Alþýðublaðið - 29.03.1939, Side 1
MTSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XX. ÁRGANGUR
MIÐVIKUDAG 29. MARZ 1939
74. TÖLUBLAÐ
Nýi togarinn, JÓN ÓLAFSSON, á höfninni í morgun.
fl togariDO, Jðn ðlafsson,
kom til Rvíknr i morgnn.
HtNN nýji togari h.f. Alliance
kom til Reykjavíkur kl. 10
í morgun og var honum fagnað
af mjög miklum mannfjölda sem
■safnast hafði saman á hafnar-
bakkahum. Var sjáanlegt hve glað
ir Reykvíkingar verða þegar nýir
togarar bætast við í flotann.
Togarinn Jón Clafsson lagði af
stað frá Englandi fyrir hádegi á
laugardag og hefir því verið rétta
4 sólarhringa á leiðinni, enda
gekk hann 12 sjómílur á vöku.
Skipið lítur mjög vel út og er
að mestu nýtízku skip, aðeins 5
ára gamalt. Það er 423 smálestir
at, stærð, eða 22 smál. minna en
Hannes ráðherra var. Skipið hef-
ir bæði miðunarstöð og dýptar-
mæíir og enska lifrarbræðslu aft-
ur á. Hásetarúmið er bygt fyrir
enska skipshöfn, en hjá þeim
ensku eru hástetarúmin aðeins 2
kojuhæðir og lágt undir loft. En
hásetarúmið hefir verið fært aftur
um 2 skilrúm aftur í lestina og
eru þar þrjár kojuhæðir og er
skipshafnarrúmið ekki eins rúm-
gott og venja er til fyrir þau
skip, sem bygð hafa verið fyrir
okkur íslendinga. Aftur á móti
er herbergi yfirmanna, aftur í,
stórt og rúmgott og er h. u. b.
eins stórt og rúm hásetanna.
Borðsalurinn niðri er rúmgóður
og eldhúsið einnig. Skipið er með
bátapalli og á því tveir bátar,
stjórnpallurinn er stór og rúm-
góður og þar er loftskeytastöÖin.
Það óhapp vildi til þegar skip-
ið lagðist upp að, að á þvi var
of mikil ferð, rakst það á upp-
fyllinguna svo að plata sprakk í
Jxví við stefnið svo að skipið þarf
að líkindum að fara í slipp.
á einni hlnbknstund.
2. sýning á skíðakvikmynd í. R.
var í gærkvöldi. Á undan sýn-
ingunni flutti skíðakennarinn Ge-
org Tuvfesson erindi og fjallaði
það um svig (Slalom) uppruna
þess og útbreiðslu. Síðan út-
skýrði hann hvernig skyldi velja
sér skíði og hvernig ætti að fara
með þau, bera á þau og hvaða
áburð ætti að nota við hvaða
færi, hvernig ætti að setja þau
í beygjur (til geymslu) o. s. frv.
Hvernig stafi ætti að velja sér,
hvernig skíðabönd, hvernig skó
og yfirleitt allan útbúnað. Þarna
gat fólk fengið upplýsingar við
öllu sem lýtur að vali skíða og
skiðaútbúnaðar.
Síðan hófst sýning á skíða-
kvikmyndinni (kenslumyndum)
og var sýnd kensla sænskra her-
manna og þjálfun þeirra. Sýndu
þeir allskonar sveiflur og æfing-
ar og hvernig farið er yfir ýms-
ar torfærur. Þá var sýnd mynd
frá Storlien, einum þektasta skíða
stað Svía. Þar býr fólk á hóteli
(Frh. á 4. síðu.)
::
Villandi frásagnir blaða
Sjálfstæðisflokksins.
BLÖÐ SjálfstæSisflokksins, Vísir og Morgunblaðið, birta
í gær og í dag fregnir af afstöðu Alþýðuflokksins til
þriggja flokka stjórnar og ráðstafana til hjálpar sjávarút-
veginiun.
Það skal skýrt tekið fram, að frásagnir þessara blaða
eru rangar. Eins og slrýrt var frá hér í blaðinu í gær, hefir
Alþýðuflokkurinn enga afstöðu tekið til þessara mála enn
sem komið er.
Það er líklegt að allir fulltrúar í stjórn Alþýðusam-
bands íslands greiði atkvæði um þessi mál, og fer sú at-
kvæðagreiðsla fljótlega fram.
