Helgarpósturinn - 22.12.1987, Blaðsíða 18
UM HELGINA
DAGSKRÁ LJÓSVAKANNA UM
JÓLIN
Við byrjum á að kanna Þorláks-
messu, enda örugglega einhverjir
sem eru svo lánsamir að „vera búnir
að öllu" þá og geta sest niður og
horft á sjónvarp. Þá er þáttur sem
heitir „Kór Vestur-íslendinga", en
kórinn var staddur hér á landi í sum-
ar og þessi þáttur tekinn upp.
Kannski er ekki nauðsynlegt að sitja
límdur fyrir framan sjónvarpið, en
það verður alveg óhætt að hækka
svo unnt sé að njóta söngsins. Rétt
eftir klukkan tíu er sýndur skemmti-
legurbreskurframhaldsþáttur, „List-
munasalinn", en þar segir frá list-
munasala sem ekki er allur þar sem
hann er séður. Hann stelur af hinum
ríku, gefurfátækum og græöirsjálfur
á öllu saman. Sjálfsagt afar raun-
verulegur þáttur, enda margir „list-
munasalar" á ferð í þjóðfélaginu.
Sjónvarpið hefur útsendingar á að-
fangadag jóla klukkan 12.55 og sjón-
varpað veröur til kl. 16.45 en þá gert
hlé fram til kl. 21. Á dagskrá sjón-
varpsins um miðjan aðfangadag er
íslenska kvikmyndin „Veiðiferðin"
sem gerð var árið 1979. Hún gerist á
sólríkum sumardegi á Þingvöllum
og fylgst er með þeim sem þangað
koma. Myndin er jafnt við hæfi full-
orðinna sem barna. Á undan „Veiði-
ferðinni" verða sýndar teiknimyndir
fyrir börn, svo engum ætti að leiðast
biðin eftir jólunum. Klukkan níu um
kvöldiö hefur sjónvarpið útsending-
ar að nýju. Þá er fyrst 50 mínútna
þáttur sem heitir „Jólasöngvar frá
Islandi og ýmsum löndum" þar sem
m.a. Skólakór Kársness og sópran-
söngkonan Signý Sæmundsdóttir
koma fram. Að þeim þætti loknum
hefst „Aftansöngur jóla" í Dómkirkj-
unni í Reykjavík. Séra Sigurður Guð-
mundsson, settur biskup yfir Islandi,
predikar og þjónar fyrir altari. Að
guðsþjónustu lokinni lesa Halldór
Björnsson og Alda Arnardóttir ís-
lensk jólaljóð undir tónlist eftir Bach
og þvi næst syngur bandaríska
söngkonan Jessye Normans á tón-
leikum í Ely-dómkirkjunni. Dagskrá
ríkissjónvarpsins á aðfangadags-
kvöld lýkur með því að Sigríður Ella
Magnúsdóttir syngur „Nóttin var sú
ágæt ein" ásamt kór Oldutúnsskóla.
Á jóladag hefjast útsendingar kl.
16.10 með tónleikum Drengjakórs
Hamborgar, sem teknir voru upp í
Eyrarbakkakirkju í sumar. Því næst
verður sýnd ný þýsk ævintýramynd,
gerð eftir samnefndri sögu H.C
Andersens, „Gæfuskónum". Jóla-
stundin okkar hefst klukkan 18 og er
sérstaklega mikið lagt í hana að
þessu sinni. Meðal efnis sem sýnt
verður er brúðuleikritiö „Afmælis-
dagur uglunnar", en handritiö er eftir
Helgu Steffensen. Þá verður sýndur
fjórði og síöasti þáttur leikritsins „Á
jólaróli", enda komin jól hjá sögu-
hetjunum Sigurði og Sölvínu. Séra
Solveig Lára talar við börnin, kór
Mýrarhúsaskóla syngur „Heims um
ból" og sýndur verður leikþátturinn
„Litla systir" úr þáttaröðinni um fé-
lagana Dindil og Agnarögn. Mikið af
brúðum verður í heimsókn í þessari
jólastund, allar geröar af Helgu
Steffensen. Á jólakvöld kl. 20.20
verður sýnd íslenska kvikmyndin
„Punktur, punktur, komma, strik"
sem er gerð eftir samnefndri sögu
Péturs Gunnarssonar. Myndin fjallar
um ungan dreng, Andra Haraldsson,
og hefst rétt fyrir fæðingu hans árið
1947 og fylgir honum fram til ársins
1963. Samsett jóladagskrá í umsjón
•Sigrúnar Stefánsdóttur hefst kl.
