Helgarpósturinn - 06.08.1987, Blaðsíða 34

Helgarpósturinn - 06.08.1987, Blaðsíða 34
saga eftir hinn kunna breska rithöf- und Jeffrey Archer en hann hefur skrifað meðal annars bækurnar Kain og Abel og Fyrstur meðal jafningja (First Among Equals) auk þess sem hann er fyrrverandi varaformaður breska íhaldsflokksins. Það er Ragn- heiður Vigfúsdóttir sem þýddi sög- una en lesari er Halldór Björnsson. Sunnudagur 9. ágúst kl. 20.40. Ekki til setunnar boðið. Umsjón með þessum þætti hefur Inga Rósa Þóröardóttir en hann er frá Egils- stöðum. Laugardagur 8. ágúst. Það er þátturinn Fram að fréttum sem er á dagskrá klukkan 11.00 sem heillar en hann er í umsjá frétta- manna útvarpsins. Það er eins gott að maður verði vaknaður. Hinn þátt- urinn sem heillar mig er einnig á dag- skrá á laugardaginn og þá fyrir kvöldfréttir. Það er þátturinn Við grillið og er það Helgi Pétursson sem verður kokkur að þessu sinni. Það er aldrei að vita nema Helgi bjóði upp á lappneska rétti enda munu þeir vera færir kokkar þar. BYLGJAN, Það sem er athyglisverðast á dag- skrá Bylgjunnar er að nýr stjórnandi er kominn að Reykjavík síðdegis og er það enginn annar en Stefán Benediktsson fyrrverandi þingmað- ur Bandalags jafnaðarmanna sem tekur við af Hallgrími Thorsteinssyni og verður fróðlegt að fylgjast með frammistöðu hans á þessum vett- vangi. A FM 102,2 Dagskrá Stjörnunnar er komin í eðlilegt ástand eftir verslunar- mannahelgina og allt umstangið sem henni fylgdi. Það eru engir nýir og spennandi dagskrárliðir á dag- skrá og sama fólkið er við stjórnvöl- inn og endranær. Það er einna helst að hægt sé að benda fólki á að hlusta á tónleikana sem eru á dagskrá á fimmtudagskvöldið eins og venju- lega en það er hljómsveitin Pretend- erssem gleðureyraðá milli 23.15 og 00.15. DAGSKRÁRMEÐMÆLI Föstudagur 7. ágúst kl. 22.40 Ást í Þýskalandi (Eine Liebe in Deutschland). Hún gerist í stríðinu þessi og eru aðalhlutverkin í hönd- um Hönnu Schygulla og Pyotr Lysac. Myndin fjallar um pólskan stríðsfanga sem verður ástfanginn af þýskri konu og lýsir myndin sam- bandi þeirra. Laugardagur 8. ágúst kl. 21.25. Fundið fé (Blue Money). Bresk gamanmynd sem fjallar um leigubíl- stjóra sem finnur tösku fulla af pen- ingum í bíl sínum. Eins og venjulega eru það einhverjir vafasamir náung- ar sem eiga peningana og hafa þeir mikinn áhuga á að endurheimta þá. Aðalhlutverkið er í höndum Tim Curry. Á eftir gamanmyndinni verða hláturkirtlarnir hvíldir og tauga- spennan tekur við. Myndin heitir Leiktu Misty fyrir mig (Play Misty For Me) og segirfrá ungri stúlku sem verður yfir sig ástfangin af plötu- snúði og svífst einskis til þess að krækja í hann. Það er enginn annar en Clint Eastwood sem leikur snúð- inn eftirsótta og merkilegt nokk ferst honum það bara vel úr hendi. Sunnudagur 9. ágúst kl. 20.55. Allt er vænt sem vel er grænt. Það er alveg tilvalið að horfa á þennan þátt þegar menn eru búnir að skófla í sig fjallalambinu fræga en hann fjallar um nauðsyn þess að borða grænmeti í stórum stíl. Það erSigrún Stefánsdóttir sem sér um þáttinn. STOD TVO Fimmtudagur 6. ágúst kl. 22.10. Eldur í æðum (The Burning Bed). Bandarísk sjónvarpsmynd frá árinu 1984 með Farrah Fawcett í aðalhlut- verki. Þetta er mynd byggð á sann- sögulegum atburði og segirfrá konu einni sem þarf að lifa við barsmíðar eiginmanns síns. Þegar hún leitar eftir aðstoð hjá ættingjum og vinum vilja þeir ekkert blanda sér í málin. Yfirvöld voru líka treg til aðstoðar og að lokum fer svo að hún grípur til ör- þrifaráða. Þessi mynd var mjög um- töluð þegar hún var fyrst sýnd í Bandaríkjunum og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Föstudagur 7. ágúst kl. 23.50. Á faraldsfæti (Three Faces West). Þaö er enginn annar en sjálfur „Cleastwood" sem leikur aöalhlutverkiö í laugardagsmynd ríkissjónvarpsins og aldrei þessu vant leikur hann