Það er því rangt að Alþýðuflokkurinn hafi tekið af-
stöðu í málinu, eins og þessi tvö blöð hafa þó Ieyft sér að
skýra frá. En svar hans kemur innan skamms.
Madrld
eftir 21
Mtil von um vðrn til lengdar i Valeueia,
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun.
jí ADRID gafst upp fyrri partinn í gær eftir tveggja og
hálfs árs frækilega vörn. Fréttin um það kom nokk-
uð óvænt, þótt alment væri ekki búisí við því, að borgin
gæti varist lengi úr þessu, eftir að Franco hafði flutt mikið
iið frá Kaíaloníu þangað og kommúnistar höfðu að meira
eða minna leyti leyst upp aga stjórnarhersins með uppreisn
sinni inni í borginni að baki vígstöðvunum.
Allir meðlimir varnarráðsins fóru frá Madrid í gær-
morgun til Valencia, að jafnaðarmanninum Julian Besteiro
undanskildum, sem hefir farið með utanríkismál lýðveldis-
stjórnarinnar í umboði þess, og var nú falið það erfiða og
þungbæra hlutverk að ganga frá samningum við Franco
um uppgjöf borgarinnar.
Eftir að hinir meðlimir vamarráðsins komu til Valen-
cia, héldu þeir fund þar í gærkveldi og er búist við, að
þess sé nú aðeins skamt að bíða, að allar borgimar á aust-
urströnd Spánar, sem enn eru á valdi stjórnarhersins, gefist
einnig upp fyrir Franco.
Fyrstu hersveitir Francos
fóru inn í háskólahverfi borg-
arinnar strax um hádegið í
gær. Skömmu síðar tóku þær út
varpsstöðina á sitt vald. Seinni
partinn var hver borgarhlutinn
tekinn af öðrum, eftir að hvít
flögg höfðu verið dregin að hún
á fjölda bygginga. Til vopna-
viðskifta virðist hvergi hafa
komið.
Það er búist við að Franco
haldi hátíðlega innreið í borg-
ina í dag.
Kvikasilfursbærhm 41-
maden eimln tekinn
af her Francos.
Hersveitir Francos, sem
sækja nú fram á Suður-Spáni,
bæði að norðan, frá Toledo, og
að sunnan, frá Cordoba, virðast
lítilli mótspyrnu mæta. f fyrra
dag náðu þær á sitt vald borg-
inni Almaden, þar sem auðug-
ustu kvikasilfursnámur Spán-
ar og alls heimsins eru, en sú
borg hefir verið í höndum
stjórnarhersins síðan borgara-
styrjöldin hyrjaði.
Fðonnðnr i Róm og Berlín
LONDON í morgun. FÚ.
Falli Madridbogar er tekið
með miklum fögnuði í Berlín
og Róm, og hefir Hitler sent
Franco símskeyti og óskað hon-
um til hamingju með þennan
ósigur bolsévismans.
Mussolini ávarpaði mikinn
mannfjölda, sem hafði safnast
saman utan við Feneyjahöllina
í gærkvöldi, og talaði hann
einnig um fall Madridborgar
sem mikinn ósigur fyrir bolsé-
vismann. Hann sagði, að her-
sveitir ítala hefðu barizt við
hlið hersveita Francos í síðustu
sigrunum, enda þótt tilkynning-
ar frá Burgos létu einskis getið
um hina mikilsverðu aðstoð ít-
ala.
Gullfoss
fer til útlanda annað kvöld.
þýzkir flagnmenn
fí kosningabarátt
nnni í Danmorku.
Frá fréttaritara Alþbl.
KHÖFN x morgun.
ÞAÐ hefir komið í Ijós,
að um 150 ungir
þýzkir nazistar, sem ný-
komnir eru af foringja-
skóla í Þýzkalandi, hafa
undanfarna daga hafst við
í bæjum á Suður-Jótlandi
innan við dönsku landa-
mærin og á ólöglegan hátt
tekið þar þátt í kosninga-
baráttunni með þýzka
minnihlutanum, límt upp
kosningamiða með áskor-
unum um að greiða at-
kvæði gegn Danmörku og
annað þess háttar.
Þremur af þessum flugu-
mönnum hefir nú verið
vísað úr landi af dórns-
málaráðuneytinnu.
ÞýzkaM hefir
í hótnnniD við
Póiiand.
firein i oplnberu mál-
gapi bjrzba utanrlkis-
fflálaráönneytisiffls.
