Helgarpósturinn - 06.08.1987, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 06.08.1987, Blaðsíða 24
 IÞRÓTTIR eftir Þórmund Bergsson EITT OG ANNAÐ ÚR ÍÞRÓTTUNUM: ÞRENNAR VÍGSIÖDVAR — SÝNING Á SEGLBRETTAÚTBÚNAÐI Á LAUGARVATNI EN ENGINN BYR — ÞJÁLFARAMÁL UNGLINGALANDSLIÐANNA — LEIFTUR EKKERT „SPÚTNIKLIÐ" / dag er rélt bœdi ad hreyta í menn og lofa. Astœdan er engin. Þetta er meira gert uegna þess ad þad er sumar og af mörgu að taka í íþrótta- heiminum sem bœdi má gagnrýna og lofa. Þá er einnigýmislegt sem til- heyrir sumrinu frekar en ödrum árs- tíðum hér á landi sem gaman er að skoða. íþróttir eins og seglbrettasigl- ingar og svifdrekaflug njóta sín í góðri golu að sumarlagi. Golfarar spila sem aldrei fyrr að sumarlagi og eru þá margar hvítar kálur á lofti í einu. Flestar voru þœr á Akureyri um verslunarmannahelgina. Þá má ekki gleyma þeim er hoppa, hlaupa eða stökkua í frjálsum íþróttum og svo knattspyrnumönnum. brettamönnum á Laugarvatni voru þeir ekki þeir einu sem voru án byrs um þessa helgi. íslenska drengja- landsliðið í knattspyrnu tók þátt í Norðurlandamóti drengjasem hald- ið var í Svíþjóð. Að vanda áttu strák- arnir frábæra leiki og voru mun betri en andstæðingarnir en töpuðu samt alltaf nema á móti frændum vorum Færeyingum. Það er farið að verða leiðinlegt að lesa fréttir af frammistöðu íslenskra unglingaliða í knattspyrnu þar sem alltaf er það sama upp á teningnum. íslendingar mun betri en töpuðu samt. Nokkur ár eru síðan íslendingar komust í úrslitakeppni Evrópu- árin. Spurningin er hvort ekki sé ástæða til að breyta til og leyfa öðr- um að spreyta sig. Það er ljóst að hjá A-landsliðinu eru gerðar þær kröfur til þjálfara að hann skili árangri og þessar kröfur eru einnig uppi hjá mörgum félaganna. Á KSÍ ekki að gera þessar kröfur til allra sinna landsliða? Mín skoðun er sú að ástæða sé til að breyta til, þó ekki vegna þess að Lárus Loftsson hafi ekki skilað árangri á við stórþjóðir heldur ein- göngu til að hleypa nýju blóði í starf- semi unglingalandsliðanna og nýj- um hugmyndum í þjálfun og kennslu þessara pilta. Það er ljóst að eiga níu af tíu liðum möguleika á 1. deildarsæti. Það er ótrúlegt. Þessi staða kom upp þegar Víðismenn fóru upp í 1. deild. Sá kjarni leik- manna sem nú spilar í Víðisliðinu spilaði þá með liðinu og hafði spilað í mörg ár. Þetta var og er samheld- inn hópur þar sem allir spila fyrir alla. Svona lagað kemur fyrir á litl- um stöðum úti á landi einu sinni á fimmtán til tuttugu ára fresti. Góður fótboltaárgangur. Þessi staða er hugsanlega að koma upp hjá Leiftri á Ólafsfirði. Liðið er nú í efsta sæti í 2. deild og hefur gjarnan verið kallað „spútnik- lið“ deildarinnar. Leikmenn liðsins ir að virðast ekki nema í 70—80% æfingu slær Hilmar nánast öllum varnarmönnum í 2. deild við. Fyrir mánuði virtust Víkingar vera búnir að vinna 2. deildina á af- ar auðveldan hátt. Liðið hafði um tíma verulegt forskot og 1. deildin blasti við. En skjótt skipast veður í lofti. Víkingar léku nánast alla leiki sína í fyrri umferð á heimavelli en þegar á reyndi og þeir þurftu að ferðast fór að halla undan fæti. Liðið hefur tapað síðustu leikjum sínum og „móraH'1 leikmanna virðist á undanhaldi þrátt fyrir Sedov. Vík- ingar eru nú í 3.