Helgarpósturinn - 22.12.1987, Qupperneq 2
Hefur þú óþæg
börn í matinn,
Grýla?
„Síðuren svo. Ég hef verið sökuð um ýmiss konar ótukt-
arskap, en ég er bara venjuleg kerling. Ég hef gaman af nýj-
um kjólum og rauðum ástarsögum og lottó og Dallas. Karl-
inn er alltaf að horfa á ensku knattspyrnuna. Þannig að það
er helber lygi að ég sé ófreskja sem tekur óþæg börn sem
æpa og hrína og að ég hirði þau og hafi til bíslags handa
mér og bónda mínum. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að
bera til baka þærfregnir að ég borði mannaket á jólunum.
Langt í frá, við borðum helst rjúpur, en ég var að hugsa um
að hafa kalkún í þetta sinn. Magállinn og sperðlarnireru lið-
in tíð, minn góði. En ekki ætla ég að sleppa laufabrauðinu
og grjónagrautnum með sírópi."
Hvað með blessuð börnin þín, jóiasveinana. Eru þeir
13 eða einn og átta?
„Þeir eru auðvitað 13, annað er bábilja upp úr tröllum og
huldufólki. Þeir hafa, greyin, verið sakaðir um að setja hráar
kartöflur í skó keipóttra og skælóttra barna og jafnvel að
stela kertum, bjúgum, pönnum, öskum og skyri. Meira að
segja er einn sona minna sakaður um óeðlilegar hvatir með
því að hann horfir stundum inn um glugga fólks. Og köttur-
inn minn hefur ekki heldur fengið frið fyrir slefberunum!"
Áttir þú engar stelpur?
„Jú og þær margar. Og skegglausar. Þær giftust allar
heldri mönnum eftir húsmæðraskólanám."
Finnst þér jólahald mannanna hafa breyst mikið?
„Það máttu bóka, minn kæri. Áður fyrr mátti aldeilis
hreint ekki spila og leika sér á aðfangadagskveldi og jóla-
dag, hvað þá dansa. Jólalestur var hafinn á slaginu klukkan
6 á aðfangadag, en nú orðið er helst hlustað á Ladda eða
Bjössa bollu. Undantekningarlaust fóru menn í messu, en
nú eru undantekningarnar margar og frekar að Kringlan
dragi að en kirkjan. Eitt hefur ekki breyst, en það er þessi
furðulegi siður að draga inn í húsin blásaklaus grenitré og
vanvirða með glingri. Mér þætti gaman að vita hvaða mað-
ur það eiginlega var sem tók upp á þessari vitleysu. Hverj-
um dytti til dæmis í hug að höggva niður og bera inn til sín
grenitré um hvítasunnu? Slíkum manni yrði umsvifalaust
varpað á geðveikrahæli."
Hvar búið þið annars?
„Ég Ijóstra ekki upp um staðsetninguna, en við búum í
600 fermetra einbýlishúsi með Sauna-baði og sólstofu. Við
fáum prósentur af jólasölu kaupmannanna og erum vell-
auðug eins og skiljanlegt er. Með tilliti til nýju tollalaganna
var ég að skrifa undif nýjan samning til að koma í veg fyrir
kaupmáttarrýrnun. Ég er sko ekki í stéttarfélagi, góði. Fæ
ekki heldur inngöngu í Vinnuveitendasambandið. Ég er þó
í kvenfélagi og Leppalúði er í Oddfellow."
Hvað ætlar þú að gefa honum í jólagjöf?
„Ég var að hugsa um að gefa honum fótanuddtæki. Ég
þarf bara að komast að því hvort það truflar sjónvarpið. Ef
svo er þá gef ég honum heldur nýja inniskó. Þeir gömlu eru
alveg hættir að einangra táfýluna."
Og hvað heldurðu að hann gefi þér?
„Brittannica encyclopaedial Nei, það erfrágengið. Ég fæ
á myndböndum alla Dallas-þætti sem framleiddirhafa ver-
ið. Eitthvað fær maður þá að gera fram að næstu jólum."
Ein er sú kerling sem næstum allir virðast sammála um að sé bæði
Ijót og illgjörn. Það er hún Grýla. Jólasveinarnir synir hennar bera
þó til baka allar sögur um að mamma þeirra sé eitthvað öðruvísi
en aðrar mömmur. Þeir fullyrða meira að segja að Grýla þrái ekkert
heitar en geta sest niður í ró og næði og horft á Dallas, Dynasty
og 19.19. Þeirsegja meira að segja aðhún hafifengiðsér myndlykil
fyrst allra og dundi sér við sjónvarpsgláp meðan hún bakar smá-
kökurtil jólanna. Við náðum sambandi við Grýlu ífarsímann henn-
FYRST OG FREMST
ÁGREININGUR um stefnur og
stefnumál heyrir nú til liðinni tið
hér á Fróni eins og menn munu
hafa orðið varir við. Þótt allt lógi í
misklíð, svo að liggi við handa-
lögmálum, er það síður en svo
fréttnæmt, þar sem aðeins er um
að ræða „mismunandi áherslur“.
