Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 43

Helgarpósturinn - 05.02.1987, Síða 43
FRÉTTAPÓSTUR Bankamálin Veruleg umskipti urðu í Pankamálaumræðunum þegar samkomulag náðist um þá tillögu ráðherra Sjálfstæðis- flokksins að stofnað yrði hlutafélag um Útvegsbankann. Hlutafélag hins nýja banka á að vera einn milljarður króna og leggur rikið fram um 650 milljónir sem selja á hið fyrsta ýmsum hagsmunaaðilum og fyrirtækjum í sjávarútvegi. Leitað verður eftir erlendum banka eða bönkum sem væru tilbúnir að eignast hlutafé og er gert ráð fyrir að eignaraðild þeirra geti orðið allt að fjórðungi. Ráðherrar Sjálfstæðis- flokksins hafa þegar fengið umboð frá sínum flokki til að vinna að endanlegu samkomulagi á þessum grundvelli og á aukafundi í þingflokki Framsóknarflokksins var sam- þykkt að þessi leið yrði farin. Farmannadeilan Sáttatillaga sem Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemj- ari lagði fram í farmannadeilunni þann 29. janúar síðastlið- inn var kolfelld af báðum samningsaðilum. Veruleg harka virðist vera að færast í deiluna og stjórn Vinnuveitendasam- bandsins hefur ákveðið að setja verkbann á farmenn. Það mun taka gildi ef af verður þann 7. febrúar nk. Einhver brögð hafa verið að þvi að erlend leiguskip hafi flutt farma fyrir íslensku skipafélögin og skoruðu farmenn á hafnar- verkamenn að vinna ekki við slík skip. Hafnarverkamenn í Dagsbrún brugðust við því með þeim hætti að boða samúð- arverkfall frá og með 9. febrúar. Fram að þessu hafa þau skip verið afgreidd sem leigð voru áður en verkfall hófst en nú er ljóst að svo verður ekki þegar fram i sækir. Vinnuveit- endur hafa ákveðið að skjóta málinu til félagsdóms. Fræðs Justj óramálið Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra efndi til op- ins fundar um skólamál á Akureyri og Húsavik í síðustu viku. Báðir voru fundirnir afar fjölsóttir, talið er að á átt- unda hundrað manns hafi verið á fundinum á Akureyri þeg- ar flest var. Á fundunum báðum kom fram hörð andstaða viö vinnubrögð Sverris þegar hann vék Sturlu Kristjánssyni úr embætti eigi alls fyrir löngu. Töldu Norðlendingar ómak- lega að fræðslustjóra vegið og að sökin lægi allt eins hjá ráðuneytinu. Að auki hélt ráðherránn fundi með fræðslu- ráði umdæmisins þar sem málin voru rædd í fyllsta bróð- erni að sögn hans. Þess utan má nefna að Sverrir Thorsteins- son skólastjóri Stóru-Tjarnarskóla hefur verið settur i emb- ætti fræðslustjóra til 1. apríl en þá rennur umsóknarfrestur um starfið út. Kjarasamningar Fjármálaráðherra hafnaði öllum kröfum sem BHMR setti fram i upphafi viðræðna við ríkisvaldið. Eftir það sleit félag- ið viðræðunum. BHMR setti fram kröfur um 45.500 kr. lág- markslaun, endurskoðun á prófaldurskerfi og fastlauna- samningum til þess að samræma laun háskólamanna hjá ríkinu við laun háskólamanna á frjálsum markaði. Fjár- málaráðherra bauð hinsvegar allt að 3,5% launahækkun, sem hefði þýtt lágmarkslaun upp á 34.500 kr. Nú í fyrsta sinn er BHMR í þeirri aðstöðu að semja við rík- isvaldið með verkfallsrétti á grundvelli nýrra samningsrétt- arlaga og huga þeir nú að beitingu hins nýja vopns í barátt- unni. Arnarflug Tap Arnarflugs á síðasta ári var miklu meira en gert var ráð fyrir, eða um 120 milljónir króna. Eins og kunnugt er tók ný stjórn við félaginu síðastliðið sumar þegar gjaldþrot blasti við. Þá áætluðu hinir nýju hluthafar að tap félagsins fyrstu sex mánuði ársins myndi verða nálægt 25 milljónum en þegar upp var staðið reyndist það vera þrefalt meira og rúmlega það eða um 96 milljónir króna. í ljós hefði komið að staða félagsins var margfalt verri en upphaflega hafði sýnst og tapið á árinu um 60 milljónum meira en gert hefði verið ráð fyrir. Til þess að mæta þessum gífurlega halla ætl- ar stjórn félagsins að auka hlutafé þess um 80 milljónir um- fram það sem áætlað var eða um allt að 130 milljónir. Stjórn- armenn segjast vera bjartsýnir á að loforð fyrir hlutafjár- aukningunni náist en heildarhlutafé Arnarflugs verður þá 230 milljónir króna. Rán á rán ofan Verslunarstjóri Stórmarkaðarins i Kópavogi var rændur síðla föstudagskvöldsins 30. janúar þegar hann hugðist fara með afrakstur sölu dagsins í næturhólf Útvegsbankans skammt frá