Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 34

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 34
♦ 86 <?K85 OKG72 + D543 ♦ DG84 ♦ Á93 P G102 <7 Á9763 O 96 O 54 ♦ K1062 ♦ 987 ♦ K1072 9? D4 O ÁD1083 ♦ ÁG Jón Baldursson í suður vakti á 15—17 punkta grandi. 2-lauf Sig- urðar Sverrissonar í norður voru „Stayman" og 2-tíglar Jóns neit- uðu 5-spila hálit. Sigurður lyfti í 3-grönd. Hermann valdi að spila út spaða-4. Austur drap á ás og hélt áfram með spaða-9, tía og gosi. Vestur hitti á að skipta í hjartagosa, eftir drjúga umhugs- un. Jón hafði notað tímann til að teikna sér í hag: Hann bað um kónginn úr blindum, lykilspila- mennska. Olafur drap snarlega á ás og skilaði enn spaða í gegn um sagnhafa. Ósköp eðlileg vörn eins og staðan er, félagi gæti átt KG74 í spaða og spilið er tapað. BRIDGE Rétt vörn í flóknum spilum Undankeppni Rvk. móts í sveita- keppni lauk um sl. helgi. Eftir hörkubaráttu tryggðu þessar 6 sveitir sér sæti í úrslitunum sem spiluð verða næstkomandi laugar- dag og sunnudag: 1. Pólaris 408 2. Atlantik 367 3. Aðalsteinn Jörgensen 364 4. Samvinnuferðir/Landsýn 360 5. Jón Hjaltason 355 6. Sigtryggur Sigurðsson 355 í síðasta þætti var fjallað um vandann á að finna réttu vörnina í flóknum spilum og vörnin er enn á dagskrá. Fyrra spilið er úr viðureign Atlantik og Jóns Hjaltasonar. ♦ 962 P 1074 OG52 + KD83 ♦ KDG1073 ♦ 84 <? — <?G85 <> KDIO ❖ 9843 ♦ G954 + Á1076 ♦ Á5 ^^^09632 O Á76 ♦ 2 Stefán Pálsson og Rúnar Magn- ússon voru í AV. Stefán vakti á 1-spaða, sagnir gengu til suðurs sem sagði sín augljósu 4-hjörtu. Útspil spaðakóngur. Sagnhafi tók á ás, kannaði trompleguna og spil- aði síðan spaða til baka í 3. slag. Stefán átti slaginn og spilaði sig út á spaða, sagnhafi trompaði en Rúnar kastaði tígul-4. Suður fór nú í laufið, fjarki, kóngur og ás. Tígul- 9 frá austri, sagnhafi hleypti og Stefán átti slaginn á drottningu. Hann hafði fylgst vel með ígjöf- um félaga síns og las nú stöðuna hárrétt þegar hann spilaði sig út á spaða, í þrefalda eyðu. Vissulega sjaldgæf staða, en eina vörnin til að hnekkja samn- ingnum. Nákvæmni í lengdar- merkingum og köllum var for- sendan. Á hinu borðinu kom upp sama staða, en varnarspilaranum í vest- ur yfirsást, spilaði laufi á blindan og gaf þannig 10. slaginn. Seinna spilið, sem er af ólíkum toga, kom upp í leik Samvinnu- ferða/Landsýnar og Ólafs Lárus- sonar: eftir Hermann Lárusson' Nú, en vörnin var öllu vandfundn- ari og nánast óhugsandi að hitta á hana eftir að Jón ákvað íferðina. Það er frábær spilamennska að biðja um hjartakóng úr borði, en til að hnekkja gröndunum þarf austur að gefa þann slag. í fram- haldinu var eini höfuðverkur Jóns að finna framhald ef vestur á Kxx í laufi og kastar sig strax niður á laufkóng blankan, en geymir tvö hjörtu. En vestur átti kóng fjórða og ekki hægt að misreikna framhald- ið: Jón stakk upp spaðakóng og spilaði tíglunum í botn. Vestur mátti sjá af tveim laufum en varð síðan að fleygja hjarta. Jón tók þá á hjartadrottningu og endaspilaði vestur með 4. spaðanum. Slétt staðið. Á hinu borðinu lentu gröndin í norður og fóru 3 niður eftir auðfundið hjartaútspil. Vel leikið spil af Jóns Baldurssonar hálfu. í næsta þætti verður nýlokið bridgehátíð þar sem margir af fremstu spilurum heims munu mæta til leiks. Þar verður væntan- lega af nægu að taka og vonandi lætur landinn ekki baka sig, áreynslulaust. GÁTAN SKÁKÞRAUT LAUSN Á KROSSGÁTU Hvað gerir kartöflubóndi í kosningaslag? Svar: ■ ■ ep|æsuiA jas jegepex 39. E.J. Winter-Wood. Land & Water 1886 Mát í öðrum leik. 40. J.W. Abbott fyrir 1882. Mát í öðrum leik. Lausn á bls. 10. Lausnin á verðlaunakrossgát- unni sem birtist á þessum stað í blaðinu fyrir tveimur vikum er nafnorðið ullarflík. Dregið hefur verið úr réttum lausnum. Vinningshafinn er Ingi- björg Jónsdóttir, Kjarnholtum í Biskupstungum. Hún fær senda bókina Nútímafólk, eftir sálfræð- ingana Alfheiði Steinþórsdóttur og Guðfinnu Eydal, til síns heima. Verðlaunin fyrir krossgátuna að þessu sinni er kjörbók hesta- mannsins, Áfangar, sem út kom fyrir síðustu jól. Frestur til að skila inn lausninni, sem er nú 11 stafa karlmannsnafn, er til annars mánudags frá útkomu þessa tölu- blaðs. Góða skemmtan. 34 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.