Helgarpósturinn - 05.02.1987, Qupperneq 42
HELGARDAGSKRÁIN
1STÖDTVÖ
Föstudagur 6. febrúar
18.00 Nilli Hólmgeirsson.
18.25 Stundin okkar — Endursýning.
19.00 Á döfinni.
19.10 Þingsjá.
19.30 Spítalalíf.
20.00 Fróttir.
20.40 Smithereens — Upptaka frá hljóm-
leikum í Gamla bíói fyrr í vikunni.
21.30 Mike Hammer.
22.20 Kastljós.
22.55 Fuglarnir ★★% (The Birds). Banda-
rísk bíómynd frá árinu 1963, gerð eftir
sögu eftir Daphné Du Maurier. Leik-
stjóri Alfred Hitchcock. Aðalhlutverk:
Tippi Hedren og Rod Taylor. Skelfing
grípur um sig í sjávarþorpi einu þegar
fuglar himinsins hópast saman og
leggja til atlögu við mannfólkið. Atriði
í myndinni eru ekki við hæfi barna.
01.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 7. febrúar
14.55 Enska knattspyrnan — Bein út-
sending.
16.45 Iþróttir.
18.05 Spænskukennsla.
18.30 Litli græni karlinn. Nýr teikni-
myndaflokkur.
18.35 Þytur ( laufi.
18.55 Gamla skranbúðin.
19.30 Smellir.
20.00 Fréttir.
20.30 Lottó.
20.35 Dalalíf Fyrri hluti. Islensk gaman-
mynd um æringjana Þór og Danna.
Leikstjóri Þráinn Bertelsson.
21.25 Fyrirmyndarfaðir.
21.50 Dóttir kolanámumannsins ★★★
(Coal Miners Daughter). Bandarísk
bíómynd frá árinu 1980. Leikstjóri
Michael Apted. Aðalhlutverk Sissy
Spacek og Tommy Lee Jones. Saga
bandarísku söngkonunnar Lorettu
Lynn sem var bóndakona í Kentucky
áður en hún öðlaðist heimsfrægð.
00.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur 8. febrúar
16.55 Sunndagshugvekja.
17.05 Queen á Wembley (Queen — Real
Magic). Þáttur frá tónleikum Queen á
Wembley-leikvanginum síðastliðið
sumar.
18.05 Stundin okkar.
18.35 Þrífætlingarnir (The Tripods).
19.00 Á framabraut (Fame).
20.00 Fróttir.
20.45 Geisli.
21.35 Goya. Nýr flokkur — Fyrsti þáttur.
Spænskur framhaldsmyndaflokkur í
sex þáttum um ævi og verk meistara
spænskrar myndlistar.
22.30 Af heilum hug — Endursýning.
23.00 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 5. febrúar
17.00 Myndrokk.
18.00 Knattspyrna. Umsjónarmaður er
Heimir Karlsson.
19.00 Teiknimynd. Furðubúarnir (Wuzzl-
es).
19.30 Fróttir.
20.00 Ljósbrot.
20.20 Morögáta (Murder She Wrote).
21.05 Ótemjurnar (Wild Horses). Banda-
rísk bíómynd með Kenny Rogers og
Ben Johnson í aðalhlutverkum. Tveir
fyrrum kúrekar eru sestir í helgan
stein. Þeir láta sig dreyma um að kom-
ast aftur í sviðsljósið og spennuna
sem fylgir kúrekasýningum. Halda
þeir því af stað í ævintýraleit.
22.35 Af bæ í borg (Perfect Strangers).
23.00 Maöur aö nafni Stick. Bandarísk
bíómynd með Burt Reynolds, Cand-
ice Bergen, George Segal og Charles
Durning í aðalhlutverkum. Ernest
Stickley (Reynolds) snýr aftur heim til
Florida eftir að hafa verið í sjö ár í fang-
elsi fyrir vopnað bankarán. Hann er
staðráðinn í því að hefja nýtt líf. En
undirheimar Miami eru viðsjárverðir
og fljótt flækist hann í net þeirra. Leik-
stjóri er Burt Reynolds.
00.40 Dagskrárlok.
Föstudagur 6. febrúar
17.00 Erfiðleikarnir (Storming Home). ★
Bresk sjónvarpskvikmynd.