ekki hörkutól í leit að hefndum heldur bregöur hann sér i hlutverk plötusnúös sem sætir ofsóknum ungrar stúlku. Á fimmtudaginn verður sýnd á Stöð tvö mynd um lú- barða eiginkonu sem á einskis annars úrkosta en losa sig viö manninn sinn á óvenjulegan hátt þegar henni eru all- ar bjargir bannaöar. Þaö er Farrah Fawcett sem leikur húsmóöurina. Það eru tvær gamlar kempur sem fara með aðalhlutverkin í þessari mynd, þeir John Wayne og James Coburn. Myndin segir frá fjölskyldu sem flýr Þýskaland Hitlers og sest að í Bandaríkjunum en þar fær hún ekki að vera í friði. Laugardagur 8. ágúst. Dagskráin er nokkuð góð eftir fréttir og er það enginn annar en Bubbi Morthens sem ríður á vaðið. Þetta er viðtal við hann og einnig flytur Bubbi nokkur lög. Þar á eftir koma fjórar myndir í röð og ætla ég að mæla sérstaklega með tveim þeirra. Örið (The Scar) segir frá glæpamanni sem uppgötvar tvífara sinn og er sá virtur sálfræðingur. Hann reynir að notfæra sér þessa til- viljun í vafasömum tilgangi. Aðal- hlutverkið er í höndum Paul Henreid og Joan Bennett. Síðasta mynd kvöldsins er svo myndin Landamær- in (Border). Jack Nicholson fer með aðalhlutverkið og leikur hann landa- mæravörð sem gegnir skyldum sín- um við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Ýmis atvik koma upp sem verða til þess að hann þarf að velja á milli föðurlandsins, tryggðar í starfi og mannlegra tilfinninga. 'Þessi mynd er bönnuð börnum. © Laugardagur 8. ágúst kl. 22.20. „Kínverska styttan". Þetta er sn ALLT ER VÆNT SEM VEL ER GRÆNT Á sunnudagskvöldið verður Sigrún Stefánsdóttir fréttamaður með þátt í Ríkissjónvarpinu sem fjallar um grænmeti og neyslu þess. „Það er ætlunin að reyna að fjalla um grænmeti á jákvæð- an og örvandi hátt,“ sagði Sig- rún. „Ég fæ til liðs við mig tvo kokka, þá Hilmar B. Jónsson og Brynjar Eymundsson. Þeir munu búa til gómsæta grænmet- isrétti, t.d. forrétti, og einnig verður sýnt hvernig má skreyta mat með grænmeti. Ég mun einnig ræða við bændur og nær- ingarfræðing og gerð verður grein fyrir því hvaða grænmeti er hægt að rækta hér með góð- um árangri. Við erum í þessum þætti að reyna að fá fólk til þess að borða meira grænmeti enda er víst ekki vanþörf á því, við stöndum nágrannaþjóðum okk- ar langt að baki hvað þetta varð- ar. áá ÚTVARP Með eins gleraugu SJÓNVARP eftir Friðrik Þór Guðmundsson Sadismi fyrir börnin Útvarp, þessi skemmtilegi miðill, iíður fyrir það að flestir útvarpsmenn hafa kom- ið sér upp sams konar gleraugum. í gegn- um þau sjá þeir fyrir sér þarfir hlutstenda og af því gleraugun eru öll með sama styrk- leika virðast þeir allir hafa það sama fyrir augunum. Eða eins og Vilmundur Jónsson, landlæknir, sagði einu sinni suður í Kefla- vík, þegar hann þurfti að fá mann til að skrifa undir samning sem hann var ekki sáttur við: „Taktu gleraugun mín, þú sérð hlutina þá í réttu ljósi.“ Og viðkomandi skrifaði undir. Ríkisútvarpið, útvarp allra landsmanna, eins og þeir kjósa að kalla sig þegar eindagi afnotagjalda er í nánd, auglýsti sig sérstak- lega fyrir verslunarmannahelgina. Og eins og aðrir sem hafa eitthvað að selja auglýsa þeir það sem talið er að almenningur kaupi. Þeir auglýstu lifandi verslunarmanna- helgi. Slagorðið sjálft gefur tilefni til orða- leikja og stríðni, að ekki sé talað um plast- pokana, sem þeir dreifðu, og á er prentað hið spaklega slagorð „Mundu mig...