21.50 og er þar fjallaö um þátt Ijóss-
ins í jólahátíðinni og þau tímamót
sem jólin marka í skammdeginu.
Ýmsir þjóðkunnir menn og konur
koma fram í þættinum auk þess sem
félagar úr Hamrahlíðarkórnum
syngja. Á annan í jólum verður ís-
lenska kvikmyndin Atómstöðin
flutt, en hún er að sjálfsögðu gerð
eftir samnefndri sögu Halldórs Lax-
ness. Handrit gerðu Þorsteinn Jóns-
son. Þórhallur Sigurðsson og Örnólf-
ur Árnason. Á sunnudaginn 27. des-
ember verður síðan sýnd sænsk/ís-
lenska kvikmyndin „Salka Valka"
sem var áður á dagskrá árið 1976.
Þann 28. desember sýnir sjónvarpið
kvikmyndina „Tilbury" eftir Viðar
Víkingsson en hugmynd hennar er
sótt í samnefnda smásögu eftir Þór-
arin Eldjárn. „Tilbury" gerist árið
1940 þegar breski herinn var hvað
aðsópsmestur á íslandi og lýsir því
hvernig ungur sveitamaður flyst til
Reykjavíkur til að stunda sund og
grennslast fyrir um stúlku sem hon-
um er kær. Hann kemst að því að hún
er í tygjum við breskan major, sem
ekki er allur þar sem hann er séður.
Á Ljósvakanum verða leikin jóla-
lög frá klukkan sjö á aöfangadags-
morgun fram til klukkan sex síðdeg-
is. Þá tekur við hátíðartónlist á jól-
um sem Hjálmar H. Ragnarsson
kynnir. Á jóladagsmorgun kl. 13
verður flutningur á Messíasi eftir
Hándel, í flutningi Polýfónkórsins,
undir stjórn Ingólfs Guðbrandsson-
ar. Tónleikarnir voru hljóðritaðir 12.
desember sl. Klukkan níu um kvöldið
verða aðrir merkilegir tónleikar á
dagskrá Ljósvakans, ‘Jólaóratórían
eftir Bach. Hljómsveit dómkirkjunn-
ar í Dresden og kór útvarpsins í Leip-
zig flytja undir stjórn Peters Schreier.
í ríkisútvarpinu á aðfangadag
verða fluttir leiknir þættir úr ballett-
inum „Hnotubrjótnum" eftir Tsjaí-
kovskí. Konunglega fílharmóníu-
sveitin í Lundúnum og Ambrosian-
söngvararnir flytja en stjórnandi er
André Previn. Klukkan 18 er útvarp-
að aftansöng úr Dómkirkjunni,
prestur er séra Þórir Stephensen og
organisti Marteinn H. Friðriksson.
Klukkan 20.00 hefst „Jólavaka út-
varpsins" þar sem m.a. verða fluttir
jólasöngvar og kveðjur frá ýmsum
löndum, biskup íslands, herra Pétur
Sigurgeirsson, flytur ávarp og Nína
Björk Árnadóttir og Kristján Franklín
Magnús eru flytjendur í „Ó Jesú-
barn, þú kemur nú í nótt", sem hefst
um kl. 21. Klukkan hálftólf verður út-
varpaö frá miðnæturmessu í Hall-
grímskirkju þar sem Dr. Sigurbjörn
Einarsson predikar. Séra Ragnar Fjal-
ar Lárusson og séra Karl Sigur-
björnsson þjóna fyrir altari og Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngur undir
stjórn Harðar Áskelssonar.
