Alþýðublaðið - 29.03.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 29.03.1939, Page 1
MTSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XX. ÁRGANGUR MIÐVIKUDAG 29. MARZ 1939 74. TÖLUBLAÐ Nýi togarinn, JÓN ÓLAFSSON, á höfninni í morgun. fl togariDO, Jðn ðlafsson, kom til Rvíknr i morgnn. HtNN nýji togari h.f. Alliance kom til Reykjavíkur kl. 10 í morgun og var honum fagnað af mjög miklum mannfjölda sem ■safnast hafði saman á hafnar- bakkahum. Var sjáanlegt hve glað ir Reykvíkingar verða þegar nýir togarar bætast við í flotann. Togarinn Jón Clafsson lagði af stað frá Englandi fyrir hádegi á laugardag og hefir því verið rétta 4 sólarhringa á leiðinni, enda gekk hann 12 sjómílur á vöku. Skipið lítur mjög vel út og er að mestu nýtízku skip, aðeins 5 ára gamalt. Það er 423 smálestir at, stærð, eða 22 smál. minna en Hannes ráðherra var. Skipið hef- ir bæði miðunarstöð og dýptar- mæíir og enska lifrarbræðslu aft- ur á. Hásetarúmið er bygt fyrir enska skipshöfn, en hjá þeim ensku eru hástetarúmin aðeins 2 kojuhæðir og lágt undir loft. En hásetarúmið hefir verið fært aftur um 2 skilrúm aftur í lestina og eru þar þrjár kojuhæðir og er skipshafnarrúmið ekki eins rúm- gott og venja er til fyrir þau skip, sem bygð hafa verið fyrir okkur íslendinga. Aftur á móti er herbergi yfirmanna, aftur í, stórt og rúmgott og er h. u. b. eins stórt og rúm hásetanna. Borðsalurinn niðri er rúmgóður og eldhúsið einnig. Skipið er með bátapalli og á því tveir bátar, stjórnpallurinn er stór og rúm- góður og þar er loftskeytastöÖin. Það óhapp vildi til þegar skip- ið lagðist upp að, að á þvi var of mikil ferð, rakst það á upp- fyllinguna svo að plata sprakk í Jxví við stefnið svo að skipið þarf að líkindum að fara í slipp. á einni hlnbknstund. 2. sýning á skíðakvikmynd í. R. var í gærkvöldi. Á undan sýn- ingunni flutti skíðakennarinn Ge- org Tuvfesson erindi og fjallaði það um svig (Slalom) uppruna þess og útbreiðslu. Síðan út- skýrði hann hvernig skyldi velja sér skíði og hvernig ætti að fara með þau, bera á þau og hvaða áburð ætti að nota við hvaða færi, hvernig ætti að setja þau í beygjur (til geymslu) o. s. frv. Hvernig stafi ætti að velja sér, hvernig skíðabönd, hvernig skó og yfirleitt allan útbúnað. Þarna gat fólk fengið upplýsingar við öllu sem lýtur að vali skíða og skiðaútbúnaðar. Síðan hófst sýning á skíða- kvikmyndinni (kenslumyndum) og var sýnd kensla sænskra her- manna og þjálfun þeirra. Sýndu þeir allskonar sveiflur og æfing- ar og hvernig farið er yfir ýms- ar torfærur. Þá var sýnd mynd frá Storlien, einum þektasta skíða stað Svía. Þar býr fólk á hóteli (Frh. á 4. síðu.) :: Villandi frásagnir blaða Sjálfstæðisflokksins. BLÖÐ SjálfstæSisflokksins, Vísir og Morgunblaðið, birta í gær og í dag fregnir af afstöðu Alþýðuflokksins til þriggja flokka stjórnar og ráðstafana til hjálpar sjávarút- veginiun. Það skal skýrt tekið fram, að frásagnir þessara blaða eru rangar. Eins og slrýrt var frá hér í blaðinu í gær, hefir Alþýðuflokkurinn enga afstöðu tekið til þessara mála enn sem komið er. Það er líklegt að allir fulltrúar í stjórn Alþýðusam- bands íslands greiði atkvæði um þessi mál, og fer sú at- kvæðagreiðsla fljótlega fram. Það er því rangt að