Haukur - 30.05.1900, Qupperneq 3

Haukur - 30.05.1900, Qupperneq 3
m. 4—6. HAUKUR. 15 Flestir imynduðu sjer, að þau Magneta hefðu verið höin að koma sjer saman um þetta fyrirfram. En þetta, að Magneta skyldi hverfa inn 1 tunglið, var með öllu óskiljanlegt, og vakti b»ði athygli og undr- Un. Tungliö rann áfram eftir braut sinni, en það skilaöi Magnetu ekki aftur. Hvernig gat þessuverið varið, ef það var eintómur leikur? Allir þeir, sem voru tiðir gestir i veitingasal Magnetuleikhússins gátu horið um þaö, að engir samningar höfðu átt sjerstað milli ívans og töframærinnar. Hvernig gat Magneta horfiö inn i tunglið? Úr hverju var þetta tungl, sem skein svona bjart og fagurt á næturhimninum? Ef það var ór gleri, þá hlyti að hafa mátt sjá Magnetu i gegnum það, þegar hún hvarf. Eða var tunglið holt innan, og nægilega stórt til þess, að Magneta gæti rúmazt innan i því, þegar hún hafði dregið sig svona saman í kuðung? Hvers konar afi var það, sem hafði dregið hana hserra og hærra upp i loftið, látið hana snúast um möndul sinn, og renna braut sina kringum tunglið? Allar þessar spurningar vöknuðu í einu í hugum áhorfendanna, og hin siðasta var aðalatriðið. Hvað orðið hafði af ívan uppi á milli skýjanna, það var einnig eftir að vita. En þaö var ekki aðalatriðið hjá neinum, nema sessunaut hans, auömanninum frá Síberíu. Og hann hafði fulla einurð á, að apyrjast fyrir um það. »Heyrið þjer, fyrirlesari góður«, mælti hann. »Jeg vildi gjarnan fá upplýsingar um það, hvað orð- lð er af ívan fursta*. »Ja, jeg segi sama. Jeg vildi gjarnan fá vitneskju hm það«, svaraði fyrirlesarinn, og dró inn á sjónar- sviðið stóreflis stjörnukíki með hjólum undir, sem ein mitt var ætlaður til notkunar við slík tækifæri sem þessi. Hann beindi kíkinum niður í geiminn, horfði 4 hann, og mælti: •Verið þið nú rólegir, og haflð þið hljótt um ykkur. Jeg hefi þegar komið auga á hann. Hann er á leið til jarðarinnar. En sú flugferð á manninum. Ja, það er enginn smáræðis vegur frá tunglinu til jaröarinnar. Þiö getiö vist ekki, háttvirtu áhorfendur, íizkað á það, hver afdrif hans verða? Það getur ®vo margt komið fyrir. Ef hann teygir ávallt svona hr sjer, og lætur höfuðið ganga á undan, þá heldur hann þessari stefnu þverbeint niður til jarðarinnar, °g þá kemur hann niður á heimsskautið, og stingst á höfuðið langa leiö ofan í isinn. En dragi hann sig i kút eða beygi sig á enhvern hátt, þá breytir hann Þegar stefnunni, og þá nær slöngviaflið tökum á hon- óm, og sveiflar honum kringum jörðina eins og tunglinu. »En hamingjan hjálpi okkur! Þá verður hann 8jálfs»gt á endanum að plánetu«. »Ekki beinlinis það, en hann verður að viga- hnetti eða stjörnuhrapi. Þegar hann nær lofthvolfl Jarðarinnar, þá kviknar í honum eins og hverju öðru ®tjörnuhrapi af núningnum við loftið, með því að fa.ll- hraðinn er svo afskaplega mikill, fjórar mílur á hverri ®okúndu. Hann veröur á svipstundu glóandi, og rennur saman i myndlausan köggul. Og þegar hann ®vo kemur niður einhvers staöar í Amerlku, og nátt hrufræöingamir fara áð ransaka hann og liða hann 8hndur, þá skilja þelr ekkert í því, hvernið staðið getur á gullúri í loftsteini. Þaö hafði legið við sjálft, að kvennfólkið liði í ^megin, þegar verið var að tala um íkviknun af