Næturútvarp rásar 2 hefst klukkan
00.10 og þar stendur Gunnlaugur
Sigfússon vaktina til klukkan sjö á
jólamorgun. Mikið verður um tón-
leika á dagskrá ríkisútvarpsins á jóla-
dag, m.a. flytur Sinfóníuhljómsveit
(slands jólalög í útsetningu Árna
Björnssonar, Mótettukór Hallgríms-
kirkju synguraðventusálma, mótett-
ur og messuþætti frá 16. og 17. öld
og kl. 16.20 verða sungin barna- og
göngulög í þættinum „Við jólatréð".
Klukkan 20.30 á jólakvöld er á dag-
skrá þátturinn „Af fornum kirkju-
stöðum við Arnarfjörð", fyrri þáttur
Finnboga Hermannssonar. í þættin-
um sækir Finnbogi heim Álftamýri
og Hrafnseyri við leiðsögn Kjartans
Ólafssonar.
Fréttamenn og aðrir þáttagerðar-
menn hjá Stöð 2 munu verða á ferð-
inni um borg og bæ á Þorláksmessu
í þættinum 19.19 og fylgjast með ís-
lendingum við lokaundirbúning jól-
anna. I síðasta HP vöktum við at-
hygli á barnaefni Stöðvar2 frá klukk-
an níu á aöfangadagsmorgun fram
til kl. 17 og á jóladag kl. 13 verður
sýnd hin geysivinsæla söng- og
dansmynd Tónaflóð („The Sound of
Music") með Julie Andrews í aðal-
hlutverki. Þetta er einhver best sótta
kvikmynd allra tíma, og börn nú-
tímans hafa eflaust hollt af að horfa
á svona mynd eftir stressið undan-
farna daga. Kl. 20.50 á jólakvöld sýnir
Stöð 2 kvikmyndina Áftur til fram-
tíðar, spennandi ævintýramynd
með Michael J. Fox í aöalhlutverki.
Börnunum er siðan óhætt aö leggja
sig fram á morgun annars í jólum en
þá erfjölbreytt barnaefni á skjánum,
m.a. teiknimyndin „Jólin hjá Mjall-
hvíti".
Þjóðleikhúsið frumsýnir á annan í
jólum fransk-breska söngleikinn
Vesalingana eftir samnefndri skáld-
sögu Victors Hugo. Um þrjátíu leik-
arar koma fram í sýningunni og leik-
ur hver þeirra um sig fjölda hlut-
verka. Sýningar á verki þessu hefur
verið beðið með mikilli eftirvænt-
ingu hér á landi og þegar hafa selst
yfir 8.000 miðar fyrirfram. Það kann
því að verða löng bið eftir aö komast
að á sýningu þessa merkilega söng-
leiks, sem var fyrst sýndur í París árið
1980.
Holdgervingur
19du aldarínnar
Victor Hugo (1802-1885)
Ljóðskáld, skáldsagnahöfundur, leikskáld, páfi róman-
tísku stefnunnar, hugsuður, stjórnmálamaður og mynd-
listarmaður. Victor Hugo var allt þetta og meira til. Hann
var risi, 19da öldin holdi klædd. Hann fæddist árið 1802
„öldin var þá tveggja ára gömul“, skrifaði hann án óþarfa
hógværðar), og dó 15 árum fyrir aldamótin næstu. Hann
tók þátt í rómantíkinni, raunsæinu, symbólismanum en
var þó fyrst og fremst hann sjálfur. Tvær milljónir frakka
voru viðstaddar jarðarför hans, en hann var líka hataður
og jafnvel fyrirlitinn. André Gide var t.d. spurður, 50 ár-
um eftir dauða Hugos, hvert væri mesta ljóðskáld Frakk-
lands og hann svaraði: „Victor Hugo, því miður.“ Hataður
eða elskaður, Victor Hugo er a.m.k. fyrirferðarmikill.
Það eru til höfundar sem taka of mikið pláss.
