Helgarpósturinn - 09.04.1987, Page 44
arfrestur um stöðu yfirborgardóm-
ara í Reykjavík. Björn Ingvarsson,
verður sjötugur þann 20. maí, en
Jón Helgason, dómsmálaráð-
herra, mun fá það sem eitt af sínum
síðustu embættisverkum að skipa
eftirmann hans. Það er nú orðið al-
talað að ætlunin sé að skipa Gauk
Jörundsson, deildarforseta laga-
deildar Háskólans, sem yfirborgar-
dómara. Jón, sem hefur verið dug-
legastur framsóknarráðherranna að
koma fiokksmönnum sinum fyrir í
kerfinu, hefur sjálfsagt komið auga
á að Gaukur er sonur Jörundar
Brynjólfssonar, gagnmerks fram-
sóknarmanns. Pólitík ætti ekki að
þurfa að standa í vegi fyrir því að
Gaukur, sem þykir vel að embætt-
inu kominn, hljóti hnossið...
ulltrúar þeirra flokka sem
lentu seinna kvöldið í flokkakynn-
ingu sjónvarpsins eru mjög óhressir,
því þeir telja víst, að hæstvirtir kjós-
endur hafi verið orðnir þreyttir
þegar að þeim kom. Þeim þykir líka
„undarleg tilviljun", að Sjólfstæð-
isflokkur, Borgaraflokkur og
Framsóknarflokkur skuli hafa
dregist saman fyrra kvöldið.. .
D
WaJ orgaraflokkurinn á í vök
að verjast gagnvart hörku D-lista-
manna og kvarta sumir undan ,,of-
sóknum“ og „hótunum". Engu að
síður segja menn úr kosningamask-
ínu S-listans, að liðið hafi þjappast
saman á bakvið nýja flokkinn. Segja
þeir að Gunnarsmenn úr Sjálfstæð-
isflokknum séu nú allmargir komnir
til liðs við S-listann og hafa gamlir
menn haft á orði að rekja megi
klofninginn allt til ársins 1952, er
Gunnar Thoroddsen studdi Ás-
geir Ásgeirsson í forsetaframboði
við vanþóknun flokksforystunnar.
Þannig taki 35 ár að kljúfa sig út úr
Sjálfstæðisflokknum. . .
^hi^^ikid er um að menn
tilvísana úr fortíðinni vegna fram-
boðsrauna Sjálfstæðisflokksins og
þeirra atburða eru leiddu til amk.
tímabundins klofnings Sjálfstæðis-
flokksins. í söguskýringum eru at-
burðirnir gjarnan tengdir persónum
og hefur Þorsteinn Pálsson
manna síst sloppið við sögutúlkanir
af þessum toga. Þannig er rifjað upp
innan Borgaraflokksins, að þegar
Þorsteinn Pálsson var gerður að
ritstjóra Vísis sáluga, þá hafi með-
ritstjóri hans, Jónas Kristjánsson,
fengið uppsagnarbréf sent norður í
land, þar sem hann var á helgar-
ferðalagi. Sú uppsögn hafi leitt til
klofnings og Dagblaðið orðið til
með mikilli hreyfingu. Með sama
hætti hafi Þorsteinn eftir að hann
varð formaður Sjálfstæðisflokksins
sent Albert Guðmundssyni upp-
sagnarbréf meðan sá síðarnefndi
var staddur á ferðalagi erlendis. Það
hafi hins vegar leitt til klofnings
Sjálfstæðisflokksins og stofnunar
Borgaraflokksins og standi sömu öfl
að mörgu leyti á bak við þann flokk
og Dagblaðið forðum...
44 HELGARPÓSTURINN
§
ö
Viltu njóta lífsins
við fagurt vatn í friðsælu fjallaþorpi þaðan sem stutt er í
stórborgarmenninguna?
Ertu kannski einn þeirra fjallhressu sem alltaf þurfa
að glíma við ný og stærri fjöll og endalaust þurfa að kanna
eitthvað nýtt / gamalt?
Dreymir þig e.t.v. um að drífa þig á seglbretta-
námskeið og skora svo á íslandsmeistarann þegar heim
kemur eða liggja á vel völdum vatnsbakka, grilla þig í
sólinni og taka þátt í keppninni „Hver er brúnastur"?
Ertu sæíkerinn sem þýðir ekki að bjóða nema það
besta í mat og drykk?
Þá eru Biersdorf í Þýskaiandi, Walchsee
eða Zell am See í Austurríki staðir fyrir þig
Þú getur haft bílaleigubfl til umráða og ekið hvert sem þú
vilt eða tekið þátt í skipulögðum skoðunar-
ferðum með okkar traustu og reyndu fararstjórum.
FLUGLEIDIR
__fyrirþig___
Viltu fara þínar eigin leiðir?
Sértu einn þeirra ferðavönu eða þeirra sem geta
ekki hugsað sér að ferðast eftir fyrirfram gefinni áætlun er
það að sjálfsögðu engin spurning hvað þú gerir. Þú hlýtur
að velja flug og bfl. Spumingin er bara: Hvar viltu byrja?
í Lux, Frankfurt, París eða Salzburg? Það er auðvitað þitt
mál en staðreyndin er sú að bflaleigubflamir í Lux em þeir
ódýmstu í Mið-Evrópu.
Leiðsögumappan og Mið-Evrópu
bæklingurinn Flug, bíll og sumarhús
em komin. Komdu við á söluskrifstofum okkar eða
ferðaskrifstofunum, fáðu þér eintak og lestu þér til um
sumardvalarstaðina okkar í Mið-Evrópu. Dragðu fram
gamia landakortið, ræddu málin við fjöiskylduna í ró og
næði og hringdu svo í okkur.
LUXEMBORG:
Flug+bíll í 2 vikur frá kr. 11.903 á mann. SUPER-APEX verð.
Miðað við 2 fullorðna og 2 börn, 2ja—11 ára, og bfl í B-flokki.
WALCHSEE:
Flug+íbúð á flgerhof í 2 vikur frá kr. 18.260* á mann.
Flogið til Salzburg.
ZELL AM SEE:
Flug+íbúð í Hagleitner í 2 vikur frá kr. 18.395* Flogið til Salzburg.
BIERSDORF:
Flug+íbúð í 2 vikur frá kr. 13.321* á mann. Flogið til Luxemborgar.
‘Meðaltalsverð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 böm, 2ja-ll ára.
Nánari uppiýsingar veita söluskrifstofur Fiugieiða, umboðsmenn
um ailt land og ferðaskrifstofumar.
FLUGLEIÐIR' ..