Helgarpósturinn - 05.02.1987, Page 38

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Page 38
ERLEND YFIRSÝN Brugghús Guinness í Bretlandi hefur á nokkrum undanförnum árum breyst úr gam- algrónu fjölskyldufyrirtæki í fjölþjóðasam- steypu fyrirtækja í alhliða drykkjarvöruiðn- aði. Driffjöðurin að baki útþenslu og um- myndun Guinness var Ernest Saunders, fram í síðasta mánuð stjórnarformaður og aðal- forstjóri fyrirtækisins. Mesta afrek Saunders þótti að leggja á síð- asta ári undir Guinness skosku viskíbrugg- húsakeðjuna Distillers Co. Bauð hann fyrir hönd Guinness í Distillers Co. á móti annarri samsteypu, Argyll Group, og hafði betur með 2.7 milljarða sterlingspunda boði. Sigur Saunders byggðist fyrst og fremst á háu verði á hlutabréfum í Guinness á kauphöllum. Nú er komið á daginn, að Saunders og nán- ustu samstarfsmenn hans urðu hlutskarpari í viðureigninni um Distillers Co. með svikum og prettum. Reglur um kauphallarviðskipti voru brotnar, þegar fé Guinness var varið svo hundruðum milljóna punda skipti fyrir milli- göngu leppa til að kaupa eigin hlutabréf og búa þar með til eftirspurn, sem hækkaði gengi þeirra. Saunders var knúinn til að láta af störfum hjá Guinness fyrir miðjan janúar, og sömu- leiðis fjármálastjóri fyrirtækisins, Olivier Roux. Siðan hefur einnig orðið mannfall af sömu sök á æðstu stöðum hjá tveim fjár- málastofnunum, sem tóku þátt í svindlinu, kaupsýslubankanum Morgan Grenfell & Co. í London og Bank Leu AG í Zúrich. Eftirmað- ur Saunders í formennsku hjá Guinness hef- ur í bráðabirgðaskýrslu greint frá að 25 millj- ónir punda af fé fyrirtækisins virðist hafa horfið í sukkinu á óútskýrðan hátt. Hlutabréf í Guinness hafa hrapað í verði svo nemur hundruðum milljóna punda frá því hneykslið varð uppvíst. Argyll Group býst til málaferla til að endurheimta frá Guinness kostnað sinn af togstreitunni um Distillers Co., einar 55 milljónir punda. Rannsókn á yfirtöku Guinness á viskíkeðj- unni hófst í desemberbyrjun, þegar eftirlits- aðilum i London barst vitneskja frá Verð- bréfaeftirlitinu bandaríska, um að breska fyrirtækið hefði átt vafasöm viðskipti við fyr- irtæki Ivans Boesky, bandarísks braskara sem síðastliðið haust varð uppvís að því að misnota trúnaðarupplýsingar í stórum stíl til að hagnast ólöglega á verðbréfaviðskiptum. Boesky var sektaður um 100 milljónir doll- ara, en slapp þó skár en efni stóðu til, með Ernest Saunders gerði brugghús Guinness að stórveldi með svindil- braski Sveiflur á kauphöllum og gengi gera fjármálamenn uggandi því að láta Verðbréfaeftirlitinu í té hljóðritan- ir af samtölum sínum og viðskiptavina um nokkurra mánaða skeið. Er síðan uggur í mörgum í Wall Street, meðan eftirlitið býr til ný mál á grunni þeirrar vitneskju sem í hljóð- ritunum þessum felst. Uppgangstímar og verðsprenging á kaup- höllunum í New York og London síðustu árin stafar að verulegu leyti af viðleitni fyrir- tækja til að komast yfir eigur annarra og nota þær í sína þágu. Mjög er tíðkað að koma slíkum boðum í kring gegn vilja stjórnenda fyrirtækja sem fyrir verða með gylliboðum til hluthafa. Undir yfirboðunum standa þó einatt svonefnd skranskuldabréf, sem bera háa vexti en léleg