versluninni. Þrír grímuklæddir menn stukku á verslunarstjórann og náðu af honum tösku sem innihélt um 800 þúsund krónur. Hinir grímuklæddu tóku svo til fót- anna og hurfu útí myrkrið og hefur síðan ekkert til þeirra spurst. Fréttapunlctar • Skúmur GK strandaði við Grindavík aðfaranótt þriðju- dags. H manna áhöfn var um borð og var öllum bjargað. • Mann tók útaf Fróða ÁR 33 en félagar hans brugðust skjótt við og köstuðu sér á eftir honum og náðu honum úr sjónum. • Samningar tókust á Vestfjörðum i vikunni og tryggja þeir fiskvinnslufólki þar vestra 30 þúsund króna lágmarkslaun. • Foreldrasamtök barna á dagvistarheimilum í Reykjavík efndu til kröfugöngu til að vekja athygli borgaryfirvalda á því ófremdarástandi sem ríkir í dagvistarmálum. Um 700 manns tóku þátt í göngunni. • Ríkissaksóknari hefur hafnað kröfu Svölu Thorlacius hrl. um að krafist verði afkynjunar Steingrims Njálssonar sem margsinnis hefur orðið uppvis að kynferðisafbrotum. Nú standa yfir réttarhöld í máli Steingrims þarsem ákær- endur eru þrír barnungir drengir sem hann hefur misnotað kynferðislega. • Stórbruni varð að Freyjugötu 28 í Reykjavík aðfaranótt þriðjudags. Fernt var í húsinu og voru öll flutt á sjúkrahús en aðeins einn mun vera alvarlega brenndur. • Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum var sýknaður af ákær- um um skjalafals fyrir Hæstarétti en áður hafði hann verið dæmdur i 5 mánaða fangelsi fyrir héraðsdómi. S T Ó R Ú T S A L A HVER SKOLLINN MEÐAL TITLA: Smiths - Panic 299 kr. Smiths - Ask 299 kr. Vic Godard - Trouble 299 kr. Einst. Neubauten - YÚ Gung 299 kr. Elvis Costello - I Want You 199 kr. Elvis Costello - Tokyo Rose 199 kr. New Order - Brotherhood 499 kr. New Order - Bizzare Love Song 199 kr. New Order - State Of The Nations 199 kr. Woodentops - Everyday Living 299 kr. Woodentops - Good Thing 299 kr. Richard Thmopson - Small Town Romance 399 kr. Imperiet - Synd 499 kr. Imperiet - Rassera 399 kr. The Avons - Music From Three Rivers 399 kr. The Colour Purple 599 kr. Crime & The City Solut. - Room Of Lights 499 kr. The Feelies - The Good Earth Kinks - Think Visual 499 kr. Billy Joel - The Bridge 399 kr. Richard H. Kirk - Black Jesus Voice Spandau Ballet - Through The Barricades 499 kr. Swans - Greed 399 kr. Blue Aeroplanes - Tolerance 399 kr. Jah Wobble - Trade Winds 199 kr. Bruce Springsteen - Live o.fl. o.fl. o.fl. . . Jazz, blues, íslenskar plötur og svo mætti ifram telja. TILBOÐ SEM ERFITT ER AÐ STANDAST. SMITHEREENS ESPECIALLY FOR YOU Tugir erlendra og innlendra poppgagnrýnenda telja frumburð Smithereens, breiðskífuna Especially For You, til athyglisverðustu platna síðasta árs. Hljóm- sveit, sem leitar fyrirmynda í gullöld breskrar rokktón- listar án þess að tapa nokkru af eigin sérkennum. Við bjóðum Smithereens velkomna til íslands. Wednesday Week WHATWEHAD Hér er á ferð millivigtarrokk í anda Pretenders og Til Tuesday. Útsettaf Don Dixon, en nafn hans er orð- inn viðurkenndur gæða- stimpill á plötum banda- rískra hljómsveita. AÐRAR ATHYGLISVERÐAR: Camper Van Beethoven - CVB (3.LP) Flaming Lips - Hear It Is Gone Fishin' - Cant't Get Lost... Game Theory - The Big Shot Chronicles Game Theory - Real Nighttime Jet Black Berries - Desperate Fires Jet Black Berris - Sundown On Venus Romans - The Last Days... R.E.M - Murmur Jules Shear - demo - itis The Dead Milkmen EATYOUR PAISLY Smekklausiren raunsæir spaugarar með tónlist í ætt við enska pönkið eins og þaðgerðist best í lok 8. áratugarins. T.S.O.L. REVENGE Gagnrýnendur vestan hafs deila ekki um gæði skífunn- ar, sem er undir áberandi Doors-áhrifum. Telja marg- irþeirraaðRevengesé gripurinn sem breytti T.S.O.L. úrefnilegri sveit í góða. Eigum jafnframt fyrirliggjandi mikið úrval af alls kyns tónlist, s.s. þunga rokk með Strypers og Poison. Jazz, blues, cajun, rock’n’roll, reggae, afro- popp, rockabilly og svo mætti áfram telja... Sendum í póstkröfu samdægurs. Dangerously Close Tónlist úr spennumyndinni Dangerously Close, sem Austurbæjarbíó hefur sýnt undanfarnarvikur. Meðal flytjenda eru Smithereens, Green On Red, T.S.O.L., BlackUhuruo.fi. GÆÐATÓNLISTÁ GÓÐUMSTAÐ. gramm r^) HELGARPÖSTURINN 43

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.