Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 31

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 31
KVIKMYNDIR eftir Ólaf Angantýsson og Sigmund Erni Rúnarsson Hugljúft Austurbœjarbíó: Heavenly Pursuits Himnasendingin ★★ Bresk. Árgerd 1985. Framleibandi: Michael Relph Leikstjórn/handrit: Charles Gormley. Aöalhlutverk: Tom Conty, Helen Mirren o.fl. Þessi litla/stóra mynd Charles Gormley er einkar dæmigerð fyrir þann tíðaranda sem fylgt hefur í kjölfar nýbylgjunnar í breskri kvikmyndagerð á liðnum misser- um. Myndin er í eðli sínu býsna yf- irlætislaus, líður einkar afslappað hjá á tjaldinu, án þess þó að manni finnist í raun nokkuð markvert eiga sér þar stað. En áður en mað- ur veit orðið af, hefur hún stig af stigi náð að síast inn bakdyra- megin og hreiðra svo um sig í und- irmeðvitundinni, að manni stend- ur um síðir hreint öldungis ekki á sama um þá atburði og þær per- sónur, sem myndin af svo ófor- skammaðri alúð laumar inná okk- ur. Tom Conty (sem flestir minnast af góðu einu úr myndum á borð við Merry Christmas Mr. Lawrence og Reuben Reuberi) fer hér á kost- um í hlutverki kennara nokkurs við kaþólskan skóla, hvar menn eru þá er sagan hefst býsna upp- numdir yfir hversu iðinn verndar- dýrlingur skólans hafi að undan- förnu verið við að sáldra velgjörð- um sínum ýmiskonar, jafnvel kraftaverkum yfir þá er minna mega sín í lífsbaráttunni. Nefndri kennarablók þykir ekki mikið koma til fullyrðinga þeirra er hvað hæst láta um þessa auknu kraftaverkavirkni dýrlingsins, en þó fara að renna á hann tvær grímur þegar hann verður þess áskynja að það eru í raun óskir hans sjálfs sem rætast, jafnóðum og þær renna upp fyrir hugskots- sjónum hans. I sem örstystu máli: Bráðsmellin og afbragðsvel skrifuð handrits- gerð, ásamt stórgóðum leik Tom Conty í aðalhlutverkinu ráða mestu um hversu vel til hefur tek- ist með gerð þessarar afbragðs- góðu dægrastyttingar. * Ohugnaöurinn Stjörnubíó: Öfgar (Extremities) ★★★ Bandarísk, árgerð 1986. Framleiðandi: Burt Sugarman. Leikstjórn: Robert M. Young. Handrit: William Mastrosimone skv. eigin sviðsverki. Tónlist: J.A.C. Redford. Aðalleikarar: Farrah Fawcett, James Russo, Diana Scarwid og Alfred Woodard. Extremeties eða Öfgar er að því er ég best veit, fyrsta mynd Roberts M. Young eftir að hann floppaði á mynd með Paul Simon frá 1980, One Trick Pony. Young á annars fáar myndir að baki. Hann byrjaði ekki að fikta við kvik- myndaleikstjórn fyrr en eftir fimmtugt — en vakti þá þegar nokkra athygli. Fyrsta verk hans, Short Eyes (einnig nefnd Slamm- er) með Bruce Davison þótti eink- ar vel heppnuð. Það var tekið sér- staklega eftir því hvað Young náði góðum tökum á leikurum mynd- arinnar. Núna kemur Young semsé fram á sjónarsviðið eftir nokkurt hlé með Öfga, þar sem — rétt eins og í fyrstu mynd hans — bregður fyrir framúrskarandi leik. Það er jafn ljóst að leikararnir eru þakklátir fyrir hlutverk sín. Ruliurnar eru vel skrifaðar upp úr margrómuðu og samnefndu sviðsverki eftir William Mastrosimone, sem hann reit fyrir fimm árum