Alþýðuflokkurinn hafi tekið af- stöðu í málinu, eins og þessi tvö blöð hafa þó Ieyft sér að skýra frá. En svar hans kemur innan skamms. Madrld eftir 21 Mtil von um vðrn til lengdar i Valeueia, Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun. jí ADRID gafst upp fyrri partinn í gær eftir tveggja og hálfs árs frækilega vörn. Fréttin um það kom nokk- uð óvænt, þótt alment væri ekki búisí við því, að borgin gæti varist lengi úr þessu, eftir að Franco hafði flutt mikið iið frá Kaíaloníu þangað og kommúnistar höfðu að meira eða minna leyti leyst upp aga stjórnarhersins með uppreisn sinni inni í borginni að baki vígstöðvunum. Allir meðlimir varnarráðsins fóru frá Madrid í gær- morgun til Valencia, að jafnaðarmanninum Julian Besteiro undanskildum, sem hefir farið með utanríkismál lýðveldis- stjórnarinnar í umboði þess, og var nú falið það erfiða og þungbæra hlutverk að ganga frá samningum við Franco um uppgjöf borgarinnar. Eftir að hinir meðlimir vamarráðsins komu til Valen- cia, héldu þeir fund þar í gærkveldi og er búist við, að þess sé nú aðeins skamt að bíða, að allar borgimar á aust- urströnd Spánar, sem enn eru á valdi stjórnarhersins, gefist einnig upp fyrir Franco. Fyrstu hersveitir Francos fóru inn í háskólahverfi borg- arinnar strax um hádegið í gær. Skömmu síðar tóku þær út varpsstöðina á sitt vald. Seinni partinn var hver borgarhlutinn tekinn af öðrum, eftir að hvít flögg höfðu verið dregin að hún á fjölda bygginga. Til vopna- viðskifta virðist hvergi hafa komið. Það er búist við að Franco haldi hátíðlega innreið í borg- ina í dag. Kvikasilfursbærhm 41- maden eimln tekinn af her Francos. Hersveitir Francos, sem sækja nú fram á Suður-Spáni, bæði að norðan, frá Toledo, og að sunnan, frá Cordoba, virðast lítilli mótspyrnu mæta. f fyrra dag náðu þær á sitt vald borg- inni Almaden, þar sem auðug- ustu kvikasilfursnámur Spán- ar og alls heimsins eru, en sú borg hefir verið í höndum stjórnarhersins síðan borgara- styrjöldin hyrjaði. Fðonnðnr i Róm og Berlín LONDON í morgun. FÚ. Falli Madridbogar er tekið með miklum fögnuði í Berlín og Róm, og hefir Hitler sent Franco símskeyti og óskað hon- um til hamingju með þennan ósigur bolsévismans. Mussolini ávarpaði mikinn mannfjölda, sem hafði safnast saman utan við Feneyjahöllina í gærkvöldi, og talaði hann einnig um fall Madridborgar sem mikinn ósigur fyrir bolsé- vismann. Hann sagði, að her- sveitir ítala hefðu barizt við hlið hersveita Francos í síðustu sigrunum, enda þótt tilkynning- ar frá Burgos létu einskis getið um hina mikilsverðu aðstoð ít- ala. Gullfoss fer til útlanda annað kvöld. þýzkir flagnmenn fí kosningabarátt nnni í Danmorku. Frá fréttaritara Alþbl. KHÖFN x morgun. ÞAÐ hefir komið í Ijós, að um 150 ungir þýzkir nazistar, sem ný- komnir eru af foringja- skóla í Þýzkalandi, hafa undanfarna daga hafst við í bæjum á Suður-Jótlandi innan við dönsku landa- mærin og á ólöglegan hátt tekið þar þátt í kosninga- baráttunni með þýzka minnihlutanum, límt upp kosningamiða með áskor- unum um að greiða at- kvæði gegn Danmörku og annað þess háttar. Þremur af þessum flugu- mönnum hefir nú verið vísað úr landi af dórns- málaráðuneytinnu. ÞýzkaM hefir í hótnnniD við Póiiand. firein i oplnberu