Eftir landsfrægan margra mánaða
skæruhernað, sem lauk með
landsfundi Alþýðubandalagsins,
féll allt í ljúfa löð að sögn forystu-
manna þótt „auðvitað hefðu
komið þar fram mismunandi
áherslur". Einna lengst tókst
Hjörleifi að teygja úr orða-
leppnum, þegar hann sagði í
viðtali við Morgunbladid nokkrum
dögum eftir að hann hljóp heim af
fundinum með hurðaskellum til að
lesa Gunnlaðarsögu, að hann
hefði auðvitað viljað sjá „aðrar
áherslur í vali forystumanna
flokksins".
Hvenær fáum við að sjá, að
heimsstyrjaldirnar tvær hafi
orsakast af áherslumun ráða-
manna herveldanna.
FRÁ NÓVEMBER 1986 tii
sama mánaðar 1987 hækkaði
vísitala framfærslukostnaðar um
23,1%. Sumar vörur og þjónusta
hækkuðu þó allverulega umfram
þetta. Þannig hækkaði afnotagjald
útvarpstækis um 148%, afnota-
gjald sjónvarps um 64%, áskriftar-
gjald Stöðvar 2 um 32%, bíómiðar
um 70% og miðar í Þjóðleikhúsinu
um 40%. Ef söluskattur á matvæli
kallast matarskattur hlýtur þetta
að teljast augna- og eyrna-
skattur. . .
FRÆÐINGAR landsins eru
duglegir og reikna tölur, finna
meiri hagkvæmni, ekki síst við
nýtingu jarðvarmans. Nú hefur
verið lögð til nýting jarðgufu í
fiskmjölsverksmiðjum landsins og
sparaður gjaldeyrir vegna
notkunar á 60—70 þúsund tonn-
um af svartolíu, um leið og þess-
um verksmiðjum yrði fækkað, en
tvær stórar byggðar í staðinn við
Húsavík og Grindavík. Alls 38
slíkar verksmiðjur eru um land
allt og menn sammála um að þær
séu allt of margar. En hvers mega
sín hagkvæmnifræðingarnir þegar
byggðastefnan er annars vegar. . .
MIÐALDRA hjón áttu leið um
Skólavörðustíginn um daginn og
eftir nokkurra klukkustunda búða-
ráp fengu þau sér kaffi á Mokka.
Frúin andvarpaði er hún leit á
listann yfir jólagjafainnkaupin og
sagði við mann sinn: „Ættum við
ekki bara að gefa hvort öðru nyt-
samar gjafir? Slifsi og pelsa og
svoleiðis ...?“■
PRESTUR nokkur í Reykjavík
ekur um bæinn með límmiða í aftur-
'rúðunni, en á honum stendur ,,X-D.
A réttri leið." Klerkurinn er raunar
yfirlýstur stuðningsmaður
Sjálfstœðisflokksins, svo stuðnings-
yfirlýsingin við flokkinn ætti
auðvitað ekki að koma neinum á
óvart. Maður hélt hins vegar
svona einhvern veginn að presta-
stéttin notaði annan vegvísi á
„rétta leið“ en X-D. Nema þá að D
standi fyrir Drottin?
í MIÐJU jólabókaflóðinu birtist
skyndilega sérprentun úr riti
Framtíðarkönnunar er nefnist
„Fjárhagur hins opinbera til ársins
2010.“ Þar kemur meðal annars í
ljós að okkar blessaða ,,bákn“ er
bara alls ekki svo viðamikið. Ef
t.d. hlutfall opinberra starfsmanna
af mannaflanum væri eitthvað
svipað hér og á hinum Norður-
löndunum væru hinir opinberu
ekki í kringum 19.000 talsins —
heldur 29 þúsund. Og ef tekjur
ríkisins sem hlutfall af landsfram-
leiðslu væru hér svipaðar og þar
hljóðuðu fjárlögin ekki upp á
nálægt 65 milljörðum króna,
heldur upp á tæplega 100
milljarða...
JÓLASTEMMNINGIN er
greinilega afar smitandi. Við
fréttum það hjá íslenskum manni,
sem var í Singapore fyrir tíu
dögum, að þar í borg væru jóla-
sveinar, hreindýr, snjókarlar og
annað tilheyrandi skraut bókstaf-
lega upp um alla veggi. í mið-
borginni er t.d. jólasveinn, sem er
jafnhár fjögurra hæða húsi, og
dráttardýr í sömu stærð. Sagðist
maðurinn aldrei hafa séð annað
eins — ekki einu sinni í New York,
sem þó þykir ekki beinlínis
fátæklega skreytt fyrir jólin. Það
skondnasta við þetta allt saman er
hins vegar sú staðreynd, að í
borginni fyrirfinnst vart nokkur
kristinn maður!
FANGAR á Litla-Hrauni ku
margir farnir að stunda mennta-
skólanám á meðan á fangelsis-
vistinni stendur, ef marka má
nýlegar fréttir. Maður veit þá sem
sagt hvað klukkan slær, þegar
einhver segist vera við nám í
MLH.
HELGARPÚSTURINN UMMÆLIVIKUNNAR
Bráðum koma Bráðum koma blessuð jólin, „Ríkisstjórnin hefur fyrir sitt leyti boðist til að aflétta söluskatti af neyslufiski
bráðum þarftu að gera skil. almennings."
Fyrir það sem þér var lánað, þetta greiðslutímabil. ÞORSTEINN PÁLSSON, FORSÆTISRÁÐHERRA í SJÓNVARPSVIÐTAU
Niðri
2 HELGARPÓSTURINN