Helgarpósturinn - 30.07.1987, Síða 19
Dagbókin hennar Dúllu
Kaera dagbók!
Ég má varla vera að því að skrifa
mikið núna, því ég er að undirbúa
mig fyrir helgina. Þau leyfðu mér
nefnilega að fara! Og á Húsafell\
Ekki á bindindismótið. Þetta verður
sko alveg meiriháttar og mér er skít-
sama um hvort það rignir eða ekki.
Við stelpurnar notuðum þessa
pottþéttu gömlu aðferð, sem allir
foreldrar virðast falla fyrir, þó
manni finnist ótrúlegt að fólk geti
verið svona vitlaust. (Fórum sem
sagt í hóp heim til hverrar fyrir sig
og sögðum að pabbar og mömmur
allra hinna væru búin að gefa leyfi.
Liðið gleypti við þessu, þó þau væru
öll ógeðslega óhress með að leyfa
litla krúttinu sínu að fara á svona
„sammkundu") En við þökkuðum
auðvitað Guði fyrir að komast upp
með þetta.
Strákurinn, sem ég er skotin í, ætl-
ar líka í Húsafell. Hann var að
minnsta kosti búinn að ákveða það
í vor, áður en hann fór í sveitina. En
ég hef ekkert heyrt af honum síðan.
Vonandi er hann ekki orðinn skot-
inn í einhverri sveitagellu, því þá
myndi ég deyja... eða drekka mig
fulla... eða eitthvað... Reyndar hefur
hann ekki beint sagt neitt um að
hann væri skotinn í mér, nema í
partýinu hjá Kristínu í vetur. Þá
sagði hann bara að ég væri soldið
spes, en manni finnst nú sá vera
spes, sem maður er skotinn í! Að
vísu var hann íullur í þessu partýi...
Talandi um fyllerí, þá eru stelp-
urnar búnar að útvega eina flösku af
rósavíni og hálft glas af „róandi”.
(Það eru einhverjar pillur, sem
amma Bellu fékk hjá lækninum þeg-
ar sonur hennar dó fyrir tveimur ár-
um, og voru alveg ónotaðar í bað-
skápnum.) Ég er sko alveg til í að
prófa þetta, en ég vildi samt að við
hefðum aðeins meira vín. Að vísu
hef ég ekki enn fundið neina teg-
und, sem mér finnst góð, en maður
verður aö komast í stuð og ég get þá
bara hellt fullt af kóki út í til að
minnka bragðið. Vona samt að ég
sleppi við að kasta upp, eins og í
partýinu hjá Kristínu. En þá var ég
líka búin að smakka á glösum hjá
svo mörgum krökkum og maður á
víst ekki að blanda saman mörgum
tegundum.
Stelpurnar eru líka búnar að út-
vega smokka! Ég get svarið það...
Þeim fannst það vissara. Ég myndi
nú aldrei í lífinu sofa hjá í tjaldi í
fyrsta skipti. Það er svo subbulegt.
Mitt fyrsta skipti verður sko í tví-
breiðu rúmi með nýþvegnum sæng-
urfötum. Engin spurning! (Stelpurn-
ar stríða mér stundum á þessu og
segja að ég verði hrein mey fram að
tvítugu, en það þarf ekkert endilega
að vera...)
Nú verð ég að drífa mig heim til
Bellu. Við ætlum að pæla í því
hvernig best er að fela rósavínið.
Bless, Dúlla.
PS Það besta við þetta er þó lík-
lega það, að ég er löglega afsökuð
úr brúðkaupinu hennar ömmu. Hún
varð mjög sorgmædd, en sagðist
ætla að láta taka allt upp á vídeó,
sem ég gæti fengið að skoða. Ég
meina það!
kki alls fyrir löngu höfðum
við á orði að hugmyndaauðgi væri
ekki sterkasta hlið textagerðar-
manna á auglýsingastofum. Héld-
um við því fram í þessu sambandi að
stofan Svona gerum við hefði tekið
slagorðið „ef þú vilt vera alveg viss"
upp eftir annarri auglýsingastofu.
Þetta var rangt því í rauninni var
það auglýsingastofa GBB sem setti
á markaðinn svipað slagorð á eftir
Svona gerum við. Það er eins gott
að -vera alveg viss. . .
D
HDkeiði mun vera ríkjandi með-
ai kartöflubænda á Eyjafjarðar-
svæðinu. Eru norðanmenn óhressir
með viðskiptin við fyrirtækið
Agæti. Agæti yfirtók á sínum tíma
samninga um útsæðisræktun fyrir
bændur, sem ekkert hafa fengið
greitt frá fyrirtækinu, enda þótt nú
líði senn að því að fyrirtækið fari að
selja undan grösum norðanmanna.
Heimildir HP herma að skuld fyrir-
tækisins við bændur nemi um 4
milljónum.. .
FISHER
■ ' BORGARTUNI 16
REYKJAVIK SIMI 622555
SJÓNVARPSBÚDIN
Einkareikningur Landsbankans
er tékkareikningur með háum
vöxtum, sem gefur kost á heimild
ti! yfirdráttar og láni, auk margvís-
legrar greiðsluþjónustu.
Einkareikningur er framtíðarreikningur.
Einkareikningur er nýr reikningur sem kemur til móts viö
þær kröfur sem viðskiptahættir nútímans gera um arðsemi
og sveigjanleika.
Vextir eru reiknaðir daglega og eru miklu hærri en áður
hafa þekkst, sem þannig sparar þér snúninga við að færa á
milli tékkareikninga og sparisjóösbóka til að fá hærri vexti.
Þeir fara ekki stighækkandi eftir upphæðum heldur eru
jafnháir af öllum innstæðum.
Þú getur sótt um allt að 30.000 króna yfirdráttarheimild til
að mæta tímabundinni aukafjárþörf og möguleiki er á allt að
150.000 króna láni til allt að tveggja ára í tengslum við
Einkareikninginn.
Reikningnum fylgir bankakort sem hægt er að nota í
tvennum tilgangi, sem ábyrgðarkort í tékkaviðskiptum og
sem aðgangskort að hraðbönkum. Bankakortið gerir 16-17
ára unglingum kleift að stofna Einkareikning. Þeir nota
bankakortið í stað tékkheftis þar til þeir hafa náð aldri til að
mega nota tékkhefti.
Einkareikningur er þess virði að kynna sér hann betur.
Snúðu þér til næsta afgreiðslustaðar Landsbankans og fáðu
nánari upplýsingar.
Einkareikningur er framtíðarreikningur.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
HELGARPÓSTURINN 19