Helgarpósturinn - 05.02.1987, Side 29

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Side 29
Utan ég fór — er skáldum lífsnauðsyn að fara utan? Þab hefur löngum verid haft á ordi ad rithöfundum sé nauðsyn á að fara utan til að öðlast yfirsýn yfir þann íslenska veruleika sem þeir eru að skrifa um. A llt frá þvíað Hall- dór Kiljan Laxness fór utan og kom heim með Vefarann mikla frá Kasmír undir hendinni, — þar sem Steinn Elliði, hinn ungi ofurhugi, brennur af útþrá, hafa höfundar farið utan til að reyna að öðlast langþráða yfirsýn fyrir tilstilli fjar- lœgðarinnar. HP lék forvitni á aö vita hver viðhorf nokkurra höfunda væru til þess. Þau sem spurð voru álits eru þau Álfrún Gunnlaugsdótt- ir, Svava Jakobsdóttir, Einar Már Guðmundsson og Pétur Gunnars- son, en þau hafa ölþdvalist meira eða minna erlendis, Álfrún á Spáni, Svava m.a. í Englandi og Bandaríkj- unum, Einar Már í Danmörku og Pétur í Frakklandi. Spurningin sem lögð var fyrir þau var: Telur þú það skipta máli fyrir rithöfund að dvelj- ast erlendis um lengri eða skemmri tíma? -KK Svava Jakobsdóttir LÍFSELEXÍR „Ég er eindregið þeirrar skoðunar að það sé lífselexír fyrir skáld, ekki bara að ferðast heldur dveljast er- lendis um lengri tíma. Það er nauð- synlegt að kynnast annarri menn- ingu, öðru fólki og það er svo margt að skoða og sjá erlendis sem gerir mann fróðari, maður neyðist til að breyta um lífshætti, hugurinn losnar úr vanabundnum viðjum. Hinu dag- lega lífi sleppir og maður verður annar." — Heldur þú að það hafi haft stefnumarkandi áhrif á skáldskap þinn að þú hefur haft tœkifœri til að dvelja fjarri íslandi? „Skáldið er vitanlega með alla sína reynslu í farteskinu og dvöl er- lendis gefur manni betri yfirsýn, maður getur greint á milli þess sem eru smámunir og þátta sem eru fast- grónari, fastgróinna fordóma t.d. Annars er þetta mótsagnakennt því þegar maður dvelur að heiman þá sér maður bæði þau gæði sem ís- land býður uppá og svo það sem miður fer.“ — Þannig að segja má að utanfar- ir séu að einhverju leyti lífsnauðsyn þér sem skáldi? „Já, skáld verða að hafa augu og eyru opin, það eru þeirra tæki og ferðaþörf skálda og rithöfunda verður að fullnægja, þessvegna eru ferða- og dvalarstyrkir nauðsynleg- ir. Gullöld bókmennta hefði varla orðið ef skáld og fræðimenn hefðu ekki haft tækifæri til að kynnast heiminum." Einar Már Guðmundsson EKKI AFGERANDI „Já, það skiptir máli, þó ekki sé gott um það að segja, því maður veit ekki hvað maður hefði hugsað ella. Maður hefur oft talað um þessa fjar- lægð sem fylgir, maður sér kannski betur úr fjarska skýrari drætti hér heima heldur en þegar maður er á kafi í dægurþrasinu sjálfur. En í sjálfu sér lít ég ekki á þetta sem af- gerandi, verkin hljóta að ráða því.