“ Hvort tveggja barnalegt og flatt rétt eins og hlust- endur séu fífl. En í auglýsingunni leggja þeir áherslu á „hressa þætti" og virðist efn- ið allt vera gírað inn á þennan tuttugasta part þjóðarinnar, sem kýs að vera úti við og í bíl um þessa mestu ferðahelgi sumarsins. Uppskriftin er einföld: Símaviðtöl og létt popp-lög. Ég hef ekki séð auglýsta þætti eins og þátt Friðriks Páls Jónssonar, sem yfirleitt er góður, eða spjailþætti Ingu Rósu Þórðar- dóttur frá Egilsstöðum, fyrirtaksþætti seint á kvöldin. Bæði reyna að spjalla við venju- legt fólk, sem hefur eitthvað að segja frá — fólk sem miðlar af reynslu sinni og tekur þátt í útvarpsleiknum á eigin forsendum. Þetta kjósa þeir hjá Ríkisútvarpinu að aug- lýsa ekki. Raunar skil ég ekki af hverju. Menn virðast eiga erfitt með að lesa í línu- rit. Verslunarpoppið nær aldrei meira en tæplega tíu prósenta hlustun, ef marka má tíðar hlustendakannanir. Og skiptir þá engu hver stöðin er. Ríkisútvarp á að gefa tóninn í útvarps- málum. Ekki elta uppi smáfyrirtæki í út- varpsrekstri og ef menn þjást af vanmeta- kennd, þá eiga þeir að gera eitthvað í mál- inu og ekki auglýsa vanmetakenndina með „mundu mig-plastpokum“. Við gerum meiri kröfur til Ríkisútvarpsins. í sjálfu heit- inu felst að RUV er skylt að miða við marg- brotið samfélag — fjölbreyttan hlustenda- hóp og því ættu forráðamenn stofnunar- innar að leggja frá sér gleraugu „popp- stöðvanna" og virða fyrir sér útsýnið frá öðrum punkti. Ríkisútvarpið á ekki að skoða heiminn úr kjallara borgarvirkisins. Mér finnst sem dagskrá Stöðvar tvö hraki. Mér sýnist á öllu að dagskrárdeildin kaupi „pakka" frá Bandaríkjunum sem inniheldur sambland af margvíslegu efni sem Kanar hafa verið ginkeyptir fyrir. Sömu Kanar og gagnrýna t.d. skandinav- ískar myndir og segja þær einkennast af þunglyndi sitja starfir fyrir framan væmn- ustu kvikmyndir veraldarsögunnar. Ég bíð spenntur eftir að sjá í dagskrá Stöðvar tvö kvikmynd sem gæti heitið Táradalur. Þetta gæti verið hinn dæmigerði söguþráður: Einstæð og hreyfihömluð móðir vangefins barns gerist kennari og á vingott við nem- anda sinn. Faðir barnsins er blindur og yfir- gaf fjölskylduna eftir að hafa kynnst mál- lausri stúlku. Sú á í miklu sálarstríði vegna systur sinnar, sem liggur í dái eftir bílslys sem hún lenti í í geðshræringu eftir að hafa gerst leigumóðir og látið barn sitt frá sér og sá eftir. . . í pakka þessum er að finna gamla og vonlausa framhaldsþætti á borð við Flugu- menn og Lúsí Ball. Eitthvað má þó finna í þessum þáttum til að réttlæta sýningu þeirra. Ekki er hins vegar með nokkru móti hægt að finna snefil af réttlætingu þegar kemur að fjölbragðaglímunni — Wrestling. í upphafsþáttunum var piltsgrey fengið til að reyna að lýsa því sem þar fór fram, en fljótlega var gefist upp á því og reynt að þýða í staðinn. Að vísu eru slags- málin í glímu þessari sett á svið að mestu leyti og því allt í plati, en ofbeldið er á hinn bóginn yfirþyrmandi og með eindæmum sadískt. Kannski má finna einhverja ribb- alda sem hafa gaman af þessu og hygg ég að þeir myndu þá glaðir bíða til klukkan eitt eftir miðnætti og horfa á skepnuskap- inn þá. En af einhverri óskiljanlegri ósmekkvísi kýs Stöð tvö að sýna viðbjóð- inn síðdegis á sunnudögum — á besta tíma barnanna. Þetta er mér hulin ráðgáta. Sem betur fer er ekki allt alvont sem í pakkanum er og því hika ég enn um sinn við að selja afruglarann. Þannig sat ég sem límdur yfir réttarhaldsþáttunum um Oswald og morðið á Kennedy. Þar tókust tveir af færustu lögfræðingum vestursins á um hvort Oswald væri hinn raunverulega seki tilræðismaður eða hvort fleira héngi á spýtunni. Ekki kom sektarúrskurður kvið- dómsins á óvart þótt verjandi Oswalds væri hreint afburða góður í „hlutverki" sínu. Þessir þættir voru ef til vill svona góð- ir þar sem um raunveruleikann var að ræða, ekkert handrit var til. „Söguþráður- inn“ var samt ótrúlega spennandi, enda eru lygilegustu sakamálin þau sem raun- verulega gerast. Á hinn bóginn var þýðingin á þáttum þessum afleit og var t.d. ekki haft fyrir því að hafa nöfn vitna rétt heldur þýtt eftir eyr- anu. Sem er ekki einsdæmi því þýðingar á Stöð tvö eru á köflum hreint hræðilegar og óskiljanlegar. Hvernig er t.d. hægt að þýða 'Thursday sem miðvikudagur? 34 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.