Helgarpósturinn - 22.12.1987, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 22.12.1987, Blaðsíða 7
„...þegar forráðamönnum þessa mesta stórveldis hnattarins fannst vá fyrir dyrum, ef þessi litla stúlka frá íslandi kæmist í gegnum nálarauga landvarn- anna," sagði Sigurður Nordal í minningargrein um Nínu 1968. Mulningsvél McCarthys reyndi aö mala Nínu Tryggvadóttur Nína. Nína Tryggvadóttir, stelpa fœdd á Seyöisfiröi 1913. Flutti til Reykjavíkur og gekk í Kvennaskól- ann. Hneigd til aö teikna. Frœndi hennar Asgrímur Jónsson sagöi henni til. Foreldrar frjálslynt borg- aralegt fólk i íhaldssömu umhverfi, sem þó lögdu engar hömlur á þroska stúlkunnar sinnar: ,,Eflaust hefdu þau kosid aö ég veldi mér eitthvad hagnýtara, fœri í húsmœdraskóla, en þau lögdust aldrei á móti því að ég lœrdi ad mála, hjálpuöu mér eftir megni." Hvernig átti þau að gruna, að samkvœmt skeytum frá ameríska sendiráðinu á Islandi haustið 1948 yrði Nína sett í fangelsi í landi frelsis- ins, stíað frá nýfundnum ástvini sín- um og neydd til að setjast að erlend- is um 5 ára skeið. Eins og sjómönnunum tjáum við listinni ást okkar á tyllidögum, en þess utan viljum við helst ekki kann- ast við þetta lið, sem sækir hennar sjó. Það er vakið máls á því þessa dag- ana, að „vissir aðilar séu að velta sér upp úr því að sverta minningu lát- inna manná'. Hér munum við ekki velta okkur upp úr neinu, heldur segja staðreyndir, hverjum, sem þær koma betur eða verr. Nína var ekki einangruð. Nína var í hópi þeirra boðflenna, sem sátu í Unuhúsi lon og don í góðu yfirlæti og húsráðendum að meinalausu. Margir þeirra voru kommúnistar. „Þá sátu allir spekingarnir við kaffi- borðið og skeggræddu um bók- menntir, listir og heimsmál. Þetta var um minn tíma: músík, listir, ljóðalestur, kaffi og meira kaffi...“ sagði Nína í viðtali við Matthías Johannessen. Öllum ber þeim þó saman um að Nína hafi verið óflokksbundin og ópólitísk nema í þeirri veru, að hún hafi haft skoðan- ir á hlutunum, hverjum og einum út af fyrir sig. „Það, sem gildir, er að þora, fara allar leiðir, líka ófærur," sagði hún sjálf. „Hún var stundum merkilega þrjósk," sagði Halldór Kiljan Laxness í samtali við greinar- höfund sl. sunnudag. FLJÚGANDI FISKISAGA Nina leitaði víða fanga. Eftir langa dvöl í ýmsum Evrópulöndum dvald- ist hún í New York 1943—46 með ferðastyrk frá menntamálaráði upp á vasann. Þar stígur hún sín fyrstu spor til alþjóðlegrar viðurkenning- ar. Hún fer heim og heldur sýningu. Næstu tvö árin „vann Nína fyrir sér með kennslu í þremur barnaskólum samtímis, en sem fyrr er hún á hrak- hólum með vinnuaðstöðu. Hún mál- ar í hálfbyggðu húsnæði þar sem hún flytur sig úr einu herberginu í annað, eftir því sem vinnunni miðar áfram. Það er líka á þessum árum sem hún, vegna húsnæðisleysis, snýr sér að því að skrifa og mynd- skreyta barnabækur og á árunum 1946—48 koma út eftir hana þrjár bækur: Sagan af Svörtu gimbur, Kötturinn sem hvarf og hin örlaga- ríka Fljúgandi fiskisaga". Að sögn Auðar Laxness gaf Ragn- ar í Smára allar þessar bækur út til að drýgja tekjur Nínu, en svo ein- kenniíega vill til að á eintaki Auðar er álímdur miði, sem kveður sjó- mannadagsráð standa að útgáfunni, en í öðrum eintökum af bókinni er enginn útgefandi tilgreindur. Ekkert útgáfuár er tilgreint á bókinni, en samkvæmt bók Hrafnhildar Schram um Nínu var hún gefin út 1948. Að auki gaf Nína ásamt mörgum fleiri ungum listamönnum mynd í happ- drætti Þjóðviljans sama ár. En í ársbyrjun 1948 fær Nína boð um að koma aftur vestur til New York og sýna hjá Neumann í New Art Circle og hefur ekki efni á að hafna slíku boði. Hún sýnir 19 mál- verk, slær í gegn og selur allar myndirnar. Þessa sýningu sótti listmálari og læknir, þýskur að uppruna, heims- þekktur vísindamaður í öllu því, sem snertir blóðrás og æðakerfi. Hann hafði flúið veldi nasista 1935 og sest að í Bandaríkjunum eftir tveggja ára dvöl í Sviss. Með þeim tókust ástir um haustið og gengu þau í hjónaband um páska 1949. En brátt dró ský fyrir sólu. Síðla árs 1949 fór Nína heim til íslands að sækja föggur sínar. „Hún er þá köll- uð upp í sendiráð Bandaríkjanna og skýrt frá því, að henni sé meinað að snúa aftur til Bandaríkjanna," sam- kvæmt bók Hrafnhildar Schram. Auður Laxness segir að Nína hafi komið til sín eftir þessa yfirheyrslu og sagt, að hún hefði sagt þeim til syndanna. Hvernig þorðirðu það, þú, sem þarft að komast til Banda- ríkjanna innan skamms. Ég læt eng- an segja mér fyrir verkum, sagði Nína og kvaðst hafa sagt viðmæl- anda í sendiráðinu hreint út