að áeggjan vinkonu sinnar sem hafði verið nauðgað grimmilega. Yfirfærsla verksins í búning filmunnar er ágæt, og er það sjálfsagt mest að þakka þeirri ákvörðun að láta Mastro sjálfan um það vandaverk. Farrah Fawcett leikur hér fyrsta alvöruhlutverk sitt og sýnir að hún kann meira fyrir sér í leiklist en sem nemur förðuninni. Hún lendir í návígi við klikkaðan of- beldismann, sem eftir misheppn- aða nauðgun á henni, leggur hana í einelti. Þetta er ákaflega kraft- mikið og ofsafengið verk, sem tekst að lýsa þessum óhugnaði í samfélaginu á trúverðugan hátt — og þannig, að mikla umhugsun vekur á eftir. Það væri auðveld- lega hægt að setja út á ýmsa þætti þessarar myndar sem kvikmynd- ar, en ég sleppi því þar eð efnistök- in vinna það upp og gott betur. Samleikur Russo og Fawcett er, getur maður sagt, viðbjóðalega góður. -SER Farrah Fawcett á góðan leik f öfgum Roberts M. Young, en hún hefur hingað til ver- ið þekkt fyrir brosið eitt í kvikmyndum. KVIKMYNPAHÚSIN HIMNASENDINGIN (Heavenly Pursuits) ★★ Tom Conti er alltaf ágætur og líka svo líkur Pachino. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Á HÆTTUMÖRKUM (Dangerously Close) ★★ Um glæpasamtök í menntó. Sýnd kl. 5 og 11. Bönnuð innan 16 ára. STELLA I ORLOFI ★★★ Léttgeggjuð ærsl a la Islanda. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ÁSTARFUNI (Fool for Love) ★ Hjónabandssæla Eddi og May fær ann- an Ijóma. Sýnd kl. 7 og 9. Bönnuð innan 12 ára. MóhöiuI PENINGALITURINN (The Color of Money) ★★★ Tekur við þar sem The Hustler hætti. Nú er Newman kominn í hlutverk hins ráðsetta og reynda. Sýnd kl. 5,7.05,9.05 og 11.10. Hækkað verð. KRÖKÖDÍLA DUNDEE (Crocodile Dundee) ★★★ Mick Dundee kemur til New York og lendir í vandræðum. Gráthlægileg mynd. Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.10. RÁÐAGÖÐI RÓBÓTINN (Short Circuit) ★★★ Fjallar um róbót nr. 5. Sýnd kl. 5 og 9.05. LÉTTLYNDAR LÖGGUR (Running Scared) ★★ Grínlöggumynd með Gregory Hines. Sýnd kl. 5 og 7.05. ÁBENDING Vafalftið fer hver að verða sfðastur að sjá Stellu og sömuleiðis Aliens f Bfó- höllinni. Þeir sem eru að leita að ein- hverju nýrra ættu að fara í Stjörnubíó og sjá Farrah Fawcett (áður Majors nú O'Neal) fara snilldarlega með hlutverk sitt f öfgum. ALIENS ★★★★ Spennandi spenna. Sýnd kl. 9.05. VITASKIPIÐ (The Lightship) ★★★ Duvall og Kinski fara á kostum. Góð. Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.10. UNDUR SHANGHAI (Shanghai Surprise) ★ Aumingja Sean. Sýnd kl. 7.05 og 11.10. BÍÓHÚSIÐ SKÓLAFERÐIN (Oxford Blues) ★★ Robbi sæti og stelpurnar. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ifALjMSKOLJlBIO hí IimHHKseí FERRIS BUELLERS DAY OFF Ný Gamanmynd um skróp og Ferraribíl með Matthew Broderick o.fl. Sýnd kl. 5, 7 og 9. LAUGARÁS BIO MARTRÖÐ A ELMSTRÆTI II (A Nightmare on Elm Street II) ★★ Horror, hjálp! Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. POLICE STORY Ný Hasarmynd. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. WILLY MILLY ★★ Óskin rætist, en að breytast í strák á einni nóttu er full mikið. Sýnd kl. 5 og 7. LAGAREFIR (Legal Eagles) ★★★ Mjúkt lögfræðingadrama. Sýnd kl. 9 og 11. IRE0NBOGRNN NAFN RÓSARINNAR (The Name of the Rose) ★★★ Var Kristur kátur? Sterk mynd. Sýnd frá laugardegi kl. 3, 6 og 9. OTHELLO ★★★★ Frábær mynd, frábær söngur. Placido næstum eins góður og Kiddi Jó. Sýnd kl. 3, 5.30, 9 og 11.15. ELDRAUNIN (Firewalker) ★★ Chuck brosir. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Bönnuð innan 16 ára. LEYNIFÉLAGIÐ (Camorra) ★★ Jafnréttisbarátta? Sýnd kl. 7.10. Bönnuð innan 16 ára. NÁIN KYNNI (Intimate Relations) 0 Varla. Sýnd kl. 3.15, 5.15 og 11.15. Bönnuð yngri en 16. FLJÓTT FLJÓTT Eftir Carlos Saura. Sýnd kl. 7.15 og 9.15. [ NÁVlGI (At Close Range) ★★★ Sean í miklu betri félagsskap. Sýnd kl. 3.10, 5.10, 9.10 og 11.10. ÖFGAR (Extremities) ★★★ Farrah Fawcett kemur öllum á óvart. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. NEÐANJARÐARSTÖÐIN (Subway) ★★★ La bella Isabella. Sýnd kl. 11.05. ANDSTÆÐUR (Nothing in Common) ★★ Um samband feðga þegar móðirin yfir- gefur pabbann. Sýnd kl. 7 og 9. VÖLUNDARHÚSIÐ (Labyrinth) ★★★ Vel gerð fjölskyldumynd. Sýnd kl. 5. #Í9«flfefe EYÐIMERKURBLÓM (Desert Bloom) Ný Rose er þrettán ára og sinnast við fjöl- skyldu sfna og strýkur að heiman nótt- ina sem fyrsta atómsprengjutilraunin fer fram í Nevada-eyðimörkinni. Með John Voigt. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ★ ★ ★ ★ framúrskarandi ★ ★ ★ mjög góð ★ ★ miðlungs ★ þolanleg O mjög vond MYNDBAND VIKUNNAR The Offence. ★★★ Bresk. Árgerð 1972. Til útleigu hjá m.a. Vídeómeist- aranum, Myndbandaleigu kvik- myndahúsanna o.fl. Leikstjórn: Sidney Lumet. Aðalhlutverk: Sean Connery, Trevor Howard, Vivien Merchant, lan Bannen o.fl. Þær eru orðnar býsna margar perlurnar er liggja í kjölrák banda- ríska leikstjórans Sidney Lumet. Hann hóf afskipti sín af miðlinum þegar á barnsaldri, þá sem leikari. Gerðist síðan framleiðandi sjón- varpsþátta, leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd 33 ára að aldri (Twelve Angry Men, 1957) og hefur síðan skilað af sér ekki færri en rúmlega 30 kvikmyndum af fullri lengd (m.a. Long Day’s Journey into Night ’62, The Pawnbroker '65, The Appointment ’69, Dog Day Afternoon '75 o.fl., o.fl.). Sérgrein hans hefur löngum verið talin kvikmyndun sviðsverka. I The Offence tókst Sean Connery að sýna mönnum fram á það í eitt skipti fyrir öll, að hann hefði líkast til gert rétt í því að leggja James Bond ímyndina á hilluna og leita uppi bitastæðari hlutverk. Hér fer hann hreinlega á kostum i hlutverki Johnsons lög- regluforingja, sem hefur verið í lögreglunni í ein tuttugu ár, upplif- að margt og brotnar um síðir sam- an, þá er hann er fenginn til að yfir- heyra mann, sem grunaður er um að hafa svívirt stúlkubarn. í stuttu máli: Einhver besta stúdía í sadomasochisma er sést hefur á hvita tjaldinu gegnum tíð- ina. Þeir Connery, Bannen og að ógleymdum sjálfum Trevor Howard sýna allir stórgóðan leik undir öruggri handleiðslu Lumets. HELGARPÓSTURINN 31

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.