Helgarpósturinn - 06.08.1987, Page 17

Helgarpósturinn - 06.08.1987, Page 17
miðla. Má ekki ætla að hér sé fyrst og fremst um að ræða endurspeglun á þeim breytingum sem hafa oröið í samfélaginu á síðustu árum? TÍMA EYTT TIL ÖNÝTIS „Islenskt mál er að breytast, beinlínis vegna þess að þeir, sem koma út úr skólum, kunna ekki að orða hugsun sína á íslensku og laga orðfæri sitt að erlendu orðfæri. Tengsl foreldra og barna eru lausari en áður. Börn læra að tala hvert af öðru í dagvistum. Við þetta bætist að skólar slaka á kröfum um kunnáttu í móðurmáli. For- múlan um að börn kunni ekki á óhlutbundin hugtök hefur orðið til að ýta málfræði til hliðar, svipta menn þekkingu á uppbyggingu málsins. í stað þess að auka lestur sígildra íslenskra bók- mennta hefur verið dregið úr honum. Kennarar forðast að ryðja málleysum úr munni barnanna, því þá er verið að „grípa fram í fyrir eðlilegri þróun málsins" eins og sagt er. Nú er komin á vettvang kynslóð íslenzkukennara, sem kann íslenzku illa." Þegar ég tala um málfræði meina ég ekki kennslubók Björns Guðfinnssonar, þótt góð sé. Hér áður fyrr náðu menn góðum tökum á mál- inu með því að tileinka sér orðfæri hinna sígildu bókmennta. Menn lásu fornsögur, lærðu vísur og kvæði. Nú er dekrað við málfar krakkanna sjálfra og þau fá lítt að vita hvað er málfræðilega rétt. Miklum tíma er eytt til ónýtis. Við þetta bæt- ist að farið er að rugla börn með erlendum mál- um áður en þau ná tökum á sínu eigin móður- máli.“ Arnór kveður nauðsynlegt að efla starf í þágu íslenzks máls andspænis þeim erlendu straum- um sem hellast yfir okkur. Hann segir að hnigni móðurmálinu geti orðið erfitt að snúa vörn í sókn. Áður en við Arnór látum af þessu spjalli spyr ég hann hvernig brugðist yrði við ef hann fengi að ráða. KRÖFUR í SAMRÆMI VIÐ GETU „Flest börn byrja nú að sækja skóia 6 ára. Mörg þessara barna þá læs. Samt er 4 árum eytt í að kenna þeim að lesa. Ég myndi skipuleggja kennsluhætti þannig frá 1. til 9. bekkjar að hvert barn fengi verkefni við sitt hæfi. Sum þurfa tíma til að læra að lesa en það á ekki að kenna læsu barni að lesa í 4 ár. Nýta má aðferðir hins ,,opna“ skóla. Skóli á að laga sig að nemandanum. Skóli á einnig að gera þá kröfu til hvers nemanda að hann leggi sig fram til hins ýtrasta. Skóli á að gera ýtrustu kröfur í samræmi við getu og hæfni. Þetta þýðir að árangur verður misjafn. En skólinn verður að sætta sig við það. Til vid- bótar þessu myndi ég breyta inntaki menntunar. Skóli á að varða leið nemenda inn í hugmynda- heim þjóðarinnar að fornu og nýju. Þetta er Ufs- nauðsyn ef við eigum að lifa hér af með okkar tungu og menningu."

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.