trygging er fyrir. Verð- mætisaukning á hlutabréfamarkaði er því aðallega á pappírnum. Við það bætist að tölvustýrð kauphallarviðskipti með sam- tengingu við kauphallir í þrem heimsálfum hafa valdið stóraukinni veltu og magnað verðsveiflur. Um þverbak keyrði á kauphöllinni í New York föstudaginn 23. janúar, þegar Dow- Jones vísitala hlutabréfa sveiflaðist um rúm- lega 200 stig á tveim og hálfum klukkutíma. Varð það til að Verðbréfaeftirlitið hóf athug- un á óstöðugleika verðbréfamarkaða við ríkjandi tæknivæðingu, með það í huga að styrkja starfsreglur fjármálafyrirtækja og stofnana. Nýkjörið Bandaríkjaþing undir forustu demókrata lætur málið einnig til sín taka. William Proxmire, formaður bankamála- nefndar Öldungadeildarinnar, kallaði til vitnis nafnkunnan mann, Felix G. Rohatyn hjá fjárfestingarbankanum Lazard Fréres & Co. Rohatyn fullyrti, að „krabbamein fé- græðginnar" ógnaði nú bandarísku fjár- málalífi. Takmarkalaus notkun skranskulda- bréfa til að sölsa undir sig fyrirtæki í and- stöðu við stjórnendur þeirra væri bæði háski fyrir heilbrigði verðabréfamarkaðarins, ör- yggi peningastofnana og það hlutverk fjár- magns að standa undir hagvexti. Breska íhaldsstjórnin hefur fyrir sitt leyti orðið fyrir verulegum álitshnekki af því sem gerst hefur hjá eftirlætis kjöltubörnum henn- ar í fjármálahverfinu City í London. Kemur þar ekki aðeins við sögu mál Guinness, held- ur einnig stórfelldur fjárdráttur manna á æðstu stöðum í tryggingasamsteypunni Lloyd’s, sem uppvís varð fyrir nokkrum ár- um en er enn að eiga sér eftirköst. Þessar kollsteypur á helstu fjármagns- mörkuðum, svo magnaðar að meira að segja Margaret Thatcher rýkur upp til handa og fóta og lætur ráðherra sína boða skjótar úr- eftir Magnús Torfa Óiafsson bætur og strangar lagareglur, gerast samtím- is því að ólga ríkir með versta móti á gjald- eyrismarkaði Fjármálafréttaritari Washing- ton fbst, John M. Berry, segir í skeyti frá London, að síðustu atburðir séu að fara með traust evrópskra fjármálamanna á dollarn- um og stjórn Ronalds Reagans í Washington. Pólitískur vanmáttur Bandaríkjastjórnar í kjölfar Írans-Contra hneykslisins bætist ofan á glannalegan hallarekstur ríkissjóðs og óstæðilegan viðskiptahalla. Þar á ofan berist nú fregnir af að nánustu ráðgjafar Reagans hafi einsett sér að fá hann til að losa sig við Paul A. Volcker úr stöðu formanns í seðla- bankastjórn, en sá njóti nú trausts á heims- mælikvarða umfram alla aðra Bandaríkja- menn í æðstu stöðum. Upp er kominn vítahringur, sem óljóst er hversu verður rofinn. Japanir og Vestur- Evrópumenn hafa í höndum fúlgur af rýrn- andi dollurum, og verja þeim helst til að kaupa hluti í bandarískum fyrirtækjum eða bandarísk ríkisskuldabréf. Þeim mun lægra sem dollarinn sígur, því ódýrari verða banda- rísk verðbréf í jenum eða mörkum. Bandaríkjastjórn sýnir vaxandi tilhneig- ingu til að mæta hallanum á utanrikisvið- skiptum með þrýstingi á lönd eins og Japan og Vestur-Þýskaland, í stað þess að ráðast að rót meinsins, hallanum á eigin ríkissjóði. Reagan og hans menn hafa sett sér að hækka ekki skatta, og afleiðingin er tvöföld- un bandarískra ríkisskulda á embættisferli núverandi forseta. Alþjóðlegi