EFTIR GERARD LEMARQUIS
BERNSKA
Victor Hugo eyddi sínum fyrstu
árum í höllum á Italíu og Spáni, allt
eftir því hvar faðir hans fékk stöðu í
hinu sístækkandi veldi Napóleons.
Faðir hans, ofursti fyrsta lýðveldis-
ins, síðar hershöfðingi keisara-
dæmisins, var barn'byltingarinnar
1789. Móðir hans var hins vegar
konungssinnuð aðalskona, trúuð og
íhaldssöm og þráði gamla konungs-
dæmið. Ofurstinn var landstjóri í
Napólí og tók síðan þátt í hernámi
Spánar. Hugo upplifði hluti sem
hann mundi eftir síðar. Her Nap-
óleons þóttist frelsa Evrópulönd en
kúgaði þau öll.
UNGLINGSÁR
Hjónabandið splundraðist. Móðirin
fór til Parísar með synina tvo. Hún
varð ástfangin af leiðtoga konungs-
sinna sem hún hafði falið í garðhýsi.
Lögreglan fann hann og hann var
tekinn af lífi. Þessi maður varð síðar
fyrirmynd margra útlaga í verkum
Hugos.
Fimmtán ára gamall vissi Hugo
upp á hár að hverju hann stefndi,
hann ætlaði að verða mikill rithöf-
undur (Chateaubriand eða ekkert)
og berjast fyrir afturhaldssemi kon-
ungssinnanna. Napóleon féll árið
1815. Faðir Hugos bjó ekki lengur í
marmarahöll en var eins og útlagi í
sínu eigin landi. Það þótti ekki leng-
ur gott að hafa þjónað Bonaparte.
HUGO TVfTUGUR
Hugo ritstýrði tímaritinu Le
Conservateur littéraire. Hann sendi
konungi kvæðin sín og fékk rithöf-
undarlaun. Hann trúlofaði sig og
kvæntist æskuvinkonu sinni sem
má auðvitað aldrei gera.
Hann skrifaði fljótlega skáldsög-
una Han d'Islande. Spennandi bók
en alveg út í hött. Sagan gerist í
Noregi og söguhetjan er sérstaklega
andstyggilegur íslenskur útilegu-
maður sem drekkur blóð óvina
sinna úr hauskúpu. Sennilega röng
túlkun á smekk íslendinga fyrir
slátri.
Á þessum árum kom til nýtt tíma-
bil tilfinninganæmis í Evrópu og
rómantíkin blómstraði. Victor Hugo
varð leiðandi höfundur þeirrar
stefnu í Frakklandi.
HUGO ÞRÍTUGUR
Síðasti harmleikur hans, Hernani,
var sýndur í Comédie francaise og
olli hneyksli en gerði hann engu að
síður frægan um leið. Rétt áður en
tjaldið fellur taka Hernani og Dona
Sol inn eitur og síðan drepur Ruy
Gomez sig og fellur yfir lík þeirra.
Allir semsagt steindauðir á sviðinu
en salurinn brjálaðist. Klassíkerarn-
ir bauluðu en stuðningsmenn róm-
antíkurinnar á efri svölunum, síð-
hærðir og klæddir fríkuðum fötum,
sprungu af fögnuði. Frumsýningin
endaði í allsherjar slagsmálum.
HUGO FERTUGUR
Ungi rómantíkerinn er orðinn
borgaralegur rithöfundur, virtur og
viðurkenndur. Hann átti fjögur
börn, konan hans átti elskhuga og
sjálfur hélt hann fram hjá henni
með fjöldanum öllum af konum.
Hann bjó í glæsilegri íbúð við Place
des Vosges og var persónugerving-
ur Louis Philippe konungs og á þess-
um árum fékk hann inngöngu í
frönsku akademíuna.
HUGO FIMMTUGUR
Mikið áfall sem Hugo varð fyrir
varð til þess að hann ákvað að end-
urskoða lífsmynstur sitt. Dóttir hans
Léopoldine drukknaði í Signu
ásamt manninum sem hún var ný-
Ástkona Hugos, Juliette Drouet, á fjórða áratug 19du aldarinnar.
18 HELGARPÓSTURINN