Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 36

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Blaðsíða 36
eftir Óskar Guðmundsson INNLEND YFIRSYN Mannréttindi og kynþáttafordómar Hinn 5. desember sl. kom íranskur flótta- maður til landsins. Hann sækir um hæli sem pólitískur flóttamaður þann 15. desember, en er tekinn höndum sl. föstudag og haldið föngnum til þriðjudags. íraninn kemur frá Tyrklandi. Samkvæmt upplýsingum Karls Jóhannssonar hjá út- lendingaeftirlitinu: „Hann kemur sem ferða- maður og sækir svo um hæli sem pólitískur flóttamaður. Síðan var sú umsókn tekin til endurskoðunar." Karl kveður bróður manns- ins, sem búsettur er í Bandaríkjunum hafa verið milligöngumann í málinu. Bróðirinn hafi komið hingað til landsins til að hitta manninn. íraninn hafi sótt um vegabréfsárit- un hjá sendiráði Islands í Kaupmannahöfn frá Tyrklandi. Það gerðist með þeim hætti, að hann sendi vegabréf sitt frá Tyrklandi og fékk það sent áritað til baka með leyfi til dvalar hér frá24. nóvember til 17. desember. íraninn kom til landsins 5. desember og um það leyti sem leyfið rann út, sótti hann um hæli sem pólitískur flóttamaður. Þá er málinu sjálfkrafa vísað frá útlendingaeftirliti til dómsmálaráðuneytis. „Við afgreiðum einhver lifandi ósköp af málum útlendinga, en því sem við synjum er vísað til ráðuneytisins," segir Karl Jóhanns- son. Hann kveður tugum manna vísað frá þegar á flugvellinum, yfirleitt vegna pen- ingaleysis. „Ef við tökum við mönnum inní landið þá berum við fjárhagslega ábyrgð á þeim.“ Karl segir að afar sjaldgæft sé að menn sæki um pólitískt hæli hér á landi, þar- sem þeim beri samkvæmt alþjóðalögum að sækja um hæli sem pólitískir flóttamenn í fyrsta lýðræðisríkinu sem þeir koma til. „Það kemst enginn hingað nema um full- komlega lýðræðisfrjáls lönd, þess vegna er svona lítið um þetta,“ segir Karl. Hann bend- ir á að sæki menn hér um pólitískt hæli þá megi ekki gleyma því sem stendur í lögum „enda teljist framburður hans sennilegur". En segjum svo að maður komi frá London og þekki ekki lög og reglur um að sækja beri um í fyrsta landinu, — hann ætli sér að sækja um hæli sem pólitískur flóttamaður á Islandi og geri það á Keflavíkurflugvelli, — hvernig yrði því tekið? „Við mundum tala við okkar yfirmenn, en málið liggur nokkurn veginn Ijóst fyrir — maöurinn er kominn til London eftir nokkra klukkutíma, í mesta lagi einn dag,“ segir Karl Jóhannsson hjá útlendinga- eftirlitinu. Nú er útlendingi fyrirmunað að fá áritun hér á landi. Hann getur heldur ekki fengið atvinnuleyfi meðan hann dvelst í landi, — og ekki fengið dvalarleyfi, nema hafa atvinnu- leyfi. íraninn átti því í raun ekki aðra kosti en þann sem hann tók, að komast fyrst hingað sem ferðamaður og sækja síðan um hæli sem pólitískur flóttamaður. Um ástandið í íran og það sem biði hans þar vísast til við- tals í HP í dag á bls. 16 við landsmann hans sem búsettur er hér á landi. ENGIN MANNLEG AÐSTOÐ Nú veit enginn í sjálfu sér hversu margir þeirra sem koma til landsins eða öllu heldur reyna það og er vísað frá, eru í raun pólitískir flóttamenn. Engin íslensk mannréttindasam- tök taka að eigin frumkvæði að sér einstakl- inga sem koma hingað til lands sem pólitísk- ir flóttamenn. Yfirleitt taka einhverjir ein- staklingar upp mál þeirra og kannski verður enginn til þess. Það er engin mannleg aðstoð til staðar sem tryggir einstaklingum hjálp. „Það er starfsregla hjá Amnesty Inter- national að sinna ekki málum sem varða eig- ið land,“ sagði Sigríöur Ingvarsdóttir formað- ur íslandsdeildar Amnesty í samtali við HP. „Við höfum samt heimild til þess í einstökum málum, að reyna að koma í veg fyrir að fóik neytið telur ráðherra hafa lagalega heimild til að taka lokaákvörðun um mál einstakl- inga (samkvæmt lögunum um útlendinga), „en ég vil meina að okkar stjórnarskrá leyfi ekki að einhver einn maður hvort sem það er ráðherra eða annar hafi endanlegt vald í málum sem varða svona mikla hagsmuni, — ég held að menn hafi alltaf dómsmálakerfið samkvæmt stjórnarskrá og það beri að túlka lögin um eftirlit með útlendingum með tilliti til þess,“ segir Tómas Gunnarsson lögmaður hins íranska flóttamanns. LOKAÐ Á UPPLÝSINGAR Lögin um eftirlit með útlendingum eru um margt sérkennileg. Þannig segir í 19. grein laganna:,,Enginná kröfuá upplýsingum um yfirlýsingar sem gefnareru vegna umsóknar um leyfi til landgöngu, dvalar eða atvinnu, né um mál, er varöa synjun um landgöngu, brottvísun eda nidurfellingu fyrirskipunar um vísan úr landi." Lögmaðurinn hefur ekki fengið öll gögnin í máli íranans. „Það er