að hún fengi ekki skilið hvernig flatfiskur yrði að herstöð. ELLIS ISLAND Þar sem Nína hafði fyrir gilda vegabréfsáritun freistaði hún þess samt að fljúga með Pan Am-flugfé- laginu til New York, en var þá sett í einangrunarbúðir innflytjenda á Ellis Island og mátti dúsa þar í raun- verulegri fangelsisvist í margar vik- ur áður en hún var send til baka til íslands. „Þessi tími er enn ljóslifandi fyrir mér,“ sagði Alcopley, eftirlifandi eiginmaður Nínu, í símtali við HP sl. sunnudagskvöld. „Ég hringdi i Pan Am-flugfélagið og fékk þær upplýs- ingar að þriggja tíma seinkun væri á vélinni. Þegar ég kom á þeim tima var vélin löngu lent og Nína hafði verið flutt á Ellis Island. Ég talaði við alla sem minnstu líkindi virtust hafa til að fá þessum úrskurði breytt. Ég man að yfirmaður vegabréfaárit- unardeildar sagði mér að þetta væri tilgangslaust. Einn vinur hans hefði lent í mulningsvél McCarthys grun- aður um kommúnisma og nú þyrði hann ekki einu sinni lengur að tefla við hann skák.“ Nína var gerð brott- ræk og Alcopley fékk að verða henni samferða í leigubíl til flugvall- arins. Meðan hún var í fangelsinu hafði hann fengið að koma í heim- sóknir og færði henni þá gjarnan teikningar frá vinum hennar. Hann sagðist minnast þess, hve Nína hefði verið hrædd um að yfirvöld tækju þessar abstrakt myndir fyrir leyni- legar orðsendingar og að vinir þeirra mundu fá bágt fyrir. Að beiðni eiginmanns síns reyndi Nína næst að komast inn í Bandarík- in gegnum Kanada en varð frá að hverfa. ENGINN GAT Þá fór Alcopley heim til íslands og reyndi að fá stuðning til að létta af ferða- og dvalarbanni Nínu í Banda- ríkjunum. Áður hafði hann leitað á náðir Thors Thors sendiherra og Hannesar Kjartanssonar, ræðis- manns í Bandaríkjunum. Nú leitaði hann til Bjarna Benediktssonar. Enginn gat fengið neinu áorkað. Þá segist Alcopley hafa komist í kast við fyrirlitlegasta og auvirðilegasta mann, sem hann hafi fyrirhitt á æv- inni, Gibson að nafni, vararæðis- mann í bandaríska sendiráðinu hér, sem hafi verið sá embættismaður, sem um mál Nínu fjallaði. Gibson þessi hefði síðar komið sér í slíkt klandur við íslendinga, að tekið hefði verið upp i ríkisstjórninni að vísa honum úr landi, en Bjarni Benediktsson lagst á móti því á þeim forsendumj að til slíkrar að- gerðar hefðu Islendingar aldrei gripið gegn diplómat áður. Öll sund virtust lokuð. Nína bauðst til að skilja við Alcopley, svo að hann gæti óhindrað haldið áfram vísindaiðkunum sínum. En hann ákvað að berjast til þrautar. Hann fékk starf í París og þar dvöldu þau um fimm ára skeið, 1952—1957. Þegar leið að lokum þess tímabils hafði McCarthy verið afhjúpaður í Bandaríkjunum sem auvirðilegur svindlari, sem með neti samstarfs- manna sinna hafði gert álíka svindl- NÍNA TRYGGVAUÓTTIIt Fljúgandi fiskisaga, barnabók Nínu; svo sannarlega flaug fiskisagan en varla eins og Nína hafði ímyndað sér. urum kleift að falsa sakir á ýmsa keppinauta um starf og stöður. Yfir- maður vegabréfadeildar Bandaríkj- anna gerði sér sérstaka ferð til Paris- ar og bað Nínu afsökunar fyrir hönd embættis síns og Bandaríkjastjórn- ar. En þá hafði Alcopley þegar ráðið sig til London, þar sem þau dvöldust tvö og hálft ár. í árslok 1959 sækir Nína loks um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna og nú tók hálftíma að afgreiða hana. Martröðinni var lokið. KOMIST Á HREINT Ég spurði Alcopley, hvort honum fyndist sem blaðasnápur væri að „rótast í hlutum til að sverta minn- ingu látinna manna"? „Mér finnst tími til kominn að þessir hlutir komist á hreint," svar- aði hann. „Það er rúmlega hálft ár síðan ég sótti um að fá afrit af upp- runalegum skjölum og bíð enn eftir að þau verði leyst úr leyndarbönd- um. Mér var ekki kunnugt um að skjöl af þessu tagi hefðu borist til ís- lands. Viltu vera svo vænn að senda mér það, sem þú hefur undir hönd- um?" Vonandi er þá þeim harmleik að ljúka, sem hafinn var með skeyti til bandarísku vegabréfaskrifstofunn- ar og J. Edgars Hoovers forstjóra FBI, og byggt á orðasveimi og kjaftasögum. Þá, sem því komu af stað, hefur tæpast grunað, hve mulningsvél McCarthys malaði hægt, fínt og örugglega og að hún yrði ekki stöðvuð eftir að einhver festi ermi sína í tannhjóli hennar. Nú erum við reynslunni ríkari. Heimildir: Símtal við Alcopley, eiginmann Nínu; Samtal við Halldór og Auði Laxness; simtal við Viggó TVyggvason, bróður Ninu; „Nína í krafti og birtu", eftir Hrafnhildi Schram; leyndarskjöl frá sendiráði Bandarikj- anna á islandi. HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.