mál- gapi bjrzba utanrlkis- fflálaráönneytisiffls. LONDON í morgun. FÚ. AÐEINS fáum klukkustund- um eftir að Chamberlain hafði í gær verið spurður í neðri málstofu brezka þingsins um hugsanlega aðstoð Bret- lands og Pólland, ef á það yrði ráðist næst, flutti hið opinbera málgagn þýzka utanríkismála- ráðuneytisins grein, þar sem Pólland er mjög alvarlega var- (Frh. á 4. síðu.) Franco. Klnkknnnf verðnr flýtt tlntt á alningi. Taliá er að nægar meiri- hlnti fáist með henni. IZLUKKUNNI verður at) líkindum flýtt. Finnur Jónsson, Jóhann Þ. Jósefs- son og Páll Zóphóníassois flytja í sameinuðu þingi þingsályktunartillögu um flýta klukkunni um eina klukkustund. í lögum er þó heimild til að flýta klukkunni um.1% klst. Leggja flutningsmenn til að klukkunni verði flýtt á tímabilinu frá 2. sunnudagi í apríl til 1. sunnudags í októ- ber. í greinargerð fyrir tillögtmnf. segja flutningsmenn: „Tillaga þessi er flutt í þvi skyni, að gefa mönnum kost á að njöta betur sólar heldur eia (Frh. á 4. síðu.) filæsilegt snndmót verðnr I SunMlinni annað kvðld. Til umdiriiúiBlngs þátttSkn okkar á Olympfuleikunum UNDMóT Olympíunefndar Is- ^ lands verður háð annað kvöld kl. 8V2 í Sundhöllinni. Kept verður í þrem sundunx: 50 ,m. frjálsri aðferð karla, 100 m. bringusundi kvenna og 100 m. bringusundi karla. Keppa allir beztu sundmenn og sund- konur bæjarins í þessum sund- um. 4.uk pessara framantöldu vegal. keppir Jónas Halldórs- Json, sundkóngur, sérstaklega á 8G0 metrum við fjóra ágæta sund menn — sem hver syndir 200 metra. Auk kappsundanna fara fram sýningar í tveim sundípróttunx, sundknattleik og dýfingum. í dýíingunum taka þátt bæði kon- ur og karlar. — Hið bezta lið í peirii skemtilegu íþrótt, sem hér er völ á. Dýfingar hafa þó of lííið verið iðkaðar hér, en eru þó skemtilegastar allra sundíþrótta. Sundknattleiksliðin eru úr kapp- liðum Árnxanns og Ægis og allir beztu menn þeirra félaga keppa; rná áreiðanlega búast við skem'ti- legum og fjörugum leik. Olympíunefndin hefir efnt til þessa móts í þeim tilgangi að safna fé til undirbúnings vænt- anlegrar þátttöku íslenzkra í- þróttamanna á Olvmpíuleikun- tum í Helsingfors. Nefndin hefir von um, af undangengn- um bréfaskriftum sínum við framkvæmdanefnd leikanna, að hægt verði að koma íslenzku glímunni að seni sýningaratriði á leikunum í þetta sinn — þrátt fyrir mikil vandkvæði í þvi efni — auk þess sem íslenzku íþrótta- lífi er nauðsyn á þátttöku I slíku alþjóðasamstarfi. Olympíunefndin væntir þvi, að allir, sem hlyntir eru iþrótt- unx og iðkun þeirra, styðji mál- efnið með þvi að sækja sund- mót nefndarinnar á morgun. — ÞlöOstjdra á Eoglandi? LONDON í morgun. FÚ. TF^ RJÁTÍU OG FJÓRIR . . .. stuðningsmenn brezku stjórnariimar, þar á meðal Anthony Eden, Winston Churchill, Duíf Cooper og aðrir kunnustu menn úr stuðningsflokki stjórnarinnar íhafa, sent Chamberlain áskorun um að hreyta ráðuneyti sínu og mynda þjóðstjórn með stuðningi allra flokka og svo miklu trausti meðal þjóðarinnar, að hún geti fengið fult vald yfir iðnaði landsins, auðlindum og mannafla, til þess að geta telft þessu öllu fram í bar- áttunni gegn yfirgangi einræðisríkjanna hvenær sem þörf krefur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.