Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 37
Erland Josephson er orðinn heimsnafn
fyrir leik sinn í myndurh leikstjóra eins og
Ingmars Bergman og Andreis heitins
Tarkofskís. Frá samstarfinu við þá, með-
leikaranum í Fórninni, Guðrúnu Gíslad-
óttur og mörgu fleira í eigin lífi og list
segir Erland Josephson í einkaviðtali við
Mannlíf.
Hin forna list galdurs er enn stunduð um
hinn svokallaða siðmenntaða heim.
Mannlíf hefur kynnt sér viðhorf galdra-
manna á Bretlandi, |Dar sem er rík og gróin
galdrahefð, og á Islandi, þar sem einn
maður gerir tilkall til þess að vera titlaður
galdramaður. Frá þessu segir í forvitni-
legri grein.
Starf fíkniefnalögreglu hefur fengið á sig
æsilegan blæ í bandarískum hasarmynd-
um.. En hvernig er raunveruleikinn? ís-
lenskir fíkniefnalögreglumenn segja
Mannlífi frá reynslu sinni í erfiðu starfi,
og birtar eru óhugnanlegar myndir úr safni
lögreglunnar sem sýna glöggt á hvert stig
íslenskur fíkniefnaheimur er kominn.
Hulduherforingi Alberts Guðmunds-
sonar, Helena dóttir hans, og eigin-
maður hennar, Þorvaldur Mawby,
fyrrum forstjóri Byggungar eru nú sest
að í Bandaríkjunum. Þar reka þau vax-
andi byggingafyrirtæki, jafnframt því
sem Helena er farin að láta að sér kveða
innan Repúblíkanaflokksins. Mannlíf
heimsótti Helenu og Þorvald fyrir
skömmu í Tulsa, Oklahoma, og þau
segja frá nýju lífi í nýju landi, átökum
-innan Sjálfstæðisflokksins og mörgu
fleira í athyglisverðu viðtali.
er komið út
Fátt hefur vakið jafn mikla athygli
í þeim sviptingum sem gengið hafa
yfir íslenska fjölmiðla á undanförn-
um mánuðum en hrun Rásar 2
ríkisútvarpsins á tiltölulega
skömmum tíma í samkeppninni við
hina frjálsu stöð Bylgjuna. Ásgeir
Tómasson, dagskrárgerðarmað-
ur lýsir því hvað gerðist og hvers
vegna Rás 2 hrundi, — frá sjónar-
hóli manns sem var inni í húsinu.
Geta menn flogið á hugarorkunni
einni saman? Mannlíf segir frá
einhverri sérkennilegustu friðar-
hreyfingu heims og ræðir við
íslenska áhangendur hennar.
Þau átök, sem urðu á nýliðnu
ári um hvalveiðar íslendinga
og hápunkti náðu með
skemmdarverkum Sea Shep-
hard-manna á eignum Hvals
hf., vöktu mikiö umtal. Mað-
urinn í miðju þessara átaka
er forstjóri Hvals hf. Hann
segir frá sjónarmiöum sínum
'til þessa máls á opinskáan
hátt.
Meðal fjölmargs annars efnis: Sigurbjörn Báröarson,
einhver frægasti knapi og mikilvirkasti hestakaupmaður
landsins, segir frá litríkum ferli í hestamennskunni; sagt frá
íslensku leikkonunni Bergljótu Árnadóttur sem allan sinn
feril hefur starfað í Svíþjóð og getið sér gott orð; hressilegt
viðtal við Þórarinn Oskar Þórarinsson Ijósmyndara,
annan aðalleikaranna í nýju íslensku bíómyndinni Skytturnar
og uppsprettu braggalífssagna Einars Kárasonar; sagt
frá bresku pöbbalífi í myndum og máli; rætt við Þór Eldon,
skáld, sem orðinn er hundleiður á íslenskri Ijóðamenningu
og margt fleira.
Metsölutímaritíð MaraiKf
MANNLÍF áskriftarsími: 687474
HELGARPÓSTURINN 37