LONDON í morgun. FÚ.
AÐEINS fáum klukkustund-
um eftir að Chamberlain
hafði í gær verið spurður í
neðri málstofu brezka þingsins
um hugsanlega aðstoð Bret-
lands og Pólland, ef á það yrði
ráðist næst, flutti hið opinbera
málgagn þýzka utanríkismála-
ráðuneytisins grein, þar sem
Pólland er mjög alvarlega var-
(Frh. á 4. síðu.)
Franco.
Klnkknnnf
verðnr flýtt
tlntt á alningi.
Taliá er að nægar meiri-
hlnti fáist með henni.
IZLUKKUNNI verður at)
líkindum flýtt. Finnur
Jónsson, Jóhann Þ. Jósefs-
son og Páll Zóphóníassois
flytja í sameinuðu þingi
þingsályktunartillögu um
flýta klukkunni um eina
klukkustund.
í lögum er þó heimild til
að flýta klukkunni um.1%
klst. Leggja flutningsmenn
til að klukkunni verði flýtt á
tímabilinu frá 2. sunnudagi í
apríl til 1. sunnudags í októ-
ber.
í greinargerð fyrir tillögtmnf.
segja flutningsmenn:
„Tillaga þessi er flutt í þvi
skyni, að gefa mönnum kost á
að njöta betur sólar heldur eia
(Frh. á 4. síðu.)
filæsilegt snndmót verðnr I
SunMlinni annað kvðld.
Til umdiriiúiBlngs þátttSkn
okkar á Olympfuleikunum
UNDMóT Olympíunefndar Is-
^ lands verður háð annað
kvöld kl. 8V2 í Sundhöllinni.
Kept verður í þrem sundunx:
50 ,m. frjálsri aðferð karla, 100
m. bringusundi kvenna og 100
m. bringusundi karla. Keppa
allir beztu sundmenn og sund-
konur bæjarins í þessum sund-
um.
4.uk pessara framantöldu
vegal. keppir Jónas Halldórs-
Json, sundkóngur, sérstaklega á
8G0 metrum við fjóra ágæta sund
menn — sem hver syndir 200
metra.
Auk kappsundanna fara fram
sýningar í tveim sundípróttunx,
sundknattleik og dýfingum. í
dýíingunum taka þátt bæði kon-
ur og karlar. — Hið bezta lið
í peirii skemtilegu íþrótt, sem hér
er völ á. Dýfingar hafa þó of
lííið verið iðkaðar hér, en eru þó
skemtilegastar allra sundíþrótta.
Sundknattleiksliðin eru úr kapp-
liðum Árnxanns og Ægis og allir
beztu menn þeirra félaga keppa;
rná áreiðanlega búast við skem'ti-
legum og fjörugum leik.
Olympíunefndin hefir efnt til
þessa móts í þeim tilgangi að
safna fé til undirbúnings vænt-
anlegrar þátttöku íslenzkra í-
þróttamanna á Olvmpíuleikun-
tum í Helsingfors. Nefndin
hefir von um, af undangengn-
um bréfaskriftum sínum við
framkvæmdanefnd leikanna, að
hægt verði að koma íslenzku
glímunni að seni sýningaratriði
á leikunum í þetta sinn — þrátt
fyrir mikil vandkvæði í þvi efni
— auk þess sem íslenzku íþrótta-
lífi er nauðsyn á þátttöku I slíku
alþjóðasamstarfi.
Olympíunefndin væntir þvi,
að allir, sem hlyntir eru iþrótt-
unx og iðkun þeirra, styðji mál-
efnið með þvi að sækja sund-
mót nefndarinnar á morgun. —
ÞlöOstjdra á
Eoglandi?
LONDON í morgun. FÚ.
TF^ RJÁTÍU OG FJÓRIR
. . .. stuðningsmenn
brezku stjórnariimar, þar
á meðal Anthony Eden,
Winston Churchill, Duíf
Cooper og aðrir kunnustu
menn úr stuðningsflokki
stjórnarinnar íhafa, sent
Chamberlain áskorun um
að hreyta ráðuneyti sínu
og mynda þjóðstjórn með
stuðningi allra flokka og
svo miklu trausti meðal
þjóðarinnar, að hún geti
fengið fult vald yfir iðnaði
landsins, auðlindum og
mannafla, til þess að geta
telft þessu öllu fram í bar-
áttunni gegn yfirgangi
einræðisríkjanna hvenær
sem þörf krefur.