18.30 Myndrokk.
19.00 Teiknimynd. Gúmmíbirnir (Gummi
Bears).
19.30 Fróttir.
20.00 Dynasty.
20.50 Um víöa veröld. Fréttaskýringar-
þáttur í umsjón Þóris Guðmundsson-
ar.
21.10 Geimálfurinn (Alf).
21.35 Arfur Brewster ★★ (BrewstersMilli-
ons). Bandarísk kvikmynd meö Ric-
hard Pryor í aðalhlutverki. Fjarskyldur
ættingi arfleiðir Brewster að miklum
fjármunum, en meö einu skilyrði þó,
hann þarf að sýna fram á að hann sé
fær um að eyöa 30 milljónum dollara
á 30 dögum. Brewster fær vin sinn
Candy með sér, og þeir kynnast nýj-
um heimi, glæsivögnum, fögrum kon-
um, dýru víni og öllu því sem fylgir
miklum fjármunum.
23.05 Benny Hill.
23.30 Kattarfólkiö ★★ (Cat People).
Bandarísk bíómynd með Nastassia
Kinski og Malcolm McDowell í aðal-
hlutverkum. Mögnuð mynd um heitar
ástríður og losta. Fyrstu kynni ungrar
konu (Kinski) af ástinni eru stjórnlaus
og yfirþyrmandi. Reynslan umbreytir
henni og hefur örlagaríkar afleiðingar
í för með sér. Leikstjóri er Paul Schrad-
er og tónlist er eftir Giorgio Moroder
og David Bowie.
01.30 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 7. febrúar
09.00 Lukkukrúttin (Monsurnar). Teikni-
mynd.
09.30 Högni hrekkvísi og Snati snar-
ráöi. Teiknimynd.
10.00 Penelópa puntudrós. Teiknimynd.
10.30 Herra T. Teiknimynd.
11.00 Fjallaljóniö (Cougar) Unglingamynd.
12.00 Hlé.
16.00 Hitchcock.
17.00 ,,Stjörnustríö" verður til (From
Star Wars to Jedi: Making of The
Saga). Fylgst með gerð kvikmyndar-
innar Stjörnustríð.
18.00 Elton John.
19.00 Teiknimynd. Glæframúsin (Danger-
mouse).
19.30 Fróttir.
19.55 Undirheimar Miami (Miami Vice).
MEÐMÆLI
Við hvetjum fólk til þess að kveikja á
rás 1 um miðjan dag á laugardögum, en
þá er útvarpað afar vönduðum og for-
vitnilega framsettum þætti um tónlist í
umsjón Ólafs Þórðarsonar og félaga á
tónlistardeildinni. Einnig er vert að geta
æði notaiegra þátta Þorsteins Vilhjálms-
sonar á Bylgjunni milli 7 og 9 á kvöidin
virka daga, en þar fer góður útvarpsmað-
ur með gott efni...
20.45 Eldvagninn ★★★★ (Chariots of
Fire). Bresk kvikmynd frá 1981 með
John Gielgud, Nigel Davenport, lan
Holm og Lindsay Anderson í aðalhlut-
verkum. Sönn saga tveggja íþrótta-
manna sem kepptu á olympíuleikun-
um 1924. Lýst er ólíkum bakgrunni
þeirra og þeim hindrunum sem veröa
á vegi þeirra áður en þeir ná markmið-
um sínum. Leikstjóri er Hugh Hudson.
22.45 Hjartaknúsarinn ★★ (American
Gigolo). Bandarísk bíómynd meö Ric-
hard Gere, Lauren Hutton og Ninu Van
Rallandt í aðalhlutverkum. Julian Kay
(Gere) er aðlaöandi og áhyggjulaus
hjartaknúsari. Hann leggur lag sitt við
ríkar konur og þiggur borgun fyrir.
Þessi sérstaki lífsstíll reynist honum
fjötur um fót þegar hann er sakaður
um morð. Leikstjóri og höfundur
handrits er Paul Schrader.
00.40 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok.
©
Fimmtudagur 5. febrúar
19.00 Fróttir.
19.45 Að utan.
20.00 ,,Sfmtal yfir flóann" smásaga eft-
ir Indriða G. Þorsteinsson.
20.30 Frá tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabíói.
21.20 Leiklist í New York.
22.20 ,,Séö og munað".
