Helgarpósturinn - 22.12.1987, Blaðsíða 14

Helgarpósturinn - 22.12.1987, Blaðsíða 14
Mark Fenger Chapman, sendiherra hennar hátignar Bretadrottningar á íslandi, er danskur í aöra ættina og á skyldmenni hér á landi. Hann er í Hp-viötali. Gríp í útsaum þegar mér leidist „Eg bid þig ad fyrirgefa hvad ég er kvefaður," sagði hann afsakandi. „Petta er raunar enskt kvef, sem ég varð mér úti um þegar ég skrapp síðast heim. Veturinn hérna á Islandi hefur verið svo óskaplega mildur að maður getur ekki kvartað. Hvað þá síðasta sumar. Það var yndislegt! Enda notuð- um við hjónin tœkifœrið og fórum vítt og breitt um landið ykkar." Mark Fenger Chapman sendiherra hafði tekið á móti mér á skrifstofu sinni í breska sendiráð- inu við Laufásueg. Þetta er ein af þessum glæsi- legu byggingum í Þingholtunum, sem maður tekur eftir. Innan dyra er hins vegar allt með af- ar einföldu sniði. Húsgögnin líka flest komin þó nokkuð til ára sinna og bera það greinilega með sér. Meira að segja bréfabakkarnir á skrifborði sendiherrans voru úr tré og höfðu augljóslega þjónað fjölda forvera hans í starfi. En hver er hann, sendiherrann sem nú vermir gamla stólinn við Laufásveginn? ,,Ég er reyndar ekki fæddur á Bretlandi og ein- ungis breskur í aðra ættina. Móðir mín er nefni- lega dönsk. Hún hitti föður minn, þegar hún kom sem ung stúlka til Englands og settist þar á skólabekk. Hún var í með föðursystrum mínum í skóla og þær buðu henni að dveija hjá sér yfir jólin. Þar hitti hún bróðurinn, sem var á fyrsta ári í Cambridge-háskóla, og þau urðu ástfangin. Giftingin fór þó ekki fram fyrr en mörgum árum síðar, vegna þess að hinn danski afi minn var af- skaplega lítið hrifinn af því að dóttirin giftist út- lendum manni, þegar nóg var af myndarlegum Dönum heima fyrir! Ástin sigraði hins vegar að lokum, þau gengu í hjónaband og bjuggu lengi á Kýpur, þar sem faðir minn var skógræktarmaður. Ég fæddist sem sagt á eyju og bjó fyrstu æviárin í miklu fjall- lendi, svo það er margt kunnuglegt fyrir mig hér á íslandi. Áður en ég varð tíu ára hafði ég verið í þrjú ár með móður minni í Suður-Afríku. Þjóð- verjar hertóku nefnilega Krít, sem er tiltölulega skammt frá Kýpur, og þá voru konur og börn flutt burtu. Við komum svo aftur, þegar ár var eftir af heimsstyrjöldinni, og í stríðslok var ég síðan sendur í skóla til Bretlands — þá tíu ára gamall. Þetta var einkaskóli með heimavist og þó ég saknaði auðvitað foreldra minna vissi ég að þetta varð að vera svona. Það var ekki um annað að ræða. Pabbi og mamma bjuggu er- lendis, en þau vildu að ég fengi mína menntun í Englandi. Þessu hefur verið farið á sama hátt með syni mína þrjá. Við hjónin höfum vissulega saknað þess að geta ekki haft þá hjá okkur, en það var þeim fyrir bestu að skipta ekki um skóla á þriggja ára fresti, þegar við flyttum á milli landa. Með þessu móti voru þeir alltaf í sama umhverf- inu, með sömu kennara og sömu vini ár eftir ár í stað þess að þurfa að skipta sífellt um og læra ný tungumál á hverjum stað. Því er hins vegar ekki að neita, að þeir hafa oft saknað okkar — og við þeirra. En auðvitað hafa þeir alltaf verið hjá okkur í jóla- og sumarleyfum. Núna er elsti sonurinn kvæntur og vinnur hjá tölvufyrirtæki á Bretlandi. Hann er 27 ára. Sá í miðið stundar nám í arkitektúr í Edinborg, en sá yngsti er í menntaskóla. KARLMENN ÚR GÖMLU HÁSKÓLUNUM Á UNDANHALDI Áður en ég fór í utanríkisþjónustuna hafði ég gegnt herskyldu, sem nú hefur reyndar fyrir löngu verið afnumin, og verið sendur til Nígeríu. Að herþjónustu lokinni fór ég í háskóla, en ég held að utanríkisþjónustan hafi orðið fyrir valinu hjá mér, vegna þess að ég var orðinn vanur því að vera mikið á ferðalögum um heiminn. Þetta var sá lífsmáti, sem ég hafði áhuga á. Þar að auki hafði ég mikinn áhuga á utanríkismálum og hafði lagt stund á sagnfræði, svo þetta var eðli- legur vettvangur fyrir mig að leita á. Mér hefur alltaf fundist heillandi að kynnast mismunandi þjóðfélögum með mismunandi stjórnkerfi. Það er óskaplega gaman að afla sér þekkingar á inn- viðum ólíkra samfélaga. Ég hef unnið í mörgum löndum, bæði í Evr- ópu, Asíu og Afríku, en síðast var ég í Haag í Hollandi. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem ég gegni sendiherrastöðu. Þar fyrir utan hef ég líka unnið í ráðuneytinu í London og starfað við eftir- iit með starfsemi sendiráða vítt og breitt um heiminn. Helsti ókosturinn við þetta líf er sá, að maður þarf sífellt að vera að flytja og koma sér fyrir í nýju umhverfi. Maður eignast góða vini á hverjum stað, en þarf síðan að kveðja þá og það getur verið erfitt að halda vinskapnum við, þeg- ar jafnvel heilu heimsálfurnar skilja fólk að. En við reynum! Það er líka galli að geta ekki lifað eðlilegu fjölskyldulífi og hitta bara börnin sín í skólaleyfum. Meirihluti yfirmanna í utanríkisþjónustunni hefur eflaust hlotið menntun sína í einkaskóla, en þetta er ört að breytast. Það koma sífellt fleiri til starfa, sem verið hafa í ríkisreknum skólum. Árið sem ég byrjaði voru líka allir nýju starfs- mennirnir karlkyns, en nú eru konur helmingur byrjendanna á ári hverju. Og fólk með háskóla- gráðu frá Oxford og Cambridge er heldur alls ekki jafnáberandi og áður. Imynd okkar í utanríkisþjónustunni er kannski sú, að við séum allir íhaldsmenn í stjórnmálum, en það er langt frá því að vera svo. Þarna eru menn með afar mismunandi skoðan- ir. Ég tók t.d. við af einum í ráðuneytinu fyrir um 25 árum, sem nú er talsmaður Verkamanna- flokksins í utanríkismálum á breska þinginu. Það hafa margir starfsmenn utnaríkisþjónust- unnar orðið þingmenn, bæði íhaldsmenn og vinstrisinnar. FÓLK MISSIR ATVINNUNA EF ÍSLENSKI FISKURINN BERST EKKI Á LAND Starf sendiherra er fólgið í því að vera fulltrúi hennar hátignar, Bretadrottningar, og bresku ríkisstjórnarinnar. Það er því í mínum verka- hring að koma á framfæri við íslensku ríkis- stjórnina afstöðu Breta til málefna, sem snerta báðar þjóðirnar. Sömuleiðis er það skylda mín að sjá til þess, að breska ríkisstjórnin viti um af- stöðu íslensku ríkisstjórnarinnar til ýmissa mála. Þetta er mín meginskylda, en auðvitað á ég líka að gera mitt besta til að viðhalda al- mennt hinum góðu tengslum og þeirri vináttu, sem ríkir á milli landanna. Það starf getur verið margþætt. T.d. með því að stuðla að því að ís- lendingar fái tækifæri til að kynnast Bretlandi — og öfugt. Þarna getur verið um að ræða vísinda- menn, listamenn, stjórnmálamenn, kennara og fleiri stéttir. Tengsl milli landanna eru ótrúlega mikil. En það verður að halda þeim við og helst auka þau. Ég legg mig eftir því að kynnast stjórnmála- mönnunum ykkar, ýmsum aðilum hjá hinu opinbera og mönnum í viðskiptaheiminum. Og þegar ný stjórn tekur við fer ég í nokkurs konar kurteisisheimsóknir til ráðherranna til þess að leggja grunn að kynnum við þá. Þar með erum við ekki alveg ókunnugir, ef við þurfum að eiga einhver viðskipti síðar. Sendiherra getur ekki bara setið á skrifstofunni alla daga! Þá væri hann að bregðast skyldum sínum. Maður verður að fara út á meðal fólks og kynnast þjóðfélaginu öðruvísi en með lestri dagblaða. Eg er t.d. búinn að heilsa upp á þá hjá Lands- virkjun og fræðast heilmikið um orkumál ykkar. Og ég hef heimsótt orkuver til þess að fá hug- mynd um hvernig þetta fer allt fram. Sú þekking kemur sér auðvitað vel, þegar upp koma hug- myndir um að ísland flytji orku út til Bretlands! Við gerum nú ekki mikið af því að senda til London þýðingar á íslenskum blaðagreinum, en ég reyni auðvitað að fylgjast með því helsta í fjölmiðlum með aðstoð kollega míns, sem er vel að sér í íslensku. Síðan