Helgarpósturinn - 22.12.1987, Side 5
HITAVEITUNNAR
Engin samþykkt fyrir veitingahúsinu, segir Sigurjón Pétursson
Hefur engin áhrif á veröskrá Hitaveitunnar, segir Jóhannes Zoéga
Fyrirhugað veitingahús, sem Hitaveita Reykjavíkjur
hyggst reisa fyrir 508 milljónir króna á næstu fjórum ár-
um, hefur í raun aldrei verið samþykkt af neinni þar til
bærri stofnun á vegum borgarinnar. Hið eina sem hefur
verið skjalfest um tilurð hússins er samþykkt stjórnar
veitustofnana frá 22.8.1985, sem send var og samþykkt
í borgarráði, um að miða skuli hönnun og byggingar-
framkvæmdir á nýju hitaveitugeymunum í Oskjuhlíð við
að þar ,,geti risið útsýnisstaður með veitingahúsi“.
EFTIR PÁL H. HANNESSON MYND JIM SMART
Það er hins vegar langur vegur frá
slíkri samþykkt að samþykkt um að
reisa skuli veitingahús og það fyrir
508 milljónir króna. Reyndar virðist
tilurð þessa húss bera sterkan keim
af persónulegum áhuga einstakl-
inga á að húsið rísi og að fjölskyldu-
tengsl hafi a.m.k. hjálpað til að gera
þann draum að veruleika. Á hinn
bóginn má jafnframt ieita skýringa
á að Hitaveita Reykjavíkur vilji reisa
veitingahús fyrir hálfan milljarð,
miðað við þau markmið sem stjórn-
endur Hitaveitunnar og borgarinn-
ar hafa sett varðandi hvernig verja
beri þeim hagnaði sem Hitaveitan
gefur af sér.
ARKITEKTINN KOM
MEÐ HUGMYNDINA,
HITAVEITUSTJÓRI
„MARKAÐSSETTI"
Hugmyndin um að reisa útsýnis-
og veitingahús í tengslum við hita-
veitugeymana á Öskjuhlíð var fyrst
sett fram af Sigurdi Gudmundssyni
arkitekt fyrir um 40 árum. Sem
kunnugt er varð þó ekkert úr fram-
kvæmdum. Hugmyndin var síðan
endurvakin fyrir um þremur árum
þegar endurnýjun hitaveitugeym-
anna komst á dagskrá. Samkvæmt
því sem Jóhannes Zoéga hitaveitu-
stjóri sagði í samtali við HP var það
Ingimundur Sueinsson arkitekt sem
lagði þá hugmynd fram. Ingimund-
ur var þá ráðinn sem ráðgjafi og
arkitekt HR vegna fyrirhugaðrar
endurnýjunar hitaveitugeymanna
og skilaði hann skissu að fyrirhug-
uðu veitingahúsi um leið og hann
lagði fram teikningar sínar að hita-
veitutönkunum. Segist Ingimundur
hafa lagt teikningu sína fram að
beiðni hitaveitustjóra, sem einnig
hafi beðið hann að skila fullnaðar-
teikningum fyrir húsið. Ingimundur
sagðist sjálfur, í samtali við HP, ekki
geta fullyrt hver hefði nefnt þessa
hugmynd fyrstur, en hann hefði rætt
hana við hitaveitustjóra, og reiknaði
með að hún „hefði verið inni í um-
ræðunni milli hitaveitustjóra og
borgarstjóra".
Ingimundur er sonur Sveins Bene-
diktssonar, sem var bróðir Guörún-
ar Benediktsdóttur Zoéga, eigin-
konu Jóhannesar Zoéga hitaveitu-
stjóra. Einn þriggja sjálfstæðis-
manna í stjórn Veitustofnana er síð-
an Gudrún Zoéga, dóttir Jóhannes-
ar hitaveitustjóra og systkinabarn
við Ingimund Sveinsson.
Hugmyndin um veitingahúsið
virðist fyrst sett á blað í bréfi hita-
veitustjóra til borgarverkfræðings,
dagsettu 16.8.1985, en þar er fjallað
um endurnýjun geyma á Öskjuhlíð.