-5. sæti ásamt Sel- fyssingum og Þrótturum. Selfyssing- SVÍFUM SEGLUM ÞONDUM... Ein er sú íþrótt sem gripið hefur hug minn allan þetta sumarið. Segl- brettasiglingar. Það er hreint ótrú- Iega gaman að skjótast eftir vatninu á góðu bretti og notfæra sér það sem nóg er af á íslandi, vatn og vind. Seglbrettasiglingar eru annars fyrirbæri sem skemmtilegast er að stunda við suðrænar strendur í sumri og sól. Um verlunarmanna- helgina fékk ég þó, eins og margir aðrir „seglbrettakappar", smásýnis- horn af þeirri tilfinningu. Á Laugar- vatni stóð til að halda á laugardag- inn seglbrettakeppni og voru því mættir á staðinn allir helstu kappar segibrettanna og svo auðvitað ég. Eins og þeir landsmenn sem nutu gæða náttúrunnar þessa helgi vænt- anlega vita bærði varla vind við sunnanvert landið svo ekkert varð úr mótinu. Þetta kom ekki í veg fyrir að seglbrettakapparnir, að mér meðtöldum, tjölduðu öllu því fín- asta sem til er í íþróttinni og nú á ég eingöngu við útbúnaðinn. Að vera á Laugarvatni þennan yndisfagra laugardag var líkt og að vera á vörusýningu. Menn eyddu góðum tíma við seglin sín og tóku til fleiri en eina stærð af brettum svona til að sýna að maður væri við öllu búinn ef gerði byr. Þarna voru menn í þurrbúningum og blautbúningum í öllum regnbogans litum. Með „harness" (mittisbeisli) af öllum gerðum og í svo mörgum og skær- um litum að glóði á í sólinni. Brettin og seglin eru fagurlega skreytt svo minnir á suðrænar strendur og lit- irnir sem þarna birtast minna á upp- ljómað tívolí. Menn voru svo stoltir af bretti sínu og segli að flögg voru dregin að húni til að minna á vöru- merkin. Ég var auðvitað með Tiga- bretti og Neil Pryde-segl sem þykir gott en þarna voru einnig HiFly, Fanatic, Klepper, Sailboard og Surf- partner að ógleymdum vini mínum með Sodim-brettið sem hann Valdi átti einu sinni. Seglin voru frá North, Gaastra og Neil Pryde auk annars. Þarna voru regnhlífar merktar Hi- Fly og hinum og meira að segja voru menn með gleraugnaólar merktar í bak og fyrir. Svo röltu menn á milli bretta og könnuðu ugga, kili og mastursfestingar. Spurðu um litra- stærð — en bretti eru gjarnan mæld í lítrum að rúmmáli — og hugðu að lögun og lit. Sannarlega suðræn stemmning á' Laugarvatni en því miður enginn byr svo heitið gæti og þeir allra svöl- ustu, og ég, sigldum auðvitað bara á stuttbuxunum einum fata — rétt eins og við værum í Kaliforníu. Um kvöldið byrjaði þó að rigna. ENGINN BYR Þó það vantaði byrinn hjá segl- ■HHnnnna»gnma keppninnar og á undanförnum ár- um hefur frammistaða okkar manna ekki verið til að hrópa húrra fyrir. Landsliðið skipað piltum undir 18 ára gerði það gott í Danmörku í vor og vonir voru bundnar við liðið. Því miður töpuðust síðan tveir heimaleikir í sumar og þar með er það ævintýri úti. í viðureign pilt- anna við Belga tapaðist leikurinn á 10 mínútum — síðustu 10 mínútum leiksins. Nú er spurningin hvað er að ef eitthvað er að. Það hefur verið nokkuð Ijóst í gegnum árin að við íslendingar eig- um pilta er sem einstaklingar eru engu síðri en leikmenn þeirra er- lendu þjóða er við etjum kappi við. Þetta kom greiniiega í Ijós í viður- eigninni við Belga. Hins vegar erum við að því er virðist örlítið á eftir hvað varðar