sjálfu sjer, en nú tók það að hjæja, þegar minnztvar á gullúrið. »Jeg vil mælast til þess, kæru frúr og meyjar, að þiö hvorki hlæið hátt nje látið líða yflr ykkur. Það getur enn þá verið um einn veg að ræða, og, eftir því sem jeg bezt fæ sjeð, ætlar það að verða ofan á, en það er að þakka mjög einkennilegu náttúrufyrirbrigði. Eins og öllum er ljóst, eru norð- urljósin ekki annað en segulstraumar frá heimsskaut- inu, sem stundum komast langt áleiðis upp að tungl- inu. Þegar norðurljósin eru mjög mikil og björt, draga þau nokkuð af gufuhvolfl jarðarinnar til sin, og breyta því í siy'ósky. Mú sje jeg einmitt þessa þjettu snjóskýjabólstra koma svifandi með ómælilegum hraða beint hingað upp. Eitt skýið heflr þegar náð i furstann, sem var að hrapa, og flytur hann nú með sjer, svo að hann er bráöum væntanlegur aftur. En nú verð jeg aö biðja hina háttvirtu herra og frúr, að þenja út regnhlifarnar, þvi að við fáum óefaö okkar skerf af kafaldinu, þegar það kemur*. Fyrirlesarinn hafði haft nokkuð til síns máls, því að fáum sekúndum siðar gaus óttaleg kafaldshrið upp frá sjónarsviðinu, svo aö jafnvel áhorfendasviðiö varð fullt af snjóflyksum, sem reyndar, þegar betur var að gætt, var alls ekki snjór, heldur smágerður, hvitur gæsadúnn. Allar regnhlífar voru þandar út. Allt ætlaði að komast i uppnám i salnum. Kvenn- fólkiö hló, og karlmennirnir bölvuðu, og þegar hríð- inni loksins slotaði og allir tóku að dusta af sjer dúninn, sem lá eins og fannhjúpur yflr regnhlífunum og yfirhöfnunum, þá varð öllum mjög starsýnt á ein- hverja ókennilega vofu, sem nú var komin i sæti ívans fursta. Það var ívan fursti sjálfur, en hann var illa á sig kominn. Það sást hvergi i hann f'yrir dúni. Himinblái ullarfrakkinn, hrokkna negrahárið, skeggið og augabrúnirnar, allt var það hvítt og alþakið dúni. Hann var alveg eins og snjókerling, vesalings mað- urinn. Já, þannig fer fyrir þeim, sem ætla sjer að stökkva upp í skýin. Þegar svo var orðið dimmt á sjónarsviðinu, en bjart meðal áhorfendanna, þá tóku allir að hlæja, fyrst að sjálfum sjer, síðan að sessunautum sínum, en þó mest að ívani fursta, enda var hann reglulega hlægilegnr. Hann ætlaði aldrei að geta áttað sig og náð sjer aftur, en hnerraði og hóstaði f sffeilu. Bæði nasir hans og munnur höf'ðu eðiiiega fengið sinn hiuta af þessum himnadúni. Þannig hefndi Magneta sín. Annars hljóta allir að játa, að þessu töfrabragði var meistaralega af sjer vikið„ogj hlýtur að/hafa jþurft æði mikinn og margbrotinn útbúnað til þess að fram- kvæma það. En hið eina, sem áhorfendurnirgjhöfðu heim meö sjer frá þessari furðulegu sýningu, var dúnn sá, sem enn þá sat eftir á fötum þeirra.| Hver hafði nú eiginlega verið tilgangur ívans fursta, og hver var árangurinn af þessu flani hans? * J|C % Jeg verð að biðja lesandann að hafa þolinmæði, og lesa þessa sönnu frásögu til enda. Ráðningin mun að sjálfsögðu koma á sínum tíma. (Meira.) Maður, sem hyggur á ,hefndir, heldur sárum sfnum opnum, sem að öðrum kosti myndu læknast og gróa. Meðlætið er ekki án afkeims og kviða. Mótlætið ekki án huggunar og vonar.

x

Haukur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Haukur
https://timarit.is/publication/48

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.