sendum við skeyti, ef eitt- hvað sérstakt er um að vera. fsland er, m.a. vegna legu sinnar, mikilvægur hlekkur í Nató og þess vegna er það mikilvægt fyrir ríkisstjórn mína að kynnast viðhorfum íslendinga til bandalagsins og veru hersins á Keflavíkurvelli. Viðskipti við‘ Island eru okkur líka mikilvæg, t.d. vegna fiskkaupa okkar. Þetta snertir jú at- vinnu fjölda fólks á austurströnd Bretlands og það veldur mönnum áhyggjum, þegar eitthvað bregður út af eins og í verkfallinu í fyrra. Það missa margir atvinnuna ef íslenski fiskurinn kemur ekki á land. Tengslin við ísland eru okkur þess vegna afar mikilvæg — á fleiri en einn hátt. Það er einnig í mínum verkahring að aðstoða Breta, sem þurfa á hjálp að halda, er\ hér á landi búa líklega um 3—400 breskir þegnar. Þeir þurfa ekki að láta skrá sig hjá okkur, svo talan er óná- kvæm. Flest þetta fólk er gift íslendingum og hefur aðlagast þjóðfélaginu. Við myndum sem sagt engan sérstakan og aðskilinn kjarna hér á landi. En þegar endurnýja þarf vegabréf eða láta skrá fæðingu barns kemur fólk auðvitað hingað í sendiráðið. MAMMA VAR HÉR í HEILT SUMAR FYRIR SEXTÍU ÁRUM Það er svolítið skemmtilegt að segja frá því, að fljótlega eftir að ég kom fyrst til íslands komst ég að raun um að ég á hér ættingja. Mér til mikillar undrunar! Það var Þórður Einarsson, sem nú er sendiherra í Svíþjóð, sem uppgötvaði þetta. Hann hafði séð, að ég bar ættarnafnið Fenger, og spurði mig hvers vegna í ósköpunum breski sendiherrann hefði danskt eftirnafn. Þegar ég hafði útskýrt það fyrir honum að þetta væri móðurnafn mitt sagði Þórður að ég ætti ef til vill skyldmenni hérna. Mér fannst það auðvitað frá- leitt, en það kom síðan í Ijós að Fenger-ættin á íslandi er, þegar allt kemur til alls, skyld móður- ætt minni. Þetta verða önnur jól okkar hjóna hér á ísl- andi, þar sem við komum til landsins fyrir rúmu ári. Maður finnur vissulega meira fyrir hátíðinni hér en t.d. í hitabeltinu. Þar getur verið erfitt að komast í jólaskap. Það tilheyrir einhvern veginn hátíðahöldunum að úti sé dimmt og kalt! Annars hef ég eiginlega enga reynslu af „venjulegum" íslenskum vetri. Veðurguðirnir hafa verið mér afskaplega hliðhollir þann tíma, sem ég hef dvalið hér. Síðastliðið sumar var t.d. alveg dá- samlegt og eina sumarfríið, sem ég tók, notuð- um við til að ferðast um ísland. Ég hafði aldrei komið til landsins áður en ég varð sendiherra, þó mig hefði lengi langað til þess. Móðir mín kom hingað sem ung stúlka fyr- ir sextíu árum og hún hafði sagt mér mikið um ísland. Hún var hér heilt sumar og bjó þá hjá vin- konu sinni, Helgu Sigurðardóttur, sem síðar varð vel þekkt fyrir matreiðslubækur sínar. Þær höfðu verið saman í skóla í Danmörku og vin- skapur þeirra hélst allt fram til þess að Helga dó úr krabbameini fyrir um tuttugu árum. Eitt af mínum fyrstu verkum eftir komuna hingað var einmitt að efna loforð, sem ég gaf móður minni, en það var að leita uppi eftirlifandi ættingja Helgu Sigurðardóttur. Landið reyndist vera mjög svipað því, sem ég hafði gert mér í hugarlund. Þó var það eiginlega enn fallegra en ég bjóst við. Það líður ekki sá dagur, að ég hrífist ekki af náttúrunni hérna — sjónum, landslaginu og himninum. Sérstaklega himninum. Loftið er svo tært hérna og það gerir birtuna svo sérstaka. Að vísu sakna ég trjágróð- urs; enda sonur skógræktarmanns... Þess vegna hafði ég alveg einstaklega gaman af því að koma í Hallormsstaðarskóg á ferð minni um landið sl. sumar og ganga þar um með Jóni Loftssyni skógarverði. Hins vegar hafði ég held- ur ekki gert mér grein fyrir því hve mikið er af blómum og plöntum hérna. Blómunum tekst að festa rætur á ótrúlegustu stöðum. Jafnvel í grýtt- um fjallshlíðum. Svo kom fuglalífið mér líka á

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.