erf- itt að verja mál þegar maður fær ekki öll gögn, — það er svona einsog að biðja smið að smíða hús en neita honum um sög, hamar og nagla,“ segir Tómas Gunnarsson lögmað- ur. „Ef við lítum á málin þannig, þá værum við illa settir ef hver sem er hvenær sem er gæti komið til landsins og ætti um leið allan rétt til að leggja mál fyrir dómstóla uppí hæstarétt, þá hefðum við í rauninni ekki lengur forræði yfir því hvaða útlendingar kæmu hingað og settust hér að,“ segir Þor- steinn Geirsson ráðuneytisstjóri. MANNÚÐARSJÖNARMIÐ — En nú virðist þetta vera þannig, að eng- in samtök eða stofnanir hér á landi taki að sér málefni einstaklinga — það er einsog bæði lögfræðilega og útfrá mannúðarsjónar- miðum sé eiginlega engin trygging fyrir því að réttur einstaklingsins sé varinn? „Þetta er mikill útúrsnúningur finnst mér — og fjarri öllum sanni að líta þannig á málin, vegna þess að Islendingar hafa tekið á móti flótta- mönnum. Um það hafa þá verið gerðir samningar við önnur ríki og jafnvel með öðr- um ríkjum um að koma fyrir flóttamönnum frá ákveðnum ríkjum og við tilteknar að- stæður. Og það er það algengasta, að lönd semja um að taka vissa kvóta af flóttamönn- um þegar þannig stendur á,“ segir Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri. Hann telur að mannúðarsjónarmið vegi mjög þungt við af- greiðslu slíkra mála, svosem mál íranans beri vott um. „Og við höfum viljað ganga al- gerlega úr skugga um hver yrðu örlög hans og þess vegna hefur afgreiðsla málsins dreg- ist,“ segir Þorsteinn Geirsson ráðuneytis- stjóri. KYN ÞÁTTAFORDÓMAR „Það segir sína sögu að hingað skuli nær eingöngu koma kvótaflóttamenn og þá helst með hvítan hörundslit, — nær engir t.d. frá Afríku," segir maður sem unnið hefur að málefnum flóttamanns hér á landi. Hann tekur svo djúpt í árinni að kalla það „ríkjandi fasisma í landinu" að engar reglur sé til að tryggja einstaklingum rétt sem sækja um hæli sem pólitískir flóttamenn. I morgunútvarpinu á Rás 1 í gærmorgun (miðvikudag) kom fjöldi hlustenda fram með harkalegar skoðanir; skoðanir sem erfitt er að skilja öðruvísi en sem kynþáttafordóma. Það bendir til þess að mannúðarsamtökum, fjölmiðlum, kbkjunni og öðrum félögum og stofnunum á Islandi hafi skotist yfir grund- vallaratriði í mannlegu félagi; að skapa skiln- ing og útbreiða þá þekkingu sem er forsenda bróðurkærleikans. Erfitt aö sœkja um hœli sem pólitískur flóttamadur á íslandi. Islendingar taka nœr eingöngu á móti „kvótaflóttamönnum“. Er gengiö á rétt einstaklinga í lögunum? Kynþáttafordómar í landinu. verði sent til landa þarsem hætta er á að það verði annaðhvort líflátið, pyntað eða sent í fangelsi." Amnesty mun hafa í þessu tilfelli haft samband við dómsmálaráðuneytið og óskað eftir að maðurinn yrði ekki sendur úr landi til lands þarsem hætta væri á að hann yrði fangelsaður. BEIÐNI FRÁ ÚTLÖNDUM Einsog áður hefur komið fram er engin stofnun eða samtök sem taka að sér mann- réttindamál einstaklinga sem koma hingað til lands. Rauði krossinn sem annars hefur milligöngu um aðstoð við flóttamenn þegar þeir hafa komið hingað í hópum, hefur t.d. ekki frumkvæði að slíkri hjálp. í landinu er einnig starfandi Flóttamanna- ráð Islands með aðild ríkisins, borgarinnar og Rauða krossins. í því eru Tómas Karlsson, Björn Friðfinnsson og Guðrún Holt. Fundi ráðsins sitja einnig Jón Ásgeirsson og Hólm- fríöur Gísladóttir. Hólmfríður kvað afskipti Rauða krossins yfirleitt vera með þeim hætti að ríkisstjórnin hefði ákveðið að taka „kvótaflóttamenn" og beðið RK að annast framkvæmd. Hins vegar bar svo við sl. þriðjudag að Flóttamannaráði íslands barst beiðni frá full- trúa Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóð- anna um að aðstoða Iranann sem hér hafði sótt um pólitískt hæli. Og var boðaður fund- ur í Flóttamannaráðinu um málið. FLÓTTAMANNI SLEPPT ÚR HALDI Handtaka íranans sl. föstudag spurðist til fjölmiðla og sjálfsagt til útlanda. Um hádegið á þriðjudaginn var honum sleppt og lög- manni tilkynnt, að utanríkisráðuneytið hefði til skoðunar enn eina umsóknina frá honum um pólitiskt hæli. En hvers vegna var maðurinn handtekinn? „Ég held að þeir hafi litið svo á að hann hefði ekki lengur heimild til dvalar hér í landinu og þeir hafi ætlað að senda hann til baka þaðan sem hann kemur," sagði lögmaður í spjalli við HP. „Það var til að tryggja nærveru hans af því að við héldum að við gætum af- greitt málið um helgina,“ segir Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðu- neytinu. Um það er m.a. deilt, að dómsmálaráðu- 36 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.