“ — Þannig að dvöl þín ytra hefur ekki skipt þig höfuðmáli? „Ja, ég leiddist útí þessa prófes- sjón erlendis, maður fær annað svigrúm í útlöndum, maður er nátt- úrlega útlendingur... En þetta eru auðvitað víxlverkandi þættir: Mað- ur verður að komast burt en svo kemur að því að maður verður að koma heim aftur. Maður þarf að nálgast þennan veruleika aftur sem maður er öðrum þræði að fjalla um. Hann svífur annars í lausu lofti ef maður er of lengi að heiman. Það verður svolítið eins og að búa á flug- velli. Umhverfisbreyting gerir auð- vitað höfundi auðveldara að ganga ákveðið til verks en verkin verða að sýna hvort sú ákveðni skilar sér. Ég vil ekki alhæfa um að fjarlægð sé nauðsynleg. Landfræðileg fjarlægð þarf ekki alltaf að fara saman við bókmenntalega fjarlægð þó hið fyrrnefnda geti hjálpað hinu síðar- nefnda. Margir höfundar kjósa að fara helst aldrei úr kompu sinni en skapa engu að síður snilldarverk." Pétur Gunnarsson FÓKUS Á VERULEIKANN „Ég tel það skipta höfuðmáli fyrir höfundinn. Þannig nær hann veru- leikanum í fókus. Fyrir mér er það svolítið eins og að framkalla filmu, hver maður geymir inní sér mynd af raunveruleikanum eins og ófram- kallaða filmu og ein leiðin til að framkalla hana er að fara að heim- an. Með því að fara burt og setjast að á nýjum ókunnum stað og taka upp úr sínum sálarkyrnum þar og horfa heim, sér maður raunveruleikann næstum því í fyrsta skipti." — Þannig að þetta hefur verið þínum skáldskap lífsnæring? „Já, án þess hefði minn skáld- skapur aldrei orðið til, fyrsta bókin mín Splunkunýr dagur sem kom út 73 varð bókstaflega til vegna þess- arar fjarlægðar. Ég er þeirrar skoð- unar að rithöfundum sé nauðsyn á að fá fjarlægðina og að fara burt er fyrir mig besta leiðin. En auðvitað eru aðrar leiðir sem geta gefið jafn góðan árangur. Reyndar held ég að samanburður sé íslenskum bók- menntum veigamikil aflvél og ef við lítum á íslendingasögurnar sem menn hafa í árhundruð verið að velta fyrir sér hvernig hafa orðið til þá held ég að mikilvæg vísbending um það séu utanfarirnar. Menn fóru utan til landa sem voru ekki einu- sinni á landakortinu og fengu þar samanburðinn við heimahagana." — Setning Andra í Persónum og leikendum um að í París komist veröldin í fókus er því ekki fjarri lagi? „Ég stend við hana.“ Álfrún Gunnlaugsdóttir SITJA KYRR, SAMT AÐ FERÐAST „Ég tel að það sé gott en ekki bráðnauðsynlegt. Kannski er það æskilegt fyrir rithöfunda eins og aðra að fara utan og kynnast siðum og háttum annarra þjóða. Þetta við- horf hefur löngum búið með þjóð- inni og það kristallast í einu orði sem ég veit ekki hvort er til í öðrum tungumálum; útþrá. Það er auðvit- að gott fyrir höfundinn að sjá ver- öldina á ný með augum barnsins og að takast á við hlutina uppá nýtt, snúa henni á hvolf og læra nýtt tungumál og um leið læra að nefna fyrirbærin á nýjan leik." — Hvað með þessa eilífu spurn- ingu um tengsl fjarlœgðar og yfir- sýnar? „Ég held að fjarlægðina geti menn öðlast með stuðningi frá öðr- um höfundum og yfirsýnina með því að setja sig í stellingar gagnvart verkinu. Maður skrifar útfrá annarri reynslu en eingöngu sinni eigin og hluti af þessari reynslu er að kynn- ast eigin bókmenntum og annarra þjóða. Höfundurinn þarf að búa yfir þessari forvitni til að vilja kynna sér aðra menningu og annarskonar sköpun en hann á að venjast. Ég held að mikilvægasta ferðalagið fyr- ir rithöfund sé einmitt það að kynna sér bókmenntir, bæði eigin og ann- arra, hvort sem menn gera það hér heima eða annarstaðar, semsagt að sitja kyrr en samt að vera að ferð- ast.