22.30 Bláa dalían.
23.10 Kvöldtónleikar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur 6. febrúar
07.03 Morgunvaktin.
09.03 Morgunstund barnanna.
09.45 Þingfréttir.
10.30 Sögusteinn.
11.03 Samhljómur.
12.20 Fróttir.
14.00 Miðdegissagan.
14.30 Nýtt undir nálinni.
15.20 Landpósturinn.
16.20 Barnaútvarpið.
17.03 SÍÖdegistónleikar.
17.40 Torgið — Viðburðir helgarinnar.
19.00 Fróttir.
19.30 Daglegt mál.
19.40 Þingmál.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21.30 Sígild dægurlög.
22.20 Vísnakvöld.
23.00 Andvaka.
00.10 Næturstund í dúr og moll.
01.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 7. febrúar
07.03 ,,Góðan dag, góðir hlustendur".
09.30 í morgunmund.
10.25 Morguntónleikar.
11.00 Vísindaþáttur.
11.40 Næst á dagskrá.
12.00 Hór og nú.
14.00 Sinna.
15.00 Tónspegill.
16.20 Framhaldsleikrit barna og ungl-
inga: „Ævintýri Múmínpabba"
eftir Tove Jansson.
17.00 Að hlusta á tónlist.
18.00 (slenskt mál.
19.00 Fróttir.
19.35 Viðtalsþáttur.
20.00 Harmoníkuþáttur.
20.30 ,,( kvöld þegar ysinn er úti".
21.00 islensk einsöngslög.
21.20 Á róttri hillu.
22.20 Mannamót.
00.05 Miðnæturtónleikar.
01.00 Dagskrórlok.
átf
Fimmtudagur 5. febrúar
20.00 Vinsældalisti rósar tvö.
21.00 Gestagangur.
22.00 Rökkurtónar.
23.00 Tónlist Charlie Chaplins.
24.00 Dagskrárlok.
Föstudagur 6. febrúar
09.00 Morgunþáttur.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Bót í máli.
15.00 Sprettur.
17.00 Fjör ó föstudegi.
18.00 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin.
23.00 Á næturvakt.
03.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 7. febrúar
09.00 Óskalög sjúklinga.
10.00 Morgunþáttur.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Listapopp.
15.00 Við rásmarkið.
17.00 Savanna, Ríó og hin tríóin.
20.00 Kvöldvaktin.
23.00 Á næturvakt.
Fimmtudagur 5. febrúar
19.00 Tónlist með léttu ívafi.
20.00 Jónína Leósdóttir á fimmtudegi.
21.30 Spurningaleikur Bylgjunnar.
23.00 Vökulok.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Föstudagur 6. febrúar
07.00 Á fætur með Sigurði G. Tómas-
syni.
09.00 Páll Þorsteinsson á lóttum nót-
um.
12.00 Á hádegismarkaði með Jóhönnu
Harðardóttur.
14.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd.
17.00 Hallgrímur Thorsteinsson í
Reykjavík síðdegis.
19.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson.
22.00 Jón Axel Ólafsson.
03.00 Næturdagskró Bylgjunnar. Har-
aldur Gíslason.
Laugardagur 7. febrúar
08.00 Valdís Gunnarsdóttir.
12.00 i fréttum var þetta ekki helst.
12.30 Jón Axel ó Ijúfum laugardegi.
15.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi
Rúnar Óskarsson.
17.00 Ásgeir Tómasson á laugardegi.
19.00 Rósa Guðbjartsdóttir.
21.00 Anna Þorláksdóttir ( laugardags-
skapi.
23.00 Jón Gústafsson nátthrafn Bylgj-
unnar.
04.00 Næturdagskró Bylgjunnar. Har-
aldur Gíslason.
