Helgarpósturinn - 30.07.1987, Side 36

Helgarpósturinn - 30.07.1987, Side 36
Ett af síðustu embættisverkum Sverris Hermannssonar í emb- ætti menntamálaráðherra var að setja Vénýju Lúðvíksdóttur í stöðu yfirkennara við Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Þessi stöðuveiting ráð- herrans fyrrverandi hefur valdið nokkurri óánægju og furðu hjá skólamönnum þar syðra. Mál er þannig vaxið að skólastjóri skólans, Hörður Zóphaníasson, fékk launalaust leyfi í eitt ár og þá var yf- irkennarinn, Loftur Magnússon, settur skólastjóri í fjarveru hans. Staða yfirkennarans var þá auglýst laus til umsóknar og voru um hana tveir umsækjendur, fyrrnefnd Véný og Magnús Jón Arnason. Kenn- araráð skólans mælti með að Magnús fengi stöðuna og í skóla- nefnd bæjarins fékk Magnús 3 atkvæði en Véný 2. Ráðherrann kaus hinsvegar að virða óskir skólamanna að vettugi og ráða Vénýju. Hinsvegar hafa raddir þess efnis heyrst að ástæðan fyrir því að Magnús fékk ekki stöðuna hafi verið sú að hann er alþýðubandalags- maður og sem slíkur situr hann í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og er að auki formaður bæjarráðs. . . M Bl ■ afsteinn Vilhelmsson, út- varpsstjóri Stjörnunnar, hefur sagt upp störfum, og eftir því sem HP helgi! Þú átt þaö skilid SS pizzahosi i) Grensásvegi 10, 108 R. S: 39933 kemst næst er ástæða uppsagnar- innar ágreiningur um dagskrár- stefnu útvarpsstöðvarinnar. Stjörnu- menn leita nú nýs útvarpsstjóra og er talið líklegast að Björgvin Hall- dórsson söngvari hljóti hnossið. . . H ■ ■ ornfirðingum bætist nýtt bankaútibú í safn sitt með haustinu. Fyrir er Landsbankinn með útibú á staðnum, en nú er ákveðið að Samvinnubankinn, framsóknar- mönnum væntanlega til mikils gleðiauka, opni útibú á staðnum í haust. Útibússtjóri verður Edvard Ragnarsson, núverandi gjaldkeri KASK (Kaupfélags Austur-Skaftfell- inga). Edvard þessi kemur úr stórum systkinahópi. Bræður hans eru m.a. rallkappinn Jón Ragnarsson og fréttamaðurinn vinsæli, Ómar Ragnarsson. .. yrir nokkru var kveðinn upp dómur í Félagsdómi þar sem úr- skurðað var að boðað verkfall gildi jafnt fyrir þá sem eru í viðkomandi verkalýðsfélagi og þá sem standa utan þess. Þessi dómur var kveðinn upp í deilu Stéttarfélags verk- fræðinga og fulltrúaráðs Félags ráðgjafarverkfræðinga. Á verk- fræðistofunum er málurn þannig háttað að flestir verkfræðinganna eru jafnframt hiuthafar. Á einni stofu geta þannig bæði verið félagar í Stéttarfélagi verkfræðinga, menn sem fengið hafa inngöngu í Félag ráðgjafarverkfræðinga, sem er fé- lagsskapur eigenda stofanna og einnig verkfræðingar sem standa utan við bæði félögin, þar sem það er átta ára biðtími eftir að fá inn- göngu i Félag ráðgjafarverkfræð- inga. Stéttarfélagið gerði þá kröfu að allir verkfræðingar sem vinna á stofunum yrðu að hlíta boðuðu verkfalli, hvort sem þeir ættu hlut í stofunni eða væru í Félagi ráðgjafar- verkfræðinga, meðal annars vegna þess að þeir tækju allir laun sam- kvæmt taxta stéttarfélagsins. Full- trúaráðið sem væri hinn raunveru- legi samningsaðili væri skipað af stofunum, en ekki almennum félög- um í Félagi ráðgjafarverkfræðinga Úrskurður Félagsdóms féll á þann veg að þeir verkfræðingar er stæðu utan við bæði félögin yrðu að hlíta verkfallsboðun stéttarfélagsins. Þetta er í fyrsta skipti sem dómur á Norðurlöndunum kemst að slíkri niðurstöðu. Einn dómenda, Jón Þorláksson, vildi ganga lengra og skilaði sérákvæði. Þar segir hann að allir verkfræðingar á stofunum, ut- an stjórn þeirra og þeir sem sæti eiga í fulltrúaráði, eigi að hlíta boð- uðu verkfalli. . . SESins og kunnugt er fékk Jón Sigurðsson, dóms-, kirkju- og við- skiptaráðherra, 6 mánaða leyfi frá Þjóðhagsstofnun um síðustu ára- mót, þegar hann ákvað að skella sér út í pólitíkina. Þórður Friðjóns- son hefur gegnt starfi forstjóra Þjóðhagsstofnunar síðan. Leyfi Jóns rann út í lok júní, en nú heyrist að Jón hafi fengið leyfið framlengt um 2 mánuði. Menn velta því fyrir sér hvort þessi ákvörðun standi í ein- hverju sambandi við endurskoðun á starfsháttum Þjóðhagsstofnunar. . . GEFÐU ÞÉR ^ GOÐANTIMA. ÁÐUR EN ÞU FERÐ ÚRIANDI. Gjafir og glaðningur til vina, ættingja og viðskiptavina erlendis. Afþreyingarefni fyrir ferðina. hefur um áraraðir glatt íslendinga erlendis. Reyndar eru íslensk matvæli löngu orðin annað ogmeira en „þjóðlegsérviska“. Lostæti á borð við hangikjöt, reyktan lax, kavíar og íslenska osta hefur ósjaldan skákað dýrindis réttum á borðum útlandanna. eiga alltaf vel við. Það er sama hvert tilefni ferðarinnar er eða við hvern þú átt stefnumót á erlendri grund. íslenskt handverk ergjöf sem gleður. Glæsilegar gjafír við fíest hugsanleg tækifæri. Einstök landkynning sem gaman er að fletta með áhugasömum lesendum. Blfið og 011 íslenskum fréttum. Tímarit og bækur til aðlesa á leiðinni og í ferðinni. nýjustu dagblöðin með glóðvolgum, ■ Flugstöd Leifs Eirfkssonar, Keflavíkurflugvelli. íslenskt sælgarti nýtur mikilla vinsælda handan hafsins. Þér er óhætt að hafa talsvert magn meðþér - það verður fíjótt að hverfa (stingdu strax undan eftirlætistegundinni þinni.) 36 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.