Helgarpósturinn - 09.04.1987, Side 25
SKÁK
Ný kynslóð
Það var glatt á hjalla í Taflfélags-
heimilinu við Grensásveg síðustu
helgina í mars þegar sveitakeppni
grunnskóla fór þar fram. Þarna
voru þrjátíu sveitir frá tuttugu
grunnskólum í Reykjavík að
keppa, fjórir í hverri sveit, auk
varamanna. Keppendum var
skammtaður hálftími á hverja
skák, þannig að hver umferð tók
klukkutíma. Þarna voru drengir í
nær algerum meirihluta, þrjár eða
fjórar stúlkur sýndu þó að kven-
kyninu var ekki meinaður að-
gangur. En tími stúlknanna kemur
áreiðanlega, kannski fyrr en varir.
Áhuginn á þessu móti er mikill,
sumir skólarnir sendu tvær sveitir
til leiks og hefðu óskað þess að
mega senda fleiri, en húsrýmið
leyfði það ekki. Hér var bekkurinn
þröngt setinn, í rauninni of þröngt,
því að loft var þungt í salnum og
talsverður kliður eins og við var
að búast.
Barna- og unglingastarf Tafl-
félagsins hefur verið með miklum
ágætum um langt skeið. Ávextir
þessa starfs eru nú óðum að koma
í ljós í auknum áhuga barna og
unglinga á skákíþróttinni og nýj-
um og efnilegum skákmönnum.
Þótt efra aldursmark sé sextán ár
voru þarna fáeinir kunnir skák-
menn sem komnir eru í fremstu
röð og eru farnir að standa í stór-
meisturunum okkar. Þarna var
líka íslandsmeistari kvenna í skák.
En þarna var einnig fólk sem gæti
látið til sín taka áður en langt líður.
Mér var bent á átta ára kút, svo
smávaxinn að hann hringaði sig á
stólsetunni. Komið var fram í
miðja skák en hann var ekki búinn
að nota nema 2—3 mínútur af um-
hugsunartíma sínum. Andstæð-
ingurinn sem bæði var stærri og
eldri var kominn langleiðina með
sinn hálftíma. En minn maður skil-
aði hverjum leik án þess að hugsa
sig um nema andartak, hann lék
þó furðu markvisst og virðist hafa
óvenju næman skilning á skák.
Þarna er greinilega ný kynslóð
skákmanna á leiðinni.
Um síðustu áramót fór fram
Evrópumót unglinga á aldrinum
16—20 ára. Mótstaðurinn var
Groningen, en Hollendingar hafa
annast þessi mót mörg undanfarin
ár og staðið mjög vel að þeim. ís-
lendingar hafa stundum sent
þangað keppendur og í þetta sinn
fór Þröstur Þórhallsson. Tefldar
voru 13 umferðir og í þetta sinn
bar Sovétmaður sigur úr býtum —
eftir Guðmund Arnlaugsson
eins og stundum fyrr: 1. ívansjúk
Sovétríkin 10 vinn., 2. Piket, Hol-
landi 9 vinn., 3.-5. Gdanski,
Póll., Sokolov, Júgósl., Blatny,
Tékk. 8,5 vinn. og 6.—10. Howell,
Engl., Þröstur, Ninov, Búlg.,
Segundo, Spáni og Lars Bo
Hansen, Danm. 7,5 vinn. hver.
Skákin sem hér fer á eftir hlaut
fegurðarverðlaun á Evrópumót-
inu. Hún er bæði fjörug og flókin.
Jazek Gdanski, Póllandi —
Neil Mc Donald, Englandi.
01 e4 e6 02 d4 d5
03 Rc3 Bb4 04 e5 Re7
05 a3 Bxc3+ 06 bc3 c5
07 Dg4 0-0 08 Rf3 Rbc6
09 Bd3 f5
Fórnin á h7 vofði yfir.
