Helgarpósturinn - 05.02.1987, Page 41

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Page 41
„Áður fóru menn með klámvísur og höfðu ástamál fólks í flimtingum. Og þetta er hara ný átgáfa af því“ Spurt í fermingartíma hvers vegna börnunum þœtti eðlilegt að smokkurinn fylgdi aðgöngumiðum að árshátiðum skólans, „og þá svarar ein lítil hnáta: allur er varinn góður“ „Ég er líka að sumu leyti smeykur um að ungt fólk fari á mis við töluverða töfra í sambandi við þetta svið mannlegrar reynslu“ spurði hvers vegna," segir Ólafur, „og þá svarar ein lítil hnáta: allur er varinn góður. En ég er viss um, að ekki var verið að leiða hugann endi- lega að því til hvers hann væri not- aður. Þetta er orðið svo hversdags- legt umræðuefni, að enginn kippir sér upp við það á þessum aldri. En fólki á mínum aldri finnst umræðan eiginlega hálf furðuleg, svona mikið opinská." Pálmi Matthíasson, sóknarprestur á Akureyri, segir að kynlíf eigi ekki að vera feimnismál. „En ég held, að það eigi að vera einkamál," segir hann. „Það er manninum eðlilegt og það er ákveðinn hluti af tilver- unni, sem mönnum er miskært að tala um. í bókum og myndum, sem yfir okkur berast, virðist samband karls og konu alltaf eiga að vera bundið kynlífinu, og þannig virðist umræðan vera opnari. Eg held, að í mörgum tilfellum haldi menn að hún eigi að vera það, án þess að það sé það sem þeir vilji.“ Pálmi segir, að umræðan nú sé komin upp á yfirborðið blandin ótta við eyðni og þess vegna séu kannski ýmsir fúsari til að tjá sig en ella. STUTT í FORDÓMA . Ekki er ýkja langt síðan, að ekki mátti sýna nakinn mannslíkama í íslensku sjónvarpi og á íslensku leiksviði. Hvað þá að fjalla mætti á beinskeyttan hátt um náin sam- skipti karls og konu. Slíkt er að vísu ekki orðið daglegt brauð, en alla jafna kippir fólk sér ekkert upp við þótt berum bossum bregði fyrir. „Það er augljóst mál, að unga fólkið er frjálslegra, a.m.k. á ytra borðinu. Það er eins og ekki sé eins mikið um blygðunarsemi," segir Páll Skúlason, þegar hann er spurður hvort nú á dögum þurfi meira til svo fólk blygðist sín. Guðfinna Eydal tekur undir það og segir að fólk hafi fengið vissa þjálfun í að horfa á efni þar sem nekt og kynlíf koma fyrir. „Ég held hins vegar að það sé háð hvaða fólk maður er að tala um,“ segir hún, og bendir á viðbrögð margra sjón- varpsáhorfenda við nýársleikriti sjónvarpsins, eins og þau birtust í lesendadálkum dagblaðanna. „Þá sá maður, að það er stutt í fordóm- ana hjá mörgu fólki." Ólafur Skúlason segist ekki vera í vafa um, að það þurfi mjög mikið til að fá ungt fólk til að blygðast sín. Og hann bætir við: „Ég er líka að sumu leyti smeykur um að það fari á mis við töluverða töfra í sambandi við þetta svið mannlegrar reynsiu. Þetta er orðið svo hversdagslegt og blátt áfrarn." Hann segist þó vona, að þegar unglingarnir verði ástfangnir muni þeir uppgötva rómantíkina í sjálfum sér og þeim sem ástin beinist að. „En almennt séð held ég, að tjáning ástarinnar og töfrarnir séu mikið að hverfa úr vitund ungs fólks," segir Ólafur. OF EINHÆF UMRÆÐA Það er áreiðanlega ekki auðvelt að setja sig í spor ungs fólks sem er að byrja að stunda kynlíf mitt í allri um- ræðunni um smokka og eyðni. Smokkaherferðarmenn leggja áherslu á, að verið sé að fræða al- menning, en ekki hræða. En treysta menn sér til að spá einhverju um hvaða áhrif umræðan muni hafa á unglingana? „Ég held að hún hljóti að hafa áhrif í þá átt, að menn verði ekki eins fjöllyndir í ástamálum, að menn hugsi sig um og fari ekki að stunda kynlíf með einhverjum sem þeir vita lítil deili á,“ segir Pálmi Matthíasson. Hann segir ennfremur, að umræðan um smokkinn geti komið róti á hugi unglinga, á þann hátt að þeir fari að velta því fyrir sér hvort þeir eigi að vera byrjaðir að stunda kynlíf og hvort aðrir séu byrjaðir. Ólafur Skúlason segir að umræð- an sé of einhæf, þar sem hún hafi að mestu snúist um það að forðast sýk- ingu af eyðni. „Það kemst ekki ann- að að en þessi einfalda vörn, sem verjan er, frekar en ábyrgð einstakl- ingsins almennt séð. Það er hægt að forðast sýkingu með því að leita eftir því sem þjónar einhverjum til- gangi. Þá á ég við, að ástalífið á ekki að vera svo hversdagslegt, að mað- ur geri ekki upp við sig hvort eitt- hvað meira eigi að fylgja en athöfn- in ein,“ segir Olafur. Guðfinna Eydal segir það ekki spurningu að fólk eigi eftir að verða hræddara en áður. „Eg held, að um- ræðan muni hafa áhrif í þá átt, að fólk verður ekki eins kærulaust, en mun ekki hætta að stunda kyn- HELGARPÓSTURINN 41

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.