skuldajöfnunarbankinn í Basel segir í nýlegri skýrslu, að nýtt hættuatriði hafi bæst við á síðasta ári. Japanir fjármögn- uðu þá eins og fyrr allt að þriðjung af greiðsluhalla ríkissjóðs Bandaríkjanna, en eftir mitt ár tóku þeir í þessu skyni dollaralán í stað þess að kaupa dollara fyrir jen. Eykur þetta á hágengi jensins, en alvarlegra er þó hitt, að verði vextir af dollaraskuldum jap- anskra fjármálastofnana hærri en afkasta- vextir ríkisskuldabréfanna, hljóta þær að reyna að losa sig við þau sem skjótast. Afleið- ingin yrði óhjákvæmilega ringulreið á bandarískum skuldabréfamarkaði. Frekari eftirköst treystir Alþjóðlegi skuldaskilabank- inn sér ekki til að segja fyrir að svo stöddu en ljóst er að þau yrðu geigvænleg. MAL OG MENNING Sáliri á flakki (3) í síðasta þætti ræddi ég aðallega um hjartaö sem aðsetur sálarlífs- ins. Mér vannst þó ekki rúm til að gera þessu efni þau skil, sem ég tel nauðsynleg. Ef litið er í Orðabók Menningarsjóðs má sjá, að í nú- tímamáli er hjarta haft ,,um hug- arþel og tilfinningu". Einnig getur orðabókin þess, að hjartað sé ,,að- setur hugrekkis, kjarks". Það er .þannig greinilegt, að í nútímamáli er hjartað vart notað um vits- munalífið, fremur haft um aðsetur tilfinninga. Gott dæmi um þetta er endirinn á Sveini dúfu eftir Rune- berg í þýðingu Matthíasar Jochumssonar: Því eina leið um eðli Sveins bar almenningur vott: Að lélegt þótti höfuð hans, en hjartað það var gott. Hér leikur enginn vafi á, að höf- uð er tákn vitsmuna, en hjarta til- finninga. En látum nú útrætt um orðið hjarta. Víkjum næst að orðinu lund. Þetta orð er algengt þegar í fornu máli í merkingunni „skap, skap- lyndi“. í þessari merkingu er orðið aðeins, að því er ég bezt veit, not- að í eintölu. Þá er orðið lund notað í merkingunni ,,háttur“ og er þá ýmist haft í eintölu eða fieirtölu, sbr. t.d. á ýmsa lund og á allar lundir. Þessi merking skiptir okk- ur ekki máli í þessu sambandi, svo að ég læt útrætt um hana. En þess má geta, að hún er forn og kemur ekki aðeins fyrir í íslenzku, heldur einnig í skyldum málum. Loks er fleirtölumyndin lundir notuð um tiltekna dýravöðva, og verður það nánara rakið síðar. Ætli mönnum detti nokkurn tíma í hug, að eitthvert samband sé á milli þess, að sagt er, að maður sé léttur í lund og að kindalundir séu góður matur? Er þetta sama orðið, eða er hér um mismunandi orð að uppruna að ræða? En við skulum fyrst víkja aðeins af leið. Ég minnist þess, að fyrir um það bil tíu til fimmtán árum sá ég í kælikössum í kjörbúðum kjöt- vöru, sem merkt var mörbrád. Ég þekkti ekki þetta orð úr mæltu máli né úr bókum. Ef satt skal segja, var ég hneykslaður á því. Ég vissi auðvitað, að þessi kjötvara var kölluð merbrad á dönsku, en lundir (kvenkyn, fleirtala) á ís- lenzku. Mér datt helzt í hug að ein- hverjir danskmenntaðir kjöt- skurðarmenn hefðu komið þessu heiti á vöruna, enda ekki vitað, að hún ætti sér íslenzkt nafn. En hvað sem þessu líður, er mörbráðin, sem betur fer, horfin úr búðum og í staðinn komnar lundir: kinda- lundir, nautalundir og svínalundir. í nútímamáli merkir fleirtalan af lund, þ.e. lundir „ílangir vöðvar (kjöt) á innanverðum hrygg ým- issa dýra“. Þessir vöðvar, sem