Er þar mælt með ákveðinni leið til
endurnýjunar, m.a. á þeim grund-
velli að „möguleiki er á veitingahúsi
yfir nýju geymunum með útsýni um
alla borgarbyggðina og nágranna-
byggðirnar“. Hitaveitustjóri kemur
þar með hugmynd Ingimars á fram-
færi. Það er hins vegar ekki minnst
á þann möguleika að efnt yrði til
samkeppni meðal arkitekta um
þetta hús, sem staðsetningar sinnar
vegna hlýtur að verða mjög áber-
andi í borgarlandslaginu. Næsta
samþykkt um veitingahúsið er síð-
an gerð í stjórn veitustofnana þann
22.8. 1985, en þar er ekki ákveðið
að reisa skuli veitingahús, heldur
einungis að haga skuli hönnun
tanka og byggingu á þann veg að
möguleiki megi vera á byggingu
veitingahússins í framtíðinni.
í framkvæmdaáætlun HR fyrir ár-
ið 1987 er síðan gert ráð fyrir 29
milljóna króna framlagi til bygging-
ar á kjallara og bogaveggjum veit-
ingahússins. Segir hitaveitustjóri í
skýringum sem fylgja að „hér sé um
að ræða byrjunarframkvæmdir við
útsýnis- og veitingahús milli nýju
geymanna á Öskjuhlíð". Var þetta
samþykkt í stjórn Veitustofnana og
vill hitaveitustjóri túlka þetta sem
svo að menn hafi augljóslega verið
búnir að samþykkja byggingu veit-
ingahússins. Sigurjón Pétursson,
fulltrúi Alþýöubandalagsins, segir
hins vegar að svo hafi ekki verið,
enda hafi málið verið þannig fyrir
lagt í byrjun, að þessar framkvæmd-
ir væri nauðsynlegt að ráðast í jafn-
framt byggingu geymanna, og hafi
það verið í samræmi við þá sam-
þykkt að ganga þannig frá málum
að veitingahús mætti rísa þar
seinna. Síðan hafi verið gerðar
breytingar á hönnun geymanna,
þannig að þá mætti reisa sjálfstætt
án þess að reisa þyrfti kjallara og
stoðveggi veitingahússins um leið.
Enda hafi bygging stoðveggja og
kjallara ekki komið til framkvæmda
enn, þar sem áðurnefnd hönnunar-
breyting hafi verið gerð. Staðhæfði
Sigurjón í samtali við HP að engin
samþykkt lægi fyrir í stofnunum
borgarinnar um að ráðist skyldi í
byggingu veitingahúss, hvernig
skyldi að því staðið né hver skyldi
hanna það hús. Hafi hitaveitustjóri
tekið slíka ákvörðun sé hún tekin án
umboðs réttra aðila.
VEITINGAHÚS FREMST í
FORGANGSRÖÐ
BORGARINNAR?
Föstudaginn 11. desember sl.
felldi meirihluti sjálfstæðismanna í
stjórn Veitustofnana tillögu minni-
hlutans, þess efnis að fellt skyldi úr
fjárhagsáætlun HR fyrir árið 1988
framlag til byggingar veitingahúss á
Öskjuhlíðargeymum að upphæð
125 milljónir króna. Fjárhagsáætlun
HR mun hins vegar ekki hljóta
endanlega staðfestingu fyrr en á
seinni fundi borgarstjórnar um fjár-
hagsáætlun borgarinnar, sem hald-
inn verður í febrúar. Því virðist sem
hugmynd Ingimundar sé að verða
að raunveruleika, enda teikningar
nánast fullgerðar og kostnaðaráætl-
un um einstaka verkþætti fyrirliggj-
andi. Og það þó að ekki liggi fyrir
nein bein samþykkt af til þess kjörn-
um nefndum að reisa skuli hring-
snúandi veitingahús fyrir hálfan
milljarð á Öskjuhlíðartönkum.
500 M.KR. TIL EÐA FRÁ
HAFA EKKI
ÁHRIF Á ORKU-
REIKNINGA
BORGARBÚA
í grein í Morgunblaðinu þann 17.
desember sl. hélt Sigrídur Lillý
Baldursdóttir, fulltrúi Kuennalistans
í stjórn Veitustofnana, þvi fram, að
bygging veitingahússins ætti eftir að
hækka orkureikning Reykvíkinga
verulega á næstu árum. Segir hún
að hækkunin nemi um 7% á næsta
ári, 14% árið 1989 og 6% árið 1990.