“ HRAFN Gunnlaugsson og kvik- myndafélag hans F.I.L.M. fékk stærsta styrkinn úr Kvikmyndasjóði að þessu sinni — fimmtán milljónir — en úthlutun fyrir árið 1987 lauk um helgina. Það gekk eftir sem flestir höfðu spáð, að tveir vænir styrkir yrðu veittir til jafn margra verkefna á meðan aðrir fengju helsti lágar upphæðir. Þeir félagar Karl Óskarsson og Jón Tryggvason hjá Frost Film fengu hinn stóra styrkinn, tíu milljónir, fyrir verkefn- ið Foxtrot. Átta aðrir aðilar fengu styrki til gerðar leikinna mynda; Ágúst Guðmundsson ^hálfa milljón til að setja enskt tal á Útlagann, Egill Eðvarðsson eina milljón til Kumls, Hilmar Oddsson og félagar í Bíói hf. tvær milljónir til Meffíar, Eiríkur Thorsteinsson sömu upphæð til vinnslu á verkefni sem hann kallar Skýjað, Friðrik Þór Friðriksson 1,8 milljón til Skyttnanna sem hann er nú að fínklippa í Osló, Kristberg Óskarsson tvöhundruð þúsund til að gera Skyggni ágœtt, Þorsteinn Jónsson hjá Kvikmynd eina milljón til gerðar Himnaríkis hf. og að síð- ustu Kristín Jóhannesdóttir hjá Tíu Tíu sf. þrjár milljónir til verkefnisins Svo á jörðu sem á himni. VERKEFNI þeirra tveggja aðila sem fengu stóru Kvikmyndasjóðs- styrkina standa þannig að Tristan og ísold Hrafns fer senniiega í tökur snemma í vor, en Hrafn er nú stadd- ur í Svíþjóð að leggja síðustu drög að handritinu — sem þeir sem séð hafa, segja afspyrnugott — með Bo Johanson, þeim sama og skrifaði Montenegro leikstjórans Dusan Makavejev sem síðar gerði m.a. The Coca Cola Kid með Eric Roberts. Frostfilmingarnir Jón Tryggvason og Karl Óskarsson, hafa lagt mikla undirbúningsvinnu í fyrirhugaða mynd sína, sem gengur undir nafn- inu Foxtrot og hef ja líkast til tökur á henni í sumar. HEIMILDARmyndir fá að þessu sinni hátt í tíu milljónir í sinn hlut úr Kvikmyndasjóði og hefur það hlutfall sjaldan eða aldrei verið eins hátt. Sex aðilar fá heimildar- styrki, þar af Jón Hermannsson sýnu mest, fimm milljónir. Hann hefur í undirbúningi átta þætti um jarðhræringar og jarðskjálfta í land- inu í samvinnu við Guömund Sig- valdason jarðeðlisfræðing. Guð- mundur er einn virtasti vísindamað- ur okkar á alþjóðavettvangi og hugsa þeir Jón sér gott til glóðarinn- ar með sýningar þessara þátta er- lendis, en þá kalla þeir Hin römmu regindjúp. Þetta er stærsta heimild- armyndaverkefni sem ráðist hefur verið í á íslandi. MAGNÚS Magnússon er líka að leggja af stað með heimildarmynd sem hann fékk úthlutað rúmri millj- ón til úr Kvikmyndasjóði. Hún er um Sjófugla og er gerð í beinu fram- haldi af mynd sjónvarpsmannsins um vatnafuglana við Mývatn, sem IStöð 2 sýndi nýlega. Jón Björgvins- 'son er einnig með spennandi heim- 'ildarmynd í undirbúningi, sem Kvikmyndasjóður veitti nú hálfri milljón til, en viðfangsefnið er há- lendi íslands. Jón nefnir verkefnið 88 gráður austur. Sölumöguleikar þess á erlendri grundu eru efalítið |ekki minni en mynda Magnúsar og j Jóns Hermannssonar sem getið var jhér á undan. HELGARPÓSTURINN 29

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.