aðra liði. Þá er þetta orðin spurning um tíma, þjálfun og aðstöðu. Þjálfun íslensku unglinga- landsliðanna hefur verið í höndum sama mannsins um árabil, Lárusar Loftssonar. Til að byrja með var árangur þokkalegur en lítlll síðari árangur skiptir okkur máli þegar komið er á þennan aldur en fyrir mestu er að piltarnir fái þá leiðbein- ingu sem getur nýst þeim á síðari ár- um er þeir ganga upp í meistara- flokk og hugsanlega A-landslið. Þá þarf að koma til mun meiri kennsla á vegum KSÍ til handa ungl- ingum í formi knattspyrnuskóla og námskeiða fyrir þjálfara svo upp- bygging unglingaknattspyrnunnar í landinu verði markvissari og betri. Ánægjulegur er þó við þróun ungl- inga- og drengjalandsliða á undan- förnum árum fjöldi leikmanna utan af landi sem koma til þátttöku í æf- ingum og leikjum landsliðanna. Efniviðurinn er alls staðar — það þarf að finna hann og móta af rétt- um og faglegum höndum. SUÐUPOTTURINN Það er á allra vörum hversu spennandi keppnin í 1. deild karla á íslandsmótinu í knattspyrnu er, en það hefur hugsanlega farið framhjá mönnum hversu kepprii í 2. deild er spennandi. Þegar sex umferðir og einum leik betur eru eftir í deildinni hafa spilað saman um áraraðir og undanfarin ár verið í 2. eða 3. deild. Það skal þó haft í huga þegar talað er um „spútniklið" deildarinnar að Ólafsfirðingar eru eina liðið í 2. deild ásamt nágrönnum sínum Sigl- firðingum sem spilar á malarveili. Liðið er nú með 20 stig í deildinni og af þeim hafa 16 unnist á heirnavell- inum. Allt sigrar utan viðureignin við Selfoss um síðustu helgi sem lauk með jafntefli. Öll liðin í 2. deild æfa allt sumarið á grasi og spila sína leiki á grasi nema á Ólafsfirði — og Siglufirði. Þetta segir svolítið um árangur Ólafsfirðinga — sem þó er á engan hátt lítill. „Spútniklið" 2. deildar er því ÍR, sem á nokkrum árum hefur farið úr 4. deild og upp í 2. deild og trónir nú á toppnum ásamt Ólafsfirðingum. Liðið hefur enn yfir að ráða flestum þeim leikmönnum sem unnu að þessu afreki nema auðvitað Tryggva Gunnarssyni markahróki. ÍR hefur þó innan sinnan vébanda annan markahrók sem unnið hefur leiki algjörlega upp á eigin spýtur, en það er Heimir Karlsson. Þrátt fyr- ar byrjuðu deildina illa en hafa sótt sig verulega að undanförnu og unn- ið hvern leikinn að undanförnu og nú síðast gerði liðið jafntefli á Ólafs- firði þrátt fyrir að vera manni undir um tíma í síðari hálfleik. Selfyssing- ar leika reyndar gjarnan vel einum færri því liðið vann Vestmanney- inga létt á Selfossi um daginn þrátt fyrir að þeir væru aðeins 10 allan síðari hálfleik. Þróttarar eru á sigl- ingu sem enginn bjóst við af þeim. Liðinu var spáð hrakförum í vor og því komu leikmenn liðsins afslapp- aðir til keppni í vor og það hefur skilað árangri að spila án pressu. Reyndar hefur liðið einnig fengið jólagjafir eins og önnur lið — svo sem á móti Selfyssingum á Laugar- dalsvelli — en það fá öll liðin í deild- inni einu sinni á sumri. Þó þetta virðist Iíklegustu liðin til að spila í 1. deild að ári má ekki gleyma Eyjamönnum, Blikum og Einherjum, sem með einum sigri geta skotist á toppinn og þaðan af lengra. Hver leikur í 2. deild eftir þetta er úrslitaleikur. 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.