10 ef6 Hxf6 11 Bg5 Hf7
12 Dh5 g6
í annarri skák á mótinu þar sem
sami maður hafði svart, féllu leik-
ar á aðra leið: 12 Dh4 h6 13 Bxe7
Dxe7 14 Dg3 c4 15 Bg6.
13 Dh4 c4 14 Be2 Da5
15 Bd2 Rf5 16 Dg5 Bd7
17 Re5
Þessi leikur virðist mér dálítið
hæpinn. í stað þrýstings á e5 fær
hvítur þar líflítið peð. Eðlilegra var
að hróka, síðar má svo hefja að-
gerðir á kóngsarmi og koma bisk-
upunum í leikinn.
17 ... Rxe5 18 de5 Ba4
19 Hcl Bc6 20 h4 Haf8
Báðir láta sem þeim standi alveg á
sama um peðið á 3, enda skiptir
það litlu máli í þeim átökum sem
nú verða á kóngsarmi og mið-
borði.
21 h5 Hg7 22 g4 d4
Nú er heldur betur farið að
hvessa, og má segja að báðir legg-
ist á eitt um að flækja taflið. Hvítur
vindur þó bráðan bug að því að
loka g-línunni.
23 h6 Hd7 24 Hh3 Re3
Spennan eykst með hverjum leik.
Nú kemur 25 fe3 dc3 ekki til
greina, en 25 Bxe3 Dxc3+ 26 Kfl
væri ekki fráleitur kostur.
25 cd4 Rg2+ 26 Kfl Dd5
Hér stendur drottningin mætavel.
Svartur hótar nú m.a. Dxd4 (ógnar
f2) og Rf4 (ógnun Dg2+). Heldur
er tekið að halla á hvít, en ég er
ekki viss um að 27 Be3 hefði verið
lakara úrræði en leikurinn sem
hann velur.
27 f3 Dxd4 28 Hdl De4
Svartur teflir býsna laglega, hvítur
getur sig naumast hrært.
29 Hg3 Dxc2 30 Kxg2 c3
31 Hcl Dxd2 32 Dxd2 Hxd2
33 Kfl c2 34 Kel Hfd8
35 Hgl Ba4 36 Kf2 Hdl
37 Bxdl cdlO 38 Hgxdl Bxdl
39 Hc7 Hf8 40 Hg7+ Kh8
og hvítur gafst upp.
SPILAÞRAUT
í sveitakeppni er suður sagnhafi Suður á slaginn og tekur tvisvar
í 6-hjörtum. Vestur, sem hafði tromp, andstæðingar fylgja báðir
strögglað á 2-laufum, spilar út lit. í fljótu bragði sýnist útlitið nú
laufkóng: harla gott; ef önnur af tveim svín-
ingum gengur er slemman 75%.
♦ 54 Ertu sáttur við þær vinningslík-
O1 KDG8 ur, eða hefur þú eitthvað betra á
O Á63 takteinum?
+ 6542
♦ ÁD3
Á10952
O KG42
+ A Lausn á bls. 10.
LAUSN Á MYNDGÁTU
Lausnin á verðlaunamyndgátunni
sem birtist á þessum stað fyrir
tveimur vikum er eftirfarandi: Sig-
urdur skurdur er söguhetja í leikriti
Ragnars Arnalds. Nú sýnt íÞjóðleik-
húsinu.
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum. Vinningshafinn er Brynj-
ólfur Magnússon Lynghaga 2 í
Reykjavík. Hann fær senda bókina
Afangar, ferðahandbók hesta-
mannsins með sextíu leiðarlýsing-
um og sérteiknuðum kortum, en
hún kom út fyrir síðustu jólahátíð.
Frestur til að skila inn lausn mynd-
gátunnar hér að neðan er sem fyrr
til annars mánudags frá útkomu
þessa tölublaðs. Merkið lausnina
myndgáta. Verðlaunin að þessu
sinni er bókin Sígild sönglög, texti,
nótur og gítargrip, sem Svart á hvítu
hefur nýlega sent frá sér.
Góða skemmtun.
HELGARPÓSTURINN 25