ÚTVARP
eftir Helga Má Arthursson
Vörpum út fordómum
SJÓNVARP
eftir Jónínu Leósdóttur
Blúndur og fleira fólk
Útvarp er sveigjanlegur miðill. Og Ríkis-
útvarpið, eða hver sá miðill sem nær til
allra landsmanna, hefur þá yfirburði að
geta komið upplýsingum til margra á sama
tíma. Þetta sönnuðu útvarpsmenn á Akur-
eyri í síðustu viku. Þá útvarpaði svæðisút-
varpið á Akureyri Sjallafundi Sverris Her-
mannssonar um allt Norðurland. Með út-
sendingunni var komið til móts við hlust-
endur á Norðurlandi og ekki dregið úr
miklum áhuga, eða eftirtektinni sem svo-
kallað fræðslustjóramál hefur vakið utan
Reykjavíkur, og reyndar í landinu öllu. Er
skringilegt, að miðbylgjusendingunum úr
Skjaldarvík skuli ekki hafa verið endur-
varpað um landið og almenningi með því
gefinn kostur á að heyra ráðherra verja sig.
Fréttir Ríkisútvarpsins af gjörningum
menntamálaráðherra hafa verið æði
skrykkjóttar, stundum eins og fréttamenn
hafi ekki hirt um að setja sig inní málið. Það
vakti t.d. óskipta athygli mína, þegar fjallað
var um svokallað „húsaleigumál" fræðslu-
skrifstofunnar á Akureyri, að fréttastofan
fullyrti eftir nokkrum þeim sem áttu að
hafa upplýsingar um málið, að þetta húsa-
leigumál hefði alfarið verið mál Sturlu
Kristjánssonar. Þrátt fyrir þessar fréttir um
Sturlu Kristjánsson hafði fréttastofan ekki
fyrir því að leita upplýsinga um málið hjá
Sturlu Kristjánssyni, eins og eðlilegt er.
Stangast vinnubrögð af þessu tagi á við
venjulegar vinnureglur fréttamanna, enda
fór svo að menntamálaráðherra, Sverrir
Hermannsson, notfærði sér frétt Ríkisút-
varpsins í vörn sinni í málinu.
Ódýrasta, sumir myndu kannski kalla það
„billegasta", útvarpsefnið er símatími. Þá
opna menn uppá gátt hið beina samband
við hlustendur. Gefa þeim kost á að tjá sig
um ákveðið málefni og útvarpa því beint.
Og venjulega tekst vel til. Það er hins vegar
undir stjórnendum komið hvernig til tekst
þegar viðkvæm mál eru annars vegar og
greinilegt á þeim símatímum, sem Ríkisút-
varpið hefur útvarpað að morgni til undan-
farið, að þetta „billegá' efni þarfnast undir-
búnings af hendi stjórnenda. Það er
ábyrgðarhlutur að útvarpa beint fordóm-
um þess fámenna hóps manna, sem leggur
það á sig að hringja í beina útsendingu og
upplýsa um skoðanir sínar.
Bein útsending af þessu tagi og þær
skoðanir sem koma fram í símatímum geta
aldrei verið á ábyrgð þess sem flytur mál
sitt. Stjórnendur í beinni útsendingu geta
t.d. ekki verið vissir um hverjir það eru sem
komast að í þessum þáttum. Menn geta
einfaldlega sagt rangt til nafns. Og það hef-
ur gerst. Það hefur líka gerst að drukknir
menn komast að í beinni útsendingu og
hafa fengið leyfi til að röfla áður en stjórn-
endur hafa áttað sig og skrúfað fyrir við-
komandi.
Símatími, eða bein útsending af því tagi
sem hér er til umræðu, er ekki ósvipaður
lesendadálki í blaði, — þ.e.a.s. ábyrgðin er
ritstjórnar, eða stjórnenda. Og inná rit-
stjórnir blaða berast jafnan mörg bréf sem
fara beint í ruslakörfuna. Stundum er um
að ræða bréf frá „kverúlöntum". Slík bréf
birtast til allrar hamingju ekki í íslenskum
dagblöðum, enda regla að fylgjast vel með
þess konar efni.
Sumt af því sem útvarpað er beint — í
símatímum — ætti að fara í körfuna og það
hlýtur að verða að gera þá kröfu til útvarps
að það gangi þannig frá málum, að ein-
hvers konar ritstýring sé á „innsendu1' efni
af þessu tagi, eða myndi Ríkisútvarpið út-
varpa þessu efni, ef það væri tekið upp fyr-
irfram?
Að undanförnu hafa tveir þættir verið
sýndir í ríkissjónvarpinu undir heitinu /
kaffi og hafa þær Sonja B. Jónsdóltir og
Edda Andrésdóttir stjórnað þeim í samein-
ingu. Sá fyrri fjallaði um Kvenréttindafélag
Islands og var sendur út á 80 ára afmæli
þess, en í síðari þættinum var rætt um
eyðni.
