnar um leikrýmið. Það verður mjög spennandi að sjá hvernig Leikfélaginu tekst að nýta þessa skemmu í framtíðinni, en möguleikarnir virðast vera ákaflega fjölbreyttir ef vel er á haldið. G.Ást. 28 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.