Þegar HP bar þessar tölur undir
Jóhannes Zoéga hitaveitustjóra
taldi hann þær á misskilningi byggð-
ar. Það væri út af fyrir sig ekkert
samband á milli framkvæmda á
vegum HR annarra en beinna
hitaveituframkvæmda og þess
verðs sem neytendur greiða fyrir
heita vatnið. Þó svo að HR sleppti
því að byggja þetta veitingahús fyrir
hálfan milljarð lækkaði ekki orku-
verð til Reykvíkinga fyrir það.
Þetta má til sanns vegar færa þar
sem það er í höndum borgarstjórnar
að ákveða gjald fyrir heita vatnið.
Hins vegar er jafnaugljóst að þegar
Hitaveita Reykjavíkur fer út í fram-
kvæmdir sem hún ætlar sjálf að fjár-
magna þarf hún að fá inn tekjur í
samræmi við það og sleppi hún
þeim framkvæmdum minnkar
tekjuþörf hennar að sama skapi.
Hitaveitan skilar hins vegar arði og
hefur Sigríður Lillý Baldursdóttir
gert þá tillögu, að þeir peningar sem
afgangs eru, eftir að hún hefur stað-
ið fyrir þeim framkvæmdum sem
stofnunin telur nauðsynlegar, renni
til borgarsjóðs frekar en að
HR safni í sjóði. Reyndar hefur borg-
arstjórn þegar þá heimild að færa fé
frá Hitaveitunni og til annarra verk-
efna. Þessar 500 milljónir, sem HR
ætlar að láta renna í veitingahús,
rynnu sem sagt til borgarsjóðs fyndi
HR ekkert þarfara við peningana að
gera. Borgarsjóður er síðan frjáls að
því að ákvarða hvert peningarnir
fara, hvort sem það væri í B-álmu
Borgarspítalans, dagvistunarstofn-
anir eða annað. Samþykki meiri-
hluti sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn því fjárhagsáætlun Hitaveit-
unnar, þar sem gert er ráð fyrir
byggingu þessa veitingahúss, er
ríkisstjórn því jafnframt að lýsa því
yfir að hún telji hringsnúandi veit-
ingahús þarfari framkvæmd en t.d.
það sem nefnt er hér að ofan.
HEITAVATNS-
REIKNINGAR
REYKVÍKINGA GETA
LÆKKAÐ UM HELMING
Sigurjón Pétursson telur að orku-
reikningar Reykvíkinga gætu lækk-
að um helming þegar framkvæmd-
um við Nesjavelli verður lokið, setti
Hitaveitan sér eingöngu það mark-
mið að koma heita vatninu til skila
til borgarbúa á sem hagstæðustu
verði. Þar með væri arði hitaveit-
unnar skilað til eiganda fyrirtækis-
ins, borgarbúa.
Orð hitaveitustjóra hér að framan
um að ekkert samband sé á milli
framkvæmda á borð við veitinga-
húsbyggingar HR og orkuverð til
borgarbúa lýsa því frekar skoðun
hans á málinu en beinhörðum stað-
reyndum. Þessi skoðun hitaveitu-
stjóra kynni hins vegar að helgast af
því, að hann vill að Hitaveita
Reykjavíkur ráðstafi sem mestu af
sínu fé sjálf og vilji síður að borgar-
sjóður fái meira fé frá stofnuninni til
ráðstöfunar en þegar er orðið. Á
hinn bóginn hefur sú skoðun verið
sett fram, að ástæða þess að Hita-
veita Reykjavíkur og borgarstjórn
halda orkuverði hærra en bráða
nauðsyn ber til sé sú að annars missi
þeir spón úr aski sínum? Ríkið muni
þá grípa tækifærið og skattleggja
Reykvíkinga, þar sem óverjandi sé
að þeir greiði ekki nema brot af
þeim hitaveitureikningum sem t.d.
Borgfirðingar og Vestmanneying-
ar þurfa að greiða.
Hér ofan á á snúningsekja Hitaveitunnar með matara&stöðu fyrir 200 manns að rísa. Er áætlað að byggingin kosti 508 milijónir króna og er teikningum
nánast fulllokið. Bein samþykkt fyrir að þetta veitingahús eigi að rísa hefur þó aldrei verið gerð í stofnunum borgarinnar.
HELGARPÓSTURINN 5