eru nálægt nýrum, eru tveir, og er því eðlilegt, að orðið sé notað í fleir- tölu. Þessi merking er tilgreind í sumum fornum orðabókum, án þess að vísað sé til texta. Verð ég þvi að trúa orðabókunum varlega, en samanburður við önnur mál, sem síðar verður rakinn, bendir ótvírætt til þess, að þessi merking hafi verið til þegar í fornu máli. Kem ég að því síðar. Þess ber og að geta, að á fornum bókum kemur fyrir orðið hrygglundir í merking- unni „lendar". Það er notað í sam- bandinu skeinask á hrygglund- unum í merkingunni „særast á lendunum", sbr. Islenzk fornrit IV, 161 (Eyrbyggja) og íslenzk fornrit VIII, 170 (Hallfreðar saga), neð- anmáls. Orðin lund og lend eru skyld, e-ið í lend er orðið til úr a, og milli aogu eru hljóðskipti (sbr. fann: fundum). En berum nú orðið saman við samsvarandi eða skyld orð í öðrum germönskum málum. I færeysku kemur fyrir orðið lund, sem í orðabók Svabos er þýtt á þessa leið: „tvær mjóar ræmur af kjöti eftir Halldór Halldórsson innan á hrygg dýrá’ („to, smalle Strimler Kiod indvendig i et Kreaturs Ryg, duo frusta carnis gracialia in parte dorso interiore"). Með því að þessi færeyska merk- ing er í fullu samræmi við merk- inguna í nútímaíslenzku, má, að mínu áliti, fullyrða, að hún hafi verið til þegar í fornu máli ís- lenzku. Um orðið í öðrum málum er þetta helzt að segja: í norskum mállýzkum kemur fyrir lund í merkingunni „mjaðmir, lend“, í sænskum mállýzkum lonn, lynger „mjaðmir", í eldri dönsku lynd „lend", í fornensku lundlaga „nýra" og í fornháþýzku lynda „nýrnamör". Mér virðist eðlilegast að gera ráð fyrir, að orðið lund(ir) hafi í fyrstu haft samtæka (konkret) merkingu. íslenzka og færeyska merkingin bendir til, að orðið hafi í upphafi táknað „vöðva á innan- verðum hrygg". Þessi merking kemur einnig fyrir í samsetta orð- inu lundabaggi, sem Orðabók Menningarsjóðs segir merkja „e.k. pylsa úr lundum kinda og ristlum, oftast súrsuð". Merkingin ,,skap“ ætti þá að stafa af því, að menn hafi talið einhvern hluta sálarlífs- ins (skaplyndið) tengjast þessum vöðvum. En engan veginn er hægt að fullyrða þetta. Marg- nefndir vöðvar liggja í nánd við nýrun, og eins og sýnt var í síðasta þætti, er sálarlífið tengt nýrunum í orðtakinu ad rannsaka hjörtun og nýrun. Til frekari styrktar þessu er, að orð samsvarandi lund tengj- ast nýrum í forngermönskum mál- um, sbr. fornháþýzku lunda „nýrnamör" og fornensku lund- laga „nýrá'. Ég læt liggja á milli hluta, hvora skýringuna menn telja sennilegri. Af lund í merkingunni ,,skap“ er leitt orðið lyndi með i-hljóðvarpi, sbr. t.d. að leika í lyndi. Þetta orð var þegar í fornu máli notað í sam- settum orðum, t.d. góðlyndi, skap- lyndi. í nútímamáli kemur það einnig fyrir sem fyrri liður sam- setts orðs, sbr. lyndiseinkunn. Þá má ekki gleyma orðinu lunderni, sem fyrir kemur á fornum bókum. Það hefir verið gert til samræmis við orð eins og faðerni, móðerni, þar sem viðskeytið -erni er upp- runalegt. Að lokum skal minnt á lýsingarorðið lyndur, t.d. illa lynd- ur (fornt), sem meira er þó notað í samsetningum, t.d. fjöllyndur, góðlyndur. Þessar samsetningar voru einnig notaðar í fornu máli. 38 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.