Sviðsmyndin í þessum þáttum á lof skilið.
Aldrei slíku vant, hefur maður á tilfinn-
ingunni að það fari bara ljómandi vel um
þátttakendurna.
Gestirnir í síðari þættinum þorðu líka
m.a.s. að borða og drekka, en í þeim fyrri
leit helst út fyrir að tertusneiðarnar væru
til skrauts á diskunum.
Mér fannst unga stúlkan i KRFÍ-þættin-
um eins og ferskur andvari inn í jafnréttis-
umræðuna, en því miður fékk hún ekki að
koma nægilega oft inn í spjallið. Það skortir
mikið á að fjölmiðlar geri nóg af því að
leyfa unglingum að tjá sig um þjóðmálin og
taka þátt í umfjöllun af því tagi, sem þarna
fór fram.
Lára Júlíusdóttir sótti á í umræðunni,
sérstaklega eftir að loks var farið að ræða
um hnífinn í kúnni, þ.e. launamálin. Sú um-
ræða eyðilagðist þó mikið vegna alls þessa
blúndutals í Rósu Ingólfsdóttur, sem reynd-
ar varð tvísaga í yfirlýsingum sínum. Hún
taldi karla hafa stjórnað þjóðfélaginu svo
stórkostlega vel að konur, öðru nafni
blúndur, ættu ekkert að troða sér í stjórn-
unaraðstöðu. Hins vegar taldi hún alveg
ófært að konur hefðu ekki tækifæri til þess
að vera heima hjá ungum börnum sínum í
okkar nútímaþjóðfélagi. Hvernig væri að
Rósa reyndi að berjast fyrir þessu áhuga-
máli sínu? Hún kæmist eflaust fljótt að því,
hve lítinn forgang hin „mjúku" mál hafa i
heimi, þar sem karlar eru við stjórnvölinn.
(Reyndar vildi ég mikið gefa fyrir að eign-
ast einn „ramma" úr filmunni af þessum
þætti, þar sem Aöalheiöur Bjarnfreösdóttir
horfir gjörsamlega forvið á Rósu úttala sig
um kosti karlaveldisins fyrir okkur blúnd-
urnar. Það var óborganlegt!)
Þátturinn um eyðni var ekki síður áhuga-
verður en sá um jafnréttið. Ég er mikill að-
dáandi allrar framgöngu Guöjóns Magnús-
sonar í eyðniumræðunni og fékk hann enn
eina stjörnu hjá mér fyrir þennan þátt.
Hann sýnir aðdáunarverða stillingu og lítil
óþreyjumerki, þó svo almenningur þrjósk-
ist við að meðtaka fræðslu landlæknisemb-
ættisins um smitleiðir eyðniveirunnar.
Borgarlæknir var einnig yfirvegaður og
hafði ekki of hátt um allsherjar eyðnipróf á
íslendingum. Þess vegna fór lítill tími í karp
um kosti þess og galla, sem annars hefur
sett neikvæðan svip á eyðniumfjöllun und-
anfarinna vikna.
Ég átti erfitt með að botna fyllilega í
framlagi Sölvínu Konráösdóttur sálfræð-
ings, en bæði Böövar Björnsson frá Sam-
tökum 78 og ungi strákurinn úr Fjölbrauta-
skóla Breiöholts voru ágætir. Þó hefði nú
einhver mátt leiðrétta fullyrðingu sálfræð-
ingsins undir lok þáttarins, þegar hún sagði
að fólk gerði sér orðið grein fyrir, að eyðni
væri ekki aðeins „hættuleg lesbíum og
hommum". Fyrri hópurinn hefur nefnilega
þá sérstöðu, að honum stafar mjög lítil
hætta af eyðni, nema um eiturlyfjasjúkl-
inga sé að ræða. Þetta kom m.a. fram í
grein hér í HP fyrir hálfum mánuði. Það er
svo stutt í hysteríuna, þegar ógnvaldur eins
og eyðni er annars vegar, að svona mis-
mæli eða misskilningur getur ónýtt mikið
undangengið fræðslustarf